Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 50
MINNINGAR 50 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, FRIÐRIK INGÓLFSSON, Laugarhvammi, Tungusveit, lést á Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga sunnu- daginn 11. janúar síðastliðinn. Hann verður jarðsunginn frá Reykjakirkju þriðjudaginn 20. janúar kl. 14.00. Sigríður Magnúsdóttir, Erling Jóhannesson, Hulda Garðarsdóttir, Helgi Friðriksson, Sigríður Viggósdóttir, Sigurður Friðriksson, Klara Jónsdóttir, Jónína Friðriksdóttir, Stefán Sigurðsson, Sólveig Friðriksdóttir, Kolbeinn Erlendsson, Rúnar Friðriksson, afabörn og langafabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ÞORSTEINS GÍSLASONAR málarameistara og fyrrv. kaupmanns, Miðleiti 7, Reykjavík. Elín Sigurðardóttir, Steinunn Þorsteinsdóttir, Geir R. Gíslason, Kristín Þorsteinsdóttir, Þórður R. Jónsson, Sigríður Þorsteinsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Ágúst Haraldsson og afabörnin. Bróðir okkar, JÓHANNES SKÚLASON, Lönguhlíð 3, Reykjavík, sem andaðist mánudaginn 12. janúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 19. janúar kl. 15.00. Skúli Skúlason, Kristveig Skúladóttir, Þorkell Skúlason, Þorsteinn Skúlason. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR INGI GUÐJÓNSSON, Vesturbergi 39, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 15. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Árnadóttir, Árni Guðni Einarsson, Rannveig María Jóhannesdóttir, Böðvar Einarsson, Guðbjörg Halldórsdóttir, Ellert Valur Einarsson, Þórunn Alfreðsdóttir, Guðjón Magni Einarsson, Sif Guðmundsdóttir, Hjördís Einarsdóttir, Ólafur Bjarnason, Elín Einarsdóttir Jóhann Helgason, Jón Páll Einarsson, Tina Jepsen, barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur unnusti minn, sonur okkar og bróðir, HALLMAR ÓSKARSSON, Engjaseli 61 og Efstahjalla 21, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánu- daginn 12. janúar sl., verður jarðsunginn frá Seljakirkju mánudaginn 19. janúar kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hans, láti Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík (ÍFR) njóta þess. Marta Guðmundsdóttir, Hallbjörg Thorarensen, Óskar Elvar Guðjónsson, Þórir Óskarsson, María Óskarsdóttir. AFMÆLIS- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á út- farardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Þar sem pláss er takmark- að getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Frágangur afmælis- og minningargreina ✝ Óskar Andrifæddist á Ísafirði hinn 5. október 1979. Hann lést af slysförum laugar- daginn 10. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans eru Sig- rún Jónsdóttir, f. 4.12. 1950, og Sig- mundur Gunnars- son, f. 11.6. 1949. Systkini Óskars sammæðra eru: 1) Jónína Eyja Þórðar- dóttir, f. 15.5. 1968. Hún á fjögur börn og er maður hennar Björn Björns- son. 2) Jón Árni Þórðarson, f. 9.10. 1969. Hann á eitt fósturbarn ir. 7) Ómar Örn Sigmundsson, f. 23.6. 1986. 8) Aldís Eik Sigmunds- dóttir, f. 17.9. 1993. Bróðir Óskars samfeðra er Róbert Rúnar Sig- mundsson, f. 7.7. 1971. Kona hans er Guðrún Baldursdóttir og eiga þau tvö börn. Sambýliskona Ósk- ars er Hulda Birna Albertsdóttir, f. 11.11. 