Morgunblaðið - 03.03.2004, Page 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 15
Aðalfundur Íslandsbanka hf. árið 2004 verður haldinn í Súlnasal Radisson SAS Hótel Sögu,
mánudaginn 8. mars 2004 og hefst kl. 14:00.
Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningar félagsins fyrir árið 2003 verða hluthöfum til
sýnis í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi, Reykjavík, frá og meðmánudeginum
1. mars nk. Þessi gögn verða einnig aðgengileg á isb.is.
Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út þriðjudaginn 2. mars nk. kl. 14.00.
Framboðum skal skila til skrifstofu forstjóra Íslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík.
Atkvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað,
Súlnasal Radisson SAS Hótel Sögu, frá kl. 12:00 á fundardegi, mánudaginn 8. mars nk.
24. febrúar 2004,
bankaráð Íslandsbanka hf.
DAGSKRÁ:
Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein samþykkta félagsins.
Tillaga bankaráðs til breytinga á samþykktum félagsins:
– Að hlutafé félagsins verði lækkað úr 10.500 milljónum króna í 10.000milljónir króna
– að nafnvirði með niðurfærslu 500milljóna króna að nafnvirði. Með lækkun hlutafjár
– leitast félagið við að auka hag hluthafa sinna.
– Að framlengja hækkunarheimild bankaráðs á hlutafé til ársloka 2006.
Tillaga um sameiningu menningarsjóða Íslandsbanka og Sjóvá-Almennra.
Tillaga um heimild til bankaráðs til kaupa á hlutabréfum í Íslandsbanka hf.
Önnur mál, löglega upp borin.
1.
2.
3.
4.
5.
Aðalfundur Íslandsbankahf.
F
í
t
o
n
F
I
0
0
8
8
9
7
DAGSKRÁ:
Aðeins í 4 daga
Höfum ákveðið að selja ýmsar vörur frá
og með 50% afslætti
Vegg- og loftljós með 40% afslætti
Húsgögn með 15-80% afslætti
Mörkinni 3, sími 588 0640 • www.casa.is
Lokadagar útsölunnar
FYRRVERANDI forseti Haítís,
Jean-Bertrand Aristide, fullyrti í
símaviðtali við AP-fréttastofuna á
mánudagskvöld að bandarískir her-
menn hefðu þvingað sig í útlegð. Ar-
istide var þá staddur í Mið-Afríku-
lýðveldinu en hann er sagður ætla að
fá landvist í Suður-Afríku.
Aristide sagði hermennina sem
hann lýsti sem „hvítum Bandaríkja-
mönnum“ hafa tjáð sér að ef hann
færi ekki strax úr landi myndu hefj-
ast blóðsúthellingar á Haítí. Hann
var staddur í forsetahöllinni í höfuð-
borg Haítís, Port-au-Prince. „Þeir
komu að næturlagi … Þeir voru of
margir. Ég gat ekki talið þá,“ sagði
Aristide en sagði jafnframt að
Bandaríkjamennirnir hefðu verið
„vingjarnlegir og hlýlegir“. Sagðist
hann í fyrstu hafa talið að hann yrði
fluttur til eyjarinnar Antigua á Kar-
íbahafi en eftir millilendingu í Dóm-
íníska lýðveldinu var haldið áfram til
Afríku.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði það alrangt að
Aristide hefði verið beittur þvingun-
um. „Honum var ekki rænt. Við
þvinguðum hann ekki til að fara í
flugvélina. Hann fór þangað af fúsum
og frjálsum vilja,“ sagði Powell.
Forsetinn fyrrverandi kom ásamt
eiginkonu sinni og fáeinum sam-
ferðamönnum á mánudagsmorgun til
Mið-Afríkulýðveldisins og var far-
kosturinn flugvél sem Bandaríkja-
stjórn var með á leigu. Engin viðhöfn
var á flugvellinum þegar Aristide
steig út úr vélinni ásamt eiginkonu
sinni og engir hermenn á staðnum.
Vill rannsókn
Blökkumannaleiðtoginn Jesse
Jackson, sem útvegaði AP-fréttastof-
unni viðtalið við Aristide, hefur hvatt
þingið í Washington til að láta rann-
saka hvort Bandaríkjastjórn og þá
einkum leyniþjónustan, CIA, hafi átt
þátt í byltingunni á Haítí sem lyktaði
með afsögn Aristide sl. sunnudag.
Bandarískur þingmaður, Maxine
Walters frá Kaliforníu, sagði frétta-
mönnum að Aristide hefði hringt í sig
frá Bangui, höfuðborg Mið-Afríku-
lýðveldisins, og sagst vera þar í varð-
haldi eftir að Bandaríkjamenn hefðu
„rænt“ sér. En utanríkisráðherra
landsins, Charles Wenezoui, vísaði
öllum slíkum sögusögnum á bug.
„Hann er frjáls maður og miklar ör-
yggisráðstafanir við forsetahöllina
eru til að tryggja hans eigið öryggi,“
sagði Wenezoui.
Aristide segir sér
hafa verið rænt
Bangui í Mið-Afríkulýðveldinu. AP.
Reuters
Bandarískir hermenn á varðbergi við forsetahöllina í Port-au-Prince í gær.
Fréttir á SMS
Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.