Morgunblaðið - 04.04.2004, Page 50

Morgunblaðið - 04.04.2004, Page 50
SKOÐUN 50 SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÉG sé mig knúinn til að svara grein Eiríks Tómassonar, fram- kvæmdastjóra Þorbjarnar – Fiska- ness hf. vegna yfirtöku hans og systkina á félaginu en þar sakar hann mig um að vera á villigötum! Tal þitt um að þið systkinin hafið boðið okkur í samstarf um að taka fyrirtækið okkar af markaði er með ein- dæmum og veit ég satt að segja ekki hvaðan sumt af því sem þú segir kemur. Einnig að þið hafið gert mér og öðrum grein fyrir mati ykkar á stöðunni varðandi eignarhald á félaginu kannast ég ekki við, né félagar mínir. Ég skal því rekja hér ná- kvæmlega það sem fram fór þegar þið bræður rædduð við okkur Fiskanesmenn. Allt hófst þetta með sífelldum símhringingum fulltrúa Íslands- banka í okkur um 6. febrúar og símtali frá Gunnari bróður þínum, fimmtudaginn 12. febrúar þar sem hann vildi fá mig á fund samdæg- urs. Gunnar sagði mér „nú þurfum við að standa saman þar sem ein- hverjir eru að kroppa í fyrirtækið okkar“. Ég sagði honum að ekki stæði á mér í slíka samstöðu. Að- spurður hver væri að kroppa í fyr- irtækið okkar sagði Gunnar að það væri líklega ákveðið fyrirtæki sem við báðir þekktum. „Núna þurfum við að standa saman og má enginn úr Fiskanesarminum eða Þorbjarn- ararmi selja áður en ég get hitt á þig og farið yfir málin með þér,“ sagði Gunnar. Ég sagði honum að enginn úr mínum armi hefði haft áhuga á að selja nokkuð svo ég vissi. Ég komst reyndar ekki á fund með Gunnari þarna á fimmtudeg- inum 12. febrúar en strax morg- uninn eftir kl. 9:30 var ég kominn á fund til Gunnars bróð- ur þíns og þar tjáði hann mér að þessi mikla samstaða sem hann talaði svo mikið um daginn áður væri í reynd sú að þið syst- kinin ásamt föður ykk- ar væruð með áform um að taka fyrirtækið í ykkar eign og taka af markaði. Og það veit ég eftir mínum félögum að þetta er það sama og Gunnar sagði þeim félögum mínum á fundi daginn áð- ur, á fimmtudeginum. Þá sagði Gunnar mér að þið væruð í sam- starfi við Íslandsbanka um að bank- inn lánaði ykkur til kaupanna. Einnig sagði Gunnar „þú getur svo sem átt hlut þinn í nýju fyrirtæki en þar verður þú áhrifalaus og ekki verður greiddur út neinn arður því fyrirtækið verður tekið af markaði“. Svona tilboð kalla ég; að slá fyrst og spyrja svo! Þá sagði Gunnar að þetta yrði að ganga fljótt fyrir sig og gengið yrði að vera 5,67 þar sem bankinn sagði að ekki væri hægt að reka fyrirtækið ef keypt væri á hærra verði. Gunnar klykkti svo út með að, ef þetta gengi ekki eftir ætluðuð þið að draga ykkur út úr fyrirtækinu. Og svo þegar þú, Eiríkur, hringd- ir í mig erlendis, laugardaginn 14. febrúar sl. þar sem þú reyndir að telja mig á að taka boði bankans og spurðir hvort ég vildi virkilega eiga í fyrirtæki án áhrifa. Svaraði ég þér því að ég væri ekki sáttur við fram- komu ykkar bræðra í þessu máli og hvernig þið hafið reynt að leyna hverjir raunverulega standi á bak- við þessa yfirtöku á fyrirtækinu og hreinlega væruð að kúga menn til að selja. Þá bættir þú við „Willi, ef Dagbjartur verður með mundir þú þá vera með líka?