Morgunblaðið - 10.03.2004, Page 42
ÍÞRÓTTIR
42 MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BRASILÍUMENNIRNIR Ailton,
Werder Bremen, Dede og Leandro,
Dortmund, sem hafa látið mikið að
sér kveða í þýsku 1. deildinni í
knattspynu eru í viðræðum við for-
ráðamenn í Katar.
Manfred Höhner, sem er fram-
kvæmdastjóri knattspyrnusam-
bands Katar, staðfesti að Brasilíu-
mennirnir þrír hafi fengið tilboð
um að gerast ríkisborgarar. „Ef allt
gengur eftir ættu þeir að geta leik-
ið gegn Jórdaníu hinn 31. mars í
undankeppni HM,“ segir Höhner.
„Þegar þessir leikmenn verða í
liði okkar tel ég að Katar eigi raun-
hæfa möguleika á því að komast í
úrslitakeppnina í Þýskalandi árið
2006,“ segir Höhner.
Þýskir fjölmiðlar greina frá því
að Ailton sem er framherji topp-
liðsins Werder Bremen fái um 190
millj. kr. fyrir sex ára samning við
Katar.
Alþjóðaknattspyrnusambandið
lítur málið alvarlegum augum og er
að leita leiða til þess að stöðva Kat-
ar í „leikmannakaupum“ sínum og
telur FIFA að Katar sé að brjóta
allar viðteknar venjur og hefðir
hvað varðar ríkisborgararétt.
Þjóðverjinn Stefan Effenberg
leikur í Katar líkt og Romario,
Gabriel Batistuta og Frank Leboeuf
og segir Effenberg að þessa þróun
eigi að stöðva nú þegar. „Það er
hægt að kaupa leikmenn til fé-
lagsliða en um landslið gilda allt
önnur lögmál. Þetta á ekki að vera
hægt,“ segir Effenberg.
Katar vill „kaupa“
Brasilíumenn fyrir HM
LÁRA Hrund Bjargardóttir,
sundkona úr SH, sem hefur tryggt
sér þátttökurétt á bandaríska há-
skólameistaramótinu í sundi eins og
greint frá frá í Morgunblaðinu í gær,
er einnig ein fjögurra sundmanna
sem þegar hafa unnið sér keppnis-
rétt á Ólympíuleikunum í Aþenu.
Hinir eru Jakob Jóhann Sveinsson,
Ægi, Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir,
ÍA, og Örn Arnarson, ÍRB.
LÁRA keppir í 25 metra braut á
bandaríska háskólameistaramótinu
sem er ólíkt því sem vant er á há-
skólamótum vestanhafs þar sem
yfirleitt er miðað við stikur. Mótið
fer fram í sundlauginni í College
Station í Texas 18.–20. mars og
keppir Lára í 200 m bringusundi,
auk 200 m og 400 m fjórsundi, en hún
vann sér inn keppnisrétt í bringu-
sundinu. Reglur mótsins kveða á um
að sundfólk fái keppnisrétt í fleiri
greinum, hafi það náð lágmarki í
einni grein eða í boðsundum.
BRONSLIÐ Dana frá Evrópu-
mótinu í handknattleik á dögunum
mætir Svíum í tveimur vináttuleikj-
um í lok þessa mánaðar. Fyrri leik-
urinn verður í Farum, skammt frá
Kaupmannahöfn, 29. mars en dag-
inn eftir mætast þjóðirnar í Globen-
höllinni í Stokkhólmi.
NORÐMAÐURINN Anders Auk-
land sigraði í Vasagöngunni í Sví-
þjóð en keppnin hefur farið fram sl.
80 ár. Aukland gekk 90 km, á 3:48,42
klst., en alls tóku um 15.000 þátt í
hlaupinu. Mótið er haldið til minn-
ingar um Gustav Vasa sem strauk á
gönguskíðum eftir að hafa verið
handtekinn af herliði Dana fyrir um
fimm öldum.
GENGIÐ er frá bænum Sälen til
Mora. Metið á Peter Göransson,
3:38,57 klst., sett árið 1998.
SÆNSKIR fjölmiðlar greina frá
því að árið 2006 verði Vasa-gangan
hluti af heimsbikarkeppninni og árið
2008 verði mótið HM í 90 km göngu.
SONDRE Kåfjord var um helgina
kjörinn forseti norska knattspyrnu-
sambandsins og fékk hann öll greidd
atkvæði. Kåfjord tekur við að Per
Ravn Omdal.
PABLO Aimar, leikstjórnandi
spænska knattspyrnuliðsins Val-
encia, verður frá æfingum og keppni
næstu þrjár vikurnar en hann
meiddist í leik Valencia og Deport-
ivo La Coruna um síðustu helgi.
Þetta eru vondar fréttir fyrir Val-
enciumenn enda liðið í harðri baráttu
við Real Madrid um meistaratitilinn.
EWALD Lienen var í gær ráðinn
þjálfari þýska knattspyrnuliðsins
Hannover 96 í stað Ralf Rangnick
sem sagt var upp störfum á mánu-
dag. Ewald missti starf sitt hjá
Borussia Mönchengladbach í sept-
ember en hann hefur einnig þjálfað
lið Hansa Rostock og Köln.
FÓLK
Hjá KR æfa um 70 krakkar, semer talsverð fjölgun frá í fyrra.
Aðstaðan er góð í íþróttahúsi KR en
samt þarf að skipta
hópnum upp í 9
flokka til að geta
sinnt krökkunum
betur. Morgunblaðið
brá sér í heimsókn og fylgdist með
nokkrum af þessum hópum spreyta
sig, ekki bara við keppni heldur alls
kyns borðtennisleiki enda var fjörið
mikið.
Leiðin lá næst til Víkinga. Í fyrstu
leit út fyrir að blaðamaður hefði
villst af leið því í æfingasalnum var
kökuát og kókdrykkja í hávegum
höfð en við eftirgrennslan kom í ljós
að tveir af drengjunum í félaginu
áttu afmæli. Krakkarnir gerðu sér
því glaðan dag og formaður deild-
arinnar mátti gjöra svo að borga
fyrir herlegheitin en þau voru ekki
án fórna því fyrst skyldi syngja –
síðan kökur. Krakkarnir létu sig
hafa það.
Í ljós kom að Víkingar gera sér
meira til dundurs því deildin er búin
að koma sér upp kvikmyndaklúbb,
sem fer saman í bíó og ræðir síðan
myndirnar. Þegar reynt var að fá
dæmi um kvikmyndagagnrýni
skiptist liðið í tvær fylkingar og
fannst hvorum sitthvað – skiptingin
fór að mestu eftir kyni.
Upplýsingar um borðtennisfélög-
in og æfingar ásamt fjölda mynda úr
starfinu má finna á Netinu.
Víkingar á æfingu. Í neðri röð frá vinstri Egill Karlsson, Daníel Björn Sigurbjörnsson, Jörgen Már
Ágústsson, Hannes Örn Ívarsson og Árni E. Guðmundsson. Uppi á borðinu eru Ívar Jónsson, Lúð-
vík Þór Leósson, Einar Sigurðsson, Aron Bjarnason, Haukur Stefánsson, Hákon Arnar Jónsson,
Róbert Eyþórsson, Jón Ragnar Guðnason, Rúnar Örn Birgisson og Halldór Arnþórsson.
Bergþór Frímann Sverris-
son og Róbert Eyþórsson
áttu báðir afmæli.
Skúli Gunnarsson vandaði
sig mjög mikið en hann var
yngstur af KR-guttunum
sem voru á æfingunni.
Ekki bara
borðtennis
BORÐTENNIS er vaxandi íþróttagrein en unglingastarf er nú að-
allega stundað í tveimur félögum á höfuðborgarsvæðinu, KR og
Víkingi en vísir að deild hjá Stjörnunni í Garðabæ. Deildirnar eru
öflugar og góðir þjálfarar sjá um að allir læri listina. Minna er um
unglingastarf úti á landi en þó er lífleg deild rekin á Hvolsvelli undir
nafni Dímons, í Reyholti og hjá Akri á Akureyri að ekki sé minnst á
Flateyri. Auk þess hafa fatlaðir náð langt á mótum erlendis.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Morgunblaðið/Stefán
Jóhanna Elíasdóttir, Erla Björk Ívarsdóttir og Magnea Ólafs,
sem spila í eldri flokknum, sáu um að taka til eftir drengina í
Víkingi og sjá til þess að engir afgangar færu til spillis.