Morgunblaðið - 18.01.2004, Síða 47
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 47
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson,
s. 588 4477 eða 822 8242.
Til leigu húsnæði
við Ármúla
Til leigu ca 720 fm. Hentar fyrir ýmiskonar starfsemi s.s. framleiðslu,
verslun, þjónustu og/eða lager. Allur aðbúnaður og aðkoma er til fyr-
irmyndar. Mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði.
Húsnæðið er laust nú þegar.
Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt sérhæft fasteignafélag.
Að fylgjast með barnisínu koma í heiminn erógleymanleg lífs-reynsla, upplifun semekkert jafnast á við.
Eftirvænting og spenna foreldr-
anna er mikil allar 40 vikur með-
göngunnar, og á lokametrunum
blönduð þjáningum og ótta móð-
urinnar, sem er ekkert til að blygð-
ast sín fyrir, heldur í samræmi við
og eðlileg afleiðing þess sem ég
einhvern tíma las, að ekkert væri
sársaukafyllra en barnsfæðing. En
hitt er líka víst, að fljótt er það að
gleymast, hið erfiða og vonda, þeg-
ar allt er afstaðið og hefur gengið
eins og best má verða í slíkum
kringumstæðum. Því launin eru
svo ríkuleg: ómæld gleði í hjarta
yfir að sjá þessa nýju, agnarsmáu
mannveru birtast í fyrsta sinn,
ósjálfbjarga, grátandi og ráðvillta,
með útréttar hendur og spyrjandi
augnaráð, og geta á móti opnað
faðm sinn og boðið hana velkomna í
skjól og hlýju.
Þetta verður samt ekki bara
dans á rósum á komandi árum, því
við lifum á óróatímum og ekki er
útlitið bjart framundan. Hinn 12.
janúar síðastliðinn, daginn eftir að
sonur minn fæddist, var t.d. frétt í
Morgunblaðinu þess efnis, að sam-
kvæmt nýrri rannsókn Heims-
viðskiptastofnunarinnar, sem lét
kanna viðhorf fólks til öryggis- og
efnahagsmála í 51 landi, teldi næst-
um helmingur jarðarbúa að börn
sín myndu koma til með að búa í
óöruggari heimi en þeim, sem við
nú dveljum í. Þar voru Evrópubúar
reyndar svartsýnni en aðrar þjóðir,
með 64% á hinni dökku línu.
En Íslendingar eru heppnari en
flestir aðrir að svo mörgu leyti, og
fyrir það ber að þakka. Hinn 10.
maí árið 2002 kom fram í þessu
sama blaði, að 5.500 börn önduðust
á degi hverjum sökum mengaðs
vatns og matar. Næst á eftir komu
dauðsföll af völdum öndunarfæra-
sýkinga, og þar á eftir var nið-
urgangur algengasta dánarorsökin
(um tvær milljónir barna á ári).
Langstærstur hluti þeirra er í fá-
tækustu ríkjum heims.
En þótt við séum ekki að glíma
við erfiðleika af þessum toga, í sjö-
unda ríkasta landi jarðar, er nóg
samt. Á árinu 2003 voru upplýst
fíkniefnabrot hér 1.340 talsins, en
árið 2002 höfðu þau verið 990, sem
þá var met. Mest fjölgaði brotum
sem falla undir sölu og dreifingu.
Þau voru 116 í fyrra, en 70 í hitteð-
fyrra. Vörslu- og neyslubrot fóru
úr 630 í 917. Þetta er raunveruleik-
inn sem blasir við okkur, og jafn-
framt mesta ógnin sem íslenskir
foreldrar munu þurfa að takast á
við á 21. öldinni. Annað þessu líkt,
og ekki skárra viðureignar, er trú-
leysið, fýsnin og græðgin. Biskup
Íslands gerði það að umtalsefni í
nýársprédikun í Dómkirkjunni fyr-
ir skemmstu, og hvatti til þjóð-
arvakningar gegn öllu slíku, með
heill barnanna að leiðarljósi. M.a.
sagði hann þetta:
Hvað er mikilvægast í lífinu? Svarið skín við
okkur af barnsins augum, jólabarnsins. Lífið
er besta gjöfin. Barnið, jólabarnið, gaf líf sitt
heiminum til lífs og gerði hag og kjör
barnanna að sínum. Og þegar hann var
spurður hver væri mestur þá benti hann á
barnið, það er mest og mikilvægast alls.
Barnið er ekki bara undursamleg gjöf. Það er
krafa á hendur okkur sem eldri erum. Ekkert
hefur eins áhrif á samskipti fólks, verðmæta-
mat og lífsviðhorf, eins og það að eignast og
ala upp barn. Barnið minnir okkur á varn-
arleysi lífsins. Það vekur þakklætið, auð-
mýktina, og tilfinninguna fyrir þeirri ábyrgð
sem okkur er lögð á herðar: Að vaka yfir vel-
ferð þess til lífs og sálar. Að beina því á gæfu-
vegu og heilla sér og öðrum.
Tæru augun barnsins bera birtu af ljóma
barnsins í jötunni, frelsara heimsins. Hvort
tveggja á í vök að verjast í heiminum í dag,
börnin okkar og Jesúbarnið, Jesútrú. Svo
virðist sem mat okkar yfirleitt á því hvað mik-
ilvægast er hafi farið afvega. Græðgin og
fýsnin grúfa yfir …
Það staðfestir reynsla kynslóðanna að sá sem
hefur ekki lært að kveða að stafrófi trú-
arinnar, né þekkja grundvallarmynstur sagn-
anna um „upphaf og endinn, Guð og mann og
lífsins og dauðans djúpin“, verður ólæs og
orðvana og áttavilltur gagnvart mótlæti,
áföllum og auðnubrigðum sem óhjákvæmi-
lega fylgja öllu lífi. Það er einmitt grundvall-
aratriði kristinnar trúar og siðar að við þurf-
um ekki að standa ein og bera okkur sjálf.
Hönd Guðs leiðir, englar hans vaka yfir, sam-
félag kirkju hans á himni og jörðu umvefur og
ber á örmum sínum. Kvöldbæn barnsins,
bænaversin, sálmarnir, sögurnar um Jesú,
iðkun og athöfn sem greiðir helginni og birt-
unni veg að barnshjartanu, er og verður öflug
forvörn og farvegur blessunar.
Rúmlega 4.000 börn fæðast hér
á landi ár hvert núorðið. Hvernig
mun þeim reiða af, börnum ársins
2004, hvernig munu þau ná að fóta
sig á brautinni hálu eða veginum
grýtta? Enginn veit, en uppeldið
kemur til með að hafa úrslitaáhrif,
það er næsta víst, eins og fram
kemur í orðum biskups.
Og hvað verður um Mikael? Mun
okkur, foreldrum hans, takast að
halda ósóma og villu frá honum, og
kenna góða siði, í líkingu við það
sem að framan má lesa? Ég veit
það ekki. En vonandi. Við komum
a.m.k. til með að reyna það af
fremsta megni, allt hvað við getum.
Það er svo mikið í húfi.
Mikael
Hvort munu augu hins nýfædda barns einblína
á ljósið eða myrkrið í komandi framtíð? Og
hvað munu litlar hendurnar snerta, ávexti hins
fagra og góða, eða kannski afsprengi dauðans,
fíkniefnin? Sigurður Ægisson lætur hugann
reika um þær slóðir í dag.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
HUGVEKJA
FYRSTA æðruleysismessa ársins
verður að kvöldi sunnudagsins 18.
janúar kl. 20.
Æðruleysismessan hefur fengið
góðan hljómgrunn þar sem fólki
fellur vel hið óþvingaða form þar
sem léttleiki og djúp trú-
areinlægni fara saman.
