Pressan - 30.04.1992, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. APRÍL 1992
F R E M S T
ÞRÁINN BERTELSSON. SIGURÐUR PÁLSSON. Þessir eru
nefndir sem hugsanlegir arftakar Einars Kárasonar í formennsku
Rithöfundafélagsins.
FORMANNSSLAGUR
HJÁ RITHÖFUNDUM
Það er víðar von á formanns-
slag en í Alþýðuflokknum. Ein-
ar Kárason gefur ekki kost á sér
áfram sem formaður Rithöf-
undasambandsins og því verður
kosið um næsta formann á aðal-
fundi félagsins sem haldinn
verður í maí. Tveir menn hafa
verið orðaðir við formannsemb-
ættið. Annar er Sigurður Páls-
son, skáld, leikritahöfundur og
kvikmyndagerðarmaður, en
hann var formaður á undan Ein-
ari. Hinn er Þráinn Bertelsson,
rithöfundur og kvikmyndagerð-
armaður.
Þessir tveir menn em ekki alls
óvanir því að kljást. Þeir voru
hvor í sinni blokkinni í deilu inn-
an Félags kvikmyndaleikstjóra
en sú deila endaði með því að
Þráinn varð undir og stofnaði
nýtt félag ásamt Agústi Guð-
mundssyni, Lárusi Ými Ósk-
arssyni og fleirum. Sigurður
Pálsson varð hins vegar eftir
ásamt fleiri kvikmyndagerðar-
mönnum sem kallaðir voru
Hrafns-menn; þ.e.a.s. menn
Hrafns Gunnlaugssonar. Það
er því aldrei að vita nema rithöