Morgunblaðið - 10.03.2004, Page 20
LANDIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3
110 Reykjavík
Sími: 591 9000
www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Með í ferðinni verður harmonikkuleikarinn
Jón Árni Sigfússon
Nánari upplýsingar verða gefnar hjá Bændaferðum í símum 533 1335 og 486 8707 og hjá Terra Nova
Innifalið:
Flug og skattar, gisting í 2ja
manna herbergi (aukagjald fyrir
eins manns herbergi), allur
akstur erlendis, skoðunarferðir
flesta daga, morgun- og
kvöldverður alla daga.
Íslenskur fararstjóri með öllum
hópum.
VOR 2 Þýskaland - Austurríki - Ítalía
13.- 23. maí Verð: 96.600,-
VOR 3 Austurríki - Slóvenía - Ítalía
17.- 30. maí Verð: 123.700,-
VOR 4 Suður-Frakkland
6.- 16. maí - Verð: 119.900,-
VOR 1
Þýskaland – Austurríki - Ítalía
15.- 25. apríl - Fararstjóri: Hófý
Flug til Frankfurt, ekið til Seefeld og gist þar í 3 nætur
á Hótel Die Post. Því næst verður farið til Riva við
Gardavatn og gist á Hótel Enrica í 6 nætur. Í lokin
verður gist eina nótt á Hótel Maritim í Würzburg.
Flug heim frá Frankfurt. Verð: 89.600,-
Bændaferðir
Terra Nova &
kynna:
Sandgerði | Nína Ósk Kristinsdótt-
ir, landsliðskona í knattspyrnu, var
útnefnd íþróttamaður Sandgerðis
árið 2003 á hátíðlegri samkomu sem
var haldin í Samkomuhúsinu í Sand-
gerði síðastliðinn föstudag. Sam-
koman er haldin árlega 5. mars, á af-
mælisdegi Magnúsar Þórðarsonar
sem var einn af stofnendum Knatt-
spyrnufélagsins Reynis.
Nína Ósk æfði og keppti í knatt-
spyrnu með Reyni og RKV sem er
sameiginlegt félag Reynis, Víðis og
Keflavíkur. Hún skipti yfir í Val í
Reykjavík fyrir upphaf keppnis-
tímabilsins 2003 og lék í fyrsta sinn í
efstu deild. Hún kom við sögu í öll-
um fjórtán deildarleikjum Vals á
árinu og skoraði í þeim 5 mörk. Nína
varð bikarmeistari með Val. Á árinu
2003 lék hún þrjá leiki með U19 ára
landsliði Íslands og hefur nú veri
valin í landslið Íslands. „Nína er við
það að komast í hóp þeirra bestu í
heimi knattspyrnunnar og er sann-
arlega glæsilegur fulltrúi Sand-
gerðis á hvaða velli sem er,“ segir í
frétt frá Sandgerðisbæ sem stendur
fyrir athöfninni.
Aðrir íþróttamenn sem fengu við-
urkenningar fyrir góðan árangur í
íþróttum sínum voru körfuboltamað-
urinn Arnór Jensson, knattspyrnu-
maðurinn Guðmundur G. Gunnars-
son og kyflingurinn Pétur Þór
Jaidee. Þá fékk taekwondo-kappinn
Helgi Rafn Guðmundsson sérstök
hvatningarverðlaun íþróttaráðs
Sandgerðisbæjar.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Hlaðin verðlaunum: Guðmundur G. Gunnarsson, Pétur Þór Jaidee, Nína Ósk Kristinsdóttir, Arnór Jensson og
Helgi Rafn Guðmundsson fengu verðlaun og viðurkenningar við útnefningu íþróttamanns ársins í Sandgerði.
Nína Ósk íþróttamaður Sandgerðis
Grindavík | Hagtak hf. átti lægsta til-
boð í dýpkun við loðnulöndunar-
bryggjuna í Grindavík. Tilboð fyrir-
tækisins er 40 milljónum kr. undir
kostnaðaráætlun Siglingastofnunar
Íslands.
„Ég er þokkalega ánægður með
niðurstöðuna, það er að segja ef þetta
stendur,“ segir Sverrir Vilbergsson,
hafnarstjóri í Grindavík, um niður-
stöðu útboðs Siglingastofnunar á
dýpkun í Grindavíkurhöfn á þessu ári.
Kostnaðaráætlun Siglingastofnun-
ar hljóðaði upp á 161 milljón kr. Þrjú
fyrirtæki buðu. Lægsta tilboðið var
frá Hagtaki hf., tæpar 122 milljónir
kr. sem er 76% af kostnaðaráætlun.
Hin tilboðin voru frá Sæþóri ehf. og
Ístaki hf., bæði yfir kostnaðaráætlun.
Tilboð Ístaks var 309 milljónir kr.
sem er 187 milljónum hærra en
lægsta tilboðið.
Stóru loðnuskipin eiga erfitt með
að athafna sig við bryggjuna við
Svíragarð þar sem landað er afla til
fiskimjölsverksmiðju Samherja, eiga
raunar erfitt með alla snúninga í
höfninni. Dýpkað verður niður á níu
metra dýpi við bryggjuna og niður á
átta metra úti í höfninni. Áætluð verk-
lok eru 1. apríl á næsta ári. Í fram-
haldinu verður rekið niður nýtt 160
metra stálþil, framan við það gamla.
