Morgunblaðið - 03.03.2004, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 29
m, meðal
um, sem
aráðið í
gja daga
úthelling-
að fresta
rnarskrár
ag.
sjíta og
meiginlegs
dad til að
sýna still-
era stað-
friði og
ðjuverka-
mannanna er að etja súnnítum og
sjítum saman. Við verðum að vera
varfærin,“ sagði Mahmud Ot-
hman, Kúrdi í íraska fram-
kvæmdaráðinu í Bagdad.
Fleiri tilræðum afstýrt
Íraska lögreglan kom í veg fyr-
ir tvö sprengjutilræði í borginni
Basra í Suður-Írak nokkrum
klukkustundum eftir tilræðin í
Bagdad og Karbala. Bílsprengja
fannst við mosku sjíta í Basra og
tveir menn, Sýrlendingur og
Íraki, voru handteknir. Lögreglan
handtók einnig tvær konur, sem
voru með sprengjubelti til sjálfs-
morðsárása, á göngu sjíta í borg-
inni. Þremur sjálfsmorðsárásum
var einnig afstýrt í borginni Naj-
af, um 180 km sunnan við Bag-
dad.
Þá beið bandarískur hermaður
bana og annar særðist þegar
sprengju var kastað á bíl þeirra í
Bagdad.
Leiðtogar fjölmargra ríkja
heims fordæmdu tilræðin og tals-
maður Bush Bandaríkjaforseta
sagði að þeim sem stóðu fyrir
árásunum myndi ekki takast að
koma í veg fyrir lýðræði í Írak.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, sagði eftir fund í
Berlín með Abdullah II Jórdaníu-
konungi að þeir væru sammála
um að Sameinuðu þjóðirnar
þyrftu að gegna auknu hlutverki í
Írak til að koma á friði.
á sjía-múslíma í borgum í Írak og Pakistan þegar þeir héldu helgustu hátíð sína
nfall
stjórn
féll
5?49<
<<>
:4>
3>
*#A
, B2 ,*A
, ’Helsta markmiðhryðjuverkamann-
anna er að etja
súnnítum og sjítum
saman. Við verðum
að vera varfærin.‘
AÐ MINNSTA kosti 41 lét lífið og tugir
særðust þegar skothríð var hafin á skrúð-
göngu sjía-múslíma í borginni Quetta í
Pakistan í gærmorgun.
Hópar sjíta svöruðu skotárásinni með því
að ganga berserksgang, leggja eld að versl-
unum, kveikja í hjólbörðum og reisa vega-
tálma. Skrúðgangan var liður í árlegum
Ashura-hátíðahöldum sjíta, er þeir minnast
píslarvættis dóttursonar Múhameðs spá-
manns árið 680.
Háttsettur embættismaður sagði að 41
hefði beðið bana, þar af fimm lögreglu-
menn.
Óljóst var hvort sjítarnir sem létu lífið
urðu fyrir skotum árásarmanna, annarra
sjíta eða lögreglu- og varðmanna sem hófu
skothríð út í loftið eftir að sprenging og
byssuhvellir efst í húsi sem skrúðgangan
fór hjá ollu því að fólkið reyndi að flýja í
ofboði og ruddist áfram.
„Fólk í skrúðgöngunni svaraði skothríð-
inni í sömu mynt,“ sagði leyniþjónustumað-
ur í Quetta sem ekki vildi láta nafns síns
getið. „Lögreglumenn hófu einnig skothríð
án þess að vita hvaðan skotið hafði verið,
fólk hafði ekki hugmynd um hver var að
skjóta á hvern. Þetta leiddi til algers glund-
roða og fólk ruddist áfram. Skothríðin kom
úr þremur áttum.“
Herinn kallaður til
Vegna glundroðans neyddust yfirvöld til
að setja útgöngubann í borginni og kalla
herinn til, sagði borgarstjórinn, Mohammad
Rahim Kakar. Forseti Pakistans, Pervez
Musharraf, fordæmdi ódæðisverkin og sagði
þau „hryðjuverk“.
Sheikh Rashid upplýsingamálaráðherra
sagði um að ræða árás eins trúarhóps á
annan, og að nokkrir hefðu verið handteknir
vegna málsins.
Í júlí voru 48 sjía-múslimir skotnir til
bana er þeir voru við bænahald í mosku í
Quetta. Var öfgasinnuðum súnní-múslimum
kennt um það ódæðisverk. Alls búa um 140
milljónir múslima í Pakistan, og þar af eru
um 20% sjítar. Undanfarna tvo áratugi hafa
átök öfgasinnaðra sjía- og súnní-múslíma
kostað tugi mannslífa í Pakistan.
AP
sjúkrahús i pakistönsku borginni Quetta í gær eftir mannskæða skotárás á skrúðgöngu sjía-múslíma.
Yfir 40 manns
féllu í Pakistan
Quetta. AFP.
SÆRÐUR sjíapílagrími fluttur á
börum á sjúkrahús eftir sprengju-
tilræðin í Bagdad í gærmorgun, á
síðasta degi Ashura-hátíðarinnar,
þegar sjía-múslímar minnast písl-
arvættis ímamsins Husseins, sem
var dóttursonur Múhameðs spá-
manns og myrtur af her Jasíds
kalífa í borginni Karbala í Írak ár-
ið 680.
Eftir tilræðin í gær kom upp
mikil reiði meðal sjíta og beindist
hún ekki síst að bandarískum her-
mönnum í írösku höfuðborginni.
Svo virtist sem sjítarnir væru reið-
ir yfir því að hermennirnir hefðu
ekki getað komið í veg fyrir til-
ræðin. Tveir bandarískir hermenn
særðust þegar kastað var í þá
grjóti og rusli.
„Þetta er verk gyðinga og
bandaríska hersetuliðsins,“ var
sagt í hátalara fyrir utan moskuna
þar sem tilræðin voru framin í
Bagdad.
Innandyra sagði klerkur við
reiðan múg: „Við krefjumst þess,
að fá að vita hverjir voru að verki,
til að við getum hefnt píslarvotta
okkar.“
Þrír leiðtogar íraskra sjíta
kenndu einnig Bandaríkjastjórn
og stefnu hennar í öryggismálum
Íraks um blóðsúthellingarnar.
„Hernámsliðið ber ábyrgðina á
þessu,“ sagði Sayyed Ahmed Saffi,
talsmaður áhrifamesta trúar-
leiðtoga íraskra sjíta, Alis al-
Sistanis erkiklerks. „Hernámið
hvetur til slíkra árása.“
AP
Glundroði og reiði í Bagdad