“ Þá er fögur lýsing þín, í Morg- unblaðsgreininni þinni um daginn, á tilboði til okkar sem þú skiptir upp í þrjá liði, ekki hefur eitt einasta þeirra verið kynnt mér fyrr en í þessari grein þinni utan þess að leggja inn minn hlut líkt og ég kom að hér áður í samskiptum við Gunn- ar og aftur í símtali við þig. Þetta þrískipta tilboð þitt hlýtur að hafa birst þér í draumi! Það er kannski kynning Gunnars, á að þið ætlið að draga ykkur út úr fyrirtækinu gangi áform ykkar ekki eftir, sem má túlka sem einn af liðum í tilboðs þrí-leiknum ykkar, en því fylgdu ekki nánari skýringar. Hvernig dettur þér í hug að við gætum samþykkt (samdægurs) til- boð ykkar að leggja inn í fyrirtækið eignir okkar og eiga áfram í sam- starfi við ykkur systkinin þegar þið bjóðið afarkosti sem þessa og við yrðum peð í því tafli og án annarra félaga okkar. Nei, traust til ykkar var á þessum tíma þegar búið. Eftir stendur alltaf afhverju þið rædduð ekki við okkur áður áður en þið hóf- uð þennan gjörning en ekki um- ræða þín um tilboð um þátttöku þegar ljóst var að þið kærðuð ykk- ur ekki um þátttöku okkar í byrj- un? Rétt er að upplýsa að kaup bank- ans fyrir ykkur hófust með hring- ingum fulltrúa bankans mánudaginn 6. febrúar og 9. febrúar viðurkennir þessi fulltrúi bankans að kaupa fyr- ir „vinveitta fjárfesta“ en þurfti samt sérstaklega að kaupa af Fiskanesarminum. Þá tjáði fulltrúi bankans mér, föstudaginn 13. febr- úar, að þið systkinin stæðuð að yf- irtökunni á fyrirtækinu auk TM og Olís. Í kjölfarið, sama dag, hafði ég samband við forstjóra TM, sem Að lokum, Eiríkur Tómasson Eftir Willard Fiske Ólason Willard Fiske Ólason ’Ég vona að þið syst-kinin getið lifað með þessari gjörð ykkar og að Grindavík skaðist sem minnst vegna þess- arar uppákomu.‘ Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali F A S T E I G N A S A L A SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK SÍMI 533 1616 FAX 533 1617 OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14.00-17.00 AUSTURBERG 34 - SÉR INN- GANGUR - ENDAÍBÚÐ Á 1. HÆÐ Mikið endurnýjuð og rúmgóð 91 fm 3ja her- bergja endaíbúð með sérinngangi á 1. hæð í góðu fjölbýli. Fremri forstofa, hol, eldhús með nýlegri ljósri innréttingu og borðkrók, stofa með útgengi á suð-vesturverönd, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og tvö stór svefnherbergi. Aukaherbergi í geymslu. Á gólfum er nýlegt parket og flísar. Stutt er í alla þjónustu, skóla, verslanir, bókasafn, sund- laug o.fl. V. 11,9 m. 3992 ASPARFELL 2 - BJALLA 10 4ra til 5 herbergja ca 112 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. M.a. eldhús með ágætri innréttingu, borðkrókur m. útgengi á suðaustursvalir, hol, ágæt stofa og borðstofa m. útgengi á norð- austursvalir. Á svefnherbergisgangi er geymsla og þrjú góð herbergi . Nýlegt parket. Innbyggður ca 21 fm bílskúr. Skipti á minna