Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ SJÚKRADEILD LOKAÐ Ákveðið hefur verið að loka einni endurhæfingardeild á öldrunarsviði Landspítala – háskólasjúkrahúss á næstu vikum, að sögn Jóns Snædal, varaformanns Læknafélags Íslands. Er það hluti af sparnaðaraðgerðum spítalans. Jón tekur þó fram að sjúk- lingunum verði komið fyrir á öðrum deildum öldrunarsviðs eða á nýjum hjúkrunarrýmum á Eir eða Vífils- stöðum. Um 20 sjúklingar eru á deildinni á Landakoti sem á að loka. SÞ aftur til Íraks? Bandaríkjamenn hyggjast fara fram á það við Kofi Annan, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að hann sendi starfslið SÞ aftur til Íraks í því skyni að hafa yfirumsjón með valdaframsali í hendur heima- manna sem á að fara fram í sumar. Vonast þeir til að þátttaka SÞ verði til þess að Ajatollah Ali al-Sistani, trúarleiðtogi sjíta í Írak, dragi til baka kröfur um að þegar verði haldnar beinar kosningar í landinu. Austurbæjarbíó standi Mögulegt er að varðveita Austur- bæjarbíó og heimila jafnframt bygg- ingu íbúðarhúsnæðis, ásamt bíla- kjallara, og gerð leiksvæðis á lóðinni austan við bíóið, að mati Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita sjálfstæð- ismanna í borgarstjórn. Ófærð í Reykjavík Unnið var á 26 snjómokst- urstækjum á götum Reykjavíkur í fyrrinótt og haldið áfram fram eftir degi í gær. Átta moksturstæki voru send út strax og hríðarveðrið hófst á föstudagskvöld og síðan var 18 tækj- um bætt við klukkan 4 um nóttina. Í fyrstunni var einkum lögð áhersla á að halda helstu umferðaræðum borgarinnar opnum en síðan var far- ið í úthverfin þar sem færð þyngdist mjög á föstudagskvöldið. Mokað verður á fullum krafti eftir því sem veðrið krefst, samkvæmt upplýs- ingum frá Reykjavíkurborg. Y f i r l i t Í dag Skissa 6 Myndasögur 48 Sigmund 8 Bréf 66/67 Íþróttir 12 Dagbók 68/69 Af listum 32/33 Staksteinar 68 Listir 34/37 Þjónusta 69 Forystugrein 32 Krossgáta 70 Reykjavíkurbréf 40 Leikhús 72 Skoðun 42/46 Fólk 73/76 Hugvekja 47 Bíó 74/77 Kirkjustarf 47 Sjónvarp 78/79 Minningar 48/59 Veður 79 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@- mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@- mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport- @mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Vodafone), 25% í Steinhólum hf. (eignarhaldsfélag um Skeljung), 40% í TölvuMyndum og 3,8% í Tryggingamiðstöðinni. Auk þess á félagið samtals um 700 milljóna kr. eign í nokkrum fyrirtækjum, aðal- lega óskráðum, að sögn Friðriks. Brim á enn breska útgerðarfyrir- tækið Boyd Line og er áætlað bók- fært verð um einn milljarður. Hluta- bréfaeign Eimskipafélagsins er því metin á um níu milljarða í öðrum fyr- irtækjum en tengjast flutningum. HLUTABRÉFAEIGN Burðaráss, fjárfestingararms Eimskipafélags Íslands, í ýmsum fyrirtækjum er metin á um 8 milljarða króna og markaðsverðmæti Brims, sjávarút- vegsarms Eimskipafélagsins, er um milljarður eftir söluna á Útgerðar- félagi Akureyringa hf., Haraldi Böðvarssyni hf. og Skagstrendingi hf., að sögn Friðriks Jóhannssonar, framkvæmdastjóra Burðaráss. Burðaráss á 27,1% í SH, 32,6% í Marel, 5,7% í Og Fjarskiptum (Og- Hlutabréfaeign Burðar- áss um 8 milljarðar HÖFÐAHREPPUR seldi á föstudag tæplega 2% hlut sinn í Eimskipa- félaginu fyrir tæpar 600 milljónir króna. Eftir þau viðskipti á hreppur- inn engan hlut í Eimskipafélaginu. Adolf Berndsen, oddviti Höfða- hrepps, segist ánægður með þá ávöxt- un sem hreppurinn fékk af hlutabréf- unum í Eimskipafélaginu. „Ég vona að þessir fjármunir muni nýtast sam- félagi okkar og svæðinu vel,“ segir Adolf. Skagaströnd er í Höfðahreppi. Höfðahrepp- ur selur í Eimskip ÍSLENSK börn stóðu sig vel í alþjóðlegri sam- keppni á vegum Sameinuðu þjóðanna um gerð veggspjalda. Úrslit liggja nú fyrir og var mynd Hugrúnar Lenu Hansdóttur, ellefu ára nemanda í Breiðagerðisskóla í Reykjavík, valin ein af þremur bestu myndum frá Evrópu. Að auki fengu fimm myndir frá Íslandi sérstaka við- urkenningu. Alls bárust yfir 1.500 myndir frá 38 ríkjum í samkeppnina. Hugrún Lena segir við Morgunblaðið að tíð- indin að utan hafi komið sér skemmtilega á óvart. Hún hefur einu sinni áður tekið þátt í myndasamkeppni, og sendi þá litla sögu með. Hugrún segist fljótlega hafa fengið þá hugmynd að mála síma og láta hvíta og svarta hönd teygja sig eftir honum. Hún á ekki von á því að fá myndina til baka þar sem hún verði einhvers staðar hengd upp á vegg. „Ég verð bara að mála aðra mynd til að eiga,“ segir Hugrún. Hlutur Íslands vakti athygli Markmiðið með keppninni var að gefa nem- endum tækifæri á að koma á framfæri hug- myndum sínum um upplýsingasamfélagið og bauðst öllum börnum og unglingum í heiminum á aldrinum 9 til 19 ára að taka þátt í henni. Var óskað eftir því að í myndunum væri meðal ann- ars fjallað um hvernig upplýsinga- og sam- skiptatækni getur bætt mannlíf, aukið fjöl- breytileika í menningu og stuðlað að aukinni þekkingu á heiminum. Verðlaun voru veitt í þremur aldursflokkum í fimm heimsálfum. Myndirnar voru til sýnis á fyrsta fundi leiðtoga heimsins um upplýsinga- samfélagið sem var haldinn í Sviss í desember sl. og vakti athygli hversu margar myndir frá Ís- landi voru meðal þeirra sem viðurkenningu hlutu, að því er segir í vefriti menntamálaráðu- neytisins. Íslensk mynd meðal þriggja bestu í Evrópu Alþjóðleg myndasamkeppni á vegum SÞ Hugrún Lena Hansdóttir Morgunblaðið/Jim Smart Veggspjaldið sem Hugrún Lena málaði og sent var í keppnina ásamt 1.500 öðrum myndum frá 38 ríkjum heims. ♦♦♦ EIMSKIPAFÉLAG Íslands ætlar að fá aðstoð frá sérfræðingum til að setja viðbótarreglur hvað varðar innherjaviðskipti, samkvæmt sam- þykkt á stjórnarfundi á föstudag. Magnús Gunnarsson, stjórnarfor- maður Eimskipafélags Íslands, seg- ist samt telja að fyrirtækið hafi fylgt eftir reglum um innherjaviðskipti. „Mér er ekki kunnugt um neitt ann- að,“ segir hann og vísar til ummæla sinna í Morgunblaðinu í gær, þar sem haft var eftir honum að hann teldi að viðskiptin væru með eðlileg- um hætti, þó að stundum ættu við- skipti sér stað rétt fyrir lokun og menn næðu ekki saman. Mörg fyrirtæki hafa sett ákveðnar reglur Að sögn Magnúsar hafa mörg stór fyrirtæki sett sér ákveðnar reglur sem ganga lengra en almennar regl- ur Kauphallar Íslands varðandi inn- herjaviðskipti en þetta hafi ekki ver- ið gert í Eimskipafélaginu enn. Hins vegar hafi verið brugðist við stöð- unni með því að loka fyrir viðskipti innherja þar til uppgjörið verði birt í lok febrúar og byrjað sé að ræða endurbætur á innherjareglum fyrir- tækisins. Magnús segir að erfitt sé fyrir stjórnina að taka á svona málum gagnvart stjórnarmönnum, sem eiga hluti í fyrirtækinu, og öðrum stórum eignaraðilum eins og Landsbankan- um og Samson. Að öllu jöfnu gleðjist hann yfir því þegar menn hafi áhuga á að fjárfesta í fyrirtækinu og meðan menn séu innan settra laga og reglna sé ekki rétt að hafa afskipti af því. Rætt um endur- bætur á innherja- reglum Eimskips SÁ atburður átti sér stað á bænum Kirkjubæjarklaustri II í Skaft- árhreppi aðfaranótt 7. janúar sl. að ærin Snælda bar fallegu hrútlambi. Leiða má líkum að því að þetta sé fyrsta lamb ársins 2004 á Íslandi. Þetta þykir reyndar ekki tiltökumál hjá þeim bændum, Fanneyju Lár- usdóttur og Sverri Gíslasyni, því þetta er fjórða árið í röð sem Snælda ber á þessum tíma. Vorið 2000 bar hún tveimur lömb- um, eins og títt er með ær. En merkilegheitin hófust 30. desember sama ár þegar hún bar aftur tveim- ur lömbum, sprækum gimbrum sem nefnast Stygg og Spök, sem þá komu í fjölmiðla og hittu jafnframt landbúnaðarráðherrann. Sterkar líkur eru á því að Stygg og Spök hafi verið síðast bornu lömb ársins 2000 og myndi einhver útleggja það sem síðast bornu lömb liðinnar aldar. Snælda hélt uppteknum hætti réttu ári síðar, sleppti reyndar almanaksárinu 2001 alveg úr, og bar tveimur lömbum í byrjun árs 2002. Það sama var upp á ten- ingnum í byrjun árs 2003 en þá bar hún jafnframt tveimur lömbum. Þessi sérstæða atburðarás hefur al- farið átt sér stað samkvæmt kalli náttúrunnar og hefur Snælda svo sannarlega lífgað upp á búskapinn á Kirkjubæjarklaustri II, sem líflegur var fyrir. Snælda bar um ára- mót fjórða árið í röð Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablað frá Heimsferðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.