Morgunblaðið - 04.04.2004, Síða 45

Morgunblaðið - 04.04.2004, Síða 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 45 ✝ Ásgeir Jónsteins-son fæddist 21. apríl 1992. Hann lést 15. mars síðastlið- inn. Foreldrar Ásgeirs eru Snædís Stefáns- dóttir, f. 25.10. 1967, og Jónsteinn Jens- son, f. 21.11. 1959. Systkini Ásgeirs eru Þórður, f. 3.11. 1984, og Hrefna, f. 15.2. 1986. Foreldr- ar Jónsteins eru þau Jens Varnek Niku- lásson og Maríanna Sigurðar- dóttir og foreldrar Snædísar eru Stefán Jóhannesson og Kristín Þórðardóttir. Foreldrar Ásgeirs áttu lengi heima í Vestmanna- eyjum en fluttu það- an til Patreksfjarð- ar og bjuggu þar í eitt ár. Einnig bjuggu þau eitt ár í Færeyjum en fluttu þá aftur til Vest- mannaeyja þar sem Ásgeir fæddist. Um jólin 1997 fluttu þau til Reykjavíkur og settust að í Fella- hverfi í Breiðholti. Þar voru þau næstu tvö árin og fluttu þaðan til Hveragerðis. Frá haustinu 2001 hefur fjölskyldan búið í Haga við Selfoss. Útför Ásgeirs var gerð frá Sel- fosskirkju 23. mars, í kyrrþey. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Það er sárt fyrir okkur öll að kveðja ástkæran bekkjarbróður okkar, Ásgeir Jónsteinsson. Ásgeir kenndi okkur margt um vináttuna því hann var traustur og góður vin- ur. Það er einmitt vináttan sem hef- ur hjálpað okkur öllum í gegnum þessa erfiðu tíma. Síðustu daga höf- um við fundið hversu dýrmæt vin- áttan er, sú vinátta sem ríkir í bekknum og fleytir okkur áfram í gegnum sorgina og þerrar tárin. Við geymum hjá okkur margar fallegar og góðar minningar um Ásgeir. Þeg- ar við hugsum um Ásgeir sjáum við hann strax fyrir okkur brosandi og glaðan. Hann var hrókur alls fagn- aðar í leikjunum með okkur í frímín- útum. Þegar við fórum saman í fót- bolta var hann alltaf í marki, hann hafði gaman af fjörinu í frímínútun- um. Við minnumst einnig skemmti- legra stunda í leikjum með honum í sundlauginni. Mörg okkar voru með Ásgeiri í skátunum og var þar mikil gleði og gaman. Í skátunum minn- umst við skálaferðanna, m.a. ferðar- innar í Gilitrutt, þar var mikið leikið sér, sprellað og klifrað. Á einni skólaskemmtun hjá okkur var Ás- geir kynnir og ætlaði hann að sinna því hlutverki einnig nú á árshátíðinni en honum auðnaðist ekki líf til þess. Hann tók hlutverk sitt mjög alvar- lega og vildi svo sannarlega standa sig. Mánudaginn örlagaríka hafði hann beðið um textann sem hann átti að nota því hann vildi fara að æfa sig. Öll eigum við sérstakar og skemmtilegar minningar um Ásgeir og það eru þessar minningar sem koma til með að lifa með okkur áfram. Brosinu hans gleymum við aldrei. Við sendum fjölskyldu Ás- geirs innilegar samúðarkveðjur í sorginni og biðjum Guð að geyma þau. Ég veit ég öfunda vorið, sem vekur þig sérhvern dag, sem syngur þér kvæði og kveður þig með kossi hvert sólarlag. Þó get ég ei annað en glaðzt við hvern geisla, er á veg þinn skín, og óskað, að söngur, ástir og rósir, sé alla tíð saga þín. (Tómas Guðmundsson.) Kennarar og bekkjar- félagar í 6. H.H. Ásgeir Jónsteinsson hóf nám í skólanum okkar haustið 2001 og var honum strax vel tekið af bekkjar- félögum sínum. Að öllu jöfnu lét Ás- geir lítið fyrir sér fara, en þegar kom að áhugamálunum reyndist hann fjörkálfur hinn mesti og var þá oft mjög hugmyndaríkur. Ekki var komið að tómum kofunum þegar stórvirkar vélar bar á góma eins og þær sem tengdust vinnu föður hans. Ásgeir var hjálpsamur við félaga sína einkum þá sem yngri voru og fljótur að fyrirgefa öðrum ef hann var ranglæti beittur. Ásgeir sýndi miklar framfarir í námi og vann þar marga sigra með eljusemi og dugnaði. Ásgeiri fylgdi birta, glettni og kraftur og er hans nú sárt saknað. Svo yndislega æskan úr augum þínum skein. Svo saklaus var þinn svipur og sál þín björt og hrein. (Tómas Guðmundsson.) Megi algóður Guð styrkja ástvini Ásgeirs í þeirra miklu sorg. Starfsfólk Vallaskóla. ÁSGEIR JÓNSTEINSSON Okkar innilegustu þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og vinarhug við and- lát og útför konu minnar, móður okkar, tengda- móður, dóttur, systur og mágkonu, BRYNDÍSAR KRISTINSDÓTTUR, Víði, Mosfellsdal. Reynir Holm, Bjarki Hólm, Bryndís Yngvadóttir, Svava Dís Reynisdóttir, Ásdís Reynisdóttir, Kristinn Guðjónsson, Svava Brynjólfsdóttir, Ómar Kristinsson, Kristín Geirsdóttir, Hörður Kristinsson, Rut María Jóhannesdóttir, Pálmi Kristinsson, Salome Tynes, Svandís Kristinsdóttir, Sveinn Heiðar Bragason. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa- langömmu, RÓSU GUNNLAUGSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til sambýlisins í Gullsmára 11, Kópavogi, og til alls starfsfólks á deild 1 í Sunnuhlíð, fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Þorbjörg Jónsdóttir, Steinunn Vilborg Jónsdóttir, Jón Víglundsson, Gunnlaugur Jónsson, Pálmi Dagur Jónsson, Óli Jóhannes Jónsson, Rósa Jónsdóttir, Marinó Jónsson, Hrönn Leósdóttir, Jón Óli Jónsson, Guðrún K. Ásgrímsdóttir, Sturla Einarsson, Karen Olson. Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur okkar, systur, mágkonu, barnabarns og tengdadóttur, ÁSTU SYLVÍU BJÖRNSDÓTTUR, Eskihlíð 35, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Friðbirni Sigurðs- syni, lækni, læknum og starfsfólki 11E Land- spítala, líknardeild Landspítalans í Kópavogi og DI Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki fyrir einstaka umönnun og alúð. Skagfirsku söngsveitinni, starfsfólki röntgendeilda Landspítala og öllum þeim, sem glöddu hana og studdu í erfiðum veikindum, þökkum við af alhug. Guð blessi ykkur öll. Kristján Örn Jóhannesson, Oddný Finnbogadóttir, Björn Friðrik Björnsson, Emma Sigríður Björnsdóttir, Iain D. Richardson, Alma Emilía Björnsdóttir, Emma Hansen, Friðrik J. Friðriksson, Þóra Kristjánsdóttir. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, GUÐBJARGAR M. FRIÐRIKSDÓTTUR, Efstahjalla 1c, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameins- lækningadeildar 11E á Landspítala við Hring- braut, samstarfsfólks Guðbjargar og yfirmanna hjá Íslandsbanka og starfsfólks Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis. Eiríkur Þóroddsson, Ólöf Eiríksdóttir, Atli Helgason, Þóroddur Eiríksson, Linda Björk Jóhannsdóttir, Arnþór Atlason, Erik Maron Þóroddsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og tengdasonur, KARL RÓSINBERGSSON, Ránarbraut 1, Skagaströnd, sem lést á heimili sínu mánudaginn 29. mars, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðju- daginn 6. apríl kl. 13.30. Minningarathöfn fer fram í Hólaneskirkju á Skagaströnd mánudaginn 5. apríl kl. 11.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Björgunarsveitina Strönd, Skagaströnd. Steinunn Steinþórsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Hreinn Mikael Hreinsson, Steinþór Carl Karlsson, Bergljót Kvaran, Gunnar Dór Karlsson, Elfa Björk Kjartansdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Karl Aron, Ástrós Anna, Rósinberg Gíslason, María Bender og börn, Guðrún Halldórsdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi GUNNLAUGUR GUÐMUNDSSON Lyngmóa 7, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstu- daginn 2.apríl Jarðarförin verður auglýstsíðar. Fyrir hönd aðstandenda, Stefán Gunnlaugsson, Þórir Gunnlaugsson, GunnarGunnlaugsson, Eygló Óskarsdóttir, Ásta Gunnlaugsdóttir, Sigurður Hallgrímsson, Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Björn Birgisson, barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins láta. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minn- ing@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- sími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsyn- legt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Ekki er tekið við handskrifuð- um greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi að- eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í grein- unum sjálfum. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Frágangur afmælis- og minning- argreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.