Morgunblaðið - 03.03.2004, Page 16
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
E
ftir hrakfarir þýzka
jafnaðarmannaflokks-
ins SPD í héraðs-
þingkosningum í Ham-
borg sl. sunnudag
hefur Gerhard Schröder kanzlari og
aðrir forystumenn flokksins ítrekað
að þessar ófarir muni ekki verða til
þess að sveigja ríkisstjórnina af
þeirri braut umbóta á velferð-
arkerfinu og reglum vinnumarkaðar-
ins sem flestir eru þó sammála um að
séu undirrót kosningaófaranna.
Schröder kanzlari lýsti því ótví-
rætt yfir á mánudag, að hann hygðist
halda ótrauður áfram að fylgja kerf-
isumbótunum eftir.
Schröder viðurkenndi að sú ráð-
stöfun, að annar maður en hann tæki
að sér flokksformennskuna svo hann
gæti einbeitt sér betur að verkefnum
ríkisstjórnarleiðtogans, hefði ekki
borið ávöxt enn sem komið væri.
Franz Müntefering, verðandi for-
maður flokksins (og núverandi þing-
flokksformaður á Sambands-
þinginu), huggaði sig í viðtölum við
fjölmiðla á því, að enn verr hefði get-
að farið. SPD, sem var við völd í ára-
tugi í Hamborg fram til ársins 2001,
fékk nú aðeins 30,5% atkvæða.
Flokksforustan lýsti því yfir eftir að
hafa fundað um málið í Berlín á
mánudag, að kosningar til Evrópu-
þingsins, sem fara fram í júní, yrðu
prófraun á það hvort nýja formann-
inum reyndist unnt að bæta horf-
urnar fyrir flokkinn á þessu mikla
kosningaári. Sama dag og Evr-
ópuþingskosningarnar fara fram sjö
sveitar- og héraðsstjórnarkosningar.
Alls fara fram fjórtán kosningar til
sveitarstjórna, héraðsþinga og Evr-
ópuþingsins í Þýzkalandi á árinu.
Atkvæðafælandi ára
þess sem verður undir
Einmitt með tilliti til þess að kosn-
ingarnar í Hamborg mörkuðu upp-
haf mikillar kosningalotu álíta
stjórnmálaskýrendur að hinn mikli
ósigur SPD í Hamborg – sem allt frá
endurreisn lýðræðis í landinu eftir
stríð var mikið vígi jafnaðarmanna –
boði illt fyrir flokkinn. Nú hafi „ára
taparans“ eða m.ö.o. ímynd þess sem
láta þarf í minni pokann límzt við
hann og mjög erfitt muni reynast að
hrista hana af sér – á sama tíma og
ríkisstjórnin er að hrinda í fram-
kvæmd óvinsælum aðgerðum í við-
leitni sinni til að bæta horfurnar í
efnahagslífinu, sem eru frekar svart-
ar annars þessi misserin í Þýzka-
landi.
Í kosningunum á sunnudag gerðist
það sem bara fyrir nokkrum mán-
uðum hefði verið óhugsandi: að
kristilegir demókratar hlytu hreinan
meirihluta á borgarþinginu í Ham-
borg. Borgarstjóranum Ole von
Beust, sem komst í þann stól eftir
kosningarnar haustið 2001, tókst að
auka fylgi flokksins um heil 21% síð-
an þá og tryggja flokknum með
47,2% atkvæða hreinan meirihluta
kjörinna fulltrúa.
Í öllum kjós-
endahópum, þar
sem hefð er fyrir
því að jafn-
aðarmenn njóti
mests fylgis, svo
sem meðal verka-
manna, atvinnu-
lausra og eldri
borgara, tókst
CDU að fara fram
úr SPD í Hamborg. 46% atkvæða
verkamanna hafnarborgarinnar féllu
nú CDU og von Beust í skaut; SPD
kaus aðeins þriðjungur þessa hefð-
bundna kjarnakjósendahóps jafn-
aðarmannaflokksins.
