Pressan - 09.04.1992, Blaðsíða 32

Pressan - 09.04.1992, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. APRÍL 1992 E R L E N T S L Ú Ð U R Eldhúsið er hjóðargersemi Jack Lang, menningar- og menntamálaráðherra í Frakklandi, vill láta vernda franskt eldhús eins og þjóðarger- semi. I því skyni hefur hann sett á stofn eins konar þjóðarráð matargerðarlistarinnar. Því til aðstoðar eru einir sex hundruð matreiðslu- menn og sérfræðingar og er þeim ætlað að safna saman kórréttum uppskriftum að rétt- um sem þykja dæmigerðir fyrir tuttugu og tvö héruð Frakklands. Aætlað er að þetta mikla starf taki ein sex ár en að því loknu stendur til að gefa niðurstöðumar út á bók. Lang segir afar áríðandi að þessi mikilvægi þáttur franskrar menningar glatist ekki, en alþjóðlegar skyndibita- keðjur á borð við McDonald’s og Burger King hafa verið í mikilli framsókn í Frakklandi undanfarin ár. Músík fyrir tóndaufa Nýtt æði í næturlífinu á Bretlandi. Og það er að breiðast út um heiminn. Loftgítarleikur. Þátttakendurnir spila villt gítarsóló, en þurfa engan gítar og ekki að kunna á hljóðfærið heldur. Tónlistin er leikin af bandi, ástundendur komast upp með að vera enn ómúsíkalskari en í karaoke. Aðalmálið er að gretta sig, stappa niður fót- unum, skaka sér og hreyfa finguma einhvers staðar í grennd við naflann. I þessari „list“ em haldnar keppnir á Bretlandi, og þegar síð- ast fréttist líka í Þýskalandi. En Islendingar em náttúrlega löngu búnir að eignast sinn loftgítarsnilling; hann heitir Johnny Triumph, öðm nafni Sjón. Stuttpilsin að hverfa Em stuttpilsin að hverfa aftur, að minnsta kosti um sinn? Svo virð- ist vera ef marka má vetrartískuna 1992-’93, sem hefur verið kynnt í París og Mílanó. Boðskapurinn er: Stutt og þröng pils em alveg úti. í staðinn koma síð pils sem ná niður að eða jafnvel niður fyrir hné. Tískukaupmenn hafa þó áhyggjur af því að þessi síðu pils séu of þröng og þarafleiðandi sé óþægilegt að klæðast þeim. Þetta hafi til dæmis einkennt fatnaðinn ffá Chanel, Lager- feld, Montana og Ungaro. Þetta hefur þó ekki hindrað eigendur tískubúða í að taka við sér og er sagt að þeir veðji á síðu pilsin fyrir næsta vetur, reyndar buxur lfka, en einna síst stuttpils. Nú verða náttúrlega einhvetjir til að sjá eftir stuttu tískunni og líklega þá helst karlmenn sem stunda það að horfa á eftir stelpum. Þeir geta kannski huggað sig við það að nýju síðu pilsin em mörg hver með klauf sem nær langleiðina upp að mjöðm. Sýningarstjóri Stalíns Alexander Ganschin er líklega frægasti bíósýningarmaður allra tíma. Hann lifir í hárri elli í Moskvu, 83 ára gamall, en er ennþá trúr meistara sínum, Jósef Stalín. I átján ár starfaði Ganschin við að sýna kvikmyndir í einkabíói einræðisherrans, aðallega söngleiki og glæpamyndir. Að launum fékk hann konfekt úr súkkulaðiverksmiðj- unni „Rauða október", auk þess sem hann gat talið sig heyra til innsta hrings í Kreml. Nú hefur rússneski leikstjórinn Andrei Kontchalovskí gert kvikmynd sem bygg- ir á ævi Ganschins og þykir skýra vel viðhorf Rússa til Stalíns. Sjálfur situr sýningarstjórinn við sinn keip. Hann hefur ímugust á Gorbatsjof sem eyðilagði fyrir honum Sovétríkin. Aðeins einu sinni á ævinni gerðist hann óhlýðinn borg- ari: Þegar hann, eftir að Stalín var dauður, stal Trúr meistara risastóm olíumálverki af herra sínum og meistara sínum úr Kreml. Tvítyngdur hrœsnari Ef Jerry Brown er svarið, þá hlýtur spumingin að vera meira en lítið furðuleg. Til dæmis: Viljum við fá forseta sem talar tungum tveim—og lýgur með báðum í einu? Brown þykist berjast gegn ,Jcerfinu“ í Washington, spilltu fjármála- valdi og sérhagsmunum. I samræmi við þessa ímynd neitar hann að taka við hærri kosningaframlögum en hundrað dölum. Þetta er sá sami Jerry Brown og fyrir tveimur ámm bar vitni fyrir dómstóli í Kalifomíu gegn þúsund dala hámarki á framlög. Eiðsvarinn sagði hann að lægri ffamlög „dragi ekki úr spillingu", heldur þvert á móti „ýti undir spillingu“. Tak- mörk á framlögum „gera kerfið óheiðarlegra, kraftminna og lokaðra". Brown hefur ráðist á Bill Clinton fyrir að beina viðskiptum Arkansas- fylkis til lögmannsstofu eiginkonu sinnar. Hann vísaði í grein í The Washington Post þar sem ekkert stóð í þessa vem. Þar sagði einfaldlega að Hillary Clinton væri meðeigandi að lögmannsstofu sem hefði átt við- skipti við fylkið eins og aðra stóra aðila, en hún hefði neitað að taka við tekjum sem fengust af þeim viðskiptum. Brown hlýtur að hafa verið fyr- ir framan spegil. Það var hans eigin lögmannssstofa sem heimtaði tvö hundmð þúsund dali frá skattgreiðendum í Kalifomíu fyrir að vinna gegn tillögum um þak á fjárffamlög til frambjóðenda. Brown hefur sagt eitt satt í kosningabaráttunni: „Það er verið að svíkja Bandaríkjamenn og ljúga að þeim.“ Já og það er Jerry Brown sem er að því. Bill Clinton tti/i ÍCtwi' jýzttó. C/^>A»r AíCty*. lýí, cM&a- Wl> ilX%. WiJM. CK Piyfan/ Axm Atu? JTma/ ' ' —L-s* Hillary Rodham: Betri hliðin Hún verður ráðherra í haust — ef kallinn nær kjöri. Þegar Hillary Rodham var fjórtán ára langaði hana til að verða geimfari. Hún skrifaði bréf til bandarísku geimferðastofnun- arinnar, NASA, og spurði hvem- ig maður færi að því. Þeir svör- uðu með því að benda á að það stæði ekki til að gera stelpur að geimfömm. Hún varð alveg óð. Nú þrjátíu árum síðar á hún enn við ekki ósvipaðan vanda að etja. Hún er bráðskörp og frama- gjöm kona í samfélagi sem er ekki alveg búið að sætta sig við svoleiðis fólk. Hún heitir núna Hillary Clinton og er eiginkona forsetaframbjóðandans Bills. Að öllu jöfnu er hún manni sínum mjög til framdráttar, en gengi hennar rís og sígur í hverri viku eftir átakapunktum og hvemig hún bregst við þeim. Þegar ásakanir um framhjá- hald Bills Clinton vom hvað há- værastar mættu þau hjón í sjón- varpsþáttinn „60 Minutes" og brostu ffaman í þjóðina. Og Hill- ary sagðist ekki vera sú týpa sem léti bjóða sér hvað sem væri; hún væri sumsé ekki eins og konan í laginu makalausa „Stand By Yo- ur Man,“ en það samdi Tammy Wynette þegar eiginmaður hennar var búinn að lemja hana stofuhomanna á milli í nokkur ár. Þetta mátti ekki. Ekki einasta urðu aðdáendur kántrítónlistar móðgaðir, heldur náttúrlega konumar sem vissu ekki að það væri neitt að því að sýna æðru- leysi og umburðarlyndi. Og Hill- ary missti eitt prik. Nýkynslóð kvenna Seinna urðu til sagnir um að lögmannsstofa hennar hefði not- ið þess að Clinton var fylkisstjóri í Arkansas og fólk, sem átti í við- skiptum við fylkið, hefði leitað til hennar vegna þess hverjum hún var gift. Hún harðneitaði þessu ásökunum, en bætti við þegar hún var orðin leið á spum- ingunum: „Eg hefði náttúrlega getað verið heima, bakað kökur og haldið kaffiboð, en þess í stað ákvað ég að vinna fyrir mér.