Morgunblaðið - 10.03.2004, Síða 18

Morgunblaðið - 10.03.2004, Síða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ SÍMI 530 1500 Reykjavík | Fræðsluráð Reykja- víkur úthlutaði í gær fjörutíu styrkjum upp á rúmar þrjátíu og átta milljónir króna til ýmissa verkefna í grunnskólum borg- arinnar. Stærstu styrkina fengu Myndlistaskólinn í Reykjavík, en styrkurinn rennur til reksturs skólans samkvæmt þjónustusamn- ingi, Olweus-verkefnið, samvinnu- verkefni fjölda skóla, Tónlist- arskólinn í Landakoti og Samfok, vegna þjónustusamnings. Einnig fær verkefnið Bráðger börn stóra úthlutun síðar á árinu. Veittir styrkir voru allt frá 90.000 krónum fyrir minnstu verkefnin upp í tíu milljónir fyrir þau stærstu og um- fangsmestu. Á hverju ári úthlutar Fræðslu- ráð Reykjavíkur styrkjum sem ætlað er að styðja við grunnskóla í borginni með því m.a. að efla þró- unarstarf og nýjungar í skóla- starfi, að auki fá ýmsir aðilar rekstrarstyrki fyrir verkefni sem stuðla að bættri velferð og jöfnun aðstæðna barna á grunnskólaaldri. Að þessu sinni úthlutaði Fræðslu- ráð styrkjum að upphæð um 35.480.000 kr. og síðar á árinu verður rúmlega 3 milljónum til viðbótar úthlutað til ýmissa verk- efna. Samtals verður um að ræða rúmlega 38,6 milljónir króna. Við úthlutun úr þróunarsjóði grunn- skóla Reykjavíkur undanfarin ár hefur megináherslan verið lögð á styrki til svokallaðra móðurskóla en þessir skóla hafa því hlutverki að gegna að vera frumkvöðlar á sínu sviði í uppbyggingu náms og starfs og einnig að vera ráðgefandi gagnvart öðrum skólum. Einn nýr móðurskóli bætist nú í hóp þeirra sem fyrir eru. Þetta er Vogaskóli sem verður móðurskóli í nemenda- lýðræði, lífsleikni og mannrétt- indafræðslu. Fræðsluráð Reykjavíkur úthlutar styrkjum Morgunblaðið/Eggert Stefán Jón Hafstein, formaður Fræðsluráðs, afhendir styrki með aðstoð táknmálstúlks. G ERT er ráð fyrir um 40 þúsund fermetra upp- byggingu á svæði því sem kennt er við Mýr- argötu og Slippinn í Reykjavík, gangi ný tillaga að rammaskipulagi svæðisins í gegn. Tillagan, sem verður kynnt á al- mennum borgarafundi í BÚR- húsinu við Grandagarð 8 í dag kl. 17, hefur nú verið lögð fram sem umræðugrundvöllur í samráðsferli, þar sem leitað verður samstarfs við hagsmunaaðila og almenning vegna skipulags svæðisins. Tillagan var unnin af ráðgjafarhópi, sem í eru VA arkitektar ehf., Hönnun hf., Landmótun ehf. og Björn Ólafs arkitekt, en hópnum var komið á í kjölfar forvals á vegum Reykjavík- urborgar til að vinna að ramma- skipulagi svæðisins. Enn á umræðustigi Í hinni nýju umræðutillögu, sem kynnt var á blaðamannafundi í gær, er áhersla lögð á að samtvinna áframhaldandi hafnarstarfsemi ann- ars vegar og vistvænt og vandað borgarumhverfi hins vegar. Richard Ó. Briem, fulltrúi VA arkitekta og verkefnisstjóri hjá ráðgjafar- hópnum, sagði að á næstu vikum yrði farið að funda með helstu hags- munaaðilum og almenningi og velta vöngum yfir mögulegum útfærslum á þeim hugmyndum sem settar eru fram í tillögunni. Þannig væri starf- ið á byrjunarstigi og mikilvægt að hafa það í huga að um umræðu- grundvöll væri að ræða. Ingibjörg Kristjánsdóttir, lands- lagsarkitekt hjá Landmótun ehf., kynnti umræðutillöguna. Sagði hún eitt megináhersluatriði tillögunnar vera að tryggja hafnaryfirvöldum og útgerð nægjanlegt athafnarými. Þar er stefnan að hafa samfellt, sveigjanlegt, fjölnota hafnarrými við Grandagarð og í Vesturbugt sem unnt verði að byggja upp í áföngum. Einnig verður reynt að tryggja hæfilegan þéttleika byggðar með því að gera ráð fyrir lágri byggð um þriggja til fimm hæða húsa sem séu opin í senn á móti sólarátt og að sjó. Þannig verði um leið reynt að tryggja útsýni og vinna mark- visst að skjólmyndun gagnvart ríkjandi vindáttum með formun og skörun bygginga. Um leið muni jarðhæðir húsa meðfram höfn og götum í senn geta hýst íbúðir eða atvinnustarfsemi auk þess sem byggingar við Vesturbugt geti bæði hýst atvinnustarfsemi og íbúðir. Þannig sé stuðlað að mann- lífi á öllum tímum dags með bland- aðri byggð. Mýrargatan lögð í stokk Rík áhersla er einnig lögð á flæði umferðar og aðgengi fótgangandi vegfarenda um svæðið. Í því skyni verður Mýrargatan lögð í tveggja akreina stokk og fjögurra akreina breiðgata höfð yfir stokknum, með trjám á hliðum og miðju. Reynt verður að draga úr gegnumakstri á yfirborðinu með umferðarljósum, kröppum beygjum og fleiri ráðstöf- unum. Aðspurð hvers vegna nauð- synlegt væri að hafa fjögurra ak- greina breiðstræti sem þjónaði ekki hlutverki stofnbrautar, sagði Ingi- björg að gögn gæfu til kynna að um mikla umferð yrði að ræða á svæð- inu og mikil umsvif auk þess sem gangandi vegfarendum verði gert auðveldara fyrir með breiðari gang- stéttum. Einnig verður gert ráð fyrir áhugaverðum gönguleiðum á svæð- inu auk þess sem meginhjólaleiðin úr Kvosinni út á Granda verði eftir breiðstrætinu. Á blaðamannafundinum í gær var spurt um mengun á svæðinu, í ljósi þess að þar hefur verið starfræktur slippur í meira en hundrað ár. Sagði Richard þau málefni vissulega hafa komið upp og rannsóknir hafa leitt í ljós umtalsverða mengun í jarðvegi og sjó á svæðinu. Því yrði reynt að framlengja bakkann og hylja þann jarðveg þar sem mengunin er. Rich- ard sagði betra að einangra meng- unina þar sem hún er nú, heldur en að róta í henni og færa hana annað. Eins og áður segir verða tillög- urnar kynntar almenningi í BÚR- húsinu við Grandagarð 8 í dag, milli kl. 17 og 19. Þar munu fulltrúar ráð- gjafarhópsins kynna rammaskipu- lagstillöguna og samráðsferlið. Að því loknu sitja þeir fyrir svörum ásamt fulltrúum skipulagsmála í borginni og Reykjavíkurhafnar. Þar verða jafnframt til sýnis teikningar og skýringarmyndir með umræðu- tillögunni. Þá hafa íbúar og eigendur íbúðar- húsnæðis á svæðinu og við mörk þess, sem og aðrir hagsmunaaðilar, rekstraraðilar í þjónustu og versl- un, útgerðaraðilar, bátaeigendur og aðilar í hafnsækinni starfsemi verið boðaðir bréflega til sérstakra sam- ráðsfunda á næstu vikum. Stefnt er að því að kynna niðurstöður þessara samráðsfunda á opnum fundi undir lok mánaðarins. Umræðutillaga um rammaskipulag Mýrargötu og slippsvæðis kynnt Nýr svipur: Vesturhluti hafnarinnar mun öðlast nýja ásýnd, njóti umræðutillagan velgengni. Morgunblaðið/Golli Uppbygging: Að mati borgaryfirvalda er tímabært að breyta áherslum á reitnum og bjóða upp á blandaða byggð og útivistarmöguleika. Morgunblaðið/Golli Hugmyndir kynntar: Ingibjörg Kristjánsdóttir kynnir hugmyndir ráðgjafarhópsins. Víðtækt kynningar- og samráðsferli framundan Rafrænir launaseðlar | Athuga- semdir hafa borist vegna rafrænna launaseðla sem teknir hafa verið upp hjá Hafnarfjarðarbæ. Al- mennt segja þó bæjaryfirvöld við- tökur við breytingunni vera góðar en hún er í samræmi við sam- þykktir bæjarfélagsins í umhverf- is- og upplýsingamálum auk þess sem einhver sparnaður ætti að hljótast af verkefninu. Hafn- arfjarðarbær tók rafræna launa- seðla í gagnið fyrir alla starfs- menn sína síðasta haust og bauð starfsfólki sínu upp á þann mögu- leika að fá launaseðilinn sendan með rafrænum hætti í gegnum heimabanka.       Samið við Nýsi | Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að semja við fyrirtækið Nýsi hf. um byggingu og rekstur leikskóla á Sjá- landi. Gert er ráð fyrir að leikskólinn verði fullbyggður og tilbúinn til rekstrar 1. ágúst 2005, en í skólanum verða 120 heilsdagsrými. Garðabær gerir ráð fyrir að nýta skólann frá byrjun fyrir 75 börn en að fullnýta hann fyrir 120 börn frá 1. ágúst 2007. Þetta kemur fram á fréttavef Garða- bæjar, www.gardabaer.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.