Morgunblaðið - 04.04.2004, Qupperneq 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 57
Viðskiptadeild:
MS nám í viðskiptafræði: fjármál, stjórnun, nýsköpunar- og
frumkvöðlafræði
MA nám í hagnýtum hagvísindum: Evrópufræði, menningar-
og menntastjórnun, hagfræði, svæðafræði, nýsköpunar- og
frumkvöðlafræði, stjórnsýsluval, umhverfis- og auðlindaval
Lögfræðideild:
ML nám í lögfræði
MS nám í viðskiptalögfræði
www.bifrost.is
Viltu styrkja
stöðu þína?
Opinn kynningarfundur
þriðjudaginn 6. apríl kl. 17.00
á Grand Hótel Reykjavík
Skipulag námsins miðast við að hægt sé að
stunda það með vinnu eða sem fullt nám.
b1
1
311 Borgarnes Sími 433 3000
Fjallað um vistkerfið á norð-
urhjara Vináttufélag Íslands og
Kanada heldur fund á morgun,
mánudaginn 5. apríl kl. 20, í Odda,
húsi Félagsvísindadeildar Háskóla
Íslands, stofu 106. Árni Finnsson
formaður Náttúruverndarsamtaka
Íslands fjallar um vistkerfið á norð-
urhjara og samvinnu um verndun
þess milli Íslands og Kanada.
Á MORGUN
Enska í rannsóknum og raunvís-
indum Endurmenntun Háskóla Ís-
lands heldur námskeiðið „Enska í
rannsóknum og raunvísindum“, dag-
ana 14.–28. apríl á mánudögum og
miðvikudögum kl. 16.15–19.15. Á
námskeiðinu er fjallað um enskt
tungutak, málvenjur og form bréfa og
skýrslna í rannsóknum og raunvís-
indum. Kynnt er hvernig gera á meg-
inmál skýrslna, farið í uppsetningu
mismunandi texta, hvernig byggja
skal rökstuðning og framsetningu.
Farið í helstu atriði málnotkunar s.s.
stíl, notkun orðaforða, tengiorð og
uppbyggingu málsgreinar o.fl.
Kennari á námskeiðinu er Erlendína
Kristjánsson, lögfræðingur og kenn-
ari í viðskipta- og lagaensku við HÍ.
Frekari upplýsingar um námskeiðið
er að finna á vef Endurmenntunar
www.endurmenntun.is.
Fyrirlestur um meðvirkni Gitte
Lassen heldur opinn fyrirlestur um
meðvirkni þriðjudaginn 6. apríl kl.
19–22 í Askalind 4, Kópavogi. Verð er
2.000 kr. og fer fyrirlesturinn fram á
ensku.
Á NÆSTUNNI
STÓRMEISTARARNIR þrír
komust allir áfram í aðra umferð á
Skákþingi Íslands. Hannes Hlífar
Stefánsson og Helgi Áss Grétarsson
unnu báðar skákir sínar, en Þröstur
Þórhallsson gerði jafntefli við Ingvar
Þór Jóhannesson í síðari skákinni
sem dugði Þresti til að komast áfram
eftir sigur í fyrri skákinni. Bragi
Þorfinnsson komst áfram á sama
hátt eftir jafntefli í síðari skákinni
gegn Ingvari Ásmundssyni. Þeir
Stefán Kristjánsson og Björn Þor-
finnsson sigruðu hins vegar and-
stæðinga sína í báðum skákunum.
Það stóð jafnt í tveimur viðureign-
um eftir einvígisskákirnar tvær.
Snorri Bergsson og Jón G. Viðarsson
annars vegar og Þorsteinn Þor-
steinsson og Sævar Bjarnason hins
vegar þurfa því að tefla styttri skákir
til að knýja fram úrslit.
Síðari skák þeirra Sigurbjörns
Björnssonar og Helga Áss Grétars-
sonar var mikil baráttuskák.
Hvítt: Sigurbjörn Björnsson
Svart: Helgi Áss Grétarsson
Spænski leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rge7 4.
0–0 a6 5. Ba4 d6 6. c3 Bd7 7. d4 g6 8.
Rbd2 –
Sigurbjörn fer ekki út í hið hefð-
bundna framhald, 8. dxe5 Rxe5 9.
Rxe5 dxe5 10. Bg5 Bg7 11. Bb3 0–0
12. Rd2 h6 13. Be3 Bb5 14. He1
o.s.frv. (Rovid-Korpics, Ungverja-
landi 1998).
8. ... Bg7 9. d5 –
Hvítur getur enn brugðið sér í 9.
dxe5.
9. ... Rb8 10. c4 [a5 11. Re1 0–0 12.
Rd3 f5 13. f3 Bxa4 14. Dxa4 Rd7 15.
c5 --
Hvítur grípur til róttækrar leiðar,
því að með rólegri leikjum lendir
hann í lakari stöðu, t.d. 15. b3 c6 16.
Kh1 Dc7 17. dxc6 bxc6 18. Bb2 Bh6
19. Bc3 Db6 20. Hae1 Be3 o.s.frv.
15. ... Rxc5 16. Rxc5 dxc5 17. Hd1
–
Ekki gengur 17. Db3 a4! 18. Dxb7?
Dd7! 19. d6 (19. Rc4 Hfb8 20. Rb6
Dd8 21. Dxa8 Hxa8 22. Rxa8 Dxa8)
19. ... Dxd6 20. Db5 Dd4+ 21. Kh1
Hfb8 22. De2 f4 23. Rc4 Hb4 24. Ra3
Hd8 og hvítur á mjög erfitt um vik.
17. ... Rc8 18. Dc4 b6 19. d6+ Kh8
20. dxc7 Dxc7 21. b3 Rd6 22. De2
fxe4 23. Rxe4 Rf5 24. Df2 Had8 25.
Bb2 Bh6 26. Hxd8 Hxd8
Auðvitað ekki 26. ... Be3? 27.
Hxf8+ Kg7 28. Dxe3 Rxe3 29. He8
og hvítur á unnið tafl.
27. He1 Bg7 28. Rg5 He8 29. f4 --
(Sjá stöðumynd 1)
29. ... e4
Einnig kemur til greina að leika
29. ... h6 30. Rf3 e4 31. Re5 Kh7 32.
Hxe4 Dd6 og svartur á betra tafl.
30. Hxe4 Hxe4 31. Rxe4 Rd4 32.
Kh1 De7 33. Rg3 De6 34. h3 h6 35.
Bxd4 Bxd4 36. De2 Dxe2 37. Rxe2
Bb2 38. a4 Kg7 39. Kg1 Kf6 40. Kf2
Ke6 41. Ke3 Kd5 42. Kd3 h5 43. f5 –
Endataflið er mjög athyglisvert
og líklega er jafntefli niðurstaðan
með bestu taflmennsku, t.d. 43. g4
hxg4 44. hxg4 Bg7 45. Rg3 Bh6 46.
g5 Bf8 47. Rf1 Kc6 48. Re3 (48. Kc4
Bd6 49. f5 gxf5 50. g6 Be5) 48. ... b5
49. axb5+ Kxb5 50. f5 Kb4 51. Kc2
gxf5 52. Rxf5 c4 o.s.frv.
Sigurbjörn tapaði fyrri skákinni
og verður að vinna þessa til að fá
aukakeppni. Það kann að hafa haft
áhrif á talfmennskuna.
43. ... gxf5 44. Rf4+ Ke5 45. Rxh5
f4 46. g4 Bd4 47. g5 f3 48. g6 Ke6
49. h4 Be5 50. Ke3 --
(Sjá stöðumynd 2)
50. ... b5!
Nú koma yfirburðir biskupsins
yfir riddarann í ljós. Svartur skapar
sér frípeð á drottningarvæng og
riddarinn kemst ekki í vörnina til að
stöðva það.
51. axb5 c4 og hvítur gafst upp.
Eftir 52. bxc4 a4 53. g7 Kf7 54. Kxf3
a3 55. Ke4 a2 56. g8B+ Kxg8 57.
Kxe5 a1D+ er taflið tapað hjá hon-
um.
Skákþing Íslands fer fram í húsi
Orkuveitu Reykjavíkur, en keppni er
nú hafin í öllum flokkum. Þetta er í
fyrsta skipti í fjölda ára sem keppnin
fer fram á sama stað og tíma. Áhorf-
endum sem leggja leið sína í hús
Orkuveitunnar gefst því einstakt
tækifæri til að fylgjast með keppni í
öllum flokkum. Taflið hefst kl. 17 á
virkum dögum, en annars kl. 13.
Ingvar og Vilhjálmur
á landsmót í skólaskák
Ingvar Ásbjörnsson og Vilhjálmur
Pálmason komust á landsmót í skóla-
skák eftir aukakeppni á skólaskák-
móti Reykjavíkur. Þeir, ásamt
Hjörvari Steini Grétarssyni, verða
því fulltrúar Reykjavíkur á lands-
mótinu í skólaskák
Stórmeistararnir
komnir áfram
SKÁK
Orkuveita Reykjavíkur
SKÁKÞING ÍSLANDS
1.–12. apríl 2004
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
dadi@vks. is
Stöðumynd 1 Stöðumynd 2
Rangt föðurnafn
Föðurnafn Páls Braga Krist-
jónssonar, forstjóra Eddu út-
gáfu, misritaðist í myndatexta
með frétt í Morgunblaðinu í
gær. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT