Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 71
AUÐLESIÐ EFNI MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 71 BÓNDINN á bændum Bakka í Ólafsfirði fórst þegar stórt snjóflóð úr fjallinu Bakkahyrnu féll á bæinn síðdegis á þriðjudag, en hinn látni fannst á fimmtudagsmorgun. Talið er að snjóflóðið hafi fallið á milli klukkan 16 og 20 á þriðjudag og sópaðist íbúðarhúsið á Bakka af grunninum. Ekkert stendur eftir nema suðurgafl hússins. Jón Konráðsson lögregluvarðstjóri sagði að snjóflóðið hefði verið mjög stórt. „Flóðið kom niður gilið og var gríðarstórt, um 250 til 350 metra breitt og allt að þrír metrar á dýpt. Aðkoman var hræðileg,“ sagði Jón. Davíð Oddsson, forsætisráðherra hefur skipað rannóknarnefnd til að rannsaka orsakir og afleiðingar snjóflóðsins. Bóndi fórst í snjóflóði Morgunblaðið/Kristján Rúnar Kristinsson og Ragnar Björnsson vélsleðamenn úr Ólafsfirði skoða verksummerki á bænum Bakka eftir snjóflóðið. ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik karla vann Dani, 33:28, í fjögurra þjóða móti í Farum, norðan Kaupmannahafnar á fimmtudagskvöldið. Sigur íslenska liðsins var afar sannfærandi þar sem það fór hreinlega á kostum í síðari hálfleik, eftir að Danir höfðu verið einu marki yfir í hálfleik, 18:17. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka var forysta Íslendinga átta mörk og sá munur hélst allt til þrjár mínútur voru til leiksloka en á síðustu mínútunum tókst Dönum aðeins að saxa á forskot Íslendinga. Vörn íslenska liðsins og góð frammistaða Reynis Þórs Reynissonar markvarðar lagði grunninn að sigrinum, Dönum gekk illa að finna leiðir gegnum íslenska varnarvegginn. Ólafur Stefánsson skoraði 9 mörk í leiknum, þar af fjögur úr vítakasti. Guðjón Valur Sigurðsson 6, Sigfús Sigurðsson 5 og Snorri Steinn Guðjónsson 4 svo markahæstu manna sé getið. Íslenska landsliðið dvelur í Danmörku við æfingar fram á þriðjudag en þá heldur það áfram til Slóveníu þar sem það tekur þátt í Evrópukeppninni. Hún hefst á fimmtudaginn og strax í fyrsta leik mæta Íslendingar heimamönnum í bænum Celje. Þar á eftir taka við leikir gegn Ungverjum á föstudag og á móti Tékkum á sunnudag. Öruggur sigur á Dönum FÆREYSKA tónlistarkonan Eivør Pálsdóttir, söngkonan Ragnheiður Gröndal og Tómar R. Einarsson bassaleikari hlutu tvenn verðlaun hvert er Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent við athöfn í Þjóðleikshúsinu á miðvikudagskvöld. Hljómsveitin Mínus hlaut verðlaun fyrir hljómplötu ársins og einnig útrásarverðlaun Loftbrúarinnar. Þeir sem tóku þátt í netkosningu á mbl.is völdu Birgittu Haukdal sem Poppstjörnu ársins og sérstök heiðursverðlaun hinna Íslensku tónlistarverðlauna hlaut Jórunn Viðar tónskáld. Eivør Pálsdóttir var valin söngkona og flytjandi ársins. Ragnheiður Gröndal var valin bjartasta vonin og söng lag ársins „Ást“ eftir Magnús Þór Sigmundsson við ljóð Sigurðar Nordal og Tómas R. Einarsson fékk verðlaun í djassflokki fyrir bestu plötuna Havana og besta djasslag ársins „Bros“. Morgunblaðið/Árni Torfason Sigurinn kom Eivøru Pálsdóttur greinilega í opna skjöldu. Eivør Pálsdóttir söngkona ársins Íslensku tónlistarverðlaunin 2003 VAGNINN Spirit lagði á fimmtudag af stað í ferð um reikistjörnuna Mars. Var það í fyrsta skipti sem Spirit hreyfði sig úr stað frá því hann lenti á stjörnunni fyrir tíu dögum. Starfsmenn bandarísku geimferðastofnunarinnar (NASA) fögnuðu mjög, þegar staðfesting barst um að vagninn hefði komist frá lendingarpallinum og væri lagður af stað. Svarthvítar myndir frá Spirit sýndu tvö öftustu hjól vagnsins og hjólför sem lágu í átt að lendingarpallinum. „Þetta er mikill léttir. Við erum á Mars. Spirit er lentur,“ sagði Rob Manning, sem stýrir leiðangrinum. Marsvagninn mun taka jarðvegssýni og greina þau með það í huga að leita eftir ummerkjum um vatn. George W. Bush Bandaríkjaforseti kynnti einnig í vikunni nýja og metnaðarfulla geimferðaáætlun. Hún gerir ráð fyrir að geimfarar verði sendir til bæði tunglsins og Mars og hugsanlegt er að sérstök geimstöð verði byggð á tunglinu. Marsvagninn lagður af stað Reuters Starfsfólk NASA fagnar þeim fréttum að Spirit væri lagður af stað um Mars.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.