Dýpkun við loðnulöndunarbryggjuna í Grindavíkurhöfn
Lægsta tilboð 40 milljón-
um króna undir áætlun
Allt í skralli | Margt var talið at-
hugavert við fólk og ökutæki sem
lögreglan í Keflavík stöðvaði á
Reykjanesbraut í fyrrinótt.
Að því er fram kemur á vef lög-
reglunnar var bifreiðin stöðvuð
vegna mjög lélegs ástands hennar.
Framljós var brotið og framrúða
sprungin auk þess sem það sauð á
vélinni.
Grunur vaknaði svo um fíkniefna-
misferli og við leit í bifreiðinni
fannst ein tafla sem grunur leikur á
að sé svokölluð E-pilla. Málið er í
rannsókn.
SUÐURNES
Laxamýri | Miklar endurbætur
hafa verið gerðar á fjósinu á
Lækjamóti í Þingeyjarsveit og nú
er verið að leggja lokahönd á verk-
ið sem felst í því að ljúka við inn-
réttingar fyrir kvígur og kálfa.
Segja má að búið sé að gjörbreyta
allri aðstöðu fyrir gripina auk þess
sem búið er að byggja við og gera
mjaltabás þar sem 10 kýr eru
mjólkaðar í einu.
Það eru feðgarnir Sigurður Arn-
arson og Örn Sigurðsson sem
standa að framkvæmdunum og
hafa þeir nú breytt hlöðunni og
gamla básafjósinu í nýtískulegt
lausagöngufjós með öllum búnaði
fyrir 50 kýr.
Að sögn Sigurðar er þetta búið
að vera mikið verk enda þurfti að
rífa út úr byggingunum og inn-
rétta allt upp á nýtt. Var þá tekin
sú ákvörðun að einangra bæði loft
og veggi í hlöðunni sem gerir að-
stöðuna mun vistlegri. Þar er
klæðningin hvítt bárustál frá Vír-
neti og er því mun bjartara inni
auk þess sem langur mænisgluggi
gefur mikla birtu. Hann er með
sjálfvirkum lokunarbúnaði og ef
hvessir lokast hann sjálfkrafa.
Tölva stjórnar kjarnfóðurgjöf
fyrir hverja kú
Þá eru í enda hlöðunnar breiðar
dyr fyrir dráttarvél og þar fyrir
innan er Weeling-gjafakerfi fyrir
kýrnar og segist Sigurður gefa á
þriggja daga fresti. Eru þá rúllurn-
ar settar inn í heilu lagi og geta
kýrnar fengið hey að vild meðan
birgðir endast og kerfið er hægt að
færa nær og nær rúllunum með
rafmagni þannig að gripirnir nái
alltaf heyinu. Þetta segir hann
mikinn vinnusparnað en nýtingin á
gróffóðrinu sé ef til vill ekki alveg
eins góð og áður þegar gefið var
tvisvar á dag.
Í fjósinu eru tveir kjarnfóður-
básar og hafa allar kýrnar háls-
band, en tölvan segir til um hve
mikið hver kýr á að fá í hvert sinn
allt eftir því hvaða upplýsingar eru
um kúna.
Mikla athygli vekur gólfefnið í
mjaltabásnum en það er malbik
sem mjög er að ryðja sér til rúms á
flötum fyrir nautgripi þar sem
mikið mæðir á og er það mjúkt að
standa á því, ekki hált og gott að
þrífa það. Auk þessa er fljótlegt að
leggja það því hægt er að leggja
það „milli mála“ eins og sagt er.
Mjaltakerfið er láglínukerfi frá
DeLaval og allar innréttingar í
legubásana eru frá Landstólpa. Þá
skal geta þess að lyfta er í mjalta-
aðstöðunni og getur hver og einn
stillt sína vinnuhæð allt eftir því
hver er að mjólka.
Svo er að sjá að gripunum líði
vel í þessari nýju vinnuaðstöðu og
eftirtektarvert er hve allt er vel
þrifið og hirt. Sigurður segir að
það dugi ekki annað en nú líta
margir við til þess að skoða.
Ekki má heldur gleyma því að í
öllu þessu hefur heimilið breyst í
mötuneyti og hefur húsmóðirin
Sigrún Garðarsdóttir hafa í miklu
að snúast á tímabilinu því mikið
mannahald fylgir framkvæmdum
sem þessum.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Í fjósinu: Feðgarnir Sigurður Arnarson og Örn Sigurðsson.
Lausagöngufjós
á Lækjamóti
HÚN á sér merkilega sögu kýrin Kríma. Hún var nýfædd þegar Ólafur
Ragnar Grímsson forseti og föruneyti komu fyrir nokkrum árum og skoð-
uðu mjaltabásinn á Fremstafelli sem er rétt við Lækjamót. Gestirnir voru í
opinberri heimsókn í Suður-Þingeyjarsýslu og höfðu mjög gaman af kálf-
inum. Seinna keypti Sigurður kvíguna og hefur hún reynst mjög vel.
Kýrin Kríma komst í fréttirnar