Pressan - 09.04.1992, Blaðsíða 47

Pressan - 09.04.1992, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. APRIL 1992 47 l\^[örgum hefur sjálfsagt komið á óvart að Guðmundur Magnússon sjálfstæðismaður, sem í eina úð var að- stoðarmaður Birgis ísleifs Gunnarssonar menntamálaráðherra, skyldi vera settur þjóðminjavörður til tveggja ára, á meðan Þór Magnússon fer í frí til að vinna að sögu silfursmíði á íslandi. Eflaust telja margir sig ftnna pólitíska lykt af þessari ákvörðun Ólafs G. Einarssonar menntamáiaráðherra, og kann það svo- sem vel að vera. Hins vegar mun Þjóð- minjaráð, sem er eins konar yfirstjóm safnsins, vera nokkuð ánægt. Telur ráð- ið sig sjá í Guðmundi dugandi mann og varla spilli heldur hversu greiðan að- gang hann hafi inn í völundarhús stjómmálanna. Og þótt Guðmundur sé ekki fomleifafræðingur, þá hafi hann alltént ágætt próf í^sagnfræði. Fyrir ekki löngu var Lilja Árnadóttir skipuð safnstjóri á Þjóðminjasafni — munu ýmsir vona að með þessum manna- breytingum fari að ljúka stöðnunar- tímabili sem lengi hefur verið á safn- inu... F JL yrir bæjarþingi ReykjavQcur hefúr nú verið höfðað mál af verktakafyrir- tækinu Gleipni á hendur Fitjum hf., sem reyndu að koma upp meðferðar- heimili með sama nafni á Kjalamesi. Fitjar gáfú íjúm 1988 út níu skuldabréf til handa Gleipni upp á samtals liðlega 9 milljónir króna, en allt fór úr böndun- um hjá Fitjum og meðal annars var eignin, sem veðsetning var fyrir vegna bréfanna, slegin á uppboði f október sl„ án þess að Gleipnir fengi krónu. Öll níu bréfin hafa verið í vanskilum, en á bak við veðsetninguna lá fyrir sjálfskuldar- ábyrgð Brynjólfs Haukssonar, Skúla Thoroddsen og Bjarna Steingríms- sonar. í stefnunni kemur hins vegar fram að Brynjólfúr sé nú með óþekkt heimilisfang, en þeir Skúli og Bjami skráðir til heimilis í Svíþjóð. Þeim er, ásamt Bergi Guðnasyni lögfræðingi, stjómarformanni Fitja, nú stefnl til greiðslu skuldarinnar... 111 -L Aópur ungra listamanna og áhugafólks um Iistir hefur tekið sig saman og ætlar að freista þess að stofna nýja listaháúð í Reykjavík. Hún verður ekki sett á laggimar til höfuðs þeirri listahátíð sem hefur verið haldin í meira en tuttugu ár, heldur er ætlunin að þama fái líka að njóta sín listafólk úr ýmsum greinum, sem kannski er ekki vant að baðá sig í frægð eða kastbjörm- um fjölmiðla. Þetta verður semsagt eins konar ,jaðarhátíð“, eins og það er kall- að í útlöndum. Allir kváðu vera vel- komnir að taka þátt, en undirbúnings- fúndur verður haldinn í Djúpinu í Hafn- arstræti á sunnudaginn klukkan fimm. Og ef allt fer vel standa vonir til að há- tíðin verði haldin í ágúst... TD -M.X.annsóknarlögreglan hefur enn ekkj lokið rannsókn á atviki því í Mos- fellsbæ er tveir lögregluþjónar voru ásakaðir um harðræði. Lítið hefur kom- ið fram sem styður ásakanimar á hend- ur lögreglumönnunum og bendir flest til þess að þær eigi við lítil rök að styðj- ast. Lögreglumennimir munu alvarlega vera að íhuga meiðyrðamál — ef þeir verða sýknaðir af ásökununum — á hendur mönnunum tveimur sem ásak- animar bera fram. Meðal annars þykir sýnt að höfuðáverkar þeir er annar mannanna hlaut séu ekki tilkomnir vegna barsmíða, heldur rak maðurinn sig upp undir er hann skreið undir bíl- inn er þeir vom á... F -1. yrirtækið Sæplast á Akureyri er vel rekið fyrirtæki sem skilar hagnaði, 33,7 milljónum á síðasta ári. Það er nokkuð athyglisvert við þessa niður- stöðu að hagnaður fyrirtækisins reynd- ist meiri eftir greiðslu skatta en fyrir greiðslu þeirra og munaði þar 1,6 millj- ónum króna. Skýringin á þessu liggur í sameiningunni við Plasteinangrun, þar sem uppsafnað tap var keypt. Sæplast gat um leið lagt peninga inn á „skatta- legan varasjóð" fyrirtækisins, en í þeim sjóði em nú 107 milljónir króna. Félag- ið hefúr ekki greitt tekjuskatt frá því það var stofnað, enda ávallt næg inn- stæða í varasjóðnum. Aðalfundur var haldinn nýlega og tók það aðeins 50 mínútur að halda fundinn... j}3í«'-!íi4WWf'iS ;.í*Mií.sVfr(5' íVijí | |P§$ mi&á ■R lÉfÍsff 'mmÍ mm gfetitÉþ 8ÉÉ! .P'i'AÍl) mmmá •M'KÍ’s jöiSÉp %éjm WKm AUGLÝSENDUR OG LESENDUR ATHUGIÐ! Næsta tölublað PRES- SUNNAR kemur út miðvikudaginn 15. apríl. Fyrsta tölublað eftir páska kemur út fimmtudag 23. apríl. Páskasteikin í ár Lærissteik: léttreykt eöa krydduð Hólsfjallahangikjöt Sölustaöir á höfuöborgarsvæöinu: Fjarðarkaup, Hafnarfirði Júllabúð, Álfheimum Plúsmarkaðurinn Straumnes Breiðholtskjör, Amarbakka Plúsmarkaðurinn Grímsbær Hagabúðin, Hjarðarhaga Léttu þér störfin 6 manno ELFA-DELCA uppþvotfavélin kostar aöeins 33.155,- stgr. _ Tekur borðbúnað fyrir 6 - þurrkar, skammtar sjálf þvottaefni. 7 kerfi. Getur staðið á borði, má einnig byggja inn í skáp. íslenskar leiðbeiningar. Greiðslukjör. Einar Farestveit&Co.hf. Borgartúni 28, simar: (91) 622900 og 622901 - Næg bílastæði

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.