“ Ekki gott. I landi þar sem langflestar konur em heimavinn- andi með böm og bú er ekki skynsamlegt að gera lítið úr þeim starfa. Reyndar bætti Hill- ary við nokkrum skynsemdar- setningum um stöðu kvenna í bandarísku samfélagi, en þær heyrðust ekki í hávaðanum yfir fyrstu ummælunum. I þessu sem öðm er Hillary fulltrúi kynslóða- skipta sem eru að ganga yfir bandarískt þjóðfélag. Það verður enn skýrara jregar hún er borin saman við konu hins ffambjóð- andans, Barböm Bush. í ráðherrastól í haust Þau Hillary og Bill hittust í Yale-háskóla þar sem bæði lögðu stund á lögfræði. Hún vann um tíma fyrir þingnefnd sem bjó sig undir að kæra Ri- chard Nixon fyrir embættisbrot, en fór svo í sveitina til Arkansas með manni sínum, sem ætlaði sér alltaf að verða pólitíkus. Hann varð fyrst dómsmálaráð- herra í fylkinu 1976 og svo fýlk- isstjóri 1978, þá þrjátíu og tveggja ára. Hann tapaði kosn- ingunum 1980 (það er stutt kjör- tímabilið í Arkansas) og stuðn- ingsmenn hans vom á því að ein af ástæðunum væri að Hillary hafði neitað að taka upp eftimaffi hans. Eftir nokkrar fortölur féllst hún á það og viti menn, hann náði aftur kjöri 1982 og hefur verið fylkisstjóri síðan. Hillary hefur verið afkasta- mikil sem lögfræðingur og hefur beitt sér ekki síst í málefnum bama og menntamálum. Hún nýtur virðingar sem fræðimaður og situr í stjóm Children’s De- fense Fund, sem er kröftugasta bandaríska stofnunin sem berst fyrir málefnum bama. í Arkans- as gerði Bill Clinton hana að for- manni nefndar sem endurskipu- lagði skólakerfið í fylkinu. Allt þetta — og náttúrlega sú staðreynd að hún er engu síður vinsæl en eiginmaður hennar — gerir hana sjálfsagðan kandídat í ráðherrastöðu ef maður hennar nær kjöri í haust. Clinton hefur gert sér mat úr þessu. „Ef þið viljið fá hana, þá verðið þið að kjósa mig,“ segir hann. Það yrði þá fyrsta fjölskylduráðningin í Hvíta húsinu síðan John F. Kennedy gerði bróður sinn Ro- bert að dómsmálaráðherra 1961. Eitt gæti komið í veg fyrir það. Hillary Clinton hefur nú fjórföld laun bónda síns, en ef hún yrði ráðherra þyrfti hún að sætta sig við launalækkun og þá tilhugsun að hafa lægri laun en hann í fyrsta sinn á ævinni. Karl Th. Birgisson Clinton og Elvis Við sögðum frá því fyrir skömmu að forsetaframbjóðendur væru að finna sér lög til að einkenna baráttu sína. Bill Clinton notaði til skamms tíma „Don’t Stop“, en Fleetwood Mac bönnuðu notkun á laginu. Nú er að fæðast nýtt þema í herbúðum Clintons. Lag Pauls Simon, „Graceland,“ er sigurstrangleg- ast, en Clinton hefur dálæti á Elvis og þykir ná honum með ólíkindum vel. I sjónvarpsviðtali í New York fyrir nokkmm dögum lét hann undan þrýst- ingi og tók „Don’t Be Cmel“ við mik- inn fögnuð og tileinkaði það náttúrlega fjölmiðlum í borginni, sem hafa farið ómjúkum höndurn um hann. Bill Clinton: Don’t Be Cruel

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.