Morgunblaðið - 10.03.2004, Qupperneq 21
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 21
Forréttur
Andalifraterrine bori› fram á salatbe›i
me› “balsamica etrusca”
Milliréttur
Ostafyllt ravioli me› tómat og chili
A›alréttur
Ofnsteikt kjúklingabringa
me› mascarpone, timjan og sítrónu
Eftirréttur
Súkkula›ijass
kr. 4.300
Í samstarfi vi› vínframlei›andann Castello Banfi b‡›ur
veitingasta›urinn La Primavera gestum sínum upp á
líflega skemmtun öll fimmtudagskvöld í mars, en flá mun
Tríó Björns Thoroddsen leika fyrir matargesti.
Í bo›i ver›ur fjögurra rétta matse›ill og ver›ur n‡r se›ill
settur saman í hverri viku. Ásamt flessu ver›a kynnt vín
frá framlei›andanum Castello Banfi í Toscana.
Jass hefur löngum hljóma› í veitingasal La Primavera.
Nú ver›ur hins vegar í fyrsta sinn bo›i› upp á lifandi
tónlist me›an matargestir njóta andrúmslofts Toscana í
gó›um mat og ilmandi víni.
JASS
Á LA PRIMAVERA
Fjögurra rétta matse›ill, fimmtudaginn 4. mars:
AUSTURSTRÆTI 9, S: 561 8555
UM þessar mundir standa Geisla-
varnir ríkisins, Krabbameinsfélagið,
Landlæknisembættið og Félag ís-
lenskra húðlækna fyrir fræðslu til að
minna á skaðsemi ljósabekkja, en
hver eru hin skaðlegu áhrif ljósa-
bekkjanna?
Árið 1992 gaf Alþjóðakrabba-
meinsrannsóknarstofnunin út yfirlýs-
ingu þar sem fram kom að nægar vís-
indalegar upplýsingar lægju fyrir til
að fullyrða að útfjólubláir geislar
gætu valdið sortuæxlum
og öðrum húð-
krabbameinum. Út-
fjólubláa geisla er að
finna bæði í geislum sól-
arinnar og ljósabekkja.
Sýnt hefur verið fram á
með óyggjandi hætti að sólargeislar
og sérstaklega geislar ljósabekkja
valda ótímabærri öldrun húðarinnar
með hrukkumyndun, æðaslitum og
litabreytingum. Aðaláhyggjuefnið er
hins vegar að sortuæxli (melanoma)
hafa orðið mun algengari hérlendis á
undanförnum áratugum.
Sortuæxli eru líffræðilega séð með
ágengustu krabbameinum sem
þekkjast. Þau myndast frá litarfrum-
unum sem framleiða litarefni húðar-
innar. Oftast er auðvelt að lækna þau,
greinist þau snemma, en þau geta
reynst banvæn greinist þau of seint.
Fyrstu merkin
Fæðingarblettur sem breytist á
einhvern hátt er stundum fyrsta
merkið um sortuæxli en einnig geta
þau komið sem nýr blettur í húð.
Tæplega helmingur sortuæxla mynd-
ast í óreglulegum fæðingarblettum,
um 2–8% koma í meðfædda fæðingar-
bletti og afgangurinn myndast í til-
tölulega eðlilegri, en oft sólskaðaðri
húð. Reikna má með að á árinu 2004
muni um 80 Íslendingar fá sortuæxli
og þar af um 50 svokölluð ífarandi
sortuæxli, sem eru alvarlegra form
en staðbundnu æxlin. Dauðsföll af
völdum húðkrabbameina eru oftast af
völdum ífarandi sortuæxla. Hérlendis
hefur sortuæxlum fjölgað
mjög á síðustu árum hjá
yngra fólki en eru þó
fremur sjaldgæf fyrir
kynþroska. Þau eru al-
gengasta krabbameinið
hjá ungum konum og
næstalgengasta krabbameinið hjá
ungum karlmönnum.
Meðferð felst í einfaldri skurð-
aðgerð. Ef æxlin greinast snemma og
eru grunn fæst oftast lækning og ekki
er þörf á lyfjameðferð. Þykkt sortu-
æxlis er afgerandi fyrir horfur sjúk-
lingsins. Því þykkara þeim mun meiri
líkur eru á að æxlið dreifi sér til ann-
arra líffæra og myndi meinvörp.
Áhættuþættir: erfðir
og áhættuhegðun
Hættan á að fá sortuæxli eykst ef
viðkomandi hefur marga stóra eða
óreglulega fæðingarbletti. Blettur
telst óreglulegur ef hann er með
ójafnan lit eða lögun, ef ytri mörk eru
óljós og einnig ef útlit líkist spældu
eggi. Þetta kemur stundum ekki í ljós
fyrr en bletturinn hefur verið skorinn
burt og sendur í skoðun hjá meina-
fræðingum. Jafnvel reyndur læknir
getur átt erfitt með að greina slíka
bletti. Talið er að 2–4% hvítra manna
hafi einn eða fleiri óreglulega fæðing-
arbletti. Hafa skal í huga að sortuæxli
geta einnig myndast í blettum sem
ekki teljast óreglulegir. Áhættan
eykst einnig ef einhver í fjölskyldunni
er með sortuæxli. Þeir sem hafa hvíta
húð, freknur, rautt hár, ljóst hár, blá
og græn augu eru líklegri til að
mynda sortuæxli, en þau geta þó
einnig myndast í dökkri húð. Þetta á
sérstaklega við um þá sem roðna auð-
veldlega eftir sól.
Stutt áköf sólun með hvíld á milli
virðist slæm. Vegna íslenskrar veðr-
áttu hafa margir tilhneigingu til
slíkra sólbaða. Sólarlandaferðir geta
á sama hátt verið slæmar ef ekki er
farið að með gát og öflug sólvörn not-
uð. Áhættan á húðkrabbameini eykst
verulega með endurteknum sólbruna
fyrir 18 ára aldur, en nýlega hefur
komið í ljós að bruni hjá eldra fólki
eykur einnig hættu á sortuæxlum. Á
síðustu árum hafa ljósabekkirnir
bæst við, en þeir eru mikið notaðir af
unglingum. Slík notkun er afar
óæskileg og eykur hættu á sortuæxl-
um auk þess sem húðin verður mun
ellilegri.
Ef þú ert með meinsemd í húðinni
sem þú telur að gæti verið sortuæxli
skalta leita læknis strax.
FRÁ LANDLÆKNISEMBÆTTINU | Sortuæxlum fer fjölgandi
Hættan er ljós
Reikna má með
að 2004 muni um
80 Íslendingar fá
sortuæxli.
Jón Hjaltalín Ólafsson,
Bárður Sigurgeirsson,
sérfræðingar í húðsjúkdómum.
FLJÓTLEGA á meðgöngunni varð
maginn eins og eitthvert löngu týnt
fyrirbæri. Og það að liggja á mag-
anum varð eins og einhver draum-
sýn eða fantasía að hugsa um.
Pabbi þinn sefur oft á maganum og
ég man að stundum horfði ég bara
á hann öfundaraugum.
Á sjöunda mánuði fórum við síð-
an í viku Spánarferð. Í sólbaðinu
þar horfði maður á tugi manns bylt-
andi sér fram og til baka á sólbekkj-
unum eins og ekkert væri sjálfsagð-
ara. Í huganum rifjaði ég upp hvað
þetta væri nú æðislegt, fór að telja
mér trú um að þannig hefði ég oft-
ast sofið.
„Farðu bara ekki að gera þér
vonir um að geta farið að sofa á
maganum strax eftir fæðingu,“
sagði vinkona mín síðan við mig
einn daginn. „Hvað meinarðu?“
spurði ég hissa. Ég var fyrir löngu
farin að sjá það í hillingum að sofa á
maganum strax fyrstu nóttina eftir
fæðingu! „Nú, brjóstin verða þá
auðvitað full af móðurmjólk þannig
að þú sefur nú ekkert strax á mag-
anum, góða mín,“ var svarið sem ég
fékk. Þetta hafði ég nú ekki hugsað
út í.
DAGBÓK MÓÐUR
Dreymir um
að sofa á
maganum
Meira á morgun.
Norrænir femínistar semberjast gegn klámvæðingusamfélaga sinna mæta
fyrirsjáanlegri varnarbaráttu söku-
dólganna. Allrahanda fyrirtæki á
Norðurlöndum falla endrum og eins
í þá gryfju að auglýsa og markaðs-
setja vörur sínar með tvíræðri til-
vísun í nekt kvenlíkamans og kynlíf.
Ungir femínistar sem vilja klám-
laust umhverfi gagnrýna harðlega
þessa tilhneigingu fyrirtækjanna,
og verða viðbrögðin þá iðulega í
þessa veru:
Afneitun. Talsmenn fyrirtækjanna
neita að koma auga á tilvísun í klám
eða niðurlægingu kynjanna.
Hlátur. Talsmenn segja að hér sé
einungis meinlaust tvírætt grín á
ferðinni og að gagnrýnendurnir séu
sjálfir alveg húmorslausir.
Yfirfærsla. Talsmenn gera tilraun
til að gera gagnrýnendur grun-
samlega og segja að meinið sé innra
með þeim.
Íslenskir femínistar lenda iðulega í
þessu þegar þeir gagnrýna fyr-
irtæki fyrir að nýta sér veikleika
neytenda gagnvart nekt og klámi.
Danska dagskrárgerðakonan Lo-
uise Witt-Hansen sagði frá skóla-
bókardæmi í þessum efnum á ráð-
stefnu norrænna femínsta sem
haldin var í Norræna húsinu á bar-
áttudegi kvenna 8. mars. Hún sagði
frá baráttunni gegn auglýsinga-
herferð mjólkursamlagsins Arla
Foods sem byggðist á tvíræðni milli
kláms og drykkja. Witt-Hansen seg-
ir einnig frá þessu í bókinni FEM-
KAMP – bang om nordisk feminism
(bls. 196–210, Bang förlag 2004.)
Arla-mjólkurvörufyrirtækið hafði
framleitt mjólkurdrykki í penum
plastflöskum, ekki ólíkum drykkjar-
jógúrt og kakódrykkjum frá MS hér
á landi. Varan heitir „Arla mini“.
Markaðssetningin fólst í því að sýna
ungar konur á bikiníi með drykkinn
í hönd. Konurnar báru sömu nöfn og
drykkurinn. Ein nefndist Vanilla,
önnur Naturel og sú þriðja sem var
sólbrún Kakao.
Kakao er óþæga systirin
Konurnar eru allar bjóðandi í
auglýsingunum en tvíræðnin fólst í
textanum sem fylgdi – hann býr til
klámið. Það er líkt og kona og kynlíf
fylgi drykknum:
„Vanilla er alltaf elegant og
bragðgóð. Hún sefar tunguna og lík-
amann líka, en það er ekki málið,
það á að prófa hana.“
„Naturel er náttúruleg frá toppi
til táar, fegurð hennar og bragð
kemur að innan.“
„Kakao er óþæga systirin. Hún
gengur lengra en hinar og bragðið
af henni endist betur. En þó að hún
endist lengur í munni hverfur hún
einnig óvænt á braut. Draumaprins
Kakao er sá sem heldur það út alla
nóttina.“
Þannig fléttuðust saman ungar
stúlkur, mjólkurdrykkir og textar.
Fjórði drykkurinn bættist síðar við
og þar með fjórða stúlkan: Ungfrú
jarðarber. Auglýsingarnar voru
annars vegar mynd af þeim öllum
saman með brimbretti, og hins veg-
ar fjórar myndir með hverri og
einni líkt og þær væru (kross)festar
á brimbretti með bros á vör.
Witt-Hansen sagði frá baráttu
Kvindeligt selskaps í Danmörku
gegn Arla-auglýsingunum og dæmi-
gerðum svörum fyrirtækisins; af-
neitun, gríni og yfirvarpi. Það var
ekki fyrr en þær ákváðu að beita
húmor gegn fyrirtæki að það hætti
að birta tvíræða textann með aug-
lýsingunum, þótt herferðin héldi
áfram. Arla styður knattspyrnu
karla í Danmörku. Witt-Hansen seg-
ir að þær hafi notfært sér þá stað-
reynd með því að stilla upp kvenna-
liði með tvíræðum skilaboðum um
að „BOYKUT“ Arla. Hugtakið
merkir að sniðganga en felur
greinilega í sér tilvísun í drengi
(boy). Einnig sögðust þær nú vera
með blik í augum (nu med glimt i øj-
et), þ.e.a.s. væru orðnar kankvísar.
Snjall mótleikur
Talsmenn Arla reiddust þessum
mótleik og sökuðu félagsskapinn
um óheilbrigðan áróður gegn fyr-
irtækinu. Einhver annarleg sjón-
armið lægju á bak við þessa gagn-
rýni. En konurnar sögðust bara
vera að grínast. Stök orrusta
vannst, en ekki stríðið. „Árangurinn
fólst í því að skapa umræðu og
breyta umræðunni,“ sagði Witt-
Hansen á ráðstefnunni. Hún sagði
að fyrst hefði verið hlegið að þeim,
en loks hefðu fjölmiðlar tekið þær
alvarlega og veitt þeim rými á síð-
unum til að koma sjónarmiðunum til
skila.
Niðurstaða Witt-Hansen var að
norrænir femínistar þyrftu ekki
lengur að byrja á byrjuninni í sér-
hverri gagnrýni sinni á fyrirtæki
sem nýta sér klám í markaðs-
setningu á vörum. Nú gætu þær án
tafar hafið (mót)leikinn þar sem frá
var horfið. „Við þurfum ekki alltaf
að byrja á Adam og Evu,“ sagði hún
og „Nej til sexistiske reklamer!“
Húmor gegn klámi í auglýsingum
Femínistar í Danmörku
komu með krók á móti
bragði Arla-mjólk-
ursamsölunnar. Þær
beittu margræðum húm-
or gegn tvíræðum texta við
myndir af konum á bikiníi með
mjólkurdrykki í hönd. Hefðbundin
viðbrögð brugðust.
TENGLAR
.....................................................
www.ministars.dk
www.bang.a.se
www.arla.dk
Arla-stúlkurnar: Með vanillu-, jarð-
arberja-, kakó- og náttúrulega
bragðinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Louise Witt-Hansen: Áfangasigur.
guhe@mbl.is