Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Smáauglýsingar á mbl.is Nú getur þú bæði pantað smáauglýsingu til birtingar á mbl.is eingöngu og einnig fengið auglýsinguna birta á smáauglýsingasíðum Morgunblaðsins. Smáauglýsingar á mbl.is, vinsælasta vefsvæði landsins, með yfir 150.000 gesti á viku. Frítt til 1. mars. Smáauglýsing sem eingöngu er birt á mbl.is vefnum er ókeypis til 1. febrúar. Innifalið er 160 stafa auglýsing með mynd og birting í einn dag. Forsíða Viðskipti Atvinna Fólkið Smáauglýsingar Laugardagur | 18. janúar | 2003 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M BL 2 31 51 0 1/ 04 Okkur er borgið, mr. Bush, ég er búinn að redda öllu nema þessu sinneps-drulli. Árleg viðurkenning Hagþenkis Vönduð fræði- rit verðlaunuð Hagþenkir, sem erfélag höfundafræðirita og kennslugagna, er með ár- lega viðurkenningu á vel unnu verki í Þjóðarbók- hlöðunni næstkomandi mánudag. Morgunblaðið ræddi við Jón Yngva Jó- hannsson, sem er í for- svari fyrir Hagþenki vegna þessa stóra dags, og lagði fyrir hann nokkr- ar spurningar. – Segðu okkur fyrst eitthvað frá Hag- þenki … hvað er það og hvert er hlutverk þess? „Hagþenkir er félag höfunda fræðirita og kennslugagna. Fé- lagsmenn koma víðsvegar að, bæði úr heimi vísinda og fræða og frá öllum stigum skólakerfisins. Í Hagþenki sam- einast þeir um eitt hagsmuna- mál: þeir eiga allir höfundarrétt að verja. Hagþenkir er fyrst og fremst hagsmunafélag sem berst fyrir því að höfundarréttur sé virtur og að höfundar fræðirita og kennslugagna fái sanngjarna umbun fyrir sín verk. Félagið veitir m.a. styrki til ritstarfa og ferða og menntunarstyrki. Við eigum líka mikið og gott samtök við önnur hagsmunafélög rétt- hafa, bæði hér á landi og á hin- um Norðurlöndunum.“ – Segðu okkur eitthvað frá þessari árlegu viðurkenningu Hagþenkis, tildröum hennar, sögu hennar og tilgangi … „Viðurkenning Hagþenkis var fyrst veitt árið 1986 og hefur verið veitt árlega síðan. Tilgang- urinn er fyrst og fremst sá að vekja athygli á markverðu fram- lagi til fræðanna og þar með á því geysimikla og frumlega starfi sem unnið er af fræðimönnum og höfundum kennsluefnis. Þetta er hluti af því markmiði félagsins að beina kastljósinu að fræðirit- um og kennsluefni hvers konar sem hluta af íslenskri menningu. Ótrúlega stór hluti bókaútgáfu á Íslandi og vaxandi hluti þeirra bóka sem fólk les, bæði í mennt- unarskyni og sér til ánægju eru vönduð fræðirit. Við viljum vekja athygli á framúrskarandi höf- undum þessara rita og gera veg þeirra sem mestan.“ – Á hvað er helst lögð áhersla þegar verk er útnefnt til við- urkenningar? „Hagþenkir skipar sérstakt viðurkenningarráð sem er skipað fimm félagsmönnum sem allir eru virtir sérfræðingar á sínu sviði. Öll fræðirit sem koma út á Íslandi koma til greina ásamt margs konar öðru fræðilegu starfi sem kannski er ekki jafn sýnilegt almenningi, t.d. náms- efnisgerð. Viðurkenninguna má bæði veita fyrir eitt afmarkað verk og fyrir framlag á lengri tíma. Það er þannig stór munur á þessari viðurkenningu og t.d. Íslensku bókmenntaverðlaunun- um, hjá okkur koma allir til greina, það þarf ekki að leggja verkin sérstaklega fram og menn þurfa ekki að vera fé- lagsmenn í Hag- þenki.“ – Hverjir hafa hlotið viður- kenninguna til þessa? „Verðlaunahafarnir hafa kom- ið úr mörgum áttum, þeir koma af flestum fræðasviðum og starfa víða í samfélaginu. Í fyrra hlaut Jón Hilmar Jónsson orðabókar- ritstjóri viðurkenninguna fyrir stórvirkið Orðaheim sem er ómetanlegt hjálpargagn fyrir alla þá sem þurfa að senda frá sér ritað mál. Á meðal verð- launahafa undanfarinna ára eru Guðmundur Páll Ólafsson nátt- úrufræðingur, Sigurður Pálsson guðfræðingur og Iðunn Steins- dóttir rithöfundur sem hlutu verðlaunin fyrir frumlegt og um- fangsmikið námsefni í trúar- bragðafræði og Hallgerður Gísladóttir og Nanna Rögnvald- ardóttir sem hlutu verðlaunin ár- ið 2000 fyrir sín frábæru rit um þjóðlega og alþjóðlega matar- gerð.“ – Hver vinnur þetta árið? „Það kemur í ljós á morgun klukkan 17.00 þegar verðlaunin verða afhent í Þjóðarbókhlöð- unni. En ég get lofað því að þessi afhending mun vekja nokkra athygli en sennilega litl- ar deilur. Verðlaunahafinn er mjög vel að viðurkenningunni kominn.“ – Er vegur verðlaunanna vax- andi og þykir höfundum sér mik- ill sómi sýndur? „Vegur viðurkenningarinnar hefur farið vaxandi jafnt og þétt þótt við viljum að sjálfsögðu gera hann enn meiri. Þetta eru verðlaun sem ég held að fræði- mönnum sé mikill sómi að því að fá. Þau eru veitt algerlega á faglegum forsendum, markaðurinn eða bók- sala hefur engin áhrif á veitingu þeirra. Þá má ekki gleyma því að þetta eru mjög vegleg verðlaun. Í ár hefur upphæð viðurkenning- arinnar verið hækkuð í 750.000. Hún er nú jafnhá þeirri upphæð sem Félag íslenskra bókaútgef- enda veitir til Íslensku bók- menntaverðlaunanna í hvorum flokki fyrir sig. Jón Yngvi Jóhannsson  Jón Yngvi Jóhannsson er fæddur árið 1972. Lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði og íslensku frá HÍ árið 1995 og MA- prófi í íslenskum bókmenntum frá sama skóla 1998. Hefur und- anfarin ár starfað sem bók- menntagagnrýnandi í blöðum og sjónvarpi og stundakennari við HÍ auk þess sem hann vinnur að ritun doktorsritgerðar um Gunn- ar Gunnarsson og aðra dansk- íslenska höfunda. Hefur verið framkvæmdastjóri Hagþenkis frá því síðastliðið haust. Eiginkona er Sigþrúður Gunnarsdóttir, ritstjóri barna- bóka hjá Máli og menningu. Þau eiga þrjár dætur, Valgerði (f. 1993), Silju (f. 1998) og Steinunni (f. 1999). … má ekki gleyma því að þetta eru mjög vegleg verðlaun. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.