Morgunblaðið - 18.01.2004, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 18.01.2004, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Nokkrir framtakssamir Ís-lendingar, þar á meðal Vil-hjálmur Stefánsson land-könnuður, Vilhjálmur Þór, um skeið aðalræðismaður Íslands í Bandaríkjunum, og Thor Thors, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, höfðu í óformlegum viðræðum kann- að hug Bandaríkjastjórnar til þess að annast varnir Ísland, bæði fyrir og eftir hernám Englendinga í maí 1940. Slík ráðstöfun var einnig hugleikin ýmsum Bandaríkjamönnum, þar á meðal Bertel H. Kuniholm, ræðis- manni Bandaríkjanna á Íslandi, sem kannaði hug ráðamanna hérlendis ítrekað, með og án vitundar yfirboð- ara sinna. Umfram allt voru þó Bret- ar orðnir langeygir eftir þátttöku frænda sinna í ófriðinum í Evrópu og ákváðu að herða róðurinn. Skömmu fyrir ársafmæli hernáms Íslands, nánar tiltekið hinn 6. maí 1941, var Halifax lávarði, sendiherra Breta í Bandaríkjunum, falið að til- kynna Bandaríkjastjórn að margt benti til þess að í bígerð væri árás Þjóðverja á Ísland frá Norður-Nor- egi í nánustu framtíð. Honum var jafnframt gert að spyrja, í ljósi þeirra alvarlegu afleiðinga sem jafnvel tíma- bundin herseta Þjóðverja á Íslandi hefði á orrustuna um Atlantshafið, hvort að ríkisstjórn Bandaríkjanna gæti gefið til kynna með einhverjum hætti að hún hefði áhuga á örlögum Íslands? Myndi hún bregðast einarð- lega við landnámi Þjóðverja þar? Þarna lá háll fiskur undir steini: Einsog áður hefur komið fram vildu Bretar ekkert heitar en að tryggja þátttöku Bandaríkjamanna í styrjöld- inni við þýsku ógnina. Þeim þótti því til mikils að vinna, tækist þeim að sannfæra þá um ágæti þeirrar hug- myndar að taka að sér hervernd Ís- lands og færa þá þannig, að mati Breta, enn einu skrefi nær stríðsþátt- töku. En Bretar höfðu sömuleiðis þá þegar haft talsverð útgjöld af herset- unni, því auk kostnaðar við að halda menn og búnað á Íslandi, var dýrt spaug að friða Íslendinga. Þessar fjárhagsáhyggjur voru kannski engin nýlunda í röðum breskra stjórnmála- manna, ef marka má fyrirspurn eins þingmanns Verkamannsflokksins í neðri deild breska þingsins hálfu ári fyrr, eða í lok nóvember 1940. Þing- maðurinn vildi fá svör frá hermála- ráðherra um hvað varnir Íslands kostuðu og hvort að ekki kæmi til greina að Bandaríkjamenn tækju annaðhvort þátt í hervörnum Íslands eða önnuðust þær að öllu leyti. Með síðarnefnda kostinum væri bæði hægt að draga úr kostnaði Breta og losa breskan her frá Íslandi. Þessar kostnaðaráhyggjur voru viðvarandi og hinn 26. maí 1941 skrif- aði Sir John Dashwood, sem hafði yf- irumsjón með málefnum Íslands í breska utanríkisráðuneytinu, minnis- blað til yfirboðara sinna þar sem hann gat þess að frá hernámi hefðu Bretar greitt 500 þúsund pund í vasa Íslend- inga, í líki styrkja til að „þeim þætti hernámið ekki eins ógeðfellt“, og þar að auki greitt um 2,5 milljónir punda fyrir fisk frá Íslandi. Afleiðingin væri sú að Ísland hefði yfirfyllst af sterl- ingspundum og sjá mætti merki um verðbólgu. Honum blöskraði stríðs- gróðinn með öðrum orðum og þótti Íslendingar seilast of djúpt ofan í buddu Breta, skoðun sem hann deildi með mörgum öðrum ráðamönnum í Lundúnum. En geð þeirra varð brátt léttara. Í þekktu útvarpsávarpi Roosevelts til þjóðar sinnar 27. maí, þar sem hann lýsti yfir „ótakmörkuðu