Morgunblaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 39
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 39
Nýju sumarlitirnir komnir í verslanir!
Vörurnar eru ilmefnalausar og ofnæmisprófaðar
og verðið gerist ekki betra
Útsölustaðir:
Hringbrautarapótek, Lyfjaval.
Verslanir á landsbyggðinni: Húsavíkurapótek, Sauðárkróksapótek, Nesapótek,
Borgarnesapótek, Siglufjarðarapótek, Seyðisfjarðarapótek.
PASSÍA op. 28, tónverk Hafliða
Hallgrímssonar, sem gefið var út á
geisladiski og kynnt hérlendis fyrir
síðustu jól, fór fyrir skemmstu í al-
þjóðlega dreifingu í gegnum dreif-
ingarnet útgefandans Ondine í
Finnlandi. Viðtökur hafa verið
mjög góðar og hafa m.a. birst dóm-
ar um diskinn í breskum, þýskum
og finnskum fjölmiðlum.
Ósvikin andleg sannindi
Tónskáldið og gagnrýnandinn
Calum McDonald, ritstjóri Tempos,
virts tímarits um nýja tónlist, skrif-
ar afar lofsamlega um Passíu í nýj-
asta tölublaði tónlistartímarits
Breska ríkisútvarpsins, BBC Music
Magazine, sem er mest selda tíma-
rit um klassíska tónlist í heimi.
Hann gefur bæði flytjendum og
hljóðritun fimm stjörnur og segir:
„Hafliði Hallgrímsson ratar
sannarlega alla leið að kjarna máls-
ins í Passíu. Þessi íslenski tón-
smiður, sem hefur hreiðrað um sig í
Edinborg, hefur um árabil sent frá
sér áhrifamikil verk með persónu-
legum hljómi og hugsun, samin af
mikilli vandvirkni. Fullyrða má að
Passía sé mikilvægasta framlag
hans hingað til. Á diskinum er verk-
ið flutt af tilfinningahita og einlæg-
um ákafa af listafólkinu sem tón-
listin var samin fyrir. Einkar skýr
stereóhljóðritunin skilar verkinu
frábærlega til hlustandans svo um
hann fer hreinlega sæluhrollur. Það
liggur beinast við að fullyrða að hér
sé nýtt trúarlegt meistaraverk á
ferð, útsett fyrir hljómsveit af stöð-
ugri hugkvæmni og innblæstri og
með hjálp hljómamáls sem spannar
gífurlegt stílsvið en virðist þó ætíð
eiga rætur í tign-
arlegri fullvissu
þríhljómsins. Ég
mæli hjartanlega
með þessum
diski.“
BBC fjallaði
einnig um Passíu
á öldum ljósvak-
ans. Í þættinum
CD Review lék
Benedict Warren
brot úr verkinu sem hann kallaði
„passíu okkar tíma og sagði m.a.:
„Sellókonsert Hafliða Hallgríms-
sonar sló nýverið í gegn í Skotlandi
og þetta stóra kórverk einkennist
einnig af vönduðum pensildráttum
hljómsveitarritháttarins sem draga
upp mynd sem laðar fram ýmsar
tilfinningar og hughrif en er um
leið óhlutbundin og sjálfstæð.“
Ursula Adamski-Störmer lofaði
líka hljómsveitarritháttinn í um-
fjöllun sinni í Bæverska útvarpinu:
„Það sem vekur sérstaka eftirtekt í
Passíu er óvenjuleg tilfinning Haf-
liða Hallgrímssonar fyrir línum, lit-
um og fagurri áferð og úthugsuð,
síbreytileg hljómsveitarútsetn-
ingin. Þetta er áhrifamikið, djúp-
hugult verk sem fléttar saman fjöl-
margar stíltegundir og leikaðferðir
nútímatónlistar svo úr verður
heillandi dramatísk og voldug
passía.“
Finnskir gagn-
rýnendur á einu máli
Fjölmiðlar í Finnlandi hafa gefið
Passíu mikinn gaum. Fjallað var
um geisladiskinn í finnska útvarp-
inu og í stærsta dagblaði Finn-
lands, Helsingin Sanomat, skrifaði
Jukka Isopuro: „Upphaf verksins
kallar fram mynd af opnum sjón-
deildarhring sem falleg og skýr
hljóðritunin og hreinn kirkju-
hljómburðurinn undirstrika.“
Kirkjutónlistarmaðurinn
Markku Kilpiö tekur í sama streng
í Suomen Kuvalehti, víðlesnu tíma-
riti: „Án þess að sneiða hjá tónteg-
undabundnum þáttum og þrí-
hljómum skapar hljómsveitin sýnir,
stemmningar og tónumhverfi sem
einsöngvararnir og kórinn fylla
með hnitmiðaðri útleggingu á písl-
arsögu Krists. Tónskáldið leikur á
hljómrými Hallgrímskirkju líkt og
um hljóðfæri væri að ræða eins og
glöggt má greina í upptökunni.“
Loks má geta þess að í tónlistar-
tímaritinu Rondo vekur Kare
Eskola athygli á fögrum sönglínum
Passíu og litríkum hljómsveit-
arbúningnum.
Flytjendur Passíunnar eru Mót-
ettukór og Kammersveit Hall-
grímskirkju og einsöngvararnir
Mary Nessinger og Garðar Thór
Cortes, en stjórnandi er Hörður
Áskelsson. Texti Passíu er byggður
á Passíusálmum Hallgríms Péturs-
sonar og ljóðum nokkurra íslenskra
20. aldar skálda. Verkið var pantað
af Listvinafélagi Hallgrímskirkju í
tilefni af 1000 ára afmæli kristni-
töku og frumflutt í Hallgrímskirkju
í febrúar 2001.
Hljóðritunin var gerð í mars 2002
af Stafræna hljóðupptökufélaginu
og hljóðmeistari var Sveinn Kjart-
ansson. Dreifingu disksins hér á
landi annast hljómplötuverslunin12
Tónar, Skólavörðustíg 15, ásamt fé-
laginu Credo sem hefur unnið að
útgáfu Passíu frá upphafi.
Passía eftir Hafliða Hall-
grímsson fær frábæra dóma
Hafliði
Hallgrímsson
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn