Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 300 KR. MEÐ VSK.
UNNIÐ var á 26 snjómokst-
urstækjum á götum Reykjavíkur í
fyrrinótt og haldið áfram fram eftir
degi í gær. Átta moksturstæki voru
send út strax og hríðarveðrið hófst á
föstudagskvöld og síðan var 18
tækjum bætt við klukkan 4 um nótt-
ina. Í fyrstunni var einkum lögð
áhersla á að halda helstu umferð-
aræðum borgarinnar opnum en síð-
an var farið í úthverfin þar sem
færð þyngdist mjög á föstudags-
kvöldið. Mokað verður á fullum
krafti eftir því sem veðrið krefst,
samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg.
Borgin sjálf á átta snjóruðnings-
tæki en önnur eru leigð frá vélaleig-
um.
Mikil umferð í ófærð
eftir Idol-stjörnuleit
Margir festu bíla sína í sköflum í
hríðarveðrinu á föstudagskvöld og
var t.a.m. mikil þörf fyrir aðstoð
björgunarsveita í Grindavík. Þar var
mikið um að vera vegna skemmt-
anahalds í bænum í tengslum við
Idol-stjörnuleitina. Eftir keppnina á
föstudagskvöld var mjög blint á
Grindavíkurvegi og fólk hvatt til að
vera ekki á ferðinni þar vegna mik-
illar snjókomu og skafrennings.
Þá kallaði lögreglan í Reykjavík
út björgunarsveitir Slysavarna-
félagsins Landsbjargar sem aðstoð-
uðu ökumenn í borginni þá um nótt-
ina. Einnig var fólki hjálpað í
nágrenni Grundarfjarðar á Snæ-
fellsnesi en á fjórða tímanum voru
flestar sveitir komnar aftur í bæki-
stöðvar sínar enda veður farið að
ganga niður víðast hvar. Þegar mest
var að gera voru 28 björg-
unarsveitamenn að störfum á 10
jeppum.
Á Hellisheiðinni varð þungfært á
föstudagskvöld og voru liðsmenn
Hjálparsveitar skáta í Hveragerði
sendir á vettvang kl. 19 til að að-
stoða fólk. Björgunarsveitamenn
voru komnir til baka á ellefta tím-
anum en þá hafði veður skánað á
heiðinni og tókst að halda henni op-
inni.
Á innanlandsflugi varð klukku-
tíma seinkun á vél Flugfélags Ís-
lands til Akureyrar í gærmorgun en
flug til Egilsstaða var á áætlun.
Bíða þurfti með morgunflug til Ísa-
fjarðar fram til hádegis. Þá ráðgerði
Íslandsflug að fljúga til Vest-
mannaeyja og Kulusuk á Grænlandi
en þar var hið besta flugveður.
Morgunblaðið/RAX
Í Árbænum: Mikið verk beið bíleigenda að hreinsa farskjóta sína þegar þeir komu út á bílastæði heima hjá sér í gærmorgun.
Annir björgunarsveita vegna ófærðar
NAUÐSYNLEGT er talið að auka
umfang áfallahjálpar á Íslandi svo
unnt sé að veita hundruðum eða þús-
undum manna hjálp t.d. ef hér yrði
flugslys þar sem færist stór þota þar
sem hundruð farþega létust eða slös-
uðust. Þannig mætti búast við þús-
undum útlendinga, ef erlend þota
færist hérlendis. Málið var rætt á
fundi sem Landlæknisembættið boð-
aði til í vikunni þar sem sátu fulltrú-
ar embættisins, Landspítala – há-
skólasjúkrahúss, þjóðkirkjunnar,
Rauða kross Íslands og Almanna-
varna. Unnið hefur verið að því að
stofnuð verði á næstunni 7 til 10
áfallahjálparteymi víða um land sem
bætast við áfallahjálparteymi sem
þegar er fyrir hendi hjá LSH.
Bandarískur sérfræðingur í að-
stoð við farþega eða ættingja sem
lent hafa í flugslysum, Sharon
Morphew, ræddi við framangreind-
an hóp og kynnti honum nauðsyn
þess að hér á landi væri fyrir hendi
nógu öflugur hópur til að veita áfalla-
hjálp af þessari stærðargráðu. Anna
Björg Aradóttir, hjúkrunarfræðing-
ur hjá Landlæknisembættinu, sat
fundinn en hún er í viðbragðshópi
heilbrigðisyfirvalda sem kallaður er í
stjórnstöð Almannavarna ef kemur
til stórslysa. Landlæknisembættið
og Almannavarnir hafa gert með sér
samkomulag um skipulag áfalla-
hjálpar á neyðartímum.
Þúsundir ættingja gætu komið
frá útlöndum ef stórslys yrði
Hún sagði að í framhaldi af fund-
inum hefði verið ákveðið að menn
hittust aftur til að fjalla áfram um
áætlanagerð vegna viðbragða. Sagði
hún að auk áfallahjálpar heilbrigð-
isyfirvalda hefðu þeir aðilar sem sátu
fundinn sinnt margs konar aðstoð í
stóráföllum og væru menn sammála
um að sífellt þyrfti að endurskoða
viðbrögð við þeim. Hún sagði að í
undirbúningi væri að koma upp 7 til
10 áfallahjálparteymum víða um
landið sem veita myndu alla áfalla-
hjálp á sínu svæði og væru kölluð til
vegna stórslysa.
Anna Björg tjáði Morgunblaðinu
að hún hefði ekki gert sér grein fyrir
hversu umfangsmikla áfallahjálp
þyrfti að veita ef stór flugvél færist
en hún sagði fyrirlesarann hafa bent
á að hingað til lands myndu koma
hundruð og jafnvel þúsundir ætt-
ingja farþega sem lentu í slíku slysi.
Mjög viðamikið verkefni væri að
sinna svo stórum hópi. Ljóst væri,
m.a. af nýlegum dæmum um neyð-
arlendingar stórra flugvéla í Kefla-
vík, að auka þyrfti slíkan viðbúnað
hér. Telur hún ljóst að jafnvel þótt
hér yrðu stofnuð fleiri áfallahjálpar-
teymi yrði að fá aðstoð frá útlöndum.
Unnið að því að fjölga
teymum í áfallahjálp
Fóru yfir/60
MÖGULEGT er að varðveita Aust-
urbæjarbíó og heimila jafnframt
byggingu íbúðarhúsnæðis, ásamt
bílakjallara, og gerð leiksvæðis á
lóðinni austan við bíóið, að mati Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur. Vilhjálmur segir í við-
tali við Morgunblaðið að nýta mætti
Austurbæjarbíó fyrir starfsemi
sjálfstæðra leikhópa, tónlistarflutn-
ing eða aðra menningarstarfsemi.
Aðspurður hvort hann hygðist
gefa kost á sér sem borgarstjóra-
efni Sjálfstæðisflokksins, fyrir
næstu kosningar, sagðist Vil-
hjálmur hafa fullan hug á því.
„Ég tel mig hafa mjög víðtæka
þekkingu á borgarmálum og
reynslu af félagsmálum og borg-
armálum almennt. Eins hef ég átt
mikil samskipti við fólk, sem er
mikilvægt að borgarstjóri hafi. Ég
tel mig geta gert þetta ágætlega.
Meðan ég er heilsuhraustur og
áhugasamur er mér ekkert að van-
búnaði að takast á við þetta starf. “
Mögulegt
að varðveita
Austur-
bæjarbíó
Í tengslum við/18
Á RÚMUM 15 árum sem liðin eru
frá stofnun ABC hjálparstarfs hafa
um 500 milljónir króna verið send-
ar til bágstaddra barna erlendis.
Um 4.000 börn njóta aðstoðar Ís-
lendinga í formi menntunar, fram-
færslu, læknishjálpar og umönn-
unar fyrir tilstuðlan ABC
hjálparstarfsins.
Á síðasta ári einu námu fram-
lögin til þessara barna tæplega 100
milljónum króna og reka samtökin
nú tvö barnaheimili fyrir tæplega
2.000 börn á Indlandi.
Einn einstaklingur styrkir hvert
barn og er um 68% þeirra konur,
27% karlar og 5% fyrirtæki og hóp-
ar. María Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ABC, segir algeng-
ara að Íslendingar biðji um að
styrkja stúlkur og það sé e.t.v.
vegna þess að þær eigi yfirhöfuð
erfiðara uppdráttar en drengir.
500 milljónir
til aðstoðar
börnum
Algengara/6
HINN þekkti flamenco-dansari
Joaquín Cortés verður með sýningu
í Laugardalshöll í apríl. Hann kem-
ur með 35 manna
lið með sér og er
sýningin ekki
einungis dans-
sýning heldur
ráða söngur og
tónlist líka ríkj-
um. Aðeins 2.800
miðar verða í
boði og eru það
allt sæti.
Tónlistin í sýn-
ingunni er samin af Cortés sjálfum,
Juan Parrilla og Antonio Carbonell
og blandar saman mörgum tónlist-
arstílum, djassi, kúbanskri og
klassískri tónlist en flamenco er
samt sem áður í fyrirrúmi.
Heimskunnur
flamenco-dans-
ari til landsins
Joaquín Cortés
Dans, tónlist og söngur/76
LÖGREGLAN á Akureyri
handtók í gærmorgun tvo menn
eftir upplýsingar um að maður
hefði hótað að beita skotvopni í
íbúð við Hafnarstræti. Var
svæðinu lokað meðan verið var
að vinna úr málinu og náði lög-
reglan símasambandi við þá sem
voru í húsinu. Leystist málið
með því að tveir karlmenn komu
sjálfviljugir, hvor í sínu lagi og
óvopnaðir, út úr húsinu.
Voru báðir í annarlegu
ástandi og var sá sem hafði uppi
hótanirnar settur í fanga-
geymslu. Við leit í íbúðinni fund-
ust tveir veiðihnífar og loft-
skammbyssa ásamt lítilræði af
fíkniefnum.
Þá handtók lögreglan í
Reykjavík mann í gærmorgun
sem hafði í hótunum með hagla-
byssu í heimahúsi í Breiðholti.
Hald var lagt á byssuna sem
reyndist óhlaðin.
Hótanir um
að byssum
yrði beitt
Næring ekki
refsing