möguleg. V. 13,9 m. 1245 MARARGATA 4 - 101- JARÐHÆÐ Vel staðsett og skemmtilega hönnuð 3ja herb. kjallaraíbúð í ágætu steinhúsi rétt við Landa- kot, samtals 80,1 fm. Mjög rúmgott eldhús með ágætri uppgerðri innréttingu og nýlegum tækjum. Stofa með parketi. Baðherbergi með nýju salerni, sturtu og flísum á gólfi og veggj- um. Tvö svefnherbergi. Sameiginlegt þvotta- hús á hæðinni. Falleg gluggasetning. Búið að skipta um skolplagnir. Áhvílandi húsbr. 7,0 millj. LAUS 1. MAÍ. V. 12,5 m. 4006 LAUFENGI 25 - GAFARVOGI - 2. HÆÐ TIL HÆGRI Góð 3ja herbergja ca 80 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi. Sérbílastæði. Íbúðin skiptist í hol með ágætum skápum, geymslu við holið, stofu með vinnukrók, eldhús með ágætri inn- réttingu og tækjum og borðkrók, tvö svefnher- bergi og baðherbergi með nýjum sturtuklefa og tengt fyrir þvottavél. Dúkar á gólfum. Góð sam- eign. V. 12,5 m. 4003 Eigendur atvinnuhúsnæðis:  Rótgróna heildsölu vantar um 1.000 fm húsnæði til kaups undir verslun/heild- sölu með lagerrými. Góð aðkoma og staðsetning skilyrði. (Björgvin)  Vantar fyrir traustan fjárfesti eign í góðri útleigu, má kosta allt að 300 millj. (Björgvin)  Vantar byggingarlóð eða byggingar- aðila með lóð, fyrir verslunar-, skrifstofu- og þjónustubyggingu, æskilegt bygging- armagn er 8.000-10.000 fm, ákjósanleg- ast í Reykjavík en aðrar staðsetningar skoðaðar. (Björgvin) Atvinnuhúsnæðisdeildin veitir þér framúrskarandi þjónustu og ráð- gjöf, hvort sem þú ert að selja eða kaupa atvinnuhúsnæði. Við erum reynslumiklir á okkar sviði og vinnum ávallt í fyllsta trúnaði. Hafðu samband. - Björgvin Ó. Óskarsson - Bjarni Hákonarson - Við erum öflugir í atvinnuhúsnæði 533 4300 564 6655 Salómon Jónsson - löggiltur fasteignasali Miðhraun Gbæ - Til leigu Í þessu vandaða og vel staðsetta stál- grindarhúsi eru samtals 1.700 fm á 2 hæðum í öllum framhluta hússins. Inn- keyrsludyr er hægt að setja í stað glugga (2,4 m). Lóð malbikuð. Rýmið leigist í heild eða smærri einingum, er tilbúið til innréttinga nú en getur skilast eftir nánara samkomulagi. Laust. Hafnarstræti Rvík - Til sölu eða leigu Frábærlega staðsett húsnæði undir ýmsan rekstur t.d. veitingahús, skemmtistað eða þjónustustarfsemi. Húsnæðið er kjallari, 2 hæðir og ris- hæð, samtals 743,3 fm. Mjög mikið endurnýjað. Hagstætt verð. Húsið skil- ast tæplega tilbúið undir tréverk. Hér er tækifæri fyrir athafnafólk. Laust. Skúlagata Rvík - Til leigu Glæsilegt skrifstofu- og þjónusturými á jarðhæð, um 300 fm, við sjóinn með glæsilegu útsýni til Esjunnar. Ál- og granítklætt hús. Gegnheilt merbau, fullkomin kerfisloft og gólflýsingar, 3 skrifstofur og 2 opin vinnurými, eldhús og salerni. Húsnæði fyrir vandláta. Laust. Bæjarlind Kóp. - Til sölu eða leigu Í þessu frábærlega staðsetta álklædda húsi er laust um 600 fm rými á 3. hæð. Lyfta í húsinu, góð aðkoma og næg bílastæði. Frágangur eftir nánara sam- komulagi. Laust nú þegar. Mjög hag- stætt verð. Laust. Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.