Morgunblaðið - 03.03.2004, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 45
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú hugsar myndrænt, hefur
mikla skipulagshæfileika og átt
auðvelt með að fá yfirsýn yfir
hlutina. Þú þarft að taka mik-
ilvæga ákvörðun á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur ákveðnar skoðanir á
einhverju í vinnunni. Þú gætir
jafnvel krafist þess að fá þínu
framgengt. Staldraðu við og
spurðu sjálfa/n þig að því
hvort þú viljir í raun þvinga
fram vilja þinn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Varastu að lofa vini þínum of
miklu í dag. Þú ættir líka að
hugsa þig tvisvar um áður en
þú semur við stórar stofnanir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Gættu þess að færast ekki of
mikið í fang í dag. Þú gætir
freistast til þess vegna þess að
þig langar til að standa undir
væntingum annarra.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er hætt við að samræður
um stjórnmál, trúmál og
heimspeki fari úr böndunum í
dag. Þetta getur orðið til þess
að þú farir á einhvern hátt yfir
strikið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert örlát/ur í eðli þínu og
stundum getur það hreinlega
gengið of langt. Hugsaðu þig
tvisvar um áður en þú sam-
þykkir nokkuð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það eru miklar líkur á mis-
skilningi eða einhvers konar
mistökum í dag. Láttu ekki
löngun þína til að gera öðrum
til hæfis koma þér í vandræði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ekki lofa meiru en þú getur
staðið við í vinnunni í dag.
Þótt þér finnist núna að þú
munir ráða við það muntu að
öllum líkindum sjá eftir því
síðar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Mundu að börn taka loforð
fullorðinna mjög alvarlega.
Farðu því varlega í að lofa
börnum og ungu fólki nokkru í
dag. Lofaðu engu sem þú ert
ekki viss um að þú getir staðið
við.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Áætlanir þínar varðandi fast-
eignaviðskipti eða málefni
fjölskyldunnar eru að öllum
líkindum óraunhæfar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert svo bjartsýn/n í dag að
þér finnst þú ráða við hálfan
heiminn. Bíddu þó aðeins með
að taka mikilvægar ákvarð-
anir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Farðu vel með peningana þína
í dag. Þú ert í skapi til að láta
slag standa með hlutina og því
er hætt við að þú eyðir um efni
fram ef þú ferð í búð.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér finnst allt vera mögulegt í
dag og því er svolítil hætta á
því að þú missir tengslin við
raunveruleikann. Hlustaðu á
gagnrýnan hátt á það sem þú
segir við aðra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LÍKUR SÍNUM
Allt hef ég af öfum mínum,
illt er að vera líkur sínum,
annar kvað og annar saup.
Ég á að heita barnið beggja,
búinn að stökkva hvorutveggja
grárra manna Grettishlaup.
Ólukkinn skal yrkja lengur,
enginn til þess finnur drengur,
og þó miklu minnur fljóð.
Ólukkinn skal oftar súpa.
Eg er fótaloðin rjúpa.
Plokkið þér mig nú, Gunna góð!
Jónas Hallgrímsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 3.
mars, er sjötugur Hörður
Líndal Árnason frá Hnífs-
dal, til heimilis í Álfholti 24,
Hafnarfirði. Hann er að
heiman.
SAMKVÆMT gróinni hefð
þarf minnst 12 há-
spilapunkta til að hefja
sagnir og eftir því viðmiði
vantar nokkuð á að norður
eigi fyrir opnun. En hefðin
er að breytast og margir
keppnisspilarar opna allt
niður í 9–10 punkta ef skipt-
ingin er góð.
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠8652
♥ÁD3
♦Á9754
♣4
Vestur Austur
♠D10 ♠ÁK93
♥5 ♥10986
♦KDG1082 ♦3
♣10652 ♣KG98
Suður
♠G74
♥KG742
♦6
♣ÁD73
Spilið er frá NEC-mótinu
í Japan. Í leik enskrar og
þýsk/bandarískrar sveitar
valdi Bretinn Brian Senior
að opna á spil norðurs, en
Sabina Auken sagði pass.
Þessi upphafsákvörðun setti
mark sitt á framhaldið:
Vestur Norður Austur Suður
Callaghan Auken Armstrong Sanborn
– Pass 1 lauf 1 hjarta
2 lauf * 2 tíglar ** Pass 2 hjörtu
Pass Pass Pass
* yfirfærsla í tígul
** góð hækkun í hjarta
John Armstrong vakti á
Standard-laufi í austur og
Kerry Sanborn kom inn á
hjartasögn. Auken fékk
tækifæri til að sýna góða
hækkun á öðru þrepi, en
upphaflegt pass hennar hélt
aftur af Sanborn og hún lét
tvö hjörtu duga. Sem er svo
sem ágætur samningur, því
geim er ekki borðleggjandi í
NS. En þar enduðu Senior
og Lambardi eftir opnun
norðurs á einum tígli:
Vestur Norður Austur Suður
M. Molson Senior J. Molson Lambardi
– 1 tígull Dobl 1 hjarta
Pass 2 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Spaði út hefði verið best fyr-
ir vörnina, en Mark Molson
lagði skiljanlega af stað með
tígulkónginn. Lambardi
drap og svínaði laufdrottn-
ingu. Tók svo laufásinn og
stakk lauf með þristinum.
Hann spilaði tígli og tromp-
aði smátt þegar Janice Mol-
son henti spaða. Síðan var
lauf stungið hátt, hjartaás
tekinn og tígli spilað. Janice
kaus að henda öðrum spaða
og Lambardi fékk þannig tí-
unda slaginn með því að
trompa smátt heima. En
það breytir engu þótt austur
trompi í tígulinn með áttu;
sagnhafi hendir þá spaða og
stingur þriðja spaðann með
sjöunni heima.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 3.200 kr.
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær eru Ragnheiður
Ragnarsdóttir, Sjöfn Ragnarsdóttir og Harpa Marín Þór-
arinsdóttir.
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5
Dxd5 4. d4 cxd4 5. cxd4 Rc6
6. Rf3 Bg4 7. Rc3 Da5 8. d5
Bxf3 9. Dxf3 Re5 10. Dg3
Rd7 11. Bb5 Rgf6 12. 0-0 a6
13. Bxd7+ Rxd7 14.
a3 g6 15. b4 Dd8 16.
Bf4 Bg7 17. Bc7 Dc8
18. Hac1 b5 19. Re4
Db7
Staðan kom upp í
Norðurlandamótinu
í skólaskák sem lauk
fyrir skömmu í Sví-
þjóð. Hilmar Þor-
steinsson (1.810)
hafði hvítt gegn
Martin Lauritzen
(1.876). 20. Rd6+!
exd6 21. Dxd6 Re5
21. – Be5 hefði verið
engu skárra þar sem
eftir 22. Hfe1 yrði svartur
jafn varnarlaus eins og í
skákinni. 22. Hfe1 Da7 23.
Hxe5+ Bxe5 24. Dxe5+ Kd7
25. Dd6+ Kc8 26. Bb6+ og
svartur gafst upp. Lokadag-
ur stórmóts Hróksins fer
fram í Rimaskóla í dag 3.
mars.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Eldri borgarar í Reykjavík
VIÐ BJÓÐUM ÞÉR Í FERÐALAG UM
BORGINA ÞÍNA!
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bjóða eldri
borgurum í Reykjavík í vettvangsferð um
borgina laugardaginn 6. mars 2004 kl. 14.00.
14.00 Mæting við Valhöll, Háaleitisbraut 1.
14.15 Lagt af stað í langferðabifreiðum frá
Valhöll. Við skoðum m.a. fyrirhugaða
uppbyggingu í miðborginni, 101
Skuggahverfi og Slippsvæðið.
Skoðum hugmyndir um samgöngu-
bætur, færslu Miklubrautar, mislæg
gatnamót og tillögur um legu
Sundabrautar. Ökum um nýja hverfið
í Grafarholti og að fyrirhugaðri byggð
í suðurhlíðum Úlfarsfells og
Norðlingaholti.
15.45 Kaffi og léttar veitingar í Valhöll í boði
borgarstjórnarflokksins. Ávarp
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.
Allir hjartanlega velkomnir
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins
í síma 515 1700 fyrir kl. 12.00 föstudaginn 5. mars.
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
HLUTAVELTA
PENNAVINIR
VIVECA, sem er sænsk og
38 ára, óskar eftir íslenskum
pennavini.
Viveca Persing,
Stramaljv. 14,
168 73 Bromma,
Sweden.
CHAY Lemoine, sem er
háskólanemi, óskar eftir ís-
lenskum pennavinum. Hann
hefur mikinn áhuga á að
fræðast um Halldór Lax-
ness. Netfang hans er:
chay_l@yahoo.com
DEBORAH Moseby frá
Ástralíu óskar eftir íslensk-
um pennavinum.
Deborah Moseby,
7 Glenferrie Ave,
Myrtle Bank SA 5064,
Australia.
MARCELO, sem býr í
Argentínu, óskar eftir ís-
lenskum pennavinum.
Marcelo Juan Valenti,
San Martin 2970,
2000 – Rosario,
Argentina.
Reykjavíkurmót
í tvímenningi
Reykjavíkurmót í tvímenningi fer
fram helgina 13.–14. mars næstkom-
andi. Spilafjöldi og spilaform ráðast
af fjölda spilara. Spilatími er áform-
aður frá klukkan 11.00–20.00 laug-
ardaginn 13. mars og frá 11.00–17.00
sunnudaginn 14. mars. Keppnis-
stjóri verður Björgvin Már Kristins-
son. Spilagjald verður 3.000 krónur á
spilara.
