Pressan - 09.04.1992, Blaðsíða 44

Pressan - 09.04.1992, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. APRÍL 1992 Guðbjörn Gústafsson er 19 ára nemi í rafvirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík. Guðbjörn er einnig formað- ur myndbandaklúbbs skól- ans. Hann er bogmaður og á föstu. Hvað gerir myndbanda- klúbburinn? „Hann sér um að taka myndir úr félagslífi skólans og gera stuttmyndir til dæmis.“ Hvað borðarðu í morgun- mat? „Ég hef sjaldnast tíma til að borða morgunmat." Kanntu að elda? „Ég kann að elda það mikið að ég myndi lifa það af ef ég þyrfti að elda ofan í mig sjálfur.“ Hvar myndirðu helst vilja búa ef þú ættir þess ekki kost að búa á Islandi? „Ég hef aldrei komið út fyrir land- steinana og hef því ekki hug- mynd um það.“ Hvernig stelpur eru mest kynæsandi? „Ekki allt of mikið málaðar." Ertu daðrari? „Nei.“ Hvað er þér verst við? „Þegar það er mjög kalt úti og springur á bílnum mínum, þá verð ég mjög slærnur." Ef þú ynnir milljón í happdrætti hvað myndirðu gera? „Kaupa mér bíl til að byrja með.“ Hvernig bíl langar þig í? „Mig langar í bíl sem er þann- ig að hurðimar frjósa ekki fastar á veturna. Ég á Skoda og hann er svolítið slæmur að þessu leyti.“ Gætirðu hugsað þér að reykja hass? „Nei.“ Hefurðu áhuga á stjórn- málum? „Nei, ég hef engan áhuga á þeim.“ Ef ég gæft þér fyrir fegr- unaraðgerð hvað myndirðu láta laga? „Ég þyrfti að hugsa það vel og lengi, en enn sem komið er er ég þokkalega sátt- ur við mig.“ Áttu þér eitthvert mottó í lífinu? „Að passa mig á að verða ekki bensínlaus." Það er nú alveg dœmigert að þeir skuli œtla að fara að bjóða út framleiðsluna á brennivíninu einmitt núna. Það eru ekki nema fimm ár síðan þeir tóku af mér brugg- grœjurnar. Þeir hafa sjálfsagt beðið þennan tíma til að vera öruggir um að ég væri búinn að gleyma galdrinum. Og ein- mitt þá, já einmitt nú, bjóða þeir draslið út. Sjálfsagt til að kolkrabbinn geti boðið í það. Er þetta ekki dœmigert fyrir hvert ríkisstjórnin er að fara með þjóðina? Beint í fangið á kolkrabbanum. ATVINNULAUSIR VARAMENN OC HOR Við spilum þá tónlist sem okkur finnst skemmtileg. Þetta er einfalt rokk og ról en við reyn- um að sneiða framhjá öllum klisjum." — Hér mælir Bjarki Kaikumo, söngvari þeirrar stór- góðu sveitar Lipstick lovers (málvöndunarstefna PRESS- UNNAR felur í sér að við reyn- um að gefa íslenskar skýringar á öllum erlendum orðum en í þessu tilfelli ætlum við að sleppa því. Einfaldlega vegna þess að íslenska þýðingin væri eins og nafn á einhverri kynlífs-fóbíu og svoleiðis lagað á heima á öðmm stað í blaðinu), sem allt í einu hefur stokkið alsköpuð fram á sjónarsviðið. Sjálfsagt hafa margir séð myndband Lipstick lovers með laginu Ain't got no job í sjón- varpinu. Hreint ágætt lag og þeir sem hafa haldið að þar væm ein- hver erlend poppst- imi á ferð skulu hér með leiddir af villu síns vegar. Nú nú, þeir varamenn (- þetta band átti nátt- úrlega að heita Varamenn) eru fleiri en bara Bjarki. Þeir eru líka Toni gítarleikari, Heimir bassaleikari og trymbillinn Ragnar Ingi. Bjarki segir að þetta hafi allt saman verið í bígerð í ein tvö ár og þeir ætla sér stóra hluti strákamir. „- Þetta er spuming um að vera annaðhvort meðalmenn eða eitt- hvað meira," segir Bjarki og læt- ur á sér skilja að meðalmennska komi ekki til mála. Þann 10. apr- íl spila þeir í félagsmiðstöðinni Bóli í Mosfellsbæ, 14. verða þeir í Fellahelli og 15. á Blúsbamum. Og við fullyrðum að enginn verður fyrir vonbrigðum. Að síðustu lífsspeki Lipstick lovers: Það fer ekki eftir því hvernig maður borar í nefið heldur hvar maður þurrkar hor- inn! Ragnar Ingi, Bjarki, Heim- ir og Toni semja allir sína tónlist saman, og eru staðráðnir i að meika það. IN6AELÍNSÝNIRÍ LONDON „Ég var á ferðalagi í London og fór með möppu með myndum til Jakobs Magnússonar. Honum leist svo vel á að hann vildi endilega halda einkasýningu," segir Inga Elín Kristinsdóttir listakona. Inga Elín opnaði einkasýningu í Gallery Oriel í London þann 21. mars. Þar sýnir hún einkum glermyndir sem hún hefur unnið á síðustu tveimur ámm. Sýningin verður opin til 30. apríl og því kjörið fyrir alla sem em á leiðinni til London á næstu dögum að kíkja inn og skoða. Aðferðina sem Inga Elín notar við listsköpun hefur hún sjálf þróað. Eðli- lega er aðferðin leyndarmál en galdur- inn felst að minnsta kosti að einhverju leyti í mótunum sem hún býr til. Margar myndir hennar eru veggmyndir, en er þetta ekki dýrara og erfiðara en að vinna málverk á hefðbundinn hált, ef svo má segja? „Þetta er tímafrekt og mikið nostur í kringum þetta og maður er alltaf að prófa þetta og prófa hitt, en þetta er /4*“« mjög skemmti- ,á! (My' legt. Og þegar maður er að prófa og gera tilraunir þá veit maður aldrei almennilega hvað kemur úr ofnunum," svarar Inga Elín. My way, meö mínu lagi, eft- ir mínu höföi, og meö mínu nefi. ic oc KOLLEOA MINN FRANK 5INATRA Æði. Osköp pent og sakleys- islegt orð sem þó stendur fyrir mikið. Einhvers konar æði grípur Islendinga reglulega og það æði sem nú virðist vera í gangi er upprunalega frá Japan og gengur undir nafninu kara- oke. Karaoke ér maskína sem spilar alla tónlist sem nöfnum tjáir að nefha, en karaoke-vélin syngur ekki. Og það er víst það sem er svo sniðugt við þetta fyrirbæri; það syngur ekki. Því gefst fólki kostur á að spreyta sig við söng og getur fetað í fótspor helstu söng- stjama heimsins. Um nokkurt skeið hefur gestum Nilla- bars í Hafnarfirði, Ölvers, A. Hansen og sjálfsagt fleiri staða gefist kostur á að troða upp með aðstoð maskínunnar. Mik- ið vinsælt og mikið sungið. Nú hafa Tveir vinir bæst í hóp þeirra staða sem eru með karaoke og í kvöld verður tæk- ið vígt með pomp og pragt. Jónas Sigurjónsson, fram- kvæmdastjóri vinanna, segir að þeirra tæki sé hreint stórkost- legt og hljómburður allur mjög góður. Auk þess gefst þeim sem vilja tækifæri á að láta taka söng sinn upp á kassettu og það sem meira er; þeir geta líka keypt myndbandsspólu með sjálfum sér og skoðað tilburði sína um aldur og ævi. Jónas segir að áfram verði boðið upp á lifandi tónlist fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld en önnur kvöld verði karaoketækið í gangi. Syngjum með. DINHER Margrét Kristín Blöndal, söngkona Risaeðlunnar draumakvöldverðinn og laldi hún ckki mmðsynlegt að útlista nánar kosti ein- lcið afhverju hún kysi að bjóða eftirfarandi einstak- lingum: Óttar Proppé William Shatner Björn IUöndal Sigurjón Kjartansson því ég veil að Itann hefur svo gaman af svona löguðu Margrét Ragnarsdóttir Björn Jörundur Eriðbjornsson Nancy Sinatra ívar Ragnarsson Eeonard Nemoy Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson listanum byði hinum þús- undunum sem hún \ ildi svo gjarnan borða með. KLASSÍKIN • Sinfóníutónleikar.Það er Orkney- ingurinn Sir Peter Maxwell Davies, einhver nafntogaðasti tónsmiður og hljómsveitarstjóri Breta, sem ræður ferðinni þetta kvöld. Hann stjórnar flutningi á tveimur verkum sínum, Trompetkonsert og því fjörlega Brúð- kaupi á Orkneyjum (með sólarupp- PLATAN BRUCE SPRINGS- TEEN HUMAN TOUCH & LUCKY TOWN Bruce er búinn að taka tímann sinn við þessar plötur. Aðdáendur hafa elst um fimm ár og varla margir nýir bæst við! Hér eru ekki miklar breytingar og þó — rokkar- amir em einfaldari og rólegu lögin jafnvel betri. Við fyrstu hlustun leist mér ekkert á en síðan síaðist hvert lagið á eft- ir öðm inn. Fyrst rólegu lögin Cross My Heart, Pony Boy og My Beautiful Reward og síðan rokkararnir Better Days og titillögin tvö. Góðar plötur sem hefðu kannski átt að vera betri, en það er ekkert við því að gera. HT fær 7 af 10 og LT fær9 af 10. rás). Að auki verða leikin tvö af þokka- fyllstu verkum Mozarts, forleikurinn að Brúðkaupi Fígarós og Sinfónía nr. 40. Einleikari er sænski trompetistinn Hákan Hardeberger, en líka Skotinn George Macllwham. Sá kann víst að spila á sekkjapípu. Háskóiabió fim. kl. 20. • Sinfóniuhljómsveit æskunnar. Framlag Pauls Zukofsky til tónlistar- uppeldis á Islandi er löngu orðið ómet- anlegt. Og hann heldur áfram að lyfta grettistökum, svolitið utan alfaraleiðar, með unglingunum í Sinfóníuhljómsveit æskunnar. Þeir sem í henni hafa heyrt vita að þaö er hreint ótrúlegt hversu góöum árangri hljómsveitin nær í glím- unni við sum eríiðustu verk tónbók- menntanna. Hér verður leikin Sinfónía nr. 6 eftir Anton Bruckner. Háskólabíó sun. kl. 14. • Jóhannesarpassfan. I fréttatilkynn- ingu segir að búið sé að „ráðstafa" öll- um miðunum á tónleikana í Skálholts- kirkju þegar Mótettukórinn flytur Jó- hannesarpassíuna í fyrra skiptið. Það er vitaskuld bagalegt, en enn munu þó til miðar á síðari tónleikana í Hall- grímskirku. Þarf að hafa mörg orð um verkið? Þetta er guðdómleg tónlist, háleit, göfgandi og voða páskaleg. Það er alkunna hvað kórinn syngur vel. Hallgrímskirkja mán. kl. 20. MYNDLIST • Rúrí. „Listin er heimspeki. Án hug- lægs inntaks er ekki um listaverk að ræða, heldur hönnun," sagði Rúrí á málþingi um daginn. Einu sinni hafði þjóðin dálítið gaman af því að heyks- last á verkunum hennar Rúríar. Nú hneykslast varfa neinn lengur, og yfir- leitt ekki yfir einu eða neinu; en snjallar hugmyndir skipa Rúrí í fámennan flokk íslenskra heimskúnstnera. Hún sýnir á Kjarvalsstöðum verk unnin í blý og timbur, en líka grafíkmyndir. • Jóhannes Jóhannesson. Ef Jó- hannes væri íþróttamaöur væri hann kallaður „gamla kempan". Hann hefur verið lengi að, meðal annars í samfloti með Septem-listamönnunum, og lengstum haldið trúnaði við afstraktið. Jóhannes opnar sýningu í Gallerí Borg á fimmtudag; þaö telst alltaf til tíöinda þegar menn af hans kalíberi sýna. ÓKEYPIS •Menningarstofnun Bandarikjanna. Menningarstofnunin er ekki útibú frá CIA, aö minnsta kosti ekki svo vitað sé. Ýmsir munu náttúrlega ekki stíga þar inn fæti vegna stjórnmálaskoðana, en fyrir þá sem eru ekki svo stífir á meiningunni er ágætlega huggulegt að skreppa þangað inn af Laugaveg- inum og fletta amerfskum tímaritum eða bókum. Flesta daga eru líka hreyfimyndasýningar á stórum skermi; fyrst fréttamyndir og fræðsluefni frá gervihnettinum World Net, en síðan bíómyndir og þættir af myndbandi. 4 fimmtudag er það upptaka með tríói djassistans Herbie Hancock, en á föstudag Lengstur dagur, stórmynd um innrásina í Normandí á d-degi. Þar getur að líta stjömuflóð, til dæmis John Wayne, Richard Burton, Henry Fonda, Robert Mitchum og Rod Stei- ger. 1 2 3 4 1 4 7 8 9 Tö ■ " 12 ■ 13 14 ,s 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 43 44 45 1 46 47 ■ 48 ... 49 ■ 50 51 ÞUNGA GÁTAN LÁRÉTT: 1 hugaður 6 lúðu 11 kisa 12 skír 13 þverskáru 15 ger 17 deila 18 skömm 20 þjóta 21 eirir 23 leir 24 kúgað 25 kramin 27 grunaði 28 múkkinn 29 þrek 32 bor 36 bleyta 37 liðamót 39 rænu 40 rödd 41 verur 43 tíndi 44 hringla 46 náhent 48 gripu 49 karldýr 50 ásjóna 51 sigraður LÓÐRÉTT: 1 duglegum 2 segl 3 snæfok 4 grafa 5 rupla 6 glyr- na 7 svið 8 hlaup 9 magnlaus 10 hljóðaði 14 lesa 16 gleði 19 sortulyngsber 22 slíta 24 hlýjar 26 gagnleg 27 ofn 29 masa 30 dans 31 vandræði 33 kuldi 34 stétt 35 grindin 37 datt 38 hryðjunni 41 bjálki 42 skelin 45 tunga 47 grip

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.