Reyndar eiga þessar hrakfarir
SPD í Hamborg sér lengri aðdrag-
anda en sem nemur síðasta kjör-
tímabili. Í síðustu kosningum til
borgarþingsins, í september 2001
(hálfum mánuði eftir hryðjuverka-
árásirnar á tvíburaturnana í New
York) sneru margir rótgrónir SPD-
kjósendur baki við flokknum og
flykktust til stuðnings við hinn nýja
flokk fyrrverandi dómarans Ronalds
Schill (sem formlega bar heitið Par-
tei der rechtsstaatlichen Offensive
eða „Flokkur sóknar réttarríkisins“)
sem hét því að taka ærlega til í ör-
yggis- og löggæzlumálum í borginni.
Schill fékk þá fimmta hvert atkvæði
Hamborgarbúa, en í kosningunum
nú þurrkaðist flokkurinn út; fékk að-
eins 0,4% atkvæða. Hneykslismál
sem komu Schill út úr borgarstjórn-
inni og rúðu hinn hægripopúlíska
flokk hans trausti leiddu til þessarar
niðurstöðu. En augljóslega rötuðu
atkvæði þeirra sem kusu Schill fyrir
tveimur og hálfu ári ekki aftur til
SPD heldur beint áfram til CDU.
Hvað gera frjálsir demókratar?
Reyndar hefur hinn mikli kosn-
ingasigur CDU og von Beust borg-
arstjóra skapað flokknum nýjan
vanda. Innan raða frjálsra demó-
krata, FDP, sem ekki náðu manni
inn á borgarþingið í Hamborg að
þessu sinni, vex þrýstingurinn á
flokksforystuna að hún leggi meiri
áherzlu á að flokkurinn fari sínar eig-
in leiðir, þ.e. sýni kjósendum að FDP
sé sannarlega óháður kristilegu
flokkunum. Fyrir kosningarnar í
Hamborg höfðu talsmenn FDP í
Hamborg þrýst á CDU að heita því
að efna til stjórnarsamstarfs við
FDP ef flokkarnir fengju saman
meirihluta á borgarþinginu. Slíkt vil-
yrði fengu þeir ekki. Afur á móti
stendur nú fyrir dyrum að kjósa arf-
taka Johannesar Rau í embætti for-
seta Þýzkalands, en hann er kosinn
af kjörfundi skipuðum fulltrúum af
sambands- og héraðsþingum Þýzka-
lands. Fulltrúar kristilegu flokkanna
CDU/CSU verða fjölmennastir á
kjörfundinum, en til að tryggja sín-
um frambjóðanda brautargengi
þarfnast þeir stuðnings fulltrúa ann-
ars flokks, og er þar fyrst og fremst
horft til frjálsra demókrata. Eftir úr-
slitin í Hamborg þykir hins vegar
orðið líklegra að FDP tefli fram eigin
frambjóðanda í forsetakosningunum.
Stjórnin stokkuð upp?
En aftur að vandkvæðum burð-
arflokks ríkisstjórnarinnar í Berlín,
SPD. Flokkurinn virðist vart vita sitt
rjúkandi ráð þessa dagana. Þótt
Schröder hafi lýst því yfir að um-
bótaráðstöfununum verði haldið til
streitu hefur stjórnin dregið úr hrað-
anum á framkvæmd þeirra. Og
kanzlarinn hefur gefið flokks-
formannshlutverkið eftir. En hvað
getur hann tekið til bragðs til að
bregðast við hruninu á fylgi flokksins
í skoðanakönnunum og í kosningum
eins og þeim sem nú eru nýafstaðnar
í Hamborg? Nefndur hefur verið sá
kostur að hann segði af sér á miðju
kjörtímabilinu. Sá þykir ólíklegur.
Nærtækari kostur þykir að kanzl-
arinn grípi til uppstokkunar á rík-
isstjórnarliði sínu. Ýmsar vangavelt-
ur hafa komizt á kreik þar að lútandi
á síðustu vikum. Hingað til hefur
Schröder þó ekki viljað gefa neitt út
á slíkar vangaveltur; „hver og einn
verður kyrr á sínum stað“ var nýlega
haft eftir honum.
En það er opinbert leyndarmál, að
kanzlarinn er með ýmsa manna-
breytingarmöguleika á leikborðinu.
Alllengi hefur þótt líklegt að Hans
Eichel fjármálaráðherra haldi þeim
stól ekki miklu lengur, hið sama er
sagt um Manfred Stolpe samgöngu-
ráðherra, sem og um mennta-
málaráðherrann Edelgard Bulmahn.
Staða félagsmálaráðherrans Ullu
Schmidt þykir einnig ótrygg.
Sagt er að Schröder hafi ítrekað
lagt að varnarmálaráðherranum Pet-
er Struck að lýsa sig reiðubúinn að
skipta yfir í fjármálaráðuneytið, en
kvað ekki hafa haft erindi sem erfiði.
Þó hefur hugsanlegur arftaki
Strucks í varnarmálaráðuneytinu
verið nefndur til sögunnar: Günter
Verheugen, sem farið hefur með
stækkunarmál Evrópusambandsins í
framkvæmdastjórn þess síðustu ár-
in, en hann lætur af því hlutverki í
sumar. Sagt er ennfremur að
Schröder þyki vel koma til greina að
kalla Thomas Mirow, sem leiddi
framboð SPD í Hamborg, til liðs við
ríkisstjórnina, hugsanlega í staðinn
fyrir Stolpe. Mirow lýsti því yfir
strax að kvöldi kjördags að af-
skiptum sínum af Hamborgarstjórn-
málum væri lokið.
Óvinsælar umbótaaðgerðir
En hvað sem hugsanlegum hrók-
eringum í ríkisstjórninni líður er
ljóst að það sem haft hefur mest að
segja um dalandi vinsældir Schröd-
ers og SPD eru ráðstafanir sem ætl-
aðar eru til að setja hömlur á út-
þenslu velferðarkerfisins, ýta undir
sköpun nýrra starfa og stuðla að
auknum hagvexti. Einkum sumar
þessara ráðstafana, sem allar eru
hluti af umbótaáætluninni „Dagskrá
2010“, hafa farið fyrir brjóstið á ýms-
um kjarnakjósendahópum jafn-
aðarmanna, svo sem ellilífeyr-
isþegum og atvinnulausum, án þess
að aðgerðirnar ynnu stjórninni
stuðning meðal annarra hópa.
Forkólfar verkalýðsfélaga þrýsta
nú mjög á stjórnina að bakka með að-
gerðirnar, en sumar þeirra eiga eftir
að koma til framkvæmda, t.d. er
áformað að á næsta ári gangi í gildi
nýjar reglur sem ætlað er að þrýsta á
atvinnulausa að þiggja láglaunastörf,
ella fyrirgeri þeir hluta atvinnuleys-
isbóta sinna. Þessum nýju reglum er
verkalýðshreyfingin mótfallin. Eins
og reyndar mörgu öðru sem reynt
hefur verið að brydda upp á til að
auka sveigjanleika þýzks vinnumark-
aðar.
Nú reynir á, hvort Schröder og
stjórn hans reynist unnt að standa
þetta af sér. Úr vöndu er að ráða, því
láti stjórnin undan og bakki með
áformin gerir hún sig seka um ving-
ulshátt og kallar á harða gagnrýni
fyrir að vera ekki fær um að hrinda
stefnu sinni í framkvæmd. Frá bæj-
ardyrum Schröders séð er helzta
vonin sú að aðgerðirnar nái í raun að
bæta efnahagsástandið og ýti með
áþreifanlegum hætti undir sköpun
starfa – og það innan skamms. Í því
felst hins vegar áhættan; óvíst er
hvort aðgerðirnar fari að skila
áþreifanlegum ávexti fyrr en að lok-
inni allri kosningalotunni sem fram-
undan er. Endurtaki sig ófarir eins
og í Hamborg í öllum þessum kosn-
ingum ársins gæti það rúið flokkinn
sóknarmöguleikum þegar nær dreg-
ur næstu sambandsþingskosningum,
en þær eiga að öllu jöfnu að fara fram
haustið 2006.
