Morgunblaðið - 03.03.2004, Qupperneq 14
ERLENT
14 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ARNOLD Schwarzenegger, ríkis-
stjóri í Kaliforníu, sagði í sjónvarps-
viðtali í fyrrakvöld, að honum „litist
vel á“, að lögum ríkisins yrði breytt
og hjónabönd samkynhneigðra leyfð.
Schwarzenegger sagði þetta er
hann kom fram í viðtalsþætti Jay Len-
os og jafnframt vísaði hann eindregið
á bug þeirri yfirlýsingu George W.
Bush, forseta Bandaríkjanna, að
breyta ætti stjórnarskránni til að
koma í veg fyrir hjónabönd sam-
kynhneigðra. „Þetta mál á að vera á
hendi einstakra ríkja og það er hreint
engin þörf fyrir stjórnarskrárbreyt-
ingu,“ sagði ríkisstjórinn en ítrekaði
þó andstöðu sína við þá ákvörðun Gav-
ins Newsoms, borgarstjóra í San
Francisco, að gefa saman samkyn-
hneigð pör. Sagði hann, að Newsom
ætti að fara að lögum sem aðrir.
Furðar sig á ummælum
Schwarzeneggers
Schwarzenegger benti á, að kjós-
endur í Kaliforníu hefðu samþykkt
fyrir nokkrum árum að takmarka
hjónabandið við karl og konu en vildu
þeir breyta því, þá hefði hann ekkert
við það að athuga.
William „Pete“ Knight, öldunga-
deildarþingmaður fyrir repúblikana á
Kaliforníuþingi, sem beitti sér mest
fyrir lögunum um bann við hjóna-
bandi samkynhneigðra, kvaðst furða
sig á afstöðu Schwarzeneggers en
sagði, að væri ríkisstjórinn hlynntur
slíkum hjónaböndum, myndu þau
vafalaust verða samþykkt í atkvæða-
greiðslu.
Schwarzenegger hefur haldið á loft
réttindum samkynhneigðra allt frá
því á áttunda áratugnum en síðan
hann ákvað að sækjast eftir rík-
isstjóraembætti í Kaliforníu hafa um-
mæli hans um þau verið mjög óljós og
beggja blands, það er að segja þar til
nú. Frægt er svar hans við spurningu
um hjónabönd samkynhneigðra, sem
hann gaf í kosningabaráttunni: „Mér
finnst, að hjónabönd samkynhneigðra
eigi að vera milli karls og konu.“
Ekki andvígur hjóna-
bandi samkynhneigðra
AP
Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri í viðtali við Jay Leno í fyrrakvöld.
Los Angeles Times.
Schwarzenegger hafnar tillögu Bush
um breytingu á stjórnarskránni
OPINBER nefnd í Bretlandi hóf í
vikunni að hlýða á málflutning
vegna áætlana um að bora göng
undir Stonehenge, frægustu forn-
minjar í Bretlandi, fyrir alla bíla-
umferð um svæðið. Áætlanirnar
eru umdeildar en umhverfisvernd-
arsamtök segja að fyrirhuguð göng
verði ekki nógu löng og að þau
muni verða mikil lýti á landslaginu.
Áætlanir yfirvalda gera ráð fyrir
að í stað þjóðvegarins er liggur ná-
lægt Stonehenge – þar sem mikil
bílaumferð veldur því oft að um-
ferðaröngþveiti skapast – verði
grafin undirgöng undir steinaþyrp-
inguna frægu og bílaumferð beint
þangað. Gert er ráð fyrir að göngin
verði 2,1 km að lengd og að gerð
þeirra muni kosta 183 milljónir
breskra punda, um 23 milljarða ís-
lenskra króna.
Göngin verði tilbúin 2008
Stonehenge er einn vinsælasti
ferðamannastaðurinn í Bretlandi,
þangað koma árlega um 800 þús-
und gestir. Segja forsvarsmenn
samtakanna English Heritage,
sem ábyrgð bera á verndun Stone-
henge, að það muni stuðla að því
að gera Stonehenge að enn áhuga-
verðari stað þegar „hávaðinn af
bílaumferð hefur vikið fyrir fugla-
söng“.
Ýmis náttúruverndarsamtök
segja áætluð göng hins vegar
verða mikil lýti á umhverfinu á
þeim stað þar sem þeim lýkur og
bílar koma aftur upp á yfirborðið.
Gefi hin opinbera nefnd, sem nú
hefur hafið störf, grænt ljós á
byggingu ganganna yrði byrjað að
grafa fyrir þeim á næsta ári. Ráð-
gert er að göngin yrðu tilbúin árið
2008.
Vilja láta grafa göng
undir Stonehenge
London. AFP.
! "! ##$!%%!&" '&( #!" % $)#!!' *#%!$* +'!%&!' ,!",-#+ . %
(/012345/67839:72;-130<0340
=++
->?/2345/
!"
# $ %# %& '$ %# %&
(#%$%#!$)
!* ++)
&) %*
(#%$%# %#,!$#-
!$# %" !$#+ )-&+ .*#)+$ "$ $ # %$#/01#+
!$$ %$1!$ %*#22#. 3444%5644
+ %
.) $$)$ 2$%% 2%%)
1!7%181#+
%#17+9#+1'
$#%7$1$$
%$ % %&)+"
-#+ . %
-#+ . %
$"%#
/#
5 (
/
0
1
=
5
3
9
NOKKRIR vísindamenn hafa dreg-
ið í efa kenninguna um, að risaeðl-
urnar hafi dáið út er einn stór loft-
steinn rakst á jörðina fyrir um 65
milljónum ára.
Vísindamennirnir halda því
fram, að Chicxulub-gígurinn í
Mexíkó, sem er talinn hafa mynd-
ast við áreksturinn, sé um 300.000
árum eldri en útdauði risaeðln-
anna og því sé líklegt, að endalok
þeirra megi rekja til annars eða
fleiri en eins áreksturs. Kemur
þetta fram í grein eftir Gerta Kell-
er, prófessor við Princeton-háskóla
í Bandaríkjunum, og samstarfs-
menn hans. Sagði frá þessu á
fréttavef BBC, breska rík-
isútvarpsins, í gær.
Vísindamennirnir könnuðu aldur
gígsins eftir fimm leiðum, meðal
annars með því að skoða berglög-
in, steingert svif og breytingar á
segulsviði jarðar, og komust þá að
því, að hann var 300.000 árum
eldri en áður var talið.
Dóu út á mörkum
Krítar- og Tertíertíma
Víða um heim er leirlag á milli
bergs, sem varð til á Krítartíma,
og þess, sem myndaðist á Tertíer-
tíma, og er jafnan talað um þetta
lag sem K-T-skilin. Risaeðlurnar
dóu út á þessum tímamótum og
kenningin um, að loftsteinninn,
sem skildi eftir sig Chicxulub-
gíginn, hafði valdið því, kom fyrst
fram 1991.
Keller telur aftur á móti, að eftir
áreksturinn hafi kólnað í skamman
tíma en síðan hitnað aftur vegna
gróðurhúsaáhrifa. Getur hann sér
til, að það megi rekja til mikilla
eldgosa á Indlandi og mikillar
aukningar koltvísýrings í and-
rúmsloftinu. Allt hafi þetta valdið
miklu álagi á risaeðlurnar en náð-
arhöggið hafi þeim síðan verið
veitt með öðrum árekstri loftsteins
og jarðar 300.000 árum eftir
Chicxulub-áreksturinn, það er að
segja á mörkum Krítar- og Tertí-
ertíma.
Keller segir, að lögun hafsbotns-
ins í Indlandshafi bendi til, að síð-
ari áreksturinn hafi orðið þar.
Hafna kenningu Kellers
Höfundar kenningarinnar um al-
dauða risaeðlnanna vegna Chicx-
ulub-árekstursins, þeir David King
við Arizona-háskóla í Bandaríkj-
unum og Alan Hildebrand við há-
skólann í Calgary í Kanada, vísa
niðurstöðum Kellers og samstarfs-
manna hans á bug. Segja þeir, að
hann virði að vettugi margvíslegar
sannanir fyrir því, að áreksturinn
hafi orðið á mörkum Krítar- og
Tertíertíma. Dr. Joanna Morgan
við Imperial College í London er
sama sinnis og segir, að árekstur á
borð við Chicxulub verði á jörðinni
einu sinni á 100 milljónum ára til
jafnaðar. Að þeir hafi verið tveir á
300.000 árum sé ekki útilokað en
mjög ólíklegt.
Deilt um aldauða risaeðlnanna
Telja að árekstur
jarðar við tvo loft-
steina með 300.000
ára millibili hafi
gert út af við þær
Risaeðlur eins og þær birtust í samnefndri tölvuteiknimynd. Nú deila vísindamenn um það hvort einn eða tveir
loftsteinar með 300.000 ára millibili hafi gert út af við risaeðlurnar fyrir um það bil 65 milljónum ára.
SVO virðist sem stærðfræði-
kunnáttu norskra stúdenta
hafi hrakað mikið á síðustu
tveimur áratugum. Er ekki
hægt að draga aðra ályktun af
einföldu prófi, sem fyrir þá var
lagt, en útkoman úr því kom
vægast sagt óskemmtilega á
óvart. Sagði frá þessu á Aften-
posten í gær.
Prófið var lagt fyrir nokkra
hópa, meðal annars kennara-,
verkfræði- og hagfræðinema,
og var svohljóðandi: Raðið
þessum brotum þannig, að það
smæsta komi fyrst og það
stærsta síðast. Brotin voru
þessi: 6/7, 10/12, 8/7 og ¾.
Fyrir 22 árum, 1982, gátu
73% samsvarandi hópa leyst
þetta grunnskóladæmi en nú
aðeins 49%. Stóðu stúlkurnar
sig verst og svo virðist sem
bilið á milli þeirra og piltanna
aukist með ári hverju þótt þeir
hafi hreint ekki staðið sig vel.
Af einstökum hópum var ár-
angurinn lakastur hjá kenn-
aranemunum því að aðeins
þriðjungur þeirra gat leyst
dæmið.
Norska stærðfræðiráðið
segir það alveg ljóst, að
ástandið í þessum málum sé
stóralvarlegt og telur, að það
hljóti að vanta mikið upp
grunnkennslu í stærðfræði.
Rétt lausn á dæminu er: ¾,
10⁄12, 6⁄7
Aldrei
minni
stærð-
fræði-
kunnátta