Morgunblaðið - 03.03.2004, Page 44
DAGBÓK
44 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa s. 551 4349, fax.
552 5277, mataraðstoð
kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín, kl.13.30
Leshringur í fund-
arsalnum.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
10.30–11.30 heilsu-
gæsla, kl. 13–16.30
smíðar og handavinna,
kl. 13 spil.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
12.30 bað, kl. 9–12 gler-
list, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 10–10.30, kl.
13–16.30 bridge/vist, kl.
13–16 glerlist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við bað kl. 10 leik-
fimi, kl. 14.30 bankinn,
kl. 14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 opin verslunin,
kl. 13.30 bankinn, kl.
11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Postulín og
leirmótun kl. 9–16.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur kl.
10–12 verslunin opin,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kvenna-
leikfimi kl. 9.30, kl.
10.20, og kl. 11.15,
handavinnuhorn kl. 13,
trésmíði 13.30.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl. 10–
11.30, viðtalstími í Gjá-
bakka kl 15–16.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
opnað kl. 9, mynd-
mennt kl. 10–16, línu-
dans kl. 11, glerskurður
og billjard kl. 13, pílu-
kast kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Söngfélag FEB kóræf-
ing kl. 17. Línudans-
kennsla kl. 19.15.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. almenn
handavinna, kl. 10.30
gamlir leikir og dansar,
frá hádegi spilasalur
opinn, kl. 13–14 mun sr.
Svavar Stefánsson,
sóknarprestur í Fella-
prestakalli, hafa við-
talstíma og ráðgjöf,
hann verður síðan
framvegis á þessum
tíma, kl. 13.30 kóræf-
ing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handavinna,
kl. 9.30 boccia, kl. 9.30
og kl. 13 glerlist, kl. 13
félagsvist, kl. 16 hring-
dansar, kl. 16.15 tré-
skurður, kl. 17. bobb.
KL. 15.15 söngur.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10
ganga, kl. 11 handa-
vinnustofan opin.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður
og banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
15–18 myndlist.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Á morgun pútt á Korp-
úlfsstöðum kl. 10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl. 13–
13.30 bankinn, kl. 14 fé-
lagsvist.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 10–11.30
ganga, kl. 9.15–16
myndmennt, kl. 12.15-
14.30 verslunarferð, kl.
13–14 spurt og spjallað,
kl. 13–16 tréskurður.
Fimmtud. 4. mars kl.
10.30 helgistund. í um-
sjón séra Jakob Ágúst
Hjálmarsson dóm-
kirkjuprestur. Kór fé-
lagsstarfs aldraðra
syngur. Hálfs dags
óvissuferð fimmtudag-
inn 4. mars kl.13, Graf-
arholtið skoðað, fyr-
irtæki heimsótt,
skráning í síma
535 2740.
Vitatorg. Kl. 8.45
smiðja, kl. 10 búta-
saumur, bókband, kl. 13
föndur og kóræfing, kl.
12.30 verslunarferð.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Kl. 10–12
verslunin, kl. 13–16 ker-
amik, taumálun, fönd-
ur, kl. 15 bókabíllinn.
Vinahjálp, brids spilað
á Hótel Sögu í dag kl.
13.30.
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20 miðvikudaga. Lagt
af stað frá horni Hafn-
arhúsins.
Sjálfsbjörg, Hátúni 12.
Kl. 19.30 félagsvist.
Kvenfélagið Hrönn,
Salza-kvöld, fimmud. 4.
mars kl. 20 í Borgartúni
22.
ITC Fífa fundur í kvöld
kl. 20.15 í Safn-
aðarheimili Hjalla-
kirkju, Kópavogi.
Félag kennara á eft-
irlaunum. Skákhóp-
urinn kemur saman í
Kennarahúsinu við
Laufásveg miðvikud. 3.
mars kl. 14 og bók-
menntahópurinn á
sama stað fimmtud. 4.
mars kl. 14.
Sjögrens hópur hittist í
kvöld kl. 20 á Kaffi Míl-
anó.
Í dag er miðvikudagur 3. mars,
63. dagur ársins 2004, Jónsmessa
Hólabiskups á föstu. Orð dagsins:
Fel þú Drottni verk þín, þá mun
áformum þínum framgengt verða.
(Ok. 16, 3.)
Helstu rök vinstri-manna fyrir því af
hverju ríkið eigi að reka
fjölmiðil eru þau að RÚV
gegni mikilvægu menn-
ingarhlutverki sem eng-
inn annar geti staðið að
segir María Margrét Jó-
hannsdóttir í pistli á
frelsi.is. „Nú hefur hins
vegar komið í ljós að Rík-
isútvarpið hefur ekki tök
á að kaupa meira íslenskt
dagskrárefni það sem
eftir er af árinu. Þetta er
þó þrátt fyrir allt ákveðið
fagnaðarefni fyrir skatt-
greiðendur, ekki vegna
þess að innlend dag-
skrárgerð sé verri en
annað efni, heldur vegna
þess að þessi ákvörðun
ber vott um sparsemi.
Kvikmyndagerðarmennhafa látið í ljós
óánægju sína með
ákvörðun Ríkisútvarpsins
og segja þeir eini raun-
hæfi kosturinn til að fá
verk sín birt og fjár-
mögnuð sé með milli-
göngu RÚV. Þetta getur
varla staðist því til dæmis
hefur Skjár einn boðið
upp á afar fjölbreytt og
skemmtilegt íslenskt
sjónvarpsefni frá fyrsta
degi án endurgjalds, auk
þess sem Stöð 2, Sýn og
Popptíví bjóða einnig
upp á fjölmarga innlenda
þætti.
Með ákvörðun sinnihafa forsvarsmenn
RÚV nú í raun slegið
vopnin úr höndum
vinstrimanna og staðfest
þær fullyrðingar hægri-
manna að Ríkisútvarpið
gegni engu sérstöku
menningarhlutverki. Það
að einkareknir fjölmiðlar
sjái einnig hag sinn í því
að framleiða og kaupa
mikið magn íslensks dag-
skrárefnis, þrátt fyrir að
ríkisstyrktur fjölmiðill sé
á markaðnum, sýnir enn-
fremur að Ríkisútvarpið
er augljóslega ekki nauð-
synlegur hluti öflugs ís-
lensks menningarlífs.
Ef vandaðir íslenskirþættir eins og Mós-
aík, Spaugstofan og
Laugardagskvöld með
Gísla Marteini eiga upp á
pallborðið hjá lands-
mönnum er engin ástæða
til að óttast að þeir legg-
ist af þó að almenningur
verði ekki lengur þving-
aður til að greiða fyrir
þá,“ segir María Mar-
grét.
Víða var þess minnst ífyrradag að 15 ár eru
liðin frá því að heimilt
var að selja bjór á Ís-
landi. Vefþjóðviljinn rifj-
ar upp ummæli alþing-
smanna sem voru þessu
mótfallnir. „[É]g vil ekki
standa að breytingum í
áfengismálum né annars
staðar sem gera fólkið
óvirkara og sljórra gagn-
vart umhverfi sínu,“
sagði Steingrímur J. Sig-
fússon og sagði nei við
bjórnum eins og Margrét
Frímannsdóttir, þing-
maður Samfylkingar.
Rök hennar voru: „Ég er
móðir tveggja unglinga
og segi þess vegna nei.“
STAKSTEINAR
Vopnalausir vinstri-
menn og bjórinn
Víkverji skrifar...
Undir niðri á Víkverji sér þanndraum að syngja í karlakór.
Hann hefur ætíð öfundað þá kyn-
bræður sína sem hafa elju, þor og
hæfileika til að stíga á svið og þenja
raddböndin fyrir framan aðra. Vík-
verji varð þeirrar gæfu aðnjótandi að
hlusta nýlega á magnaðan karlakór,
eða Heimi úr Skagafirði, og ekki dró
það úr öfundinni. Þó að ekki hafi verið
um „alvöru“ tónleika að ræða þá
mátti heyra nokkur lög af metn-
aðarfullri og fjölbreyttri söngskrá.
Létt var yfir mannskapnum og af-
slappaðir sungu Heimismenn lögin af
reynslu og innlifun.
x x x
Þegar hlustað var á þessa ljúfu tónavarð Víkverja líka hugsað til þess
sönglífs sem blómstrar í landinu, til
sjávar og sveita. Hundruð ef ekki
þúsundir fólks á öllum aldri syngja í
karlakórum, kvennakórum og blönd-
uðum kórum og sönghópum af ýmsu
tagi. Meginkórstarfið fer fram yfir
veturinn og þá er æft nokkrum sinn-
um í viku. Tónleikahald er síðan tölu-
vert, þó misjafnt sé það eftir kórum.
Áhuginn er einlægur og ýmislegt á
sig lagt til að komast á æfingar.
Heimismenn eru glöggt dæmi þess
hve dyggilega er æft. Víkverji veit til
þess að þeir koma sumir hverjir langt
að til æfinga í félagsheimilinu Mið-
garði í Varmahlíð, sem er miðsvæðis í
Skagafirði, og aksturinn getur tekið
tvo eða þrjá tíma samanlagt á kvöldi
fyrir þá sem fjærst Varmahlíð búa.
Þetta gera menn meðfram bústörfum
sínum, jafnvel kúabúskap, eða ann-
arri atvinnu – og hafa gert til fjölda
ára en kór eins og Heimir er af-
sprengi ríkrar sönghefðar í Skaga-
firði og á sér nærri 80 ára langa sögu.
Þegar litið er á lista yfir næstu verk-
efni Heimis sést að varla mun falla úr
helgi fram á sumar. Undir lok söng-
ársins verður svo brugðið undir sig
betri fætinum og haldið í söngferð til
Skotlands. Með í för verða makarnir
því Heimismönnum er orðið það
löngu ljóst að kórstarfið gengi aldrei
upp nema með dyggum stuðningi eig-
inkvenna og heitkvenna. Á meðan
karlarnir æfa eða syngja fjarri
heimabyggð gæta konurnar bús og
barna en í nokkrar söngferðir koma
þær með, enda félagslífið mikið og
gott í kringum kórinn. Og svona
gengur þetta fyrir sig í mörgum kór-
um. Í kvennakórum verða þarna hlut-
verkaskipti á heimilinu og þannig á
það líka að vera. Er aldrei að vita
nema að Víkverji fari að ræskja sig
og kanna hvort hann komist í karla-
kór. Hann gæti í versta falli raulað
undir í einhverjum lögum og þá
„mæmað“ í öðrum.
Heimir úr Skagafirði er alvöru karlakór.
Náttúra Íslands
ÉG hafði komið þangað síð-
ast fyrir 31 ári en þá var ég
á ferð með Ferðafélagi Ís-
lands og var gengið sömu
leið yfir Skaftafellsheiðina,
yfir Morsá og inn að Bæjar-
staðaskógi, og ég fór síðast-
liðinn ágúst. Ég man þegar
við gengum yfir heiðina að
á kafla var forarmýri ill yf-
irferðar en nú 31 ári síðar
var kominn yfir metra hár
víðir þar, dýrlega fallegur
og óx þétt að stígnum. Aur-
arnir fyrir neðan skóginn
voru nánast gróðurlausir
en 31 ári síðar vaxnir birki
og víði og sumar bjarkirnar
margir metrar. Uppblást-
urinn ofan skógar og upp-
blástursgeirar í gegnum
skóginn sem voru nokkrir
voru 31 ári síðar vaxnir
trjágróðri og lúpínu en lúp-
ínan var á aurunum neðan
skógar líka ásamt hvönnum
og fleiri grösum.
Allur gróandi þessa
lands var greinilega í mikl-
um vexti. Þvílík breyting á
ekki meiri tíma. Ég var yfir
mig hrifinn.
Hvað skyldi valda þess-
ari grósku? Það skyldi þó
ekki vera að fyrir 31 ári
hafði nýtekist að friða land-
ið endanlega fyrir beit bú-
fjár, og allur gróðurinn
vaxið upp af sjálfsdáðum
síðan? Þetta segir mér að í
dag sé lausaganga búfjár
stærsti glæpurinn gegn ís-
lenskri náttúru.
250944-4709.
Hressótertan
HVAR er hægt að fá
Hressótertuna, sem er stór
rjómaterta með sérstöku
kremi á milli. Veit að hún
var til hjá Heildsölubakarí-
inu á Grensásvegi en fæst
þar ekki lengur. Þeir sem
gætu liðsinnt mér hafi sam-
band við Bryndísi í síma
568 8310.
Robbie Williams ’99 –
vantar miða
VELVAKANDA barst
bréf frá Patriciu í Þýska-
landi þar sem hún er að
leita eftir afriti af aðgöngu-
miða á tónleika Robbie
Williams sem haldnir voru í
Laugardalshöllinni 19.
september 1999. Patricia er
að útbúa veggfóður með að-
göngumiðum víðs vegar úr
heiminum í afmælisgjöf
handa vinkonu sinni sem á
afmæli 6. mars. Vantar
hana þetta því strax. Ef
einhver getur liðsinnt
henni biður hún viðkom-
andi um að skanna miðann
og senda sér í tölvupósti.
Netfang Patriciu er: Crazy-
CreativePatricia@t-on-
line.de.
Tapað/fundið
Giftingarhringur
týndist
GIFTINGARHRINGUR
týndist í nóvember sl. á
leiðinni frá Kolaporti yfir á
Lækjartorg. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
551 2958.
Dýrahald
Príma er týnd
PRÍMA er lítil kolsvört
læða sem týndist frá Skip-
holti fimmtudaginn 26.
febrúar sl. Hún var ómerkt
og ólarlaus. Þeir sem hafa
orðið varir við hana hafi
samband í síma 869 9039.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 húsa, 4 heppni, 7 bölið,
8 borða, 9 greinir, 11 sef-
ar, 13 lítill, 14 elskan, 15
blíðuhót, 17 reiðar, 20
sjór, 22 sárar, 23 grjót-
skriðan, 24 bik, 25
blunda.
LÓÐRÉTT
1 gortar, 2 leiðbeina skipi
til hafnar, 3 fífl, 4 vinkill,
5 kirkjuhöfðingjum, 6
hamingjusamar, 10
skjálfa, 12 renna, 13 snjó,
15 trant, 16 búa til, 18
fæða, 19 vitlausa, 20
ósoðna, 21 samkomu.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 svipþunga, 8 útlit, 9 sunna, 10 tía, 11 trana, 13
ræðin, 15 stegg, 18 safna, 21 lok, 22 kytra, 23 arinn, 24
taumlaust.
Lóðrétt: 2 vilpa, 3 putta, 4 ufsar, 5 ginið, 6 búnt, 7 baun,
12 nag, 14 æða, 15 sekk, 16 eigra, 17 glaum, 18 skata, 19
fliss, 20 agns.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html