Morgunblaðið - 28.02.2004, Side 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur Íslandsbanka hf. árið 2004 verður haldinn í Súlnasal Radisson SAS Hótel Sögu,
mánudaginn 8. mars 2004 og hefst kl. 14:00.
Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningar félagsins fyrir árið 2003 verða hluthöfum til
sýnis í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi, Reykjavík, frá og meðmánudeginum
1. mars nk. Þessi gögn verða einnig aðgengileg á isb.is.
Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út þriðjudaginn 2. mars nk. kl. 14.00.
Framboðum skal skila til skrifstofu forstjóra Íslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík.
Atkvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað,
Súlnasal Radisson SAS Hótel Sögu, frá kl. 12:00 á fundardegi, mánudaginn 8. mars nk.
24. febrúar 2004,
bankaráð Íslandsbanka hf.
DAGSKRÁ:
Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein samþykkta félagsins.
Tillaga bankaráðs til breytinga á samþykktum félagsins:
– Að hlutafé félagsins verði lækkað úr 10.500 milljónum króna í 10.000milljónir króna
– að nafnvirði með niðurfærslu 500milljóna króna að nafnvirði. Með lækkun hlutafjár
– leitast félagið við að auka hag hluthafa sinna.
– Að framlengja hækkunarheimild bankaráðs á hlutafé til ársloka 2006.
Tillaga um sameiningu menningarsjóða Íslandsbanka og Sjóvá-Almennra.
Tillaga um heimild til bankaráðs til kaupa á hlutabréfum í Íslandsbanka hf.
Önnur mál, löglega upp borin.
1.
2.
3.
4.
5.
Aðalfundur Íslandsbankahf.
F
í
t
o
n
F
I
0
0
8
8
9
7
DAGSKRÁ:
REKSTUR Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hf. (SH) skilaði rúm-
lega 500 milljóna króna hagnaði á
árinu 2003. Er það rúmlega 19%
minni hagnaður en árið áður en þá
var hagnaður ársins ríflega 619
milljónir króna.
Vörusala SH-samstæðunnar, sem
samanstendur af móðurfélagi og
þrettán dótturfélögum víða um
heim, nam alls 58,7 milljörðum
króna á sl. ári og er það nær 8%
aukning frá fyrra ári. Aukningin er
að verulegu leyti rakin til fjárfest-
ingar í fyrirtækjum. Mest var salan í
Bandaríkjunum, 32%, en 26% söl-
unnar voru í Bretlandi, 25% á meg-
inlandi Evrópu og 15% í Asíu. Hrein-
ar rekstrartekjur samstæðunnar
námu tæpum 6,3 milljörðum króna á
sl. ári, sem er tæplega 3% aukning.
Að mestu í takt við áætlanir
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði, EBITDA, var hins vegar
nærri 11% lægri en árið áður vegna
aukins launa- og rekstrarkostnaðar.
Áhrif hlutdeildarfélaga versnuðu
um ríflega 200 milljónir króna frá
fyrra ári og voru neikvæð um 144
milljónir m.a. vegna niðurfærslu á
yfirverði eignarhluta í Scandsea og
hlutdeild í tapi þess.
Hagnaður ársins er í heild sagður
í samræmi við áætlanir utan nei-
kvæð áhrifa frá hlutdeildarfélögum.
„Afkoman er að miklu leyti í takt við
það sem gerðum okkur hugmyndir
um í ársbyrjun,“ segir Gunnar Svav-
arsson, forstjóri SH. „Innbyrðis
samsetning er hins vegar öðruvísi.
Það koma þarna til tekjur og gjöld
utan rekstrar, bæði söluhagnaður
hlutabréfa og gjaldfærsla í öðrum fé-
lögum þar sem við tökum ekki þátt í
rekstri. Þetta truflar einstaka liði en
þeir vega hver annan upp að ein-
hverju leyti.“ Gunnar segir að slíkar
færslur muni fara minnkandi og tel-
ur hann horfurnar þokkalegar í ár.
Áætlun gerir ráð fyrir að hagnaður
ársins 2004 verði svipaður eða
nokkru meiri en í fyrra.
Skammtímaskuldir
18,6 milljarðar
Í Morgunkorni Íslandsbanka í
gær segir að afkoma SH valdi von-
brigðum, hún sé talsvert lakari en
greiningardeild bankans hafi átt von
á. Helst sé það lág álagning og fram-
legð á fjórða ársfjórðungi sem valdi
vonbrigðum. „Álagning var aðeins
9,7% og hefur ekki verið lægri síð-
ustu sex ársfjórðunga og EBITDA-
framlegð var aðeins 2,4% og hefur
ekki verið lægri á ársfjórðungi um
árabil. Hér vegur þungt að afkoma
rækjufyrirtækisins Ocean to Ocean,
sem SH keypti um mitt síðasta ár,
var slök,“ segir í Morgunkorni.
Eignir samstæðunnar námu í árs-
lok 26,5 milljörðum króna og þar af
voru veltufjármunir 20,5 milljarðar.
Rúmlega 39% eignanna eru í Banda-
ríkjunum. Skuldir SH voru 21,8
milljarðar um áramót en þar af voru
skammtímaskuldir 18,6 milljarðar
og höfðu þær hækkað um 20% á
árinu.
Hvað varðar skammtímaskuldirn-
ar bendir Gunnar Svavarsson á að
veltufjárhlutfallið sé 1,11. „Skamm-
tímaskuldir í fyrirtækjunum fara
auðvitað í að fjármagna birgðir og
útistandandi skuldir ásamt skuldum
við birgja. Þetta hlutfall er því í
sjálfu sér eðlilegt. Hins vegar eru
nokkrar skuldir á móðurfélaginu
sem falla undir skammtímaskuldir
þó svo að þær hafi staðið lengi. Þar
er m.a. viss fjármögnun á eignar-
hlutum í dótturfélögum og hluti af
því er endurlánað til dótturfélaga.
En fyrir utan það sem hvílir á móð-
urfélaginu og er ekki endurlánað þá
er þetta mjög eðlileg samsetning
skammtímaskulda og veltufjármuna
enda samanstanda eignir samstæð-
unnar að stærstum hluta af birgðum
og viðskiptakröfum,“ segir Gunnar.
Hætta verðleiðréttingum
Eigið fé var tæpir 4,3 milljarðar
um áramót, eiginfjárhlutfall var 16%
og arðsemi eigin fjár var 13%.
Veltufé frá rekstri nam 1,1 millj-
arði á árinu og handbært fé til
rekstrarins var 548 milljónir. Hand-
bært fé í árslok var 816 milljónir.
Starfskjör stjórnenda SH námu
alls 32,5 milljónum króna á árinu
2003 og þar af voru 21,5 milljónir
föst laun og hlunnindi. Laun for-
stjóra samstæðunnar námu alls 27,5
milljónum, þar af voru 11 milljónir
vegna kaupréttar og afkomutengdra
launa.
Hagnaður SH 2003
hálfur milljarður króna
<
&
9
/7
7=
)=4
!"
# $
$%&
'((
')##
')!(
)
*
*
+
,
# $
(!
-
,. *
/0 ,
0 ) ))&
'$#!
)1%2
)(1%2
1!#
%1(#
)()
#
$ &
'$
%
' #"
'&
# %!%
)" $%&
!!(
&"!
)&1%2
)#1%2
1&(
%1#)
8>,/(8
>*6%?%@(8
/';
$ & $
VERÐLAUNIN Lúðurinn, íslensku
auglýsingaverðlaunin 2003, voru veitt
í gær fyrir bestu auglýsingarnar í
fyrra. Ímark stendur að verðlaunun-
um í samstarfi við Samband íslenskra
auglýsingastofa. Verðlaunin eru veitt
í tíu flokkum og sigraði auglýsinga-
stofan Gott fólk McCann í sjö þeirra,
þar af í tveimur flokkum með Sparki.
Hvíta húsið sigraði í tveimur flokkum,
þar af í einum flokki með Sparki, og
Fastland sigraði í einum flokki.
Fyrstu verðlaun í einstökum flokk-
um hlutu eftirfarandi: Gott fólk
McCann fyrir dagblaðaauglýsinguna
Það þýðir lítið að skammast í hljóði/
Krass; Gott fólk McCann fyrir tíma-
ritaauglýsinguna Það dugar lítið að
skammast í hljóði/Tyggjó; Gott fólk
McCann fyrir veggspjaldið Fyrir
Vestmannaeyinga; Fastland fyrir
umhverfisgrafíkina Nöfn á húsi;
Hvíta húsið fyrir markpóstinn Fýkur
yfir hæðir; Gott fólk McCann í opnum
flokki fyrir atvinnuauglýsingu á upp-
lýsingatöflur í framhaldsskólum,
sjoppum, vinnumiðlunum, íþróttahús-
um og víðar; Gott fólk McCann og
Spark fyrir sjónvarpsauglýsinguna
Fagnið; Gott fólk McCann fyrir út-
varpsauglýsinguna Durex kennara-
tyggjó; Gott fólk McCann og Spark
fyrir auglýsingaherferðina Enska
boltann; Hvíta húsið og Spark fyrir
almannaheillaauglýsinguna Ert þú
vinur í raun?
Gott fólk McCann
sigraði sjö sinnum
Morgunblaðið/Þorkell
Konráð Olavsson, deildarstjóri markaðsdeildar Morgunblaðsins, veitir
verðlaun fyrir bestu dagblaðaauglýsinguna. Við verðlaununum tók Kristín
Sigurðardóttir hjá samskipta- og þróunarsviði VR en Gott fólk McCann
hannaði til auglýsinguna.
VIÐSKIPTI með hlutabréf í
Pharmaco í Kauphöll Íslands voru
stöðvuð í gær frá klukkan 13.45 til
loka viðskiptadags klukkan 16.00. Í
tilkynningu frá Pharmaco eftir lok-
un markaðar var skýrt frá því að í
samræmi við þann hluta reglulegrar
starfsemi Pharmaco að meta mögu-
leika á kaupum og yfirtökum á öðr-
um félögum, séu nú á frumstigi við-
ræður við þriðja aðila um kaup á
fyrirtæki. Óvíst sé hvort viðræðun-
um muni ljúka með samkomulagi.
„Undir venjulegum kringumstæðum
og ef verð bréfanna hefði ekki
hreyfst með þeim hætti sem liggur
fyrir, hefði ekki verið ástæða til að
tilkynna um viðræðurnar á þessu
stigi,“ segir í tilkynningunni. Bréf
Pharmaco hækkuðu um 6,6% í við-
skiptum gærdagsins, en mest var
hækkun innan dagsins 10,4%. Bréf-
in hækkuðu um 8,5% frá því við upp-
haf viðskipta á miðvikudag.
Halldór Kristmannsson, forstöðu-
maður innri og ytri samskipta
Pharmaco, segir að vegna sögu-
sagna um viðræður Pharmaco við
þriðja aðila hafi verið ákveðið í sam-
ráði við Kauphöll Íslands að loka
fyrir viðskiptin og senda út tilkynn-
ingu þess efnis. Hann leggur þó
áherslu á að ekkert sé öruggt um
niðurstöður viðræðnanna og óvíst að
þær endi með samkomulagi.
Ekkert verður frekar gefið upp
um viðræðurnar eða fyrirtækið sem
um ræðir að svo stöddu, en að sögn
Halldórs munu viðskipti með bréf
Pharmaco hefjast á ný á mánudag.
Aðeins lokað af brýnni nauðsyn
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar, segir að ekki sé
lokað fyrir viðskipti með skráð
hlutabréf nema brýn nauðsyn krefji
og þá í eins skamman tíma og mögu-
legt sé. Hann segir að viðvörunar-
kerfi Kauphallarinnar hafi gefið
merki og Kauphöllinni hafi sýnst
bréfin hækka mikið án sýnilegrar
ástæðu. Haft hafi verið samband við
Pharmaco til að kanna hvort skýr-
ingar kynnu að vera á þessari hækk-
un og í framhaldi af því hafi verið
tekin ákvörðun um að loka fyrir við-
skiptin þar til birt hefði verið frétta-
tilkynning um yfirstandandi viðræð-
ur.
Spurður að því hvort Kauphöll-
inni hafi verið kunnugt um að inn-
herjaupplýsingar hafi legið að baki
viðskiptunum með Pharmaco segir
Þórður að ekki hafi legið fyrir neitt
staðfest um það. Framhald málsins
verði það að Kauphöllin muni gera
Fjármálaeftirlitinu grein fyrir við-
skiptunum sem um ræðir. Hafi ein-
hverjir innherjar nýtt sér upplýs-
ingar sem aðrir á markaði hafi ekki
haft, þá sé það Fjármálaeftirlitsins
að taka á því.
Upplýsingar um viðskipti sendar
til Fjármálaeftirlitsins
Viðskipti stöðvuð
með Pharmaco