Morgunblaðið - 18.01.2004, Side 18
18 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-son var kosinn í borg-arstjórn Reykjavíkur1982 og settist í borg-arráð 1986. Hann var
kjörinn formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga 1990, en for-
maður þess verður að vera starfandi
sveitarstjórnarmaður. Þrátt fyrir
langt starf að borgarmálefnum segir
Vilhjálmur fjarri því að hann sé orð-
inn leiður á viðfangsefninu:
„Þetta hefur verið mjög áhuga-
verður tími, krefjandi starf en mjög
skemmtilegt á margan hátt. Engir
tveir dagar eru eins. Ég hef sem
borgarfulltrúi og formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga
kynnst mörgum málaflokkum og
tekist á við fjölda mála. Eins hef ég
kynnst fjölda manns vítt og breitt
um landið. Það hefur verið mjög
ánægjulegt að kynnast öllu því góða
fólki sem ég hef unnið með á þessum
vettvangi.“
Fljótlega eftir að Vilhjálmur varð
borgarfulltrúi fór hann að bjóða upp
á viðtalstíma, en það gerðu borg-
arfulltrúar ekki almennt á þeim ár-
um. Hann segir að þúsundir einstak-
linga hafi leitað til sín, allt frá 1983,
að hann byrjaði með viðtalstímana.
Fólk hafi komið með ótrúlega fjöl-
breytt mál. Verið að kanna rétt sinn
gagnvart borgarkerfinu og leita að-
stoðar og ráða.
Oddviti borgarstjórnarflokks
Vilhjálmur varð forystumaður
sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn í
júní í fyrra, þegar Björn Bjarnason
varð dóms- og kirkjumálaráðherra,
og er Vilhjálmur. Hvað felst í því að
vera oddviti sjálfstæðismanna í
borgarstjórn?
„Ég er formaður borgarstjórnar-
flokks sjálfstæðismanna. Það er
hlutverk mitt að leiða borgarstjórn-
arflokkinn og skipuleggja vinnu
Sjálfstæðisflokksins á vettvangi
borgarstjórnar; stýra fundum okk-
ar, undirbúa borgarráðsfundi og
borgarstjórnarfundi, undirbúa mál
og stýra stefnumótunarvinnu. Það
vilja margir ræða við mig sem odd-
vita sjálfstæðismanna og kynna sín
mál, viðhorf og viðfangsefni fyrir
mér og borgarstjórnarflokki sjálf-
stæðismanna.“
Vilhjálmur segir að eftir að hann
tók við formennsku borgarstjórnar-
flokksins hafi borgarfulltrúar og
varaborgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins heimsótt um 40 vinnustaði
í borginni.
„Við ákváðum að gera það til þess
að kynnast starfsemi þessara stofn-
ana, fyrirtækja og skóla. Hlusta á
viðhorf, fá ábendingar og ræða við
starfsfólkið. Þetta hefur verið mjög
fróðlegt. Fólk er óneitanlega svolítið
hissa að sjá okkur og sumir spyrja
hvort það séu að koma kosningar!
Við göngum um og reynum að hitta
hvern starfsmann. Þetta er ekki
eins og hefðbundnir skyndifundir
sem haldnir eru á vinnustöðum
skömmu fyrir kosningar, þar sem
menn lýsa öllu því stórkostlega sem
þeir ætla að gera á kjörtímabilinu
og eru svo farnir eftir hálftíma. Við
ætlum að halda þessum heimsókn-
um áfram af fullum krafti og erum
mjög ánægð með þær.“
Vilhjálmur segir að í Reykjavík
starfi átján sjálfstæðisfélög og öfl-
ugt starf í þeim. Það er í hans verka-
hring og annarra borgarfulltrúa
sjálfstæðismanna að kynna mál sem
eru til umfjöllunar innan borgar-
kerfisins fyrir trúnaðarmönnum og
stjórnarmönnum í sjálfstæðisfélög-
unum.
Borgarstjóraefni
Þegar nær dregur kosningum
verður áberandi umræðan um borg-
arstjóraefni stjórnmálaflokkanna.
Vilhjálmur var að því spurður hvort
hann væri borgarstjóraefni sjálf-
stæðismanna fyrir næstu kosningar.
„Það er rétt að gjarnan er spurt
um borgarstjóraefni fyrir kosning-
ar. En það vissi nú enginn að Þór-
ólfur Árnason yrði borgarstjóri! Það
var ákveðið í bakherbergjum hjá R-
listanum. Hjá Sjálfstæðisflokknum
eru það flokksmenn sem ákveða í
gegnum prófkjör, og síðan fulltrúa-
ráð, hvernig framboðslistinn lítur
út. Það stendur ekkert til að breyta
því.“
En liggur ekki beint við að ef þú,
formaður borgarstjórnarflokksins,
gefur kost á þér sem borgarstjóra-
efni að þú verðir það?
„Ég hef fullan hug á því og mun
sækjast eftir stuðningi sjálfstæðis-
manna til þess. Ég tel mig hafa
mjög víðtæka þekkingu á borgar-
málum og reynslu af félagsmálum
og borgarmálum almennt. Eins hef
ég átt mikil samskipti við fólk, sem
er mikilvægt að borgarstjóri hafi.
Ég tel mig geta gert þetta ágætlega.
Meðan ég er heilsuhraustur og
áhugasamur er mér ekkert að van-
búnaði að takast á við þetta starf.
En hver sem verður borgarstjóri þá
verður hann að hafa í huga að hann
er í þjónustuhlutverki fyrir fólkið í
borginni, en ekki bara einhver topp-
fígúra.“
Ósáttir við minnihlutastöðu
Í vor verða tíu ár liðin frá því
Sjálfstæðisflokkurinn missti meiri-
hluta í borgarstjórn. Sætta sjálf-
stæðismenn sig við að sitja í minni-
hluta?
„Nei, við sættum okkur alls ekki
við að vera í minnihluta og ætlum
okkur ekki að vera það mikið leng-
ur. Það er töluvert ólíkt að vera í
meirihluta og minnihluta. Þegar þú
ert í meirihluta hvílir á þér að þoka
málum áfram og stýra því hvernig
þau eru unnin. Taka ákvarðanir í
einstaka málum og leiða þau til
lykta. Það er fyrst og fremst hlut-
verk minnihlutans að halda fram
sínum viðhorfum og skoðunum eftir
föngum. Síðan að benda á og gagn-
rýna það sem miður fer í stjórnkerfi
borgarinnar. Að undanförnu hafa
verið fjölmörg mál sem eru afskap-
lega gagnrýnisverð. Bæði meðferð
þeirra og eins aðgerðar- og stefnu-
leysi á sumum sviðum. Síðan er það
meðferð fjármuna sem hefur verið á
margan hátt með ólíkindum.“
Þörf fyrir félagslega þjónustu
Þótt Sjálfstæðisflokkurinn berjist
fyrir einkaframtaki þá stóð hann að
uppbyggingu félagslegrar þjónustu í
borginni. Hefur afstaðan eitthvað
breyst í þeim efnum?
„Nei, síður en svo. Undir forystu
sjálfstæðismanna var byggt upp
mjög öflugt félagsþjónustukerfi og á
þeim grunni starfar félagsþjónustan
í dag. Við sjálfstæðismenn höfum
lagt mikið af mörkum til að efla fé-
lags- og velferðarkerfið í borginni.
Sjálfur hef ég mikinn áhuga á fé-
lags- og velferðarmálum og hef
starfað mikið á þeim vettvangi. Ég
hef sérstaklega beitt mér í þágu
málefna aldraðra, er m.a. stjórnar-
formaður hjúkrunarheimilisins Eir-
ar í Grafarvogi og var í bygginga-
nefnd stofnana í þágu aldraðra. Eins
hef ég setið í félagsmálaráði í ein
átta ár. Það má segja að í störfum
mínum hafi ég ætíð lagt mikla
áherslu á félags- og velferðarmálin í
borginni. Ég mun beita mér fyrir
því enn frekar sem oddviti og standa
dyggan vörð um þennan mikilvæga
þátt.“
Vilhjálmur segir að sá vandi sem
félags- og velferðarkerfið reynir að
mæta sé að aukast. Bæði hafi fjár-
hagsaðstoð við einstaklinga aukist
gríðarlega á undanförnum 3–4 ár-
um. Biðlistar eftir félagslegu leigu-
húsnæði hafi lengst mikið og í raun
tvöfaldast á síðustu 3–4 árum svo nú
séu um 1.100 manns á biðlista. Bið
eftir plássi á vist- og hjúkrunar-
heimilum hefur líka lengst. Vil-
hjálmur minnir á að borgin beri ekki
ábyrgð á byggingu hjúkrunarheim-
ila, en þykir samt að aðgerðarleysi
R-listans í að koma slíkum fram-
kvæmdum í gang hafi verið mikið.
„Það var rétt fyrir síðustu kosning-
ar að þeir virtust vakna til lífsins.
Það var eftir gríðarlega baráttu
okkar sjálfstæðismanna fyrir því að
borgin sýndi meira frumkvæði og
áhuga á þessum málum,“ segir Vil-
hjálmur.
Gjörbreytt stefna í
skipulags- og lóðamálum
En hver eru helstu baráttumál
sjálfstæðismanna í borgarmálum?
„Við höfum lagt áherslu á gjör-
breytta stefnu í skipulags- og lóða-
málum. Við teljum að það eigi að
halda áfram að byggja með strönd-
inni, í stað þess að stýra byggðinni
upp til heiða og fjalla eins og nú er
gert. Við eigum að byggja íbúðir í
Geldinganesi. Þar má koma fyrir 7-
10 þúsund manna byggð. Það á ekki
að koma stórfelldum hafnarmann-
virkjum fyrir á þessari fallegu eyju.
Það á að afnema lóðauppboðin.
Við eigum að hafa á boðstólum næg-
ar lóðir og innheimta eðlileg gatna-
gerðargjöld, en ekki að selja þær
takmörkuðu lóðir, sem borgin hefur
á boðstólum hverju sinni, á upp-
sprengdu verði. Það gerir ekkert
annað en að hækka byggingarkostn-
að, söluverð og síðan fasteignamat
og fasteignaskatta. Fasteignaskatt-
ar hafa hækkað gríðarlega, ekki síst
síðan R-listinn byrjaði með lóðaupp-
boðin beint ofan í lóðaskortinn á
árinu 2000.
Við teljum einnig að það verði að
stöðva skuldasöfnun borgarsjóðs.
Það er með ólíkindum hve skuldir
hans hafa vaxið þrátt fyrir að tekjur
borgarinnar hafi hækkað verulega
að raungildi á undanförnum árum.
Líka þrátt fyrir að arðgreiðslur frá
Orkuveitunni í borgarsjóð hafi nán-
ast verið tvöfaldaðar í tíð R-listans.
Þessa skuldasöfnun verður að
stöðva. Þetta getur ekki gengið
svona endalaust.
Það er löngu ljóst að R-listinn
getur ekki tekist á við vandasöm og
erfið úrlausnarefni. Óleyst mál
hrannast upp og mikilvæg verkefni
sitja á hakanum. Stjórnsýsla borg-
arinnar, fjármálstjórnin og stefnu-
leysi í skipulags- og lóðamálum sýna
glögg þreytumerki og getuleysi til
að takast á við nauðsynleg viðfangs-
efni. Mörg kosningaloforð þeirra
eru gleymd og grafin og samskipti
við íbúana á mörgum sviðum ein-
kennast af tillitsleysi.“
Er Sundabraut ekki forsenda
frekari byggðar með ströndinni?
„Við sjálfstæðismenn höfum und-
anfarið ár verið stöðugt að spyrja
um Sundabrautina. Það er orðið
mjög mikilvægt að taka ákvörðun
um staðsetningu hennar, hvort farin
verður svokölluð leið 1, hábrú yfir
Kleppsvík norðan Holtagarða og yf-
ir í Gufunes, eða leið 3, landmót-
unarleið í framhaldi af Skeiðarvogi.
Ég er þeirrar skoðunar að R-listinn
Í tengslum við fólkið
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi sjálfstæð-
ismanna og formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfé-
laga, á að baki langa setu í
borgarstjórn og borgarráði
Reykjavíkur. Guðni Ein-
arsson ræddi við Vilhjálm
um borgarmálin og muninn
á því að sitja í meirihluta og
minnihluta.
Morgunblaðið/Þorkell
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi á að baki langt starf að sveitastjórnarmálum.
’ Við teljum að það eigi að halda áfram aðbyggja með ströndinni, í stað þess að stýra
byggðinni upp til heiða og fjalla. ‘
’ Við verðum einnig að halda uppi traustu félags- og velferðarkerfi til stuðnings þeim sem
minna mega sín í ölduróti samfélagsins. ‘