Morgunblaðið - 04.04.2004, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 04.04.2004, Qupperneq 60
DAGBÓK 60 SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Vædderen kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Markus kemur í dag. Þór fer í dag. Fréttir Fjölskylduhjálp Ís- lands Eskihlíð 2– 4 í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum og fatnaði, mánudaga kl. 13–17. Úthlutun mat- væla og fatnaðar, þriðjudaga kl. 14–17. Sími skrifstofu er 551 3360, netfang dal- ros@islandia.is, gsm hjá formanni 897 1016 Mannamót Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Dansleikur í kvöld kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið er opið virka daga frá kl. 9–17, alltaf heitt kaffi á könnuni. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Fótaað- gerðastofa Hrafnhild- ar, tímapantanir í síma 899 4223. Félagsstarf eldri borg- ara í Mosfellsbæ. Pútt- kennsla í Íþróttahús- inu Varmá, á sunnudögum kl. 11–12. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Á morgun 9– 16.30 vinnustofur opn- ar frá hádegi spilasalur opinn, kl. 9.30 sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, dans fellur niður s. 575 7720. Vesturgata 7. Þriðju- daginn 6. apríl kl.13.30–14.30 mun skákfélagið Hrókurinn kenna skák, kennsla fer fram alla þriðju- daga í apríl. Upplýs- ingar í síma 535 2740. Kvenfélag Seljasókn- ar. Fundur verður þriðjudaginn 6. apríl kl. 20 í Setrinu föndrað með páskaívafi, fé- lagsvist. Kvenfélagið Heimaey. Fundur mánudaginn 5. apríl að Glym í Hval- firð Farið verður með rútu frá Mjóddinni (Ís- landsbankamegin) kl.18. Tilkynna þarf þátttöku hjá stjórninni. Kvenfélag Garða- bæjar. Félagsfundur, þriðjudaginn 6, april, að Garðaholti kl. 20. Kvenfélag Seljasókn- ar, fundur þriðjudag- inn 6. apríl. Konukvöld á hárgreiðslustofunni Pílus Mosfellsbæ,mæt- ing við Seljakirkju kl.19.40, farið verður á einkabílum. Kvenfélag Laug- arnessóknar heldur af- mælisfund félagsins á morgun mánudag, kl. 20 í safnaðarheimilinu NA (Ónefndir fíklar). Neyðar- og upplýs- ingasími 661 2915. Opnir fundir kl. 21 á þriðjudögum í Héðins- húsinu og á fimmtu- dögum í KFUM&K, Austurstræti. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga á Vesturlandi: Penninn, Bókabúð Andrésar, Kirkjubraut 54, Akranesi, s. 431 1855 Dalbrún ehf, Brákarbraut 3, Borg- arnesi, s. 437 1421 Hrannarbúðin, Hrann- arstíg 5, Grundarfirði, s. 438 6725 Verslunin Heimahornið, Borg- arbraut 1, Stykk- ishólmur, s. 438 1110 Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga,Vestfjörðum: Jón Jóhann Jónsson, Hlíf II, Ísafirði, s. 456 3380 Jónína Högnadóttir, Esso- verslunin, Ísafirði, s. 456 3990 Jóhann Kára- son, Engjavegi 8, Ísa- firði, s. 456 3538 Krist- ín Karvelsdóttir, Miðstræti 14, Bolung- arvík, s. 456 7358 Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga, Norðurlandi: Blómabúðin Bæj- arblómið, Húnabraut 4, Blönduós, s. 452 4643 Blóma- og gjafabúðin, Hólavegi 22, Sauðárkróki, s. 453 5253 Blómaskúr- inn, Kirkjuvegi 14b, Ólafsfirði, s. 466 2700 Hafdís Kristjánsdóttir, Ólafsvegi 30, Ólafsfirði, s. 466 2260 Blómabúðin Ilex, Hafnarbraut 7, Dalvík, s. 466 1212 Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti 108, Ak- ureyri, 462 2685 Bóka- búðin Möppudýrið, Sunnuhlíð 12c, Ak- ureyri, s. 462 6368 Penninn Bókval, Hafn- arstræti 91–93, Ak- ureyri, s. 461 5050 Blómabúðin Akur, Kaupangi, Mýrarvegi, Akureyri, s. 462 4800 Blómabúðin Tamara, Garðarsbraut 62, Húsavík, s. 464 1565 Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, Garð- arsbraut 9, Húsavík, s. 464 1234, Skúli Jóns- son, Reykjaheiðarvegi 2, Húsavík, s. 464 1178 Skúli Þór Jónsson, Boðagerði 6, Kópa- sker, s. 465 2144 Rann- veigar H. Ólafsdóttur, Hólavegi 3, 650. Laug- um, s. 464 3181. Í dag er sunnudagur 4. apríl, 95. dagur ársins 2004, Pálmasunnu- dagur, Amróíumessa. Orð dags- ins: Þess vegna, mínir elskuðu bræður, verið staðfastir, óbif- anlegir, síauðugir í verki Drott- ins. Þér vitið að erfiði yðar er ekki árangurslaust í Drottni. (Kor. 15, 58.)     Þrátt fyrir að um 17.000börn séu nú í leik- skólum landsins gleymist þetta fyrsta skólastig oft. Þetta sést vel í þeirri um- ræðu sem nú er í sam- félaginu um skólagjöld. Þá hugsa fáir til leikskól- anna þar sem skólagjöld eru þó hæst,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylking- arinnar, á heimasíðu sinni. „Nú geta skólagjöld í leikskóla oft verið yfir 30.000 kr. á hverjum mán- uði fyrir eitt barn. Það er alveg ljóst að slík gjöld, upp á um 400.000 kr. ár- lega, eru gríðarlega þungur baggi fyrir flestar fjölskyldur. Einn mán- uður í leikskóla kostar svipað og eitt ár í háskóla. Fjölskyldur leikskóla- barna eru iðulega sá hóp- ur sem hefur hvað þrengstu fjárráðin. Hér er oftast um að ræða unga foreldra sem eru að koma sér þaki yfir höfuðið og hefja þátttöku á vinnu- markaðinum.“     Ágúst bendir jafnframtá að lækkun eða af- nám skólagjalda í leik- skólum sé jafnréttismál. „Þegar börnin eru orðin tvö, hvað þá þrjú, á leik- skólaaldri getur það í mörgum tilfellum verið hagstæðara fyrir annað foreldrið að vera heima. Vegna kynbundins launa- munar vill það oft verða móðirin. Þessi staðreynd hefur síðan aftur neikvæð áhrif á stöðu kvenna á vinnumarkaði og því myndast vítahringur. Þennan vítahring verður að rjúfa,“ segir Ágúst.     Fæðingarorlof er núsamanlagt níu mán- uðir og eftir þann tíma þurfa foreldrar að fara aftur á vinnumarkaðinn. Flestir leikskólar taka hins vegar við börnum frá tveggja ára aldri og því myndast a.m.k. 15 mán- aða tímabil sem foreldrar þurfa að brúa með ein- hverjum hætti. Á þessu tímabili leita margar fjöl- skyldur til dagforeldra. Slík þjónusta er hins veg- ar dýr og getur einn mán- uður fyrir eitt barn kostað allt að 50.000 krónur. Ný- lega stefndi í að þessi þjónusta yrði enn dýrari en nýr félagsmálaráð- herra ætlaði þá að tak- marka tekjumöguleika dagforeldra um 20% með því að fækka leyfilegum börnum hjá hverju dag- foreldri úr fimm börn í fjögur börn. Sem betur fer sá félagsmálaráðu- neytið að sér og hefur lagt þau áform á hilluna, en þó aðeins tímabundið. Tekju- skerðing dagforeldra er því enn yfirvofandi. Á meðan leikskólar eru ekki fleiri en raun ber vitni er þjónusta dagforeldra mjög nauðsynleg. Það á að sjálfsögðu að vera markmið hvers sveitarfé- lags að tryggja hverju barni vist á leikskóla frá 9 mánaða aldri kjósi for- eldrar svo. Eftirspurn eft- ir slíkri þjónustu er svo sannarlega til staðar. Það á svo að vera hlutverk al- mannavaldsins að greiða kostnað við leikskóla.“ STAKSTEINAR Hin raunverulegu skólagjöld Víkverji skrifar... Rekstraraðili veitingastaðarinsSportbitans í Egilshöll í Graf- arvogi hefur fengið leyfi til sölu létt- víns og bjórs en málið var tekið fyrir í borgarráði Reykjavíkur á þriðju- dag þar sem leyfið var samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þrem- ur. Mikil umræða átti sér stað í borgarráði og í borgarstjórn um málið. x x x Víkverji er ánægður fyrir höndrekstraraðila Sportbitans að staðurinn geti boðið gestum sínum upp á léttar veitingar í mat sem drykk. Þrátt fyrir að Egilshöll sé fyrst og fremst fjölnota íþróttamannvirki er einnig gert ráð fyrir annarri starfs- semi í húsinu, sem hefur ekkert með íþrótta- og æskulýðsstarf að gera. Það atriði sem mest var rætt um í borgarráði og í borgarstjórn var að íþróttastarfsemi og rekstur vínveit- ingastaðar ættu ekki samleið í sam- eiginlegu húsnæði. Víkverji er ekki á sama máli og telur að boð og bönn á þessu sviði séu ekki rétta aðferðin til þess að halda börnum og unglingum frá áfengisneyslu. Þeir aðilar sem fá leyfi til að selja áfengi eru fullfærir um að sjá til þess að þeir sem ekki hafa aldur til þess að drekka áfengi fái ekki afgreiðslu. x x x Það er staðreynd að Íslendingarhafa allt aðra skoðun á bjór og léttvíni í dag en fyrir um tveimur áratugum. Í raun er um vöru að ræða sem margir hverjir neyta dag- lega, í mismiklu magni þó. Bjórdrykkja og íþróttakappleikir eru órjúfanleg heild hjá mörgum. Gríðarlegur fjöldi fylgist með bein- um útsendingum frá ensku knatt- spyrnunni á öldurhúsum, án þess að vandræði skapist á viðkomandi veit- ingahúsum. x x x Á kappleikjum íslenskra liða eða álandsleikjum á Laugardalsvelli eru margir með eina og eina bjórdós í vasanum og eru á svipinn eins og dæmdir glæpamenn, enda bannvara. Öðru máli gegnir um þá sem eru í hópi útvaldra og geta notið léttra veitinga, léttvíns og bjórs, fyrir landsleiki, í leikhléi og eftir leik. Það ríkir tvískinnungsháttur hjá íþróttahreyfingunni í þessum efnum, þar sem hinn almenni áhorfandi á það á hættu að vera vísað af kapp- leikjum verði hann uppvís af bjór- drykkju á meðan leik stendur en á sama leik fær „forréttindahópur“ að teyga ölið sem sérsamböndin eða íþróttafélagið býður upp á. Víkverji telur að tími sé kominn til að taka upp sama hátt og á enskum knattspyrnuvöllum þar sem bjór er seldur þeim sem hann vilja, óháð því hvaða hóp viðkomandi tilheyrir. Morgunblaðið/Eggert Ástralía og Nýja-Sjáland með ASSE 1989 NÚ ætlum við að hittast og rifja upp skemmtilegt ár sem skiptinemar 1989. Allir félagar vinsamlegast hafið samband við Kötu í s: 866 5854, eða Ásu í s: 898 9366. Við viljum ná sambandi við ykkur öll með tölu. Paris at night Í LESENDABRÉFI, sem birtist í Morgunblaðinu fimmtudaginn 1. apríl, vill bréfritari fá skýringu á ensku heiti franska kabar- ettsins sem leikhópurinn Á senunni sýnir nú í Borgar- leikhúsinu. Það er okkur ljúft að svara bréfinu. Kabarettinn Paris at night er nefndur eftir ljóði Jacques Préverts sem finna má í ljóðasafninu Paroles, eins og önnur ljóð sem flutt eru í sýningunni. Ljóðið hefur sama titil í þýðingu Sigurðar Pálsson- ar, þ.e. Paris at night. Þeg- ar hópurinn leitaði að nafni á sýninguna komu ýmsar hugmyndir fram en þessi varð fyrir valinu, kannski vegna þess að hún er mjög í anda Prévert, ylhæðin og súrrealísk. Það er rétt sem bréfritari segir, í sýning- unni er engin enska töluð heldur einungis franska og íslenska. Leikhópurinn þakkar bréfritara hlý orð í garð hópsins og sýningar- innar og hlakkar til að sjá hann á sýningu í Borgar- leikhúsinu og vonar að hann bregði skjótt við þar sem einungis er ráðgert að Paris at night verði á fjöl- unum út apríl. Paris at night: Það er kveikt á þremur eldspýtum í nóttinni/ Þeirri fyrstu til þess að sjá allt andlit þitt/ Annarri til þess að sjá augu þín/ Þeirri síð- ustu til þess að sjá munninn á þér/ Síðan myrkrið í heild sinni til þess að muna eftir þessu öllu/ Þegar ég þrýsti þér að mér Þýð.: Sig. Pálsson. Kær leikhúskveðja, Leikhópurinn Á senunni. Tveim of mikið ÞAÐ var verið að segja að senda ætti tvo menn frá ríkissjónvarpinu til að lýsa Evróvisjón-keppninni í Tyrklandi. Vaninn hefur verið að senda einn mann og hefur jafnvel þótt nóg. Það er óþarfi að kjafta ofan í þessa útsendingu sem skýrir sig sjálf. Það er alltaf veirð að kvarta undan fjár- skorti hjá stofnuninni og finnst mér þetta óþarfa bruðl. Ef það er nauðsyn- legt þá er nóg að Gísli Mar- teinn fari, hann stóð sig ágætlega síðast. Svava. Dýrahald Hvolpur fæst gefins BRÚNN og svartur Bord- er Collie-hvolpur, 4 mán- aða, fæst gefins vegna of- næmis á heimili. Hann er blíður, rólegur og hlýðinn. Upplýsingar í síma 565 2711 eða 660 3827. Kettlingur fæst gefins SVARTUR og hvítur högni, kassavanur og vel upp alinn, fæst gefins. Upp- lýsingar í síma 699 1866. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 brotsjór, 4 persónu- töfrar, 7 kerlingu, 8 dug- legur, 9 ljósleit, 11 staf- ur, 13 sigra, 14 tileinka, 15 hljómar, 17 viðkvæmt, 20 mannsnafn, 22 baunir, 23 þreytuna, 24 ræktuð lönd, 25 heimskingi. LÓÐRÉTT 1 kynstur, 2 rándýr, 3 sleit, 4 verkfæri, 5 kurf- ur, 6 blóðsugan, 10 krók, 12 ílát, 13 of lítið, 15 söngleikur, 16 virðir, 18 mannsnafns, 19 nes, 20 vitleysa, 21 slæmt LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 karlmenni, 8 gólar, 9 iljar, 10 kal, 11 sorti, 13 lurka, 15 skömm, 16 tigin, 21 err, 22 liðni, 23 öfugt, 24 ógætilega. Lóðrétt: 2 aular, 3 lerki, 4 Egill, 5 nýjar, 6 uggs, 7 gróa, 12 tóm, 14 uxi, 15 soll, 16 örðug, 17 meitt, 18 tröll, 19 grugg, 20 nótt. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.