Það má því fullyrða að pólitískt líf
Schröders kanzlara sé komið undir
því hvernig til tekst með framkvæmd
kerfisumbóta ríkisstjórnar hans. Og
að þær skili árangri fyrr en síðar.
Pólitískt líf Schröders
háð árangri umbóta
Reuters
Schröder var brúnaþungur er hann sté fram fyrir fréttamenn eftir flokksstjórnarfund í Berlín á mánudag.
Gerhard Schröder,
kanzlari Þýzkalands
og fráfarandi formað-
ur jafnaðarmanna-
flokksins SPD, á nú úr
vöndu að ráða eftir
mikinn ósigur flokks-
ins í Hamborg, í
fyrstu kosningunum í
mikilli kosningalotu á
árinu. Auðunn Arn-
órsson rýnir í stöðuna.
auar@mbl.is
’Helzta von SPD erað kerfisumbæt-
urnar skili bættu
efnahagsástandi.‘
Franz Müntefering
KHALIL al-Ziban, kunnur pal-
estínskur blaðamaður og ráð-
gjafi Yassers Arafats, leiðtoga
Palestínumanna, var skotinn í
gær af grímuklæddum mönn-
um við skrifstofu sína í Gaza-
borg. Minntist Arafats hans
sem manns, sem lagt hefði allt í
sölurnar fyrir málstað þjóðar-
innar, og hann og aðrir sögðu,
að morðingjar hans yrðu
dregnir fyrir dóm. Ziban gaf út
tímarit um mannréttindamál
auk þess að vera ráðgjafi Ara-
fats. Árásir á palestínska blaða-
menn hafa farið vaxandi að
undanförnu og er litið á það
sem tilraun ýmissa afla til að
múlbinda þá.
Sakaður
um stríðs-
glæpi
BRESK samtök, sem barist
hafa gegn Íraksstríðinu, ætla
að reyna að fá Alþjóðadómstól-
inn í Haag til ákæra Tony Blair
forsætisráð-
herra, Jack
Straw utan-
ríkisráð-
herra, Geoff
Hoon varnar-
málaráð-
herra og
Goldsmith lá-
varð dóms-
málaráðherra fyrir stríðsglæpi.
Er sakarefnið það, að þessir
fjórir menn hafi „af ráðnum
hug hafið innrás þótt þeir vissu,
að hún myndi valda óbreyttum
borgurum dauða og örkuml-
um“.
Tugþúsund-
um manna
rænt
KÍNVERSK stjórnvöld birtu í
gær skelfilegar tölur um versl-
un með konur og börn í Kína.
Kemur þar fram, að á þremur
árum hafi lögreglan frelsað
42.215 manns úr höndum
mannræningja og handtekið
22.000 manns.
Tilgangurinn með mannrán-
unum var að selja fólkið í hjóna-
band eða sem kynlífsþræla.
Ekkert kom fram um það hve
margra er saknað. Lögum til
verndar konum og börnum var
breytt 1997 og hefur það auð-
veldað kínversku lögreglunni
baráttuna gegn þessum glæpa-
verkum.
Aðstoðar-
borgar-
stjóri myrtur
VALERÍ Marjasov, aðstoðar-
borgarstjóri Novosibirsk í Síb-
eríu, var skotinn í gær er hann
var staddur í anddyri blokkar-
innar þar sem hann býr. Fyrir
fjórum árum var forveri hans í
embætti, Ígor Beljakov, einnig
skotinn og er það mál enn
óupplýst.
Embættismenn telja, að
morðið á Marjasov kunni að
tengjast starfi hans, en rúss-
neskar fréttastofur segja ým-
ist, að þjónustufyrirtæki og
neytendamál hafi verið á hans
könnu eða úthlutun lands til
byggingar.
STUTT
Ráðgjafi
Arafats
skotinn
Tony Blair