Morgunblaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. APRÍL 2004 67 www.laugarasbio.is Jack Black fer á kostum í geggjaðri grínmynd sem rokkar! Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.15 Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.15. (Píslarsaga Krists)  SV Mbl  Skonrokk HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. Sýnd kl. 2 og 4.30. Íslenskt tal. Páskamynd fjölskyldunnar Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA! Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust! Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 Besta frumsamda handrit www .regnboginn.is Sýnd kl. 8. HP. Kvikmyndir.com Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. (Píslarsaga Krists) Kvikmyndir.is  Skonrokk Páskamynd fjölskyldunnar „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8.30 og 10.40. Sýnd kl. 1.30, 3.40 og 5.50. Ísl. tali Sýnd kl. 10.10. Frábær gamanmynd frá leikstjóra There´s Something About Mary og Shallow Hal Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA! Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust! RÓBERT BANGSI er fluttur í Hlíðasmára 12 (sama hús og Nings) í Kópavogi. Nýir eigendur. Full búð af glæsilegum vörum eins og DIESEL, CARS jeans, Lego, Ticket to heaven, Rutzou og Bo Dean. Höfum einnig glæsilegan fatnað á unglinginn og mömmurnar :) Hlökkum til að sjá þig og þína. Ýmis opnunartilboð KANNSKI er það vegna sérstakrar uppbyggingar sögunnar sem mér hef- ur alltaf fundist Pétur Pan sundurlaus og leiðinleg saga. Kannski vegna þess að teiknimyndaútgáfan virðist sleppa að fjalla um það sem sagan er um? Allavega er það nýr og betri Pétur Pan sem birtist mér í þessari mynd. Ennþá smáruglingsleg framvinda, en ljóð- rænni og skemmtilegri. Við frænka mín sáum Pétur Pan með íslensku tali. Talsetningin er oft ansi ósann- færandi, enda áreiðanlega hrikalega erfitt að talsetja leikna mynd. En ég spurði mig hvort hefði þurft að tal- setja hana – hvort myndin sé fyrir svo unga krakka að þeir kunni ekki að lesa. Bæði eru nokkur atriði ansi óhugguleg, (reyndar finnst krökkum gaman að verða hræddir) og í þetta sinn eru það ekki ævintýrin sem eru í forgrunni, heldur fjallar sagan um það að Vanda sé ekki lengur bara stelpa, heldur að verða fullorðin. Hún á að fara í „dömuþjálfun“ til frænku sinnar og foreldrarnir reyna að um- gangast heldra fólk, allt til að Vanda geti eignast sem bestan eiginmann. Og stelpan, sem langar ekkert meira en að verða rithöfundur, flýgur því á brott með bræðrum sínum til Hvergi- lands, undir forystu Péturs Pan, hetjulegs ungs stráks – sem reyndar neitar að verða maður. Pétur er spenntur fyrir kossi frá Vöndu, og Vanda vill gjarnan kyssa Pétur, og tekst þessum ungu og óreyndu leik- urum að skapa munúðarlega spennu sín á milli sem um leið er saklaus og falleg. En Pétur vill hins vegar ekki takast á við tilfinningar sínar og því getur hann ekki orðið fullorðinn. Og við vorkennum honum öll. Nema Skellibjalla hin afbrýðisama sem er þeirri stund fegnust þegar Vanda flýgur aftur heim. Í raun er þetta hug- hreystandi saga fyrir krakka sem eru orðin það gömul að þau kvíða því að brátt sé æskan liðin og öll skemmti- legheit þar með. Leikstjóranum P.J. Hogan tekst að halda vel á öllum spöðum hér. Leik- ararnir standa sig allir hið besta, og þar fer Jason Isaacs fremstur sem of- urfeimni pabbinn og sjóræninginn ill- skeytti Krókur. Það er helst að mamman sé eitthvað frekar tilgerð- arleg, greyið. Öll leikmynd og bún- ingar eru mjög flott, og kvikmynda- taka sömuleiðis. Brellurnar voru skrýtnar, því t.d. var krókódíllinn mjög vel gerður, en önnur atriði gervilegri – og áttu að vera það. Ein- hvern veginn eins og raunsæi og alger ævintýraheimur blandist saman, og stundum fannst mér það ekki alveg virka. Einnig fannst mér flugatriðin – sem sagt aðalatriðin – ekki vera nógu vel heppnuð, og það var leitt. Pétur Pan ætti að vera hin fínasta fjölskyldumynd, hvort sem þú „fílar“ sjóræningjasverð og krókódílakjaft eða spennuna fyrir fyrsta kossinum. Einn koss – ekkert meir PÉTUR PAN / PETER PAN Smárabíó, Regnboginn og Borgarbíó Leikstjórn: P.J. Hogan. Handrit: J.P. Hog- an og Michael Goldenberg eftir skáld- sögu J.M. Barrie. Kvikmyndataka: Don- ald McAlpine. Aðalhlutverk: Jason Isaacs, Jeremy Sumpter, Rachel Hurd- Wood, Harry Newell, Freddie Popplewell, Olivia Williams og Lynn Redgrave. BNA. 113 mín. Universal Pictures 2003.  Hildur Loftsdóttir „Það er nýr og betri Pétur Pan sem birtist í þessari mynd.“ „ALLIR vildu Seven kveðið hafa“ gæti verið samnefnari leikstjóra ara- grúa raðmorðingjamynda sem siglt hafa í kjölfar þess mergjaða tíma- mótaverks. Enginn hefur komist með tærnar þar sem Fincher hefur hælana, það er ekki nóg að hugsa vel um útlitið, lýsinguna og litanotk- unina, góð saga þarf að hanga á spýt- unni svo tilþrifin virki. Líftaka er í öllu falli með betri af- brigðum Sjöunnar, byrjar reyndar fullvel með slíku afbragðs spennu- atriði að framhaldið nær aldrei því- líkum hæðum. Tveir ferðalangar kynnast með hrottalegum afleiðing- um fyrir tveimur áratugum. Síðan hefst framvindan í samtímanum. Al- ríkislöggan Illeana (Angelina Jolie), heldur norður til Montreal að ósk morðdeildar lögreglu borgarinnar. Raðmorðingi gengur laus með blóði- drifna slóð á eftir sér og setur sig síð- an í hlutverk fórnarlambanna. Rosk- in kona telur sig sjá löngu látinn son sinn og fleiri ógæfulegir atburðir spilla friðinum í hinni fögru höfuð- borg frönskumælandi Kanada. Taking Lives kemur á óvart. Vissulega verða áhorfendur að kyngja því að hin undurfagra Jolie leikur kaldrifjaða lögreglukonu sem er hvergi bangin við að bjóða hætt- unni heim. Hún getur leikið en lýta- laus fegurðin truflar – gerir það að verkum að Illeana verður aldrei nægilega sannfærandi. Konur með hennar útlit standa einfaldlega ekki í slíkum óþverrastörfum – þó þær geti verið fullfærar um það. Sögufléttan er skemmtilega margsnúin með aukakryddi sem eru Tchéky Karyo, Jean-Hugues Angl- ade og Olivier Martinez, þrír lög- reglumenn í Montreal, allir trúverð- ugir og enginn betri en Karyo sem fær örugglega upphringingu þegar skipa þarf í bragðmikil aukahlutverk næstu árin. Þegar hann er á vett- vangi fær Líftaka nauðsynlega raun- veruleikatengingu. Á hinn bóginn hefðu þeir Sutherland og Hawke mátt hafa hlutverkaskipti. Það mæð- ir mikið á litlum hæfileikum Hawkes á meðan gæðaleikarinn Sutherland er nánast upp á punt. Efni raðmorðingjamynda er erfitt viðfangs og Jon Bokenkamp á frekar góðan dag, byggir sjálfsagt á læsi- legri skáldsögu. Mestan heiður skil- inn á þó leikstjórinn Caruso, hann býður áhorfandanum upp á talsvert æsilegt ferðalag þar sem óvæntar uppákomur gera Líftöku að þéttri afþreyingu. Caruso vakti athygli með The Salton Sea og heldur stefn- unni upp á við. Morðvargur bítur á agnið LÍFTAKA / TAKING LIVES Sambíóin, Háskólabíó Leikstjórn: D. J. Caruso. Handrit: Jon Bokenkamp, byggt á sögu Michael Pye. Kvikmyndatökustjóri: Amir Mokri. Tón- list: Philip Glass. Aðalleikendur: Angel- ina Jolie, Ethan Hawke, Kiefer Suther- land , Olivier Martinez , Tchéky Karyo, Jean-Hugues Anglade, Gena Rowlands. 103 mínútur. Warner Brothers Pictures. Bandaríkin 2004.  Sæbjörn Valdimarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.