Morgunblaðið - 18.01.2004, Síða 33

Morgunblaðið - 18.01.2004, Síða 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 33 hvernig þróast. Hvorug þeirra komst í 9 manna úrslitin. Í keppni sem þessari verða alltaf til draumakeppendur; – ein- staklingar sem heilla á einhvern yfirnáttúrlegan hátt með fram- komu sinni. Það er óhætt að full- yrða að Helgi Rafn hafi verið draumakeppandinn núna. Af yfir- veguðu rólyndi söng hann sig inn í hjörtu áhorfenda – afar músík- alskur strákur sem spennandi verð- ur að fylgjast með. Ég er ekki viss um að þeir þrír keppendur sem komust í úrslita- þáttinn hafi endilega verið þeir allra bestu sem í keppnina komu en öll hafa þó þau það sem til brunns þarf að bera til að geta orðið popp- stjarna. Anna Katrín er afar sjarm- erandi stúlka og einstaklega mús- íkölsk – hún syngur af mikilli innlifun. Erfiðleikar með röddina plöguðu hana síðasta sprettinn þannig að hún var sennilega ekki í sínu besta formi þegar á hólminn var komið. Annað sjarmatröll, Jón Sigurðsson, skautaði í gegnum hindranir og oft þunga dóma með bros á vör og blik í auga; – ekki besti söngvarinn en með þann hæfi- leika sem kannski nauðsynlegastur er að ná til áheyrandans með fal- legri túlkun. Kalli Bjarni var svo auðvitað íslenski draumurinn holdi klæddur; íslenskur sjómaður, kom- inn til að sjá og sigra. Og það gerði hann með miklum glæsibrag. Hann var öryggið uppmálað og söng af sjaldséðri nautn sem varla hefur látið nokkurn þann sem á hlýddi ósnortinn. Þó var hann sá keppandi sem var kannski mest á skjön við hugmyndafræði poppsins því hon- um lét best að syngja kraftmikið og blúsað rokk. Það verður fróðlegt að sjá hvaða pól Þorvaldur Bjarni tek- ur í hæðina, þegar þeir tveir fara að vinna að verðlaununum – búa til plötuna. A llir þessir krakkar eiga eft- ir að láta til sín taka, spái ég, en eiga eftir að taka út bróðurpart þess músík- þroska sem gæti gert þau að far- sælum stjörnum í íslensku tónlist- arlífi. Þau eru góð en eiga eftir að verða miklu betri haldi þau áfram á sömu braut. Það er reyndar athygl- isvert að sjá hve miklum fram- förum söngvararnir ungu tóku á meðan á keppninni stóð. Þar hefur mest mætt á Jóni Ólafssyni, tón- listarstjóra keppninnar, og Selmu Björnsdóttur söngþjálfara að leiða ungmennin í gegnum heim sígildra dægurlaga sem hefur örugglega verið þeim miskunnugur, í það minnsta mistamur. Í undankeppn- inni sáum við Jón á sviðinu þar sem hann lék með flytjendum á píanó. Í úrslitunum er hljóðfæraleikurinn íburðarmeiri en þó er það veruleg- ur galli að hann skuli ekki vera live, á sviðinu. Útsetningar laganna hafa stundum verið svolítið flatar en þó hefur mér alla jafna þótt þær betri en í amerísku Idol-þáttunum. Það sem mér hefur helst þótt vanta er að þeir krakkar sem hæfileika hafa til geti sungið eigin lög í keppninni. Ég minnist þess ekki að nokkrir aðrir en Jóhanna Vala hafi gert það í keppninni og það var virðingar- vert. Með því væri ekki bara verið að hvetja krakka til að spreyta sig á poppstjörnuhlutverkinu, heldur einnig að gefa íslenskri popptónlist undir fótinn og hvetja til músík- sköpunar. S tærsti gallinn á Idol hefur mér þótt hlutur gestadómar- anna. Þeir hafa verið misvel valdir og sumir tæpast staðið undir nafni sem fagfólk í greininni. Þórunn Lárusdóttir er góð söng- kona en ekkert hefur kveðið að henni sem poppsöngkonu. Birgitta Haukdal er hins vegar vinsæl