Morgunblaðið - 03.03.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 9
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Bolir í miklu úrvali
Margir litir - Margar gerðir
Gott verð
Hallveigarstíg 1, s. 588 4848
Full búð af flottum fötum
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Samfella án spanga
Stærðir 75-115 b, c, d, e
ALLS sóttu sjö umsækjendur
um stöðu skólastjóra við Val-
húsa- og Mýrarhúsaskóla, en
umsóknarfrestur rann út 25.
febrúar sl.
Umsækjendurnir eru Fríða
Regína Höskuldsdóttir skóla-
stjóri, Helga Arnfríður sál-
fræðingur, Jörundur Ákason
kennari, Magnús Ingimundar-
son, deildarstjóri í Iðnskólan-
um í Reykjavík, Ragnhildur
Guðjónsdóttir BA, Sigfús Grét-
arsson skólastjóri og Sigríður
Hrefna Jónsdóttir B.Ed.
Sjö sækja
um skóla-
stjórastöðu
SETTUR landlæknir, Jón Hilmar
Alfreðsson, segir í álitsgerð sinni í
máli foreldra sem misstu nýfætt
barn sitt á fæðingardeild Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja í
september 2003 og kvörtuðu und-
an rangri meðferð við fæðingu
barnsins, að orsök andlátsins hafi
verið af völdum deyfilyfsins
marcains. Lyfið var gefið og deilt
á fjóra stungustaði í kringum leg-
háls móðurinnar áður en barnið
var tekið með keisaraskurði.
Settur landlæknir bendir á það
álit sérfræðinga við Barnaspítala
Hringsins, að barnið hafi orðið fyr-
ir svo miklum súrefnisskorti í fæð-
ingu að ekki hafi verið unnt að
bjarga því. Telji sérfræðingarnir
allar skemmdir í innri líffærum af
völdum þessa súrefnisskorts. Þess
er og getið í álitsgerðinni að Þóra
Steffensen læknir taki undir þetta
álit. Settur landlæknir fellst „al-
gjörlega“ á þetta álit en tekur
fram í lokaorðum sínum að gera
þurfi nánari grein fyrir orsaka-
samhengi. Segir hann að súrefn-
isskorturinn hafi ekki verið vegna
þeirra „venjulegu“ orsaka sem
fæðingarlæknar standi svo oft
frammi fyrir, en það eru fylgju-
þurrð, fylgjulos, naflastrengjak-
lemma einhvers konar eða með-
fæddur sjúkleiki barnsins. Segir
hann ljóst að ekkert af þessu hafi
verið til staðar.
Orsökin í umræddu tilviki sé þó
alveg ljós og hún sé óvenjuleg;
áhrif marcains. Settur landlæknir
segir þó ekki vitað með vissu ná-
kvæmlega hvernig lyfið hafi virkað
á barnið.
Í álitsgerðinni kemur fram að 18
mínútur hafi liðið frá upphafi falls
í hjartslætti barnsins, sem mark-
aði upphaf alvarlegs súrefnis-
skorts, til útkalls í bráðakeisara-
skurð. Spyr settur landlæknir
hvort of seint hafi verið brugðist
við og segir að ámælisverð töf geti
mest verið 10 mínútur.
Þrjú nálarstunguför
á höfði barnsins
Í athugasemdum foreldranna við
álitsgerðinni, kemur m.a. fram að
málsgögnin sýni að umrædd deyf-
ing hafi ekkert slegið á hríðarverki
móðurinnar og telja foreldrarnir
það vísbendingu um að deyfingin
hafi farið beint í barnið og það sé
skýringin á því hvernig fór, til við-
bótar því að deyfiblandan var mun
sterkari en þörf var á. Þá komi
fram í krufningsskýrslu að þrjú
nálarstunguför hafi verið á höfði
barnsins. Engin skýring komi
fram í skýrslu eða drögum í álits-
gerð setts landlæknis hvernig nál-
arstunguförin séu tilkomin. Í ljósi
þess sem gerðist vakni sú spurn-
ing hvort læknirinn kunni að hafa
stungið í höfuð barnsins er hann
lagði upp deyfinguna.
Deyfilyf talin orsök
andláts nýfædds barns
72 EINSTAKLINGAR voru hand-
teknir hér á landi í fyrra vegna fíkni-
efnasmygls, þar af 65 karlar og 7
konur. 17 hinna handteknu voru
yngri en 25 ára.
Samkvæmt upplýsingum frá emb-
ætti ríkislögreglustjóra er hass og
amfetamín einkum flutt inn með
skipum en kókaíni er aðallega smygl-
að flugleiðis. Lagt var hald á rúm 50
kg af hassi á síðasta ári, þar af rúm
48 kg á landamærum og 1,5 kg í
pósti. Um 43 kg af hassins hafði verið
reynt að smygla frá Danmörku.
Smyglarar reyna þá helst að
smygla maríjúana og e-töflum með
pósti. Algengast er að reynt sé að
smygla fíkniefnum frá Danmörku,
Hollandi og Bretlandi en ekki liggja
fyrir upplýsingar frá hvaða löndum
efnin eru upprunnin.
72 handteknir í fyrra
vegna fíkniefnasmygls
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
REYKJAVÍKURBORG og knatt-
spyrnufélagið Fram hafa undirritað
viljayfirlýsingu um að félagið taki að
sér að sjá um íþróttastarf í nýju
hverfi borgarinnar í landi Úlfarsfells,
norðan Grafarholts og austan Vest-
urlandsvegar, en þar er gert ráð fyrir
að rísi 20–25 þúsund manna íbúðar-
byggð á næstu árum. Allt starf fé-
lagsins mun flytjast þangað í framtíð-
inni, en Fram mun eftir sem áður
sinna íþróttastarfi í Safamýri sam-
kvæmt sérstöku samkomulagi.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni er
gert ráð fyrir að höfuðstöðvar félags-
ins verði byggðar upp í hinu nýja
hverfi og þar verði aðalknattspyrnu-
svæði félagsins, íþróttahús og önnur
íþróttaaðstaða, sundlaug og stjórnun-
ar- og félagsaðstaða félagsins.
Sett verður á laggirnar samstarfs-
nefnd skipuð fulltrúum frá umhverf-
is-, tækni-, skipulags- og bygginga-
sviðssviði borgarinnar, Íþrótta- og
tómstundaráði og fulltrúum Fram og
er nefndinni ætlað að skoða hug-
myndir sem fyrir liggja um íþrótta-
og útivistarmannvirki í hverfinu og
skal hún fyrst og fremst taka mið af
mannvirkjum og starfsemi sem þjón-
að geti íþróttastarfi Fram. Þar verð-
ur horft til keppnisíþrótta, barna- og
unglingastarfs félagsins og þjónustu
við skólastarf og almenning.
Einnig er tekið fram að nefndin
skuli kanna á hvern hátt verði staðið
að nýtingu íþróttamannvirkja í öllum
hverfunum á svæðinu þannig að
Fram geti þjónað hverfunum á sviði
íþróttastarfs fyrir börn og unglinga.
Jafnframt er kveðið á um að sam-
starfsnefndin skuli huga að nýtingu
og rekstri mannvirkja Fram í Safa-
mýri.
Gert er ráð fyrir að drög að nið-
urstöðum samstarfsnefndarinnar
liggi fyrir í sumarlok og stefnt að
undirritun samkomulags fyrir 1.
október.
Nýbreytni
Þórólfur Árnason borgarstjóri
sagði á blaðamannafundi, sem boðað
var til af þessu tilefni, að í þessu væri
fólgin nokkur nýbreytni. Hingað til
hefði almennt verið talið rétt að
íþrótta- og æskulýðsstarf væri í
höndum nýrra félaga við uppbygg-
ingu nýrra hverfa, þó með þeirri und-
antekningu að ÍR hefði flust upp í
Breiðholt. Að sumu leyti hefði þetta
ekki verið alveg nógu farsælt því upp-
bygging slíks starf tæki ákveðinn
tíma og treysta yrði mikið á sjálfs-
prottið frumkvöðulsstarf.
„Knattspyrnufélagið Fram er
tilbúið núna með Reykjavíkurborg að
horfa til mjög langs tíma þannig að
þegar þetta nýja hverfi fer að byggj-
ast upp að þá sé þar strax reynsla og
ákveðin áratugahefð fyrir því að reka
íþróttafélag,“ sagði Þórólfur.
Fram kom að búið er að skipu-
leggja fyrsta hluta svæðisns og að
framkvæmdir gætu hafist síðla á
þessu ári, en gert er ráð fyrir um átta
hektara íþróttasvæði í botni dalsins
að norðanverðu við Grafarholtið.
Verður félagið með í því skipulags-
ferli sem eftir er varðandi íþrótta-
svæðið.
Guðmundur B. Ólafsson, formaður
Fram, lýsti ánægju sinni með þá
stefnu Reykjavíkurborgar að fá starf-
andi íþróttafélag til að taka þátt í upp-
byggingu og skipulagi á íþróttastarf-
semi í nýju hverfi.
„Við horfum til framtíðar með fé-
laginu. Þarna á eftir að rísa mjög
stórt og mikið hverfi þar sem verður
fyrsta flokks aðstaða. Við sjáum fé-
lagsmönnum okkar best borgið með
því að fá að taka þátt í því frá upp-
hafi,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að þetta væri ekki í
fyrsta skipti sem Fram hefði flutt því
það hefði verið stofnað í miðborginni
1908 og síðan flust í Skipholtið og í
Safamýrina árið 1970 og verið þar
síðan.
Fram kom einnig að það þrengdi
að Fram þar sem félagið er nú í Safa-
mýrinni og iðkendum fækkaði. Mark-
miðið væri að félagið yrði á einum
stað í framtíðinni, en einhver ár yrði
félagið á báðum stöðum. Jafnframt
gerði samkomulagið ráð fyrir því að
Fram hefði áhrif á hvernig yrði farið
með þau mannvirki sem væru á svæð-
inu og félagið legði mikla áherslu á að
það yrði áfram íþróttastarfsemi fyrir
íbúa í hverfinu. Unnið yrði með borg-
inni að því að móta hvernig að því yrði
staðið, hvort sem það yrði gert með
samkomulagi við Fram eða einhverja
aðra.
Fram flyst á Úlfarsfells-
svæðið á næstu árum
20–25 þúsund manna byggð norðan við Grafarholt og við Vesturlandsveg
Hér má sjá staðsetningu svæðisins í dalverpinu milli Grafarholts og Úlfars-
fells austanvert við Vesturlandsveginn. Fjólubláu svæðin eru bygg-
ingasvæði, en gert er ráð fyrir átta hektara útivistar- og íþróttasvæði í
botni dalverpisins norðanvert við ána merkt Í á myndinni.