Morgunblaðið - 10.03.2004, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 27
ns fjörutíu
að bjarga
m. Þyrlan
nar til Vík-
mennirnir
g, en skip-
rjar voru
þar sem
ála ásamt
seinni-
ð ná skip-
din sú að
dir kvöld-
ekki að ná
nni og hélt
ar brott af
ðal annars
em tengja
einssonar
ð að reyna
að. Verður
frá vegna
mjög löng
ana í gær-
n EA strandaði í Skarðsfjöru á Meðallandsfjörum snemma í gærmorgun
Morgunblaðið/RAX
að því að reyna að ná því á flot í kvöld.
nna áhöfn
orð í TF-LÍF
!"
"#$%
% &'
%
"(
$#$%
% (
"
) %
*"
+ ( (
!"
# $%&$
'& () *
+,
-
!
(
,-.)/- %%
*
(012
0 (&
+" **$
3
+
$
"
% &'
%
#$%
+
#
% (
"
rlendsson
a það.
Súlan EA var á veiðum ásömu slóðum og BaldvinÞorsteinsson EA þegarhann fékk í skrúfuna.
Bjarni Bjarnason, skipstjóri á
Súlunni, sagði að 5–6 skip hefðu
verið þarna á smábletti „og við
köstuðum við hliðina á Baldvini,
á sömu lóðningu og vorum að
vinna við það. Þegar Baldvin var
búinn að draga um helminginn
af nótinni fékk hann hana í
skrúfuna og við sáum hvar
slökknaði á öllum ljósum um
borð um leið og drapst á vélinni.
Baldvin var almyrkvaður í smá-
stund eða þar til þeir settu ljósa-
vél í gang. Við vorum um eina
sjómílu frá landi þegar við köst-
uðum og rekið var skáhallt upp á
landið.“
Bjarni sagði að Bjarni Ólafs-
son AK hefði verið sá eini sem
ekki var með nótina úti á þessari
stundu og hefðu skipverjar kom-
ið taug yfir í Baldvin en þar sem
hann var orðinn vel lestaður og
þungur hefði taugin slitnað
strax. „Þegar skip eru komin
þetta grunnt eru hlutirnir fljótir
að gerast og menn komnir upp í
fjöru á nokkrum mínútum. Að-
stæður voru ekki góðar en hafa
þó oft verið svipaðar. En það
verður bara að segjast eins og er
að það er oft teflt á tæpasta vað
og í þessu tilviki gerðust hlut-
irnir mjög hratt. En þarna varð
mannbjörg og annað er hégómi.“
Bjarni sagði að við þær að-
stæður sem voru á miðunum
væri hætta á að fá í skrúfuna.
„Sérstaklega í svona þykkri öldu
er þessi hætta alltaf fyrir hendi.
Þessi strönd er öll eins og hún
leggur sig ákaflega erfið viður-
eignar þegar álagsvindur er og
þessi blessaði fiskur hangir nán-
ast uppi í fjöru.“
Með fullfermi
Súlan kom með fullfermi, um
900 tonn, til Seyðisfjarðar undir
miðnætti í gærkvöld. Bjarni
sagði að mikil loðna hefði verið á
svæðinu og hann fyllti skipið í
þremur köstum.
„Þarna varð mannbjörg
og annað er hégómi“
Það eru gríðarleg verðmæti íhúfi,“ sagði ÞorsteinnMár Baldvinsson, for-stjóri Samherja, við
Morgunblaðið, þegar hann kom á
strandstað við Meðallandsfjörur í
gær um klukkan 16 til að kanna
möguleika á björgun togarans Bald-
vins Þorsteinssonar EA-10 sem
strandaði um klukkan 5 í gærmorg-
un.
Í áhöfn voru 16 skipverjar og
björguðust þeir allir á land með TF-
LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Þeir voru fluttir til Víkur í gærmorg-
un og hélt hluti áhafnarinnar þar til í
gær en annar hluti hennar fór aftur
á strandstað eftir hádegið til að
kanna björgunarmöguleika. Um
borð eru 1800 tonn af loðnu auk olíu.
„Málið snýst núna um það til
hvaða aðgerða þarf að grípa til að
draga skipið út,“ sagði Þorsteinn.
„Það er töluvert langt frá skipinu og
út í varðskipið, eða 2 kílómetrar.
Vandamálið nú felst í því hvaða
möguleika við eigum á því að koma
taug í skipið. Eina leiðin er að gera
það með hjálp þyrlu. Það er alveg
ljóst að aðstæður hér eru erfiðar,“
sagði Þorsteinn.
„Menn voru í góðu jafnvægi,“
sagði Þorsteinn spurður um áhöfn-
ina. „Ég var í sambandi við áhöfnina
þegar þessir atburðir voru að ger-
ast. Þetta tók að sjálfsögðu töluverð-
an tíma, frá því að skipið fór að reka
þarna inn þangað til menn náðust
um borð í þyrluna, þannig að sá tími
var erfiður. Það sem skipti máli var
að sjálfsögðu áhöfnin.“
Reynt verður að ná skipinu á flot í
kvöld, miðvikudagskvöld, og þarf
um 2 kílómetra langa taug í skipið
sem verið er að útvega. Áhöfn skips-
ins verður flutt með þyrlu út í skipið
áður en drátturinn hefst og átti und-
irbúningur að björgunaraðgerðinni
að hefjast í birtingu.
Ljóst er að öflug skip þarf til að
toga Baldvin Þorsteinsson af
strandstað og var Samherjaskipið
Vilhelm Þorsteinsson á leiðinni að
strandstað í gærkvöldi auk þess sem
fleiri skip eru skammt frá strand-
staðnum.
„Þetta snýst að töluverðu leyti um
það hvernig við komum festu í skip-
ið,“ ítrekaði Þorsteinn. „Það er höf-
uðverkurinn, enda er þetta vega-
lengd sem er nálægt tveim
kílómetrum.“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja
„Gríðarleg verð-
mæti eru í húfi“
ruv.is/sjónvarpið
Tveir skipbrotsmanna hífðir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.
BALDVIN Þorsteinsson EA 10
er 2.968 brúttólesta fjölveiðiskip
smíðað árið 1994 í Flekkafjord í
Noregi. Skipið var síðan lengt í
Riga í Lettlandi árið 2002. Skip-
ið er 86 metra langt og 14 metra
breitt og vegur það ásamt afla
um 5.600 tonn, en um 1.500–
1.800 tonn af loðnu voru í skip-
inu er það strandaði. Samkvæmt
upplýsingum frá Samherja er
ekki búið að meta verðmæti
aflans.
Verðmæti skipsins er sam-
kvæmt ársreikningi Samherja
fyrir árið 2003 rúmir 1,6 millj-
arðar króna (bókfært verð).
Skipið hét Guðbjörg ÍS áður
en það komst í eigu Samherja og
var stærsta fiskveiðiskip Íslend-
inga á sínum tíma. Það var síðan
selt til útlanda og hlaut þá nafn-
ið Hannover, en var keypt aftur
af Samherja, breytt og stækkað
og gert að fjölveiðiskipi fyrir
nokkru síðan.
.
/0
20+0-,1
!" #
$
"
%
&
' (
!)"*+
,
+0,1 # $
%
(,-
&./ 0. #
"
#
'
&
0
-
&& /
,
+0341.
,
-
1 #
'
2
$
2
(,
30,41.3"$43 ' 5 #
' ,
30+51-'
,
,
501
2(
&
# # 2
,
50-+1
' ,
50+1 #
-
' '
(,
401
'
,
40-1 #
$
%
,
4051 (
2
2 '6#
,
-+01-
&./
,
-401 #
$
%
/
%
2(
,
-01 (
# #
'% ,
Baldvin Þorsteins-
son vegur ásamt
afla um 5.600 tonn