Ástæða er til þess að vekja athygli
á breyttu fyrirkomulagi keppninnar,
en á þingi Bridgesambands Íslands
var ákveðið að fella niður undan-
keppni Íslandsmóts í tvímenningi, en
spila þess í stað um kvóta í svæða-
mótum landshlutanna. Kvóti
Reykjavíkur verður 23 pör (af sam-
tals 56 sem komast áfram í úrslita-
keppni Íslandsmótsins sem fram fer
helgina 30. apríl–2. maí). Nú geta pör
ekki lengur áunnið sér þennan rétt
með keppni í undankeppni Íslands-
móts, heldur verða að ávinna sér
réttinn í einhverju svæðamóti lands-
hlutanna.
Spilastaður í Reykjavíkurmótinu í
tvímenningi er Síðumúli 37. Skrán-
ing í keppnina fer fram á heimasíðu
BR, bridgefelag.is, heimasíðu BSÍ
(bridge.is) eða á skráningarlistum í
Síðumúla 37. Skráningarfrestur til
hádegis föstudaginn 12. mars.
Bridsfélag Borgarfjarðar
Mánudaginn 1. mars var að nýju
tekið til við aðalsveitakeppni félags-
ins og spilaðar tvær umferðir. Nokk-
ur spenna var í lofti því efstu sveit-
irnar áttust allar við innbyrðis. Sveit
Bifrestinga lék við sveit Kristjáns í
Bakkakoti og mátti játa sig sigraða
með 12 stigum gegn 18 og með því
mjakast Kristján nær Bifrestingum
á toppnum. Sveit Svanhildar sýndi
sveit Þorsteins á Hömrum enga mis-
kunn en þessar sveitir voru í þriðja
og fjórða sæti. Leikurinn endaði 24-6
fyrir Svanhildi. Þessar ófarir Þor-
steins nýtti sveit Halldóru í Reyk-
holti til að máta fjórða sætið með því
að vinna sveit Egils í Örnólfsdal 23-7.
Í seinni umferð kvöldsins áttust m.a.
annars við sveitir Halldóru og sveit
Bifrestinga. Sveit Halldóru hafði
unnið fimm leiki í röð og stefndi rak-
leiðis í verðlaunasæti. En sveit Hall-
dóru reyndist lítil hindrun fyrir Bif-
restinga og fór leikurinn 25-4 fyrir
þá. Ekki voru nú allir liðsmenn Hall-
dóru sáttir við þessi úrslit og heyrð-
ist einn þeirra rifja upp gamla „tap-
vísu“ eftir hinn ágæta bridsspilara í
Borgarnesi Jón Þ. Björnsson.
Tekist var á og tvísýn var keppnin
þeir tapa sem meira kunna.
Þannig var það því helv…. heppnin’
heldur með Jonna og Unna.
Sveit Kristjáns sigraði seinni leik-
inn stórt og virðist nú eina sveitin
sem einhverja möguleika á til að
velta Bifrestingum úr sessi, þó að
möguleikinn sé ekki stór. Staðan að
loknum 12 umferðum er þessi:
Sveit Bifrestinga 241
Sveit Kristjáns 223
Sveit Svanhildar 212
Sveit Þorsteins 196
Sveit Halldóru 188
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Mánudaginn 1. mars hófst þriggja
kvölda barómeter-tvímennings-
keppni félagsins. Þar spila 22 pör 4
spil á milli para, 28 spil á kvöldi.
Feðginin Anna Guðlaug Nielsen og
Guðlaugur Nielsen voru í miklu stuði
á fyrsta kvöldinu af þremur og eru
með talsverða forystu á toppnum.
Staða efstu para er nú þannig:
Anna G. Nielsen – Guðlaugur Nielsen 79
Halldór Svanb. – Kristinn Kristinss. 44
Unnar A. Guðm. – Kristján B. Snorras. 41
Hjálmar S. Pálsson – Árni Már Björnss. 41
Loftur Pétursson – Valdimar Sveinsson 38
Jón Steinar Ingólfsson – Jens Jensson 38
Eðvarð Hallgrímss. – Magnús Sverriss. 33
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 27. febrúar var spil-
aður Mitchell-tvímenningur á átta
borðum. Úrslit urðu þessi.
N/S
Lilja Kristjánsd. – Sigríður Gunnarsd. 194
Árni Bjarnason – Þorvarður S. Guðm. 181
Jón Pálmason – Stefán Ólafsson 178
Þorvaldur Þorgrímss. – Einar Sveinss. 169
A/V
Sigurður Hallgrímss. – Ólafur Gíslas. 195
Hans Linnet – Helgi Sigurðsson 180
Guðmundur Árnason – Maddý Guðm. 174
Árni Guðmundsson – Hera Guðjónsd. 165
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson