Morgunblaðið - 04.04.2004, Síða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 31
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til
að dveljast við frábærar aðstæður á suður-
strönd Spánar í 31 nótt á ótrúlegum
kjörum. Beint flug til Costa del Sol
þar sem þú nýtur þjónustu farar-
stjóra Heimsferða allan tímann og
getur valið um spennandi kynnis-
ferðir á meðan á dvölinni stendur.
Við bjóðum þér góð íbúðarhótel á
meðan á dvölinni stendur.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð frá kr. 29.990
Flugsæti með sköttum, netverð.
Verð kr. 59.990
M.v. 2 í íbúð, stökktutilbð, 31 nótt. Flug,
gisting, skattar. Netverð.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Síðustu sætin
Stökktu til
Costa del Sol
18. apríl - 31 nótt
frá kr. 29.990
Verð frá kr. 39.995
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, stökkt-
utilboð, 18. apríl, 31 nótt. Netverð.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
SÍÐASTLIÐIN ár hefur Leik-
félag Siglufjarðar starfað af kappi
eftir endurreisn fyrir fimm árum.
Hugurinn er mikill þrátt fyrir fólks-
fækkun, litla reynslu og lítil efni því
nú hefur leikfélagið fengið hið
reynda leikskáld Ragnar Arnalds til
þess að skrifa fyrir sig leikrit í tilefni
hundrað ára afmælis síldarvinnslu á
Siglufirði og landinu öllu þar með.
Allt annað í sýningunni er unnið af
heimamönnum sjálfum. Útkoman
sýnir mikla alúð og vinnu heimafólks
við að koma hugsun leikritsins sem
best til skila.
Leikrit Ragnars er ágætlega
smíðað. Ytri byggingin sýnir hinn
þekkta séra Bjarna Þorsteinsson
þjóðlagasafnara með meiru þar sem
hann segir tveimur börnum frá at-
burðum sem eiga að hafa gerst
nokkuð löngu fyrr eða nánar tiltekið
þann 8. júlí, 1903. Fljótlega taka at-
burðirnir að lifna á sviðinu sem iðar
af mannlífi, meira og minna allt
verkið. Í stuttu máli segir af Birni
faktori, Línu kærustu hans og Halla
vonbiðli hennar en í kringum þau
verður til grípandi atburðarás og
spenna svoaldrei verða dauðir
punktar. Björn factor er prímus
mótor og mikið undir ákvörðunum
hans komið. Helsti veikleiki verksins
er að völd hans eru sýnd sem af-
dráttarlaus og jafnvel ógnandi fyrir
fátæka alþýðuna en þegar alþýðan
tekur málin í sínar hendur verður
það ósannfærandi að ekki skuli
verða neinir eftirmálar af því. Kost-
urinn er þó sá að Björn hefur fleiri
en eina hlið og sést það best í ást
hans á Línu. Verkið er hægt að
skilja á nokkrum plönum þar sem
örlög nokkurra einstaklinga verða
skýr og áhugaverð en skyggja þó
ekki á meginþráðinn; semsé hvernig
Norðmennirnir kenna Íslendingum
síldarvinnslu og hafa með því áhrif á
gang sögunnar. Þá er átt við hina
ytri sagnfræði verksins en ekki síð-
ur sögu hinna skálduðu einstaklinga
sem verða að teljast dæmigerðir.
Leikstjórn Lindu Maríu er vel
heppnuð er haft er í huga að fjórtán
af sautján leikurum eru nýgræðing-
ar í leiklistinni og að sjálf er hún að-
eins áhugaleikstjóri með litla
reynslu. Það er meira en að segja
það að stjórna svo stórum hópi af
fólki, hvað þá með enga leikreynslu.
Linda María hefur skýra sýn á verk-
ið og kemur henni til skila. Það er
líka augljóst að hún hefur hvatt hinn
stóra hóp áfram
með sóma. Ef nefna
skal einstaka leikara
ber hæst leik ný-
græðingsins Daníels
Péturs Daníelssonar
en hann var sérstak-
lega heillandi á svið-
inu og lék hinn lífs-
glaða og kærulausa
Halla hákarl
áreynslulaust. Móð-
ur Halla lék Mar-
grét Jónsdóttir af
svipaðri lífsgleði og
krafti og var sam-
leikur þeirra Daní-
els afbragðsgóður
og skemmtilegur.
Annar eftirtektar-
verður nýgræðingur
var Árni Stefánsson sem lék farand-
salann Kobba á kómískan hátt.
Tónlistin í verkinu er samin af
Elíasi Þorvaldssyni, sem lék í hljóm-
sveitinni ásamt tveimur öðrum.
Mörg laga hans voru skemmtileg og
grípandi en dálítið gætti ósamræmis
í stílnum þar sem sum lögin voru
viðeigandi harmóníkulög en önnur
rokklög en sú tegund tónlistar pass-
aði ekki við tíma verksins. Að öðru
leyti hafði verið nostrað við tímann
með góðum árangri í leikmynd og
búningum og þess vegna stakk þessi
tónlist í stúf við hitt.
Þegar sýning Siglfirðinga er skoð-
uð í heildina er sú tilfinning sterkust
að heimamenn leggja mikla alúð við
sögulegan arf sinn og sanna það með
því hugrekki að leggja saman
heimagerða listsköpun og leikrit
sem keypt er af atvinnumanni í fag-
inu.
Þarna byrjaði það allt
LEIKLIST
Leikfélag Siglufjarðar
Höfundur: Ragnar Arnalds. Leikstjóri:
Linda María Ásgeirsdóttir. Tónlist: Elías
Þorvaldsson. Frumsýning á Kaffi Torgi,
27. mars, 2004.
SILFUR HAFSINS
Hrund Ólafsdóttir
„Í heildina er sú tilfinning sterkust að heimamenn
leggja mikla alúð við sögulegan arf sinn,“ segir
Hrund Ólafsdóttir í umsögn sinni um Silfur hafsins.
SMS
tónar og tákn