1982. Foreldrar hennar eru Albert Guðmundsson og Þór- hildur Björnsdóttir. Óskar ólst upp á Ísafirði og lauk grunnskólaprófi frá grunnskólan- um á Ísafirði vorið 1995. Eftir skólann stundaði hann sjó- mennsku og var meira og minna á sjónum næstu átta árin. Hann flutti svo til Reykjavíkur haustið 2001 og starfaði hjá Tækniþjón- ustu bifreiða í Hafnarfirði síðustu mánuði. Haustið 1999 hóf Óskar Andri samband með unnustu sinni, Huldu Birnu, og bjuggu þau saman þegar hann lést. Útför Óskars fór fram frá Ísa- fjarðarkirju 17. janúar. og kona hans er Þór- dís Ósk Jóhannsdótt- ir. 3) Vilborg Ása Bjarnadóttir, f. 10.7. 1971. Maður hennar er Valur Sæþór Val- geirsson. Þau eiga þrjú börn. 4) Bjarni Freyr Guðmundsson, f. 6.6. 1973. Kona hans er Ásta Tryggvadóttir og eiga þau tvö börn. 5) Bergmann Þór Krist- jánsson, f. 25.6. 1976. Unnusta hans er Þóra Einarsdóttir og eiga þau eitt barn. 6) Sindri Már Sig- rúnarson, f. 23.9. 1984. Unnusta hans er Sólný Lísa Jórunnardótt- Elsku hjartans Óskar minn. Það er sárt að reyna að trúa því að þú sért farinn burt úr þessum heimi. Þú varst nýbúinn að vera í heim- sókn hjá mér og færðir mér svo fallega gjöf. Og Hulda þín kom með þér og þið voruð svo glöð þeg- ar þið sögðuð mér að þið ættuð von á barni og þú sagðir að það væri örugglega lítill Óskar. Svo kysstirðu mig bless og tókst utan um mig og mér var síst í huga að þetta væri í síðasta sinn sem væri að kveðja þig, elsku vinurinn minn. En ég er þakklát fyrir að hafa fengið að eiga svona góða stund með þér áður en þú kvaddir þetta líf. Elsku Óskar minn, amma man svo vel eftir yndislegu stundunum þegar þú varst lítill, ljóshærður snáði og komst í heimsókn og fékkst kaffi í teskeið hjá mér. Þér fannst það nefnilega svo gott. Svo þegar þú stækkaðir varstu alltaf svo góður við ömmu, þú varst líka ömmustrákurinn minn. Ég kveð þig nú að sinni, engillinn minn, og geymi allar minningarnar um þig í hjarta mínu. Ég bið guð að styrkja elsku dóttur mína, Huldu, og öll systkini þín og leiða þau í sorginni. Guð geymi þig. Þín, Inga amma. Elsku Óskar minn. Ég veit ekki hvar ég á að byrja þessi skrif. Það er erfiður tími framundan hjá okk- ur öllum í fjölskyldunni því þú varst okkur svo mikið og nú ertu farinn frá okkur. Þú áttir svo ynd- islega kærustu og varst svo ást- fanginn og öllum fannst þið svo sæt saman. Þú varst að verða pabbi og hlakkaðir svo til og það er svo sárt að þið fenguð ekki að upplifa það saman. Ég á svo ótal margar minningar um þig, eins og þegar við hittumst stundum þegar við vorum að skemmta okkur á Ísafirði. Það var alltaf svo mikið fjör í kringum þig og þið strák- arnir alltaf að bralla eitthvað skemmtilegt eins og til dæmis þeg- ar þú og Ebbi snoðuðuð ykkur og voruð með bara einn lokk sem stóð út í loftið. Þinn lokkur var blár og Ebba lokkur grænn ef mig minnir rétt. Þú áttir marga og góða vini sem stóðu við hlið þér, sama hvað á bjátaði, og það kemur best í ljós núna. Ég man þegar þú lentir í bíl- slysinu í Dýrafirði og hálsbrotn- aðir og mér fannst svo erfitt að sjá þér líða illa. En þú jafnaðir þig og varst svo sterkur og duglegur. Ég man líka þegar þú bjóst í Suð- urtanganum og þú áttir herbergi frammi á gangi og en hvað mér fannst gaman að stríða þér og vin- um þínum, Óskar minn. Ég, Ómar og Sindri vorum þá alltaf að kíkja í skráargatið og bönkuðum á hurð- ina og hlupum svo í burtu, enda bara litlir krakkar að prakkarast í þér, sem okkur fannst orðinn svo stór og fullorðinn. Það voru alltaf svo margir í heimsókn hjá þér enda varstu svo skemmtilegur kar- akter og það þykir svo mörgum vænt um þig. Ég veit að þú verður hér hjá okkur öllum og í hjörtum okkar, elsku Óskar minn. Mundu mig og ég man þig. Ég elska þig. Þín frænka, Sólrún Ósk. Það er komið að kveðjustund. Í dag kveðjum við Óskar Andra, ungan dreng með stórt hjarta og í blóma lífsins. Manni er brugðið og er sorgmæddur því höggvið hefur verið stórt skarð í stóran systk- inahóp. Við kunnum ekki alltaf skýringar á hlutunum en við vitum að þú ert í góðum höndum og munt fylgjast með úr fjarlægð en samt mjög nálægur. Þú munt vera í hjarta okkar sem munum eftir þér frá því þú varst lítill prakkari til dagsins sem þú kvaddir þennan heim. Elsku Sigrún og fjölskylda, okk- ar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erfiða tíma. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pét.) Hannes, Sigríður, Hólmfríður, Kristján, Bjarki Þór og Ásgeir. Ég fékk þær hörmulegu fréttir á mánudaginn að Óskar væri farinn yfir móðuna miklu. Þegar ég kynntist Óskari, kynntist ég mjög tryggum vini. Ég á margar góðar minningar um Óskar og reyndist hann yndislegur maður. Hann ljómaði allur þegar hann talaði um fjölskyldu sína, og maður sá hvað hann elskaði hana mikið. Og hvað hann var ánægður þegar ég óskaði honum til hamingju með að verða pabbi með unnustu sinni, sem hann elskaði svo heitt. Ég vil nota þetta tækifæri og kveðja góðan og yndislegan vin. Um ókomna fram- tíð munum við ungir sem aldnir er kynntumst Óskari, verma okkur við þá kærleikselda sem hann kveikti í heimi, sem oft er harður og sljór. Þá bið ég góðan Guð að styrkja fjölskyldu hans og vini á þessum erfiða tíma. Agnes. Elsku Óskar Andri. Við viljum kveðja okkar ástkæra vin sem kvaddi okkur mjög skyndilega. Margar eru minningarnar um þig, heimilið þitt var eins okkar heimili, mamma þín tók okkur eins og son- um sínum, við vorum ávallt vel- komnir á þitt heimili. Manni líður alltaf vel á því heimili sem maður er velkominn á. Allt sem okkur vinunum datt í hug var gert strax. Það þótti ekki tiltökumál að keyra nokkur hundruð kílómetra á ball. Oft var bras á leiðinni, bilandi bílar og annað, alltaf var hlegið yf- ir því og því reddað um hæl, enda leið þér best í einhverjum viðgerð- um. Þú varst vinur vina þinna, enda varstu vinamargur. Alltaf varstu tilbúinn að aðstoða vini þína, það var hægt að hringja og þú varst kominn strax. Það er erfitt að kveðja þig, kæri vinur, og tilfinningar fara ekki svo auðveldlega á blað. En við vitum að minning þín mun líta dagsins ljós, og við hlökkum til að sjá barnið ykkar Huldu, hennar sem stóð þér næst. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu góðu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Við biðjum guð að vera með þér. Elsku Hulda, Sigrún og aðrir aðstandendur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Agnar Ebeneser Agnarsson, Albert Þór Jónsson, Jósef Matthías Jökulsson, Haraldur Hjálmarsson, Pétur Áskell Svavarsson og fjölskyldur. ÓSKAR ANDRI SIGMUNDSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.