Morgunblaðið - 18.01.2004, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 18.01.2004, Qupperneq 60
FRÉTTIR 60 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ R annsóknarnefnd flugslysa stóð á dögunum fyrir námskeiði fyrir þá sem fyrstir koma á vettvang ef flugslys verður og sóttu það um 25 manns. Voru það fulltrúar frá lögreglu, almannavörnum, björg- unarsveitum, flugrekendum og Flug- málastjórn en markmið námskeiðsins var að fara yfir viðbrögð og ábyrgðarsviðs þessara aðila. Kennarar voru frá bandarísku stofn- uninni Southern California Safety Institute sem hefur sérhæft sig í námskeiðahaldi og ráðgjöf vegna viðbragða við slysum og áföll- um. Þormóður Þormóðsson, rannsóknarstjóri RNF, og Þorkell Ágústsson aðstoðarrann- sóknarstjóri segja að í fyrra hafi verið haldið námskeið fyrir flugrekendur sem hafi snúist um skyldur þeirra og réttindi þegar flugslys eru annars vegar. Í framhaldi af því hafi verið ákveðið að hafa hliðstætt námskeið fyrir þá sem koma fyrstir á vettvang til að þeir geti betur gert sér grein fyrir hverju hugsanlega er að mæta og í framhaldinu bætt við- bragðsáætlanir sínar. Telja þeir að með þess- um tveimur námskeiðum hafi skerpst sýn við- komandi aðila á nauðsyn réttra viðbragða og hver og einn hafi einnig fengið betri yfirsýn yfir hlutverk samstarfsaðila. Huga þarf sérstaklega að fjölskyldunum Einn þáttur námskeiðsins var að huga að því hvernig sinna þarf fjölskyldum þeirra sem lent hafa í flugslysi, hvort sem farþegar kunna að hafa farist, slasast alvarlega eða sloppið án meiðsla og fjallaði Sharon Morp- hew um það efni. Auk þess að kenna á nám- skeiðinu hélt hún fund með fulltrúum land- læknis, Rauða krossins, þjóðkirkjunnar, Landspítala – háskólasjúkrahúss og almanna- varna, þ.e. þeim aðilum sem einkum koma til með að sjá um aðstandendur farþega eftir flugslys. „Á fundinum hjá landlæknisembættinu gerði ég grein fyrir þeirri stærðargráðu og því um- fangi sem fylgir því að sinna fjölskyldum þeirra sem lent hafa í flugslysi,“ sagði Sharon Morphew í samtali við Morgunblaðið og kveðst hún þá einkum hafa stórslys í huga, þegar kannski vél með 200 til 300 farþegum ferst og farþegar ýmist farast eða slasast alvarlega. „Þegar flugslys verður þarf einhver að sjá um hóp fólks sem leitar fregna af ástvinum og þarf stuðning og umhyggju. Við verðum að út- vega þessum hópi góðar aðstæður að búa við meðan málið skýrist, gefa honum reglulega upplýsingar frá flugfélaginu og rannsókn- arnefnd um hvað hafi gerst og ekki síst að hjálpa þeim við að fylgjast með líðan þeirra sem hafa slasast eða huga að jarðneskum leif- um þeirra sem hafa farist. Þarna geta margir aðilar komið við sögu og fjölskyldan þarf að- stoð við að átta sig á hvað gerst hefur, til hvaða ráðstafana þarf hugsanlega að grípa og síðan þurfa allir umhyggju og stuðning við slík áföll.“ Í mörgum löndum Evrópu, Bandaríkjunum og víðar hafa yfirvöld þegar komið upp ákveðnu kerfi til að sjá til þess að fjölskyldum sé vel sinnt. Slíkar viðbragðsáætlanir segir hún frekar nýlega komnar til. Yfirleitt sé það skipulagt þannig að einn verkefnastjóri stýri aðgerðum og að auk aðstoðarmanna þurfi að gera ráð fyrir talsvert stórum hópi sjálf- boðaliða. Hún segir það langt frá því einfalt að sinna stuðningi sem þessum. „Í stórri far- þegaflugvél í dag eru mörg hundruð manns, fólk úr ýmsum áttum, af ýmsu þjóðerni og með ólíkan menningarbakgrunn og af mis- munandi trúarbrögðum. Við þurfum til dæmis að gera ráð fyrir mjög ólíkum viðbrögðum vegna andláts því sum trúarbrögð gera ráð fyrir að sá látni sé jarðsettur þar sem hann dó en ekki í heimalandinu, hver og ein trúar- brögð gera ráð fyrir ákveðnum frágangi á líki og þar fram eftir götunum.“ Áfallahjálp getur staðið lengi Sharon kvaðst hafa bent sérstaklega á hversu umfangsmiklar allar þessar aðgerðir geta verið, t.d. þegar litið er á aðstæður á suðvesturhorni landsins þar sem Keflavík- urflugvöllur er næsti völlur þeirra hundraða flugvéla sem fara um íslenska flugstjórn- arsvæðið á degi hverjum. Að sjá um aðstand- endur 200 til 300 farþega, skipta þeim niður á hótel eftir því hvort ástvinir þeirra hafa farist eða slasast, og best sé að hvor hópur sé út af fyrir sig. Síðan þarf enn einn stað fyrir áhöfn- ina og aðra sem tengjast viðkomandi flug- félagi, aðstöðu fyrir fjölmiðla sem munu flykkjast á staðinn og enn annan fyrir þá sem aðstoða fjölskyldurnar og þar fram eftir göt- unum. Segir hún mikinn tíma fara í áfalla- hjálp og þótt hér geti margir veitt slíka hjálp segi það lítið þegar stórslys sé annars vegar. Þá segir hún að um leið og hugað sé að látnum og slösuðum bíði fjölskyldurnar eftir upplýsingum um hvað gerst hafi og best sé að koma á ákveðinni samvinnu við flugfélagið og rannsóknarnefnd um upplýsingar. Fyrstu dagana væri best að rannsóknarnefnd upp- lýsti beint um gang mála á hverjum degi en eftir fyrstu vikuna gæti stuðningshópur fjöl- skyldnanna tekið við. „Reynsla okkar er sú að fjölskyldur fagna mjög svona ákveðnum vinnubrögðum. Með þessu móti er tryggt eins og kostur er að öllum sé hjálpað og að allir séu upplýstir.“ Þá lagði Sharon áherslu á að þetta ferli gæti staðið lengi. Rannsókn flug- slyss tæki yfirleitt marga mánuði og jafnvel nokkur ár og væri mikilvægt að fylgjast með fjölskyldum áfram og oft þyrfti líka að huga að hvort einhverjir gætu þurft á lögfræðiað- stoð að halda. Fóru yfir viðbrögð og ábyrgðarsvið vegna flugslysa Fyrsta verkefni þeirra sem koma fyrstir á vettvang flug- slyss er að bjarga fólki en í framhaldinu þarf að huga að mörgum þáttum. Rannsóknarnefnd flugslysa stóð fyrir námskeiði um þessi mál í síðustu viku og kannaði Jóhannes Tómasson nokkur atriði sem þar komu fram. Morgunblaðið/Eggert Frá vinstri: Þormóður Þormóðsson, Sharon Morphew og Þorkell Ágústsson. joto@mbl.is Morgunblaðið/Hilmar Bragi Boeing 777-þota nauðlenti á Keflavíkurflugvelli fyrir skömmu vegna bilunar í hreyfli. Mikilli aðgerðaráætlun er hrint af stað ef alvarlegri atburðir verða. „VIÐ erum í raun með þessu nám- skeiði að undirbúa okkur fyrir próf og þurfum að vera eins vel und- irbúin og eiga eins góða við- bragðsáætlun og búa yfir eins góðri þjálfun og frekast er unnt,“ segir Jó- hann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, í samtali við Morgunblaðið þegar hann er spurð- ur út í námskeiðið. Ásamt Jóhanni sitja það fjórir samstarfsmenn hans og hann segir það hafa verið mjög gagnlegt og kveðst geta mælt með því fyrir starfsbræður sína. Hann segir RNF eiga þakkir skildar fyrir að hafa gengist fyrir námskeiðinu. „Þrátt fyrir það að víða um land hafi myndarlega verið staðið að verki við margs konar stórslysaæf- ingar þá tel ég að við höfum haft mikið gagn að þessu og hér hefur bæði verið farið í hlutina munnlega og verklega.“ Jóhann segir að miðað við hversu oft neyðarlendingar stórra erlendra flugvéla hafi verið á Keflavíkurflugvelli síðustu árin hafi verið hugað vandlega að öllum þátt- um er varða nauðsynlegan viðbúnað og að brýnt sé líka að gera ráð fyrir því að þær gætu farist í lendingu á vellinum eða í nágrenni hans. „Við verðum að vera viðbúin því að framkvæmda þessar áætlanir okkar og þá þarf að huga að æði mörgum þáttum,“ segir Jóhann og bendir á að nógu umfangsmikið sé að taka skyndilega á móti yfir 400 farþegum í vél sem lenda verður vegna bilunar eða sprengjuhótunar, rýma vélina, koma farþegum í flug- stöð og á hótel. „Síðan verðum við að horfast í augu við að það kunna að gerast enn alvarlegri atburðir, að vél farist hér með mörg hundruð manns sem látast eða slasast við verstu aðstæður í myrkri og byl. Við megum ekki forðast þá hugsun að þurfa hugsanlega að glíma við slík- an voða, það er munaður sem við getum einfaldlega ekki leyft okkur.“ Jóhann segir að ör- yggismál hafi ger- breyst á síðustu árum, allar reglur hafi verið hertar og auknar og gert ráð fyrir því að margt geti farið úr- skeiðis í flugi og það geti allt eins komið til kasta Íslendinga að sinna slíkri vá og því hafi menn raunar kynnst í nokkrum mæli. „Við þurfum ekki annað en að líta til þess hversu oft samhæfingarstöð Al- mannavarna hefur verið virkjuð síð- ustu misserin og hversu oft það hef- ur verið vegna hættuástands á Keflavíkurflugvelli,“ segir Jóhann og segir að á námskeiðinu hafi verið minnt rækilega á þann óþægilega raunveruleika sem stórslys í flugi er. „Þarna miðluðu menn þekkingu sinni og sýndu myndir af vettvangi þar sem vél hafði brotlent, hvernig slasaðir voru flokkaðir, hvernig sinna þurfti aðstandendum og hversu mikið alþjóðlegt fjölmiðlafár fer af stað við slys í alþjóðaflugi og þetta sýndi okkur vel hversu margir gætu þurft að koma hingað til lands ef slík gerist hjá okkur.“ Jóhann segir að við nokkrar neyðarlend- ingar síðustu misseri hafi áætlanir um viðbúnað á Keflavíkurflugvelli staðist nokkuð vel, þar hafi skapast dýrmæt reynsla og menn séð eitt og annað sem farið hafi úrskeiðis og verði bætt úr. Segir hann stíf funda- höld hafa verið að undanförnu til að fara yfir þessar áætlanir. Gagnlegar umræður við samstarfsaðila „Mér finnst námskeiðið ekki síst hafa verið gagnlegt vegna þess að hér voru fulltrúar frá ýmsum aðilum og okkur gafst kostur á að fjalla um ýmis atriði í umræðum á milli fyr- irlestranna,“ segir Víðir Reynisson, verkefnafulltrúi hjá almannavarna- deild ríkislögreglustjórans. Víðir segir deildina koma við sögu á tvenns konar hátt í tengslum við viðbúnað vegna slysa eða hættu- ástands. „Annars vegar þarf að huga að undirbúningi og samhæf- ingu varðandi neyðaráætlanir í sam- starfi við hina ýmsu aðila sem koma við sögu þegar neyðarástand er uppi,“ segir Víðir. „Hins vegar er það verkefni samhæfingarstöðvar okkar að leysa ýmis verkefni í tengslum við neyðarástand. Lög- reglustjóri á viðkomandi svæði sér um stjórn á aðgerðum og notar lið sitt, slökkvilið, heilbrigðiskerfi og aðra sem eru á svæði hans en auk þess getur verið nauðsynlegt að út- vega ýmsan búnað eða veita aðra aðstoð sem hann hefur ekki á hrað- bergi á sínu svæði.“ Á námskeiðinu hefur verið farið yfir það sem mikilvægt er að hafa í huga við gerð viðbragðsáætlana og ekki síst hafi verið farið yfir rann- sóknarþátt. Þegar búið sé að bjarga fólki frá vettvangi sé vinna við rann- sóknina sjálfa rétt að hefjast. Það taki kannski ekki nema þrjá til fjóra tíma að bjarga fólki en rannsókn á vettvangi geti staðið vikum saman. Þá segir Víðir einnig hafa verið bent á hversu margt fólk geti komið á vettvang ef t.d. erlend flugvél myndi farast við Ísland og gera verði ráð fyrir úrræðum til að sinna þeim hópi. „Þetta getur orðið talsvert stór hópur því það er talað um sem viðmiðun að fjórir aðstandendur geti komið fyrir hvern farþega og síðan útvegar flugfélagið sem í hlut á fólk til aðstoðar ættingjum þannig að ef 300 manna flugvél á í hlut geta þetta orðið 1.200 ættingjar og tugir eða hundruð starfsmanna flugfélags og annarra aðstoðar aðila til við- bótar.“ Eins og undirbúningur fyrir próf Jóhann R. Benediktsson Víðir Reynisson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.