neyðar- ástandi,“ ítrekaði hann fyrri afstöðu sína og lét þau orð falla að Þjóðverjar sæktust eftir heimsyfirráðum. Hann sakaði þá um yfirgangssemi á höfun- um, meðal annars á hagsmunasvæði Bandaríkjanna. „Ef nasistum tækist að hernema Ísland, eða fá bækistöðv- ar á Grænlandi, þá væri stríðið þar með komið í næsta nágrenni við strendur hins ameríska meginlands,“ sagði hann og bætti því við að þessi tvö lönd væru einsog stiklur á leiðinni þangað. Skömmu áður höfðu Bretar óskað þess að bandarískur tundur- spillir færi til Íslands til að efla varnir þar og niðurstaða mun hafa verið inn- an seilingar í viðræðum ráðgjafa Roosevelts og Thors Thors. „Gæti ekki komið á hentugri tíma“ Næsta dag tilkynni Halifax lávarð- ur bresku ríkisstjórninni, að Roose- velt segðist geta leyst Englendinga af hólmi á Íslandi, ef þeir vildu og hægt væri að koma því í kring hjá íslensk- um stjórnvöldum. Taldi forsetinn að hægt væri að hrinda slíkum aðgerð- um í framkvæmd á þremur eða fjór- um vikum. Þrítugasta og fyrsta maí voru viðbrögð Winston Churchill þau að senda Bandaríkjaforseta skilaboð þar sem hann kvaðst þeirrar skoð- unar að „sérhver opinber aðgerð af yðar hálfu, svo sem að senda fjöl- mennt herlið til Íslands, gæti ekki komið á hentugri tíma.“ Raunar hafði Roosevelt og ráðgjaf- ar hans sömuleiðis velt fyrir sér möguleikanum á að senda fremur herlið til Azoreyja en að sögn Corgan hugðust Portúgalar, sem þar réðu ríkjum, ekki „fara fram á bandaríska vernd en Roosevelt gat reitt sig á að íslensk stjórnvöld mundu leggja fram slíka beiðni“. Corgan skýrir þessa fullyrðingu ekki nánar, en nærtækast er að telja að þar eigi hann við að við- ræðurnar við Thor Thors hafi veitt Bandaríkjamönnum fullvissu um að íslensk stjórnvöld myndu ekki streit- ast á móti þegar á hólminn væri kom- ið. En þrátt fyrir að Bandaríkja- mennn væru augljóslega áhugasamir um að fá bækistöðvar á Íslandi, þótti Bretum ekki nóg gert. Þeir voru við- þolslausir af óþolinmæði í ljósi þess hvernig stríðið hafði þróast og vildu fá skýr svör hið fyrsta. Í byrjun júní var ákveðið að koma til Bandaríkj- anna frekari fregnum um liðssafnað Beðið eftir boðskorti frá Íslandi Óvissa ríkir um áframhaldandi veru bandaríska varnarliðsins hérlendis, þótt framtíðarskipun þeirra mála skýrist vart fyrr en á næstu mán- uðum eða misserum. Þegar Bandaríkjamenn ákváðu að taka að sér hervernd Íslands sumarið 1941 var að baki flókið ferli í þremur löndum, óformlegar málaleitanir og margvíslegur pólitískur þrýstingur beggja vegna Atlantshafsins. Vegna þeirrar stöðu sem nú er komin upp varð- andi framtíð herstöðvar í Keflavík rifjar Sindri Freysson upp aðdragandann að upphaflegri komu bandarísks herliðs hingað til lands. Bandaríkjaher skundar í land: Bandaríkjamenn tóku við stjórn land- og loftvarna á Íslandi af Bretum er herlið þeirra var orðið fjölmennara vorið 1942. Bandarískir hermenn ganga frá borði herflutningaskips við Ægisgarð í Reykjavík sumarið 1942. Bandarískur hermaður og íslensk börn á hálum ís á Reykjavíkurtjörn í febrúar 1943. ’ Skipin sem fluttu bandaríska landgöngu-liða fyrsta spölinn áleiðis til Íslands lögðu úr höfn 22. júní 1941 – sama dag og Þjóð- verjar réðust inn í Sovétríkin – en eitt smá- vægilegt mál var þó óafgreitt; ekkert boðs- kort hafði borist frá Íslendingum. ‘
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.