Morgunblaðið - 10.03.2004, Side 10

Morgunblaðið - 10.03.2004, Side 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ „VIÐ vorum mjög fegnir að sjá björgunarmennina, það var mjög gott eftir 36 tíma bið,“ segir Oliv- ier Le Piouff, annar Frakkanna tveggja sem björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Lands- bjargar, komu til bjargar snemma á þriðjudagsmorgun. Þá höfðu þeir haldið kyrru fyrir renn- blautir frá því um miðjan dag á sunnudag þegar fárviðri skall á. Þeir voru hraktir og kaldir þegar björgunarsveitarmenn fundu þá um 800 metra frá Háöldu á Sprengisandi, en voru þó allir að hressast þegar Morgunblaðið náði af þeim tali í gær, enda komnir í þurr föt og búnir að fá heitt að drekka hjá björgunarmönnum. Frakkarnir tveir, Le Piouff og Guillaume Hintzy, lögðu af stað frá Eyjafirði á þriðjudaginn í síð- ustu viku. „Við ætluðum að fara þvert yfir Ísland, frá Akureyri að Skógum,“ segir Le Piouff. Þeir voru á fjallaskíðum og drógu sleða á eftir sér með búnaði og vistum fyrir 11 daga. „Við höfð- um farið um það bil hálfa þessa leið, en ákváðum að snúa við því að það var ansi mikið í ám sem við gátum ekki farið yfir.“ Óðu þeir yfir fyrstu ána sem varð á vegi þeirra en síðan komu þeir að á sem í var allt of mikið vatn til þess að þeir treystu sér til að fara yfir. Ákváðu tvímenn- ingarnir því að skynsamlegast væri að snúa við á sunnudags- morgni. „Við fórum 20 km til baka, en um eftirmiðdaginn var kominn mjög sterkur vindur og fóru vindhviður upp í 150 km/ klst. (41 m/sek.). Við vorum með góðan búnað, en vandamálið var vindurinn og okkur tókst ekki að tjalda nema hluta af tjaldinu, gát- um ekki tjaldað himninum. Við fórum þá inn í tjaldið til að halda því niðri, en urðum rennandi blautir á tveimur tímum því það rigndi og snjóaði um leið inn í tjaldið. Þá byrjaði þetta að vera erfitt því ekkert var lengur þurrt, svefnpokarnir voru blautir og okkur varð mjög kalt,“ segir Le Piouff. Þeir höfðu NMT-síma með- ferðis, en tókst aðeins að ná sam- bandi við tengilið sinn í Reykjavík í um tvær sekúndur í einu. Björg- unarsveitarmenn voru kallaðir út þar sem tengiliðurinn hafði áhyggjur af afdrifum mannanna. Le Piouff segir að þeir hafi gefið upp staðsetningu þeirra strax og samband náðist, en aldrei heyrt svar af hinum enda línunnar. Því vissu þeir ekki að björgunarmenn væru á leið til þeirra til aðstoðar. Ævintýraþrá rak þá af stað Le Piouff segir að félagarnir hafi verið mjög fegnir þegar þeir sáu björgunarsveitarmennina koma, en þá ætluðu þeir að fara að hugsa sér til hreyfings. „Við höfðum ákveðið að reyna að halda ferðinni áfram þar sem veður hafði aðeins lægt. Við sáum á kortinu að það var björg- unarskýli ekki langt í burtu, en við höfðum satt að segja ekki mikla krafta. Það var því sönn ánægja að sjá þá.“ Þetta var fyrsta ferð þeirra fé- laga til Íslands, en þeir hafa áður ferðast saman um norðlægar slóð- ir þegar þeir ferðuðust um Sval- barða. Le Piouff segir að æv- intýraþrá hafi dregið þá til Íslands um miðjan vetur. „Við höfum báðir nokkra reynslu af vetrarferðum af þessu tagi og vildum gera atlögu við Ísland,“ segir hann og segir ekki útilokað að þeir muni reyna aftur við að ganga yfir þvert Ísland á skíðum. Samtals tóku tíu vélsleðar frá Eyjafirði og fjórir jeppar ásamt snjóbíl frá Hellu og Hvolsvelli þátt í leitinni. Biðu björgun- ar rennblautir og kaldir í 36 klukkutíma                                                                              Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Olivier Le Piouff og Guillaume Hintzy ásamt björgunarsveitarmönnum úr Flugbjörgunarsveitinni á Hellu sem fluttu þá til byggða. Það voru sleðamenn að norðan, frá björgunarsveitinni Súlum, sem fundu þá í gærmorgun. MENNTAMÁLAHÓPUR Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna, afhenti í gær Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra til- lögur Heimdallar í menntamálum, þar sem meðal annars er mælt með því að skólagjöld verði tekin upp við Háskóla Íslands. Tillögurnar voru settar upp eins og dagatal, og var eitt atriði tekið fyrir í hverjum mánuði, og end- að á gátlista í desember þar sem ráðherra getur merkt við þær af tillögunum sem hún hefur fram- kvæmt á árinu. Þorgerður Katrín sagði við tilefnið að það væri alltaf ánægjulegt að fá þrýsting frá grasrótinni. „Ég er alltaf hrifin af gátlistum, þeir halda okkur við efnið. Það er margt hérna sem ég vil geta kross- að við í lok skólaársins, en hvað það er ætla ég ekki að segja til að lofa ekki upp í ermina á mér,“ sagði Þorgerður þegar hún tók við dagatalinu. Minni sóun með skólagjöldum Tillögurnar eru í fimm liðum. Fjallað er um skólagjöld, faglegt frelsi, styttingu náms til stúd- entsprófs, fjárhagslegt frelsi og verknám. Kristinn Már Ársælsson, annar hópstjóra menntamála- hópsins, segir að fjallað sé ítarlega um hvern lið í tillögunum. Meðal þess sem Heimdellingar leggja til er að hætt verði að leggja fyrir samræmd próf á hvaða skólastigi sem það er. Kristinn segir það m.a. lagt til þar sem samræmd próf mæli einungis ákveðna tegund greindar, auk þess sem þar sé verið að steypa alla skóla í eitt form. Hann segir að rökin fyrir samræmdum prófum á framhaldsskólastigi séu gjarnan þau að háskólar verði að geta metið nemendur úr mismunandi skólum, og segir hann að betra væri að hafa inntökupróf í háskólann til að meta getu nemendanna. Einnig er lagt til í tillögum Heimdallar að tekin verði upp skólagjöld við Háskóla Íslands, og segir Kristinn hagsmuni einstaklingsins mæla með skólagjöldunum. Hann segir að Heimdellingar telji að skólagjöld séu til þess fallin að bæta menntun, og að með upptöku þeirra verði minni sóun í menntakerfinu þar sem nemendur séu ákveðnari og skrái sig ekki í eitthvað sem það sé ekki visst um að vilja læra. Nánari útfærslu á tillögunum má finna á vef Heimdallar, www.frelsi.is. Fleiri tilbúnir að taka upp skólagjöld Þorgerður Katrín segir að vandlega verði farið yfir tillögur Heimdallar. „Ég tel að þetta sé þarft, vel unnið innlegg inn í umræðuna, hvort sem er um skólagjöld eða aðrar áherslur menntamálaráðu- neytisins. Þetta er greinilega sterkur hópur af ung- mennum sem hefur komið þarna saman og að sjálf- sögðu ber að taka tillit til þeirra sjónarmiða eins og annarra.“ Ráðherra segist ánægð með að umræðan um skólagjöld sé komin af stað, það þurfi að fara vel yf- ir það mál og skoða kosti þess og galla vel áður en ákvörðun verði tekin. „Mér sýnist umræðan vera að þróast þannig að það séu kannski fleiri tilbúnir til að hugsa um það að taka upp skólagjöld heldur en ég til að mynda. Maður sér að það er hugsanlega að verða til póli- tísk samstaða fyrir því að taka upp skólagjöld,“ segir Þorgerður Katrín. Hún segir þó að enn eigi eftir að taka málið betur upp og fjalla um það til að sú lausn sem sett verði fram verði í takt við þarfir nemenda um öflugra nám og öflugri skóla. Morgunblaðið/Jim Smart Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra tók við tillögum Heimdallar á skrifstofu sinni. Á móti samræmdum próf- um á öllum skólastigum Heimdellingar afhenda menntamálaráðherra tillögur menntamálahóps UPPTÖKUR á fimmtu mynd- inni um ævintýri Leðurblöku- mannsins fara nú fram í Svína- fellsjökli sem er í Skaftafelli. Þar eru vinsælar gönguleiðir fjallgöngumanna og birtust at- hugasemdir í fyrradag á spjall- svæði Íslenska alpaklúbbsins, sem vistað er á heimasíðu klúbbsins (www.isalp.is). Róbert Halldórsson segir frá því að hann og félagar hans hafi ætlað upp á Hrútsfjallstinda en til þess að svo megi verða þarf að fara inneftir Svínafellsjökli. Róbert segir að þeir hafi verið stöðvaðir af vafasömum örygg- isverði sem bannaði þeim að halda áfram leið sinni, jökullinn væri lokaður vegna upptöku á kvikmyndinni um Leðurblöku- manninn. Þegar Róbert og fé- lagar gengu á manninn gat hann ekki sýnt fram á nein plögg sem gætu bannað þeim að halda áfram. Er þeir þrýstu á um að fá að halda áfram var þeim hótað lögsókn. Vitað er að um 200 manns, bæði frá Warn- er og Sagafilm, eru á staðnum vegna myndarinnar. Hins veg- ar er ekki vitað nákvæmlega hver hefur réttinn til að banna umgang um jökulinn. Heimild landeiganda? Páll Björnsson, sýslumaður á Höfn, segist lítið vita um þetta mál og engin formleg kvörtun hafi borist til hans. Það sé þó að öllum líkindum landeigandi sem geti lokað fyrir umferð. Leðurblökumað- urinn hrellir fjallgöngumenn Heftir um- ferð um Skaftafell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.