Morgunblaðið - 11.03.2004, Síða 60

Morgunblaðið - 11.03.2004, Síða 60
60 FIMMTUDAGUR 11. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Lukku Láki – Dalton bræðurnir taka lestina © DARGAUD VARÚÐ! GRJÓT- HRUN Beini © Le Lombard BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Í PISTLINUM „Eru þeir að fá hann“, sem birtist í Morgunblaðinu sunnudaginn 15. febrúar síðastliðinn, kom fram að Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefði tekið neðsta svæði Grenlækjar og vatnamót hans við Skaftá á leigu til næstu 9 ára. Í þetta sinn eins og oft áður í þessum óund- irritaða pistli fer greinarhöfundur frjálslega með staðreyndir en þar segir m.a. „Hafa farið margs konar sögur af svæði þessu síðustu árin, en skráningu afla hefur verið ábóta- vant.“ Sem einn af leigutökum svæð- isins til margra ára eða allt til loka veiðitíma árið 2002 get ég ekki látið hjá líða að gera stutta athugasemd við skrif þessi enda að mér og mínum vegið að ósekju. Hvað vakir fyrir greinarhöfundi þegar hann heldur því fram að margs konar sögur hafi farið af svæði þessu er mér hulin ráðgáta. Hann er tæp- lega að skírskota til þess stutta tíma sem sæmileg veiðivon er á svæðinu eða þeirra erfiðleika og jafnvel hættu sem ókunnugum, akandi og gangandi, stafar af þeim síbreytilegu sandbleyt- um sem þar er að finna. Þá á hann trúlega ekki við þá daga sem ófært er á svæðið vegna vatnavaxta eða sand- foks né þau árlegu tímabil sem hlaup í Skaftá hamla veiði á svæðinu. Til- gangurinn með þessari órökstuddu framsetningu er væntanlega sá einn að vekja athygli á svæðinu vegna væntanlegrar sölu veiðileyfa. Fullyrðingu greinarhöfundar um að skráningu afla fram til þessa hafi verið ábótavant vísa ég alfarið til föð- urhúsanna það tímabil sem ég kom að leigukaupum þessa svæðis. Leyfi ég mér að fullyrða að óvíða hafi jafnmikil virðing verið borin fyrir lífríkinu og þeim reglum sem giltu á svæðinu. All- ir fiskar voru skráðir í veiðibók, teg- undagreindir, lengdar- og þyngdar- mældir, kyngreindir og í mörgum tilfellum tekin hreisturs- og maga- sýni. Veiðibók var afhent Veiðimála- stofnun hvert haust ásamt lífssýnum og jafnvel heilum fiskum til rann- sókna. Aflatölur af þessu svæði eru og hafa alltaf verið aðgengilegar hjá Veiðimálastofnun fyrir hvern þann sem telur sig málið varða. Það hefði verið fagmannlegra af greinarhöfundi að kynna sér og birta staðreyndir í stað þess að fara með fleipur. Sú staðreynd að þeir aðilar sem tóku svæðið á leigu síðastliðið vor til 5 ára gáfust upp áður en veiðitíma fyrsta árs lauk talar sínu máli. Vera kann að sannleikurinn sé ekki sölu- vara. Með viðeigandi virðingu fyrir pistl- inum „Eru þeir að fá hann“. HELGI BJÖRNSSON, Fiskakvísl 2, 110 Reykjavík. Athugasemdir við veiðipistil Frá Helga Björnssyni: HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ segir í fréttatilkynningu 17. febr. að neysla þunglyndislyfja haldi áfram að aukast (reyndar meira en nokkru sinni fyrr) og dagskammtarnir nálgist að svara til þess að um það bil tíundi hluti þjóðarinnar taki þessi lyf. Notk- unin hefur næstum því fimmfaldast síðan 1993 en heildarkostnaðurinn sexfaldast á sama tíma. Hann var í fyrra rúmlega 1300 milljónir króna. Hér mun aðallega vera um að ræða hin nýju SSRI-geðdeyfðarlyf sem komu fyrst á markað árið 1989. Þau eru hrein viðbót við eldri þunglynd- islyf. Þekktur erlendur sérfræðingur í þunglyndi sagði í viðtali við Morg- unblaðið (17.2.) að 2–3% fólks eigi að jafnaði við þunglyndi að stríða. Hér á landi virðast 10% þjóðarinnar nú taka þunglyndislyf. Er þunglyndi þá svona miklu algengara hér en annars stað- ar? Það liggur í augum uppi að þung- lyndislyfja á ekki að neyta nema um þunglyndi sé að ræða. En er hugsanlegt að aðrar skýring- ar finnist á þessari miklu inntöku á lyfjunum en þær að raunverulegt þunglyndi sé svona mikið? Ýmislegt bendir reyndar til að svo kunni að vera. Árni Tómas Ragnarson heim- ilislæknir skrifaði grein í Morgun- blaðið 9. febr. og hélt uppi ákafri vörn fyrir þessum lyfjum. Í greininni kem- ur fram góður skilningur á þeirri van- líðan sem margir eiga við að stríða. En líka ýmsar hæpnar bollalegging- ar. Um það fólk sem þurfi á þunglynd- islyfjum að halda skrifar Árni til dæmis: „Oft hefur það þurft að þola ýmiss konar mótlæti; sorg, sjúkdóma, hjónaskilnaði, fjármálakreppu, starfsmissi o.s. frv. Aðrir eru einfald- lega svo ofurviðkvæmir í eðli sínu að lífið sjálft verður þeim erfitt.“ Allt sem Árni telur upp nema „sjúkdóm- ar“ og kannski „ofurviðkvæmnin“ er eðlilegir fylgifiskar mannlegrar til- veru en ekki sjúkdómar. Svona áföll lagast oftast af sjálfu sér. Það þarf enga lækna til að skilja það. Vilhjálm- ur Árnason heimspekingur, sem fengið hefur viðurkenningu fyrir skrif sín um siðfræði heilbrigðisstétta, skrifar t.d. í greininni „Um heilbrigði“ í Lesbók Morgunblaðsins 26. október 1996: „Það er í verkahring heilbrigð- isstétta að vinna gegn þeim þáttum sem skaða heilsu manna, en ekki berj- ast við þau margvíslegu fyrirbrigði sem kunna að valda fólki óþægindum eða vanlíðan. Sorg fylgir til dæmis oft djúpstæð vanlíðan, en hún er fjarri því að vera sjúkleg; öðru nær: það er heilbrigðismerki að finna til við ást- vinamissi og fráleitt væri að heil- brigðisstéttir gripu inn í slíkt ferli í því skyni að stilla kvalirnar.“ Það væri sannarlega fróðlegt að fram kæmu sjónarmið annarra lækna en Árna Tómasar um þessa rúmu skýrgreiningu hans á því við hverju beri að ávísa þunglyndislyfjum. Málið snýst kannski einmitt um þetta atriði. Ef til vill er skýringin á hinni miklu aukningu á notkun þunglyndislyfja að hluta til sú að þau séu gefin í tilvikum þar sem þau eiga hreinlega ekki við í ljósi heilbrigðrar skynsemi. En kannski vilja menn sem minnst um þetta ræða. SIGURÐUR ÞÓR GUÐJÓNSSON, Skúlagötu 68, Reykjavík. Þunglyndislegir þankar Frá Sigurði Þór Guðjónssyni:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.