Einkum er messan sniðin að
þörfum þeirra sem leita sér hjálp-
ar eftir 12 spora kerfi AA-
samtakanna. Hún er samt sem áð-
ur ekki einskorðuð við þann hluta
þjóðarinnar. Fyrst og fremst er
hún nútímalegt messuform með
fögru innihaldi glaðra sálma-
söngva, Guðs orðs og bæna. Í
messulok er síðan boðið til þess
að ganga inn í kór kirkjunnar,
krjúpa við altarið og þiggja sér-
staka fyrirbæn.
Bræðurnir Hörður og Birgir
Bragasynir og Hjörleifur Valsson
leika á píanó, fiðlu og kontra-
bassa. Söngstjóri er Anna Sigríð-
ur Helgadóttir. Sr. Hjálmar Jóns-
son predikar, sr. Karl V.
Matthíasson fer með bæn og sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir
messuna.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dómkirkjan.
Ljósamessa
í Laugarneskirkju
Í DAG, sunnudaginn 18. janúar,
eiga sunnudagaskólabörnin í
Laugarneskirkju stund með okk-
ur sem eldri erum kl. 11.
Rebbi refur mun heimsækja
okkur til að fá aðstoð krakkanna
við að bæta sig og læra að hugsa
fallega, mikið verður sungið og
m.a.s. mun fimm ára kórinn í
Laugaborg taka lagið. Það eru
þau Hildur Eir Bolladóttir guð-
fræðinemi, Heimir Haraldsson
kennari og Þorvaldur Þorvalds-
son söngvari sem leiða stundina
ásamt sr. Bjarna Karlssyni og
Sigurbirni Þorkelssyni fram-
kvæmdastjóra safnaðarins. Kór
Laugarneskirkju leiðir sönginn
undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar organista.
Börn á öllum aldri velkomin.
Morgunblaðið/Ómar
Dómkirkjan í Reykjavík.
Æðruleysis-
messa
í Dómkirkjunni
Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æskulýðs-
félag Árbæjarsafnaðar, með fundi í safn-
aðarheimilinu.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tek-
ið er við bænarefnum alla virka daga frá kl.
9–17 í síma 587 9070.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10.
bekk kl. 20. Mánudagur: Æskulýðsfélag
fyrir 8. bekk kl. 20.
Bessastaðasókn. Sunnudagaskólinn er í
sal Álftanesskóla kl. 11. Umsjón með
sunnudagaskólanum hafa Kristjana og Ás-
geir Páll. Allir velkomnir. Ath. byrjar aftur
11. janúar
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld, sunnu-
dag, kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601. Í
dag er samkoma kl. 14. Helga R. Ár-
mannsdóttir talar. Lofgjörð og fyrirbænir.
Tvískipt barnastarf fyrir 1–6 ára og 7–12
ára börn á samkomutíma. Kaffi og sam-
félag eftir samkomu. Allir velkomnir. Alfa-
námskeiðið hefst 22. janúar kl. 19. Um er
að ræða 10 vikna námskeið, einu sinni í
viku. Upplýsingar og skráning í síma
554 3708 eða 896 3637 (Helga) eða
865 7901 (Björg). Nánari upplýsingar á
www.kefas.is.
Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Jón Þór Eyjólfsson. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaður Snorri Ósk-
arsson. Mikil lofgjörð í umsjón Gospelkórs
Fíladelfíu. Frirbænir. Allir velkomnir. Bæna-
stundir alla virka morgna kl. 6. www.gosp-
el.is.
Dagskrá bænaviku:
Sunnudagur: Útvarpsmessa í Dómkirkj-
unni. Sr. María Ágústsdóttir og sr. Jakob Á.
Hjálmarsson þjóna fyrir altari, major Anne
Marie Reinholdtsen, forstöðukona Hjálp-
ræðishersins á Íslandi, predikar. Fulltrúar
annarra trúfélaga lesa ritningarlestur.
Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu
eftir messu.
Safnaðarstarf
Fréttir í
tölvupósti