og elskuð poppdrottning en er tæpast búin að ná neinum status sem af- burða söngkona. Þ egar upp er staðið verður ekki hjá því komist að hrósa Stöð 2 fyrir framtakið að færa okkur íslenskt Idol. Sem sjónvarpsefni hafa þættirnir dregið fjölskylduna saman að kass- anum og verið fyrirtaks afþreying fyrir fólk á öllum aldri. Sennilega er þetta það besta sem komið hefur úr raunveruleikasjónvarpsþátta- gerð síðustu ára. Hér er ekkert of- beldi, enginn fíflagangur, heldur einungis látið reyna á hæfileikarík ungmenni – hvers þau eru megnuð undir þessum kringumstæðum. Hvað framtíðin ber í skauti sér fyr- ir keppendur á eftir að koma í ljós. Vonandi þó, eins og margt bendir til, að við eigum eftir að eignast marga góða dægurlagasöngvara þegar fram líða stundir. A› undanförnu hafa átt sér sta› miklar breytingar í íslensku vi›skiptalífi. Fyrirtæki hafa veri› sameinu›, stokku› upp og breytingar á eignarhaldi veri› umtalsver›ar. FVH efnir til rá›stefnu Íslenska flekkingardagsins flar sem flema› er Stjórnun breytinga (Change Management). Fólk me› flekkingu og reynslu á svi›i breytinga flytur spennandi og fró›leg erindi frá ‡msum sjónarhornum. 08.00-08.30 Afhending rá›stefnugagna 08.30-08.40 Ávarp Margrét Kr. Sigur›ardóttir, forma›ur FVH 08.40-09.10 Stjórnun breytinga og breyting stjórnenda Dr. Gu›finna S. Bjarnadóttir, rektor vi› HR 09.10-09.40 Vöxtur og útrás Pharmaco Róbert Wessman, forstjóri Pharmaco 09.40-10.10 Hlutverk stéttarfélaga á n‡rri öld Gunnar Páll Pálsson, forma›ur VR 10.10-10.30 Hlé 10.30-11.00 Erlendar fjárfestingar og útrás Jón Sch. Thorsteinsson, framkvæmdastjóri erlendra fjárfestinga hjá Baugur group 11.00-12.00 Virtual Communities of Practice: Solving individual knowledge-sharing hostility following acquisition Dr. Jens Gammelgaard, lektor vi› Vi›skiptaháskólann í Kaupmannahöfn kemur sérstaklega í bo›i Vi›skipta- og hagfræ›ideildar Háskóla Íslands 12.00-12.30 Valger›ur Sverrisdóttir, i›na›ar- og vi›skiptará›herra afhendir fiekkingarver›laun FVH og kynnir val á vi›skiptafræ›ingi/hagfræ›ingi ársins 2003. Léttur hádegisver›ur. Styrktara›ilar Íslenska flekkingardagsins: Je ns G am m el ga ar d Jó n Sc h. T ho rs te in ss on G u› fin na S . B ja rn ad ót tir G un na r Pá ll Pá ls so n O rr i H au ks so n R ób er t W es sm an NON N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .i s / N M 1 1 0 8 9 ÍSLENSKI fiEKKINGARDAGURINN Rá›stefnustjóri er Orri Hauksson, framkvæmdastjóri firóunarsvi›s Símans. RÁ‹STEFNA OG VER‹LAUNAAFHENDING á Nordica hótel fimmtudaginn 5. febrúar, kl. 8.30-14.00. DAGSKRÁ SKRÁ‹U fiIG STRAX! Skráning fer fram me› tölvupósti á fvh@fvh.is e›a í síma 551 1317. Ver› 6.250 kr. fyrir félaga FVH og 12.500 kr. fyrir a›ra. Innifali›: Rá›stefnugögn, veitingar og óvænt gjöf frá FVH. Samstarfsfyrirtæki FVH: Íslandsbanki hlaut Íslensku flekkingarver›launin 2003 og Valur Valsson fyrrum forstjóri Íslandsbanka var valinn vi›skiptafræ›ingur ársins 2002. OPI‹ ÖLLUM SEM HAFA ÁHUGA! Stjórnun breytinga Change Management Þorrinn er hafinn hjá okkur Úrvals hefðbundinn þorramatur ásamt súrum hval og skötustöppu Sendum hvert á land sem er Gerum tilboð í veisluna ykkar Verslunin Svalbarði Framnesvegi 44, Reykjavík, sími 551 2783 Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði, sími 564 2783 Verkun, sími 562 2738 Netfang: svalbardi@isl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.