Morgunblaðið - 18.01.2004, Síða 62
FRÉTTIR
62 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Kínversk áramót
Miðvikudaginn 21. janúar nk. mun Íslensk-kínverska viðskipta-
ráðið halda upp á kínversk áramót en þá gengur í garð ár
apans samkvæmt kínversku tímatali. Áramótafagnaðurinn verður
haldinn á veitingastaðnum Asíu, Laugavegi 10, Reykjavík, og
hefst kl.19:00. Boðið verður upp á sex rétta máltíð.
Þátttökugjald er 2.800 kr.
Ræðumaður kvöldsins verður Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Icelandair. Mun hann fjalla um nýja
möguleika í ferðaþjónustu í Kína.
Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna og taka með sér
gesti. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu ráðsins sem allra
fyrst í síma 588 8910 eða netfang lindabara@fis.is
FAGNAÐURINN ER ÖLLUM OPINN.
ÍSLENSK KÍNVERSKA VIÐSKIPTARÁÐIÐ
Námsaðstoð
fyrir samræmdu prófin í 10. bekk
Nemendaþjónustan Álfabakka 12, Mjódd
Stærðfræði - íslenska - danska - enska - náttúrufræði
- Íslenskar rannsóknir sýna að nemendur sem eru fyrir neðan 6 á
samræmdu prófunum eiga í erfiðleikum með framhaldsnámið.
- Það er ennþá tækifæri til að styrkja stöðu sína fyrir vorið.
- Hjá okkur starfa kennarar sem náð hafa góðum árangri með
nemendur á samræmdum prófum.
Einnig námsaðstoð fyrir nemendur framhalds- og háskóla
Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19 virka daga
og á vef okkar www.namsadstod.is
GAGNGERAR breytingar hafa ver-
ið gerðar á veitingastaðnum Múla-
kaffi við Hallarmúla og er þetta í
raun í fyrsta skipti í 42 ár eða frá
stofnun staðarins að umtalsverðar
breytingar eru gerðar á honum.
„Við erum að breyta og söðla um
og ætlum að gera Múlakaffi meira
að „restaurant“ en ætlum samt líka
að halda áfram að bjóða upp á heim-
ilismatinn okkar sem fólk þekkir,“
segir Jóhannes Stefánsson, veit-
ingamaður á Múlakaffi.
Jóhannes segir að boðið verði upp
á huggulegt hlaðborð í hádeginu á
virkum dögum þar sem verði salöt,
heitir og kaldir réttir og það verði á
mjög góðu verði. „Við byrjum form-
lega á þessum hlaðborðum með
kynningu á rosaglæsilegu þorra-
hlaðborði á bóndadag (23. janúar)
og keyrum það fyrstu þrjár helg-
arnar.“
Jóhannes segir að viðskiptahópur
Múlakaffis hafi breyst nokkuð og
mörg ár séu síðan staðurinn hætti
að vera sérstakur verka- eða iðn-
aðarmannastaður. „Það er löngu bú-
ið. Hér borðar alþýðan, viðskipta-
menn, tölvugúrúar og einfaldlega
allir sem vilja borða góðan mat og
annað en ruslfæði. Kúnnahópurinn
er orðinn gerbreyttur, við erum ein-
faldlega restaurant og erum nú að
fá leyfi til þess að selja léttvín. Og
svo verður þetta líka huggulegt
kaffihús. Þannig að Múlakaffi er
orðið allt annar staður í dag en mat-
urinn verður áfram á mjög sann-
gjörnu verði.“
Elsti veitingastaðurinn
Jóhannes segir afgreiðslutímann
hafa verið lengdan fram til níu á
kvöldin og opið sé frá hálfátta alla
daga vikunnar. „Þá bjóðum við upp
á morgunkaffi og beikon og egg. En
á kvöldin dempum við ljósin og setj-
um kerti og höfum þetta huggulegt
þannig að við sækjumst eftir að fá
fjölskyldurnar á kvöldin og um helg-
ar og þá er matseðillinn svona í
betri kantinum. En við komum til
með að halda áfram að keyra á okk-
ar heimilismat en kannski með meiri
metnaði og meiri íburði en bætum
við okkur hlaðborðinu í hádeginu.
Við erum áfram gamla góða Múla-
kaffi sem er elsti veitingastaðurinn
á Íslandi í dag. Fólk getur komið
hingað og fengið saltfisk, plokkfisk,
pönnusteikta ýsu, saltkjöt og baun-
ir, fiskbollur, hvítkálsböggla og
hakkað nautabuff með spæleggi og
lauk. Þetta verður bara huggulegar
fram borið en menn geta gengið að
því sem þeir hafa fengið í gegnum
öll árin. Það geta menn hvergi ann-
ars staðar en hjá okkur,“ segir Jó-
hannes.
Fyrstu breytingarnar
á Múlakaffi í 42 ár
Áfram verður
boðið upp á hefð-
bundinn íslensk-
an heimilismat
Morgunblaðið/Þorkell
Jóhannes Stefánsson í Múlakaffi: „Komum til með að halda áfram að keyra á okkar heimilismat.“
FÉLAGI hjartasjúklinga á Eyja-
fjarðarsvæðinu barst á dögunum
vegleg gjöf frá systkinum í Eyja-
firði sem ekki vilja láta nafns síns
getið. Þau færðu félaginu eina
milljón króna.
„Við færum þeim auðvitað hjart-
ans þakkir fyrir þessa rausnarlegu
gjöf,“ sagði Gísli Eyland, formaður
félagsins, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Það er á stefnuskrá félagsins
að Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri sé búið fullkomnustu tækjum í
sambandi við hjartalækningar og
höfðingleg gjöf sem þessi er félag-
inu mikils virði.“
Félagið var stofnað 1990 og hef-
ur frá þeim tíma gefið tæki að
verðmæti rúmlega 40 milljónir
króna. Síðastliðið vor gaf félagið
FSA t.d. nýtt hjartaómtæki af full-
komnustu gerð að verðmæti 20
milljónir, og bætti um betur nú
áramótin þegar það gaf ungbarna-
nema við ómtækið, tæki sem kem-
ur að góðum notun við skoðun
ungbarna.
Gáfu félagi
hjartasjúk-
linga eina
milljón
Útsala - Útsala
Klapparstíg 44 - sími 562 3614
♦♦♦