Morgunblaðið - 10.03.2004, Page 37

Morgunblaðið - 10.03.2004, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 37 MISTÖK urðu við birtingu þessa skákþáttar í blaðinu í gær og verður hann því endurbirtur að hluta: Óvæntustu úrslit 1. umferðar Reykjavíkurskákmótsins urðu þegar Sigurði Páli Steindórssyni tókst að leggja þýska stórmeistarann Roland Schmaltz að velli. Sá þýðverski er á meðal sterkustu hraðskákmanna heims og varð eitt sinn heimsmeistari í einnar mínutu skák. Sigurður teflir ákaflega traust með hvítu og getur verið varhugavert fyrir færustu stór- meistara að ganga of langt í tilraun- um sínum til að sigra hann. Á þessu fékk fyrrnefndur Roland að kenna Hvítt: Sigurður Páll Steindórsson Svart: Roland Schmaltz 1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. e4 c5 Sérstakur leikur en ekki slakur þó að riddari svarts þurfi að hörfa upp í borð strax í fjórða leik. Hefðbundn- ara er að leika 3. … d5. 4. e5 Rg8 5. Rf3 d6 6. exd6 Bxd6 7. d4 cxd4 8. Rxd4 a6 9. Be2 Rf6 10. 0–0 0–0 11. h3!? Be5 12. Be3 Bd7 13. Bf3 Hvítur stendur aðeins betur eftir byrjunina þar sem svartur er eilítið á eftir í liðskipan. Svarta staðan er hinsvegar traust og minnir peðastað- an á afbrigði sem upp getur komið í Tarrasch-afbrigði franskrar varnar að því frátöldu að hvíta peðið stendur á c4. Óhægt er að fullyrða að það er kostur fyrir hvítan fremur en galli. Hafi sá þýski viljað tefla til vinnings kemur næsti leikur hans á óvart þar sem hann býður upp á það að taflið einfaldist til muna. Stöðumynd 1 13. … Rc6?! Við þetta sundrast peðastaða svarts á drottningarvæng sem gefur hvítum betra tafl án þess að hann verði nokkurn tíma í taphættu. 13. … Dc7 hefði verið klókari leikur. 14. Rxc6 Bxc6 15. Bxc6 bxc6 16. Dc2 Bxc3?! 17. Dxc3 De7 18. Bg5!? Hvítur afræður að einfalda taflið enn frekar enda nýtast hrókar hans ágætlega í að herja á svörtu peðin. 18. … h6 19. Bxf6 Dxf6 20. Dxf6 gxf6 21. Hfd1 Hfd8 22. b4! Kf8 23. Kf1 Ke7 24. Ke2 24. … Hg8 24. … Hxd1 kom einnig til álita en hvítur stendur einnig betur að vígi eftir 25. Hxd1 c5 26. a3 Hb8 27. Hb1 Kd7 þó að ólíklegt verði að teljast að það dugi til vinnings. Eftir textaleik- inn nær hvítur að herða tök sín á stöðinni með auðveldari hætti. 25. g3 Hg5 26. Hd3! a5 26. … c5 kom einnig til greina en eftir 27. f4 Hf5 28. a3 er frumkvæðið í öruggum höndum hvíts. 27. f4 Hf5 28. Ha3 e5 29. Kf3 exf4 30. gxf4 Hg8 31. bxa5 Hh5 32. Ke4 Kd6 33. Hh1! He8+ Í stað textaleiksins hefði 33. … Kc5 virts eðlilegri leikur en 34. a6 hefði þá sett svartan í enn meiri vanda. Svarta staðan er nú í reynd töpuð enda frelsingi hvíts á a-línunni gulls ígildi. Sigurður teflir framhald skákarinnar prýðilega og gefur titil- hafanum engin færi á að verða sér út um mótspil. 34. Kf3 Kc7 35. a6 Kb8 36. Kg4 Hc5 37. Hb1+ Ka8 38. Hb7 Hg8+ 39. Kf3 Hh5 40. Kf2 Hf5 41. Kf3 Hh5 42. Hab3 Hxh3+ 43. Ke4 Hh2 44. a3 Hh5 45. He7 Ha5 46. Hxf7 He8+ 47. Kf3 f5 48. Hf6 Hc8 49. Hxh6 Ka7 50. Ke3 Kxa6 51. Hd6 He8+ 52. Kd3 Hc8 53. Kd4 Hc7 54. Hd8 Ka7 55. Hbb8 Lok skákarinnar nálgast nú óð- fluga og hótar hvítur nú illþyrmilega að vinna hrók af svörtum. Til að af- stýra því skiptir svartur upp á öðrum hróknum en þá verða peð hans of veik til að standast árás hvíts. Stöðumynd 2 55. … Hd7+ 56. Hxd7+ Kxb8 57. Hf7 Kc8 58. c5 Hxa3 59. Ke5! Hd3 60. Hxf5 Kd7 61. Hf7+ Kd8 62. Ke6 Hd5 63. Hf5 Hd4 64. Hf8+ Kc7 65. Hf7+ Kd8 66. f5 Hd1 67. f6 Ke8 68. Ha7 He1+ 69. Kd6 Kf8 70. f7 He2 71. Kxc6 Hd2 72. Hd7 Hc2 73. Kb6 Hb2+ 74. Kc7 Hb1 75. c6 Hh1 76. Kc8 og svartur gafst upp enda taflið gjörtap- að. Tekinn í kennslustund Stöðumynd 1 Stöðumynd 2 Helgi Áss Grétarsson Í ANNARRI umferð Reykjavík- urskákmótsins hélt Sigurður Páll Steindórsson áfram að gera miklar rósir með því að gera jafntefli með svörtu gegn ísraelska stórmeistar- anum Sergey Erenburg. Alþjóðlegi meistarinn Jón Garðar Viðarsson vann þó stærsta sigur Íslendinganna þegar hann lagði Jaan Ehlvest að velli. Þó að Ehlvest sé afar sterkur skákmaður hefur hann haft ótrúleg tök á íslenskum skákmönnum svo það er gleðilegt að þeim tökum er að linna. Skærasta ungstirni skákheimsins, Norðmaðurinn Magnus Carlsen. Hann hefur gefið út þá yfirlýsingu að hann ætli sér að ná síðasta stór- meistaraáfanganum á mótinu. Mörg ljón verða á þeim vegi og það fyrsta var gamla kempan Jan Timman. Hvítt: Magnus Carlsen Svart: Jan Timman 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 e6 5. Rc3 a6 6. g3 Rge7 Þetta afbrigði Sikileyjarvarnar er nefnt eftir rússneska stórmeistaran- um Mark Taimanov. Hann hafði mikið dálæti á að koma kóngsvængs- riddara sínum á e7 í stað þess að setja hann á f6. Þó að það virðist svo sérkennilegt að koma honum svo fyrir á c8 þá byggist það á þeirri von að hann komist á b6-c4. 7. Rb3 d6 8. Bg2 Bd7 9. 0-0 Rc8 10. a4 Be7 11. De2 0-0 12. Be3 Ra5 13. Rxa5 Dxa5 Meistararnir hafa þrætt fræðin af mikilli kostgæfni. Nú lék Nick De- Firmian 14. Bd4 gegn Alonso Zapata árið 1985 og hafði betur. 14. Dd2!? Hótar í senn 15. Rd5 og býr til reit fyrir riddarann á e2. 14. ... Dc7 15. Re2 Bf6 16. c3 Hd8 17. f4 Hb8 18. g4 b5 19. g5 Be7 20. a5? Hvítur missir öll tök á stöðunni eftir þennan afleik. 20. axb5 axb5 21. f5 hefði verið betra. 20. ... d5! Svartur hefur nú klárlega undir- tökin þar eð eftir 21. exd5 Bc6 er það kóngur hvíts sem er í hættu en ekki sá svarti. Undrabarnið hefði engu að síður átt að tefla taflið þannig þar eð í framhaldinu verður hann peði undir án verulegs mótspils. 21. f5?! dxe4 22. f6 Bc5 23. Kh1 Bc6 24. Dc1 Bxe3 25. Dxe3 Hd3 Svartur virðist hafa öll ráð hvíts í hendi sér og ber næsti leikur hvíts þess glöggt merki. Hjónakornin hvítu eiga ekki samleið á h1 og g1 í Sikileyjarvörn! 26. Dg1?! Rd6 27. Rf4 Hf3! 28. Had1 28. Bxf3 hefði tapað eftir 28. ...exf3 29. Hf2 Re4. 28. ... Rc4 29. Dc5 Rxa5?! Í gamla daga var sagt að riddari úti á kanti líktist gömlum fanti. Þessi spakmæli hafa margt til síns máls þar sem í framhaldinu verður riddari svarts alltof óvirkur. 29. ... Hxf4 30. Hxf4 Dxf4 31. Dxc6 e3 hefði verið öflugra og ætti þá svartur að vinna fyrirhafnarlítið. 30. Rh5 Rb7 31. Da7! Þessi leppun gerir svörtum lífið leitt og skyndilega er hvítur kominn með færi fyrir peðin tvö sem hann er undir. 31. ... g6 32. Rg3 Hxf1+ 33. Rxf1 a5 34. Rg3 Hd8 35. Hxd8+ Dxd8 36. Bxe4 Bxe4+ 37. Rxe4 Dd5 38. Kg1 h6 39. Da8+ Rd8 40. Dxd5 exd5 41. Rd6 Rc6? Oft eftir að tímamörkum er náð eru keppendur í svo miklu uppnámi að mistök eru gerð í báða bóga. 41. ... hxg5 hefði verið betra og þá kæmi líklega upp svipuð staða og í skák- inni. 42. Rxb5? Grátlegur fingurbrjótur í ljósi þess að hvítur hafði barist hetjulega í töpuðu tafli svo lengi. 42. gxh6 hefði tryggt hvítum jafntefli þar sem hann hótar þá 43. Rxf7. Ef 42. ... Re5 yrði leikið þá kæmi 43. Rxb5 og hvítur bjargar sér fyrir horn. 42. ... hxg5 43. Kf2? 43. Rd6 hefði veitt meira viðnám. 43. ... Re5 44. Kg3 a4 45. Rc7 Rc4 46. Rxd5 Rxb2 47. Rb4 Kh7 48. Kf3 Kh6 49. Ke4 g4 50. Kd5 a3 51. Kd6 g5 og hvítur gafst upp. Ungur nemur gamall temur SKÁK Ráðhús Reykjavíkur XXI – REYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ Helgi Áss Grétarsson NORSKA undrabarnið Magnus Carlsen er fæddur 30. nóvember 1990 og er því 13 ára. Hann tefldi á fyrsta mótinu 8 ára að aldri, en á síðustu tveimur árum hefur hann tekið tekið risavöxnum framförum, undir handleiðslu sterk- asta skákmeistara Noregs frá upp- hafi, Simens Agdestein. Á þeim tíma hefur Magnus hækkað um nálægt 400 skákstig. Magnus varð alþjóðlegur skák- meistari í janúar 2003 og hefur náð tveimur stórmeistaraáfögnum, í C- stórmeistaraflokki í Wijk aan Zee, í janúar 2004 og Aeroflot Open í síð- asta mánuði. Magnus Carlsen er efnilegasti og umtalaðisti skákmeist- ari í heiminum í dag. Hann ætlar sér að ná stórmeistaratitlinum á yf- irstandandi Reykjavíkurskákmóti. Þrettán ára undrabarn Morgunblaðið/Ómar Brunndælur Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900 poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Mars og apríl • Fimmtudaga og mánudaga • 3, 4 eða 7 nætur Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú þangað í þúsunda tali á hverju ári með Heimsferðum. Í mars byrjar að vora enda er þetta vinsælasti tími ferðamanna til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag, frábærir veitinga- og skemmtistaðir. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 29.950 Flugsæti til Prag, 18. mars. Netbókun. Verð kr. 39.950 Flug og hótel í 4 nætur, helgarferð 18. mars. M.v. 2 í herbergi á ILF Hotel. Skattar innifaldir. Netbókun. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Helgarferð til Prag 18. mars frá kr. 29.950 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Með kveðju. Hákon, sími 898 9396, lögg. fasteignasali. 4RA HERB. ÍBÚÐ ÓSKAST Í VESTURBÆ REYKJAVÍKUR Mér hefur verið falið að leita eftir 4ra herb. íbúð í vesturbæ Rvíkur, sunnan Hring- brautar. Æskilegt að eignin sé í góðu ástandi. Verðhugmynd 14-15 millj. Áhuga- samir vinsamlega hafið samband og ég mun fúslega veita allar nánari upplýsingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.