Morgunblaðið - 18.01.2004, Side 43

Morgunblaðið - 18.01.2004, Side 43
Við höfum opnað fasteignasölu að Borgartúni 29 Borgartúni 29 • sími: 515 0500 • fax: 515 0509 • netfang: fasteignakaup@fasteignakaup.is • www.fasteignakaup.is ... í slaginn! Við erum öflugur hópur með áratugareynslu af fasteignaviðskiptum. Með víðtækri þekkingu og áhuga á öllu sem viðkemur fasteignamálum getum við boðið þér persónulega og góða þjónustu. Sími 515 0500 Erna Valsdóttir löggiltur fasteignasali Guðmundur Valtýsson rekstrarfræðingur Björgvin Ibsen viðskiptafræðingur Ólöf Dröfn Matthíasdóttir skjalavörður Sveinn Skúlason lögmaður löggiltur fasteignasali Páll Höskuldsson sölustjóri Við erum klár miðlanna. Fyrir þessu eru gildar ástæður sem tengjast grundvelli efnahagslífsins. Rekstrarskilyrði fjölmiðla eru nefnilega ekkert frá- brugðin skilyrðum til að reka önnur fyrirtæki. Að ríkisfjölmiðlum und- anskildum eru flestir fjölmiðlar al- gerlega háðir auglýsingatekjum og/ eða áskriftartekjum. Af þessum sökum líta margir fræðimenn svo á að sjálfstætt áhrifavald fjölmiðla sé takmarkaðra en ætla mætti enda séu fjölmiðlar ekki sjálfstætt hreyfi- afl gagnvart öðrum stofnunum sam- félagsins. (K. Nordenstreng, bls. 193) – Árið 1924 ritaði dr. Guð- mundur Finnbogason í bók sinni Stjórnarbót: „Auglýsingar eru orðnar lífs- nauðsyn viðskiptanna og blöð eru auðvitað því betri og eftirsóttari auglýsingatæki sem þau eru víð- lesnari. Þarna byrjar þá kapp- hlaupið um hylli lesendanna. Og þar með um auglýsingarnar, sem eru eina gróðavonin fyrir útgefendur blaðanna. En þá er um leið komin freistingin annars vegar að bjóða það eitt sem gengur í fólkið, hins vegar að styggja ekki þá sem mest og best auglýsa í blöðunum, en það eru auðmennirnir, stórlaxarnir í iðnaði og verslun. Þegar þessa er gætt þá er ekki furða þó að hliðið verði þröngt og vegurinn mjór fyrir sannleikann í dálkum blaðanna og að þeim veitist örðugt að þjóna tveimur herrum, guði og mamm- oni.“ (Guðmundur Finnbogason 1924, bls. 138) 10 milljarða króna auglýsingamarkaður Nú um stundir eru „auðmennirnir, stórlaxarnir í iðnaði og verslun“ fleiri og auðugri en árið 1924. Með tilkomu ljósvakamiðla, nýrrar tækni og lækkandi stofn- og rekstr- arkostnaði útvarpsstöðva hefur framboð margfaldast, einnig erlend- is frá. Fjölbreytnin er meiri nú en oftast áður enda meira til skipt- anna, því auglýsingamarkaðurinn íslenski velti á tíunda milljarði króna árið 2002 (auglýsingar í út- varpi að hluta áætlaðar). Dagblöð hafa komið og farið á íslenskum dagblaðamarkaði en lengst af var aðeins rúm fyrir 2 til 3 dagblöð sem nærðust einvörðungu á auglýsinga- tekjum og áskrift. Þar hafði Morg- unblaðið yfirburðastöðu áratugum saman. Færa má rök fyrir því að góður samhljómur hafi verið milli stefnu blaðsins og borgaralegra gilda og jafnvel beinna viðskipta- hagsmuna stærstu auglýsendana. Áratugum saman þótti stjórnvöld- um ekki ástæða til að reisa skorður við einokun eða samþjöppun á fjöl- miðlamarkaði þótt fjölbreytni hafi verið minni, færri dagblöð hafi verið rekin einvörðungu fyrir auglýs- ingafé og áskrift og Ríkisútvarpið hafi haft skýra einokunarstöðu. Vandinn er utan fjölmiðlanna, ekki innan þeirra Upplýsing er eitt meginmarkmið fjölmiðla. Enda samrýmist það vel viðteknum lýðræðishugsjónum. Upplýsing er talin forsenda skyn- samlegrar hegðunar á markaði og eykur lýðræðisvitund. Jean Piaget, einn merkasti þekkingar- og þróun- arsálfræðingur síðustu aldar, held- ur því fram, að eitt helsta markmið menntunar sé að rækta eða móta gagnrýna hugsun, sem leiti eftir sönnunum og taki ekki við- stöðulaust við öllu sem henni er rétt. „Mesta hætta nútímans er fólgin í slagorðum, hópskoðunum og fullmatreiddum hugsanabrautum. Sérhver maður verður að geta and- æft eða gagnrýnt sem einstaklingur og kunna að skilja milli þess sem unnt er að sanna og hins sem aldrei verður sannað.“ (Jean Piaget). – Auðvelt er að heimfæra þessi orð upp á fjölmiðla og gera þau að fag- legu markmiði blaða- og frétta- manna og raunar allra sem starfa í fjölmiðlum. Hræringar í viðskiptalífi geta varla einar og sér kallað á sérstaka lagasetningu sem takmarkar eign- arhald á fjölmiðlum. Margt bendir til að fjölmiðlar hafi á undanförnum árum þróast til aukins sjálfstæðis og hafi meira sjálfstraust en áður. Þetta aukna sjálfstæði er líkast til samofið meiri fagmennsku, aukinni menntun og reynslu frétta-, blaða- og dagskrárgerðarmanna og gagn- rýnna viðhorfi þeirra til viðfangs- efna en áður. Fjölmiðlar í íslensku upplýsingasamfélagi eru m.ö.o. fag- legri en þeir voru og hver fjölmiðill finnur sinn stíl og áherslur í and- rúmslofti samkeppninnar. Áhyggjur af fækkun miðla og aukinni sam- þjöppun á fjölmiðlamarkaði eru af þessum sökum nær ástæðulausar þótt tilefni til umræðu séu næg á miklu ólgu- og breytingaskeiði í ís- lenskum stjórnmálum og viðskipta- lífi. Enn er til að mynda ekki ljóst hvort í bráð og lengd sé rekstr- argrundvöllur fyrir þremur dag- blöðum á íslenskum markaði, þar af einu sem dreift er ókeypis til les- enda. Yfirgnæfandi líkur eru á því að fákeppni verði ríkjandi í rekstri ljósvakamiðla hér á landi, hvort sem staða Ríkisútvarpsins verður óbreytt eður ei. Leiða má líkum að því að átök um eignarhald og mögulega sam- þjöppun á fjölmiðlamarkaði nú um stundir standi í beinu sambandi við átök á öðrum sviðum viðskiptalífs- ins sem og á vettvangi stjórnmál- anna. Hjaðni þau átök má búast við að einnig dragi úr átökum um eign- arhald og samþjöppun á afar litlu málsvæði íslensks fjölmiðlamark- aðar. Einnig má færa rök fyrir því að samþjöppun og fákeppni á fjöl- miðlamarkaði sé engu meiri nú en oftast áður á tímabilinu frá 1985 þegar einokun Ríkisútvarpsins á ljósvakanum var afnumin. Færa má rök fyrir því að fjölbreytnin sé meiri og valfrelsi notenda meira. Peninga- og athafnamenn sem og fyrirtæki eða fyrirtækjasamsteypur munu áfram sjá sér hag í því að leggja fé í fjölmiðlun svo fremi sem gildandi leikreglur samkeppninnar verða í heiðri hafðar. Það geta fyr- irtæki og einstaklingar gert með tvennu móti í það minnsta; annars vegar með því að gerast hluthafar í fjölmiðli (miðlum) og þar með orðið beinir eigendur. Hins vegar geta þeir að vild ráðið kaupum á auglýs- ingum þótt vitanlega hljóti þeir að taka mið af því hversu víðlesin dag- blöð eru ellegar hversu mikið er hlustað eða horft á sjónvarp og út- varp. Heimildir 1. Tómas Ingi Olrich, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, Páll Magnússon og Ásdís Halla Bragadóttir: Skýrsla starfshóps um endurskoðun á útvarpslögum – Mennta- málaráðuneytið 1996 2. Menntamálaráðuneytið: Skipun nefndar um eignarhald í fjölmiðlun – fréttatilkynn- ing 19. des. 2003 3. Ragnar Karlsson, Hilmar Thor Bjarna- son og Þorbjörn Broddason: The Icelandic Media landscape – í Media Trends 2001 in Denmark, Finland, Iceland, Norway and Sweden. Ritstj.:Ulla Carlsson og Eva Har- rie (Noricom – Göteborg University 2001) 4. Birgir Guðmundsson aðjúnkt HA: Skot- grafarpólitíkin – Fréttablaðið 2. jan. 2004 5. Jean Piaget. Ginsburg & Opper: Pia- get’s Theory of Intellectual Development, 3. útg. 1987 - Prentice Hall. 6. Jóhann Hauksson (ritstj.): Hugur ræður hálfri sjón – Um fræðastörf Dr. Guð- mundar Finnbogasonar, Háskólaútgáfan 1997 (Tilvitnun í Stjórnarbót er að finna í þessu riti.) 7. Nordenstreng, Kaarle: Komm- unikationsteori – AWE/Gebers 1977 Höfundur er dagskrárstjóri Rásar 2 og forstm. landshlutastöðva RÚV. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 43 jöreign ehf Ný tt á s krá Sími 533 4040 Fax 533 4041 TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA Björt og rúmgóð 4ra herb. 105 fm íbúð á efstu hæð. Stórglæsilegt út- sýni yfir borgina og til sjávar. Húsið allt í sérlega góðu ástandi, gaflar og bakhlið klædd. Framhliðin í góðu ástandi. Verð 12,3 milljónir Snorri og Ingibjörg taka á móti ykkur í dag frá kl. 14-17 Glæsilegt útsýni OPIÐ HÚS Í DAG Vesturberg 98 • 4. hæð t.v. Skólavörðust íg 13 S ími 510 3800 Fax 510 3801 husav ik@husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Opið hús í dag frá kl. 15 -17 www.husavik.net Gullfalleg 101,4 fm 4ra herbergja endaíbúð á 3 hæð (efstu) ásamt 6,8 fm geymslu í kjallara og 11,1 fm suðvestur svölum samtals 119,3 fm. Eignin skiptist. Forstofa, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofa. Fallegar kirsuberjainnréttingar, parket og flísar. Fallegt útsýni, frábærar gönguleiðir, stutt á gólfvöllinn, barnvænt umhverfi. Áhv. 7,5 millj. Verð 15,3 millj. Viðar og Rakel taka á móti gestum milli kl. 15 - 17 í dag. Barðastaðir 15 - Opið hús í dag Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.