Morgunblaðið - 03.04.2004, Side 34
DAGLEGT LÍF
34 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Glæsilegt úrval
af yfirhöfnum
Kringlunni, s. 588 1680
iðunn
tískuverslun
Kringlan 8-12, sími 568 6211 -
Skóhöllin, Firði, sími 555 4420
Glerártorgi, Akureyri, sími 461 3322
NÝTT - NÝTT - NÝTT
* Einungis til í Kringlunni
*2.990
st. 24-32
2.990
st. 24-35
2.990
st. 24-35
3.990
st. 36-41
3.990
st. 36-41
4.990
Svartir, bleikir,
gulur/grænn, hvítir
st. 36-41
*1.990
Gulir/appels.,
bleikir
st. 36-41
3.990
Appels., bleikir, svartir
st. 36-41
Skólavörðustígurinn íReykjavík er alvöru búða-gata. Þar er nóg til að skoðaí gluggum báðum megin og
forvitnilegar vörur innandyra. Osta-
búðin sómir sér vel á Skólavörðustíg
8 og hefur gert það núna í fjögur ár.
Blaðamaður smellti sér inn í þessa
„delicatessen“-búð einn góðviðris-
dag, spjallaði við gesti, kokk og af-
greiðsluna, og pantaði sér fiskisúpu.
Jóhann Helgi Jóhannesson kokk-
ur bjó sig undir hádegið með súpu-
gerð, bæði súpu dagsins og fiski-
súpu. Hann setti svo saman
gómsætar baguette og kjúk-
lingasalöt
sem margir
festa kaup á í
hádeginu til að
fara með með sér.
Einnig bruschettu
með hráskinku, mozz-
arellu og tómötum og salatdisk eftir
kenjum kokksins.
En það er einnig hægt að snæða á
staðnum og fyrstar þennan morgun
komu stallsysturnar Guðný Björns-
dóttir, Birna Ómarsdóttir og Hólm-
fríður Jónsdóttir en þær eru allar í
hárgreiðslu í Iðnskólanum í Reykja-
vík. „Við komum stundum hingað í
hádeg-
inu og pönt-
um súpu dags-
ins og brauð,“ sagði
Birna.
Arna Ævarsdóttir í af-
greiðslunni færir þeim brátt
snæðinginn og þær bragða á. „Súp-
an er rosaleg góð, og brauðið er al-
gjört æði, það er bakað hér á staðn-
um,“ segir Guðný. „Þetta eru
matarmiklar súpur, fullar af græn-
meti,“ segir Hólmfríður og að
sveppasúpan um daginn hafi verið
ótrúlega góð.
„Ég hef komið hingað fimm sinn-
um og aldrei fengið sömu súpuna,“
segir Birna.
Jóhann Helgi kokkur segir að í
Ostabúðinni sé boðið upp á létta
rétti frá klukkan 11.30 til 14.30 sem
ýmist er hægt að borða á staðnum
eða taka með sér. Hann segir að
súpa dagsins þennan dag sé sell-
erírót og fiskisúpan með rauð-
sprettu. Einnig er boðið upp á fisk
dagsins.
Arna segir að búðin sé mjög vin-
sæl og að fólk í nágrenninu og fasta-
kúnnar komi gjarnan í hana, og
einnig margir í leit að góðum kúa-,
geita- og kindaostum. „Forrétta- og
áleggsborðið okkar er mjög vinsælt
á föstu- og laugardögum,“ segir hún
og nefnir grafið ærfille, heitreykta
villigæsabringu, hráskinku, villi-
bráðarpaté, grafið hrossafille, þrjár
tegundir af salami o.fl.
Hún segir að þeir sem ætli að
halda veislu komi til að velja sér for-
rétt. Þá má nefna brauðolíu sem
hrærð er í búðinni, rjómaost og
hindberjavinegrette með kampa-
vínsediki.
Ostabúðin er m.ö.o. sælkeraversl-
un með ostaborði, forréttar- og
áleggsborði, all kyns pasta, olíum og
ediki. Einnig er veisluþjónusta starf-
rækt í henni. Það er aðeins spurning
um hugmyndaflug, hvers konar
veislu mann langar í. Hvernig osta-
bakka eða ostakörfu til að gefa eða
gleðja? Sælkerakörfurnar innihalda
t.d. sérvalda osta, íslenska og er-
lenda, ólífur, belgískt eða franskt
súkkulaði, salami, sérverkaða for-
rétti, sultur og kex eða heimabakað
brauð.
Af öðrum vörum Ostabúðarinnar
má helst nefna ítalska pastað og
pastasósur frá Rustichella, mikið úr-
val af balsamic ediki sem nær allt að
50 ára aldri, ólfíuolíur frá Ítalíu,
Spáni og Frakklandi, ekta franskt
gæsa- og andalifrar „foie gras“ og
ekta belgískt og franskt súkkulaði.
Blaðamaður var nú orðinn veru-
lega svangur, svo hann valdi sér
borð og pantaði umsvifalaust fiski-
súpu og nýbakað brauð. Arna kom
með súpuna sem ilmaði vel og brauð-
ið sömuleiðis. Máltíðin var afar
ánægjuleg og leiddi hugann að hinu
góða í veröldinni – og það var gott að
stíga að henni lokinni aftur út í sól-
ina á björtum Skólavörðustígnum.
Ostabúðin á sína fastakúnna og hún laðar
einnig að sér marga sem eru í leit að for-
réttum, góðum kúa-, geita- og kinda-
ostum, gjöfum eða bara girnilegri
súpu í hádeginu – með brauði.
TENGLAR
.................................................
www.ostabudin.is
guhe@mbl.is
Ostabúðin er í eigu Jóhanns
Jónssonar. Afgreiðslutími:
Mánudaga–föstudaga klukkan
11–18. Laugardaga klukkan
11–15. Langur laugardagur
klukkan 11–16.
Jóhann Helgi: Setur saman samlokur, lagar súp-
ur, eldar fisk og raðar í salatbox.
MATARKISTAN| Sælkerabúð á Skólavörðustíg
Arna Ævarsdóttir: Afgreiðir sælkera og aðra
gesti sem koma við í Ostabúðinni.
Ánægðar: Guðný, Birna og Hólmfríður voru
lukkulegar með súpu dagsins.
Morgunblaðið/Eggert
Fjölbreytt: Margt að velja úr gómsætu ostaborði.
ATVINNA
mbl.is
Bruschetta með mozzarella
og hráskinku. „Þessi smá-
réttur er tilvalinn sem létt-
ur hádegisverður eða síðbú-
inn morgunverður,“ segir
Jóhann Helgi kokkur.
Focaccia-brauð eða annað
þétt brauð er skorið í um 2
cm sneiðar, það er vætt í með
ólívuolíu og grillað eða steikt
á pönnu. Þá er hvítlauksrif
dregið létt yfir brauðsneið-
arnar. Mozzarella og tómatar
eru skornir í sneiðar og það
hráefni er síðan lagt til skipt-
ist ofan á brauðið, basilolíu
dreypt yfir og kryddað með
sjávarsalti og svörtum pipar.
Sneiðar af hráskinku lagðar
yfir.
Bruschetta
Salatið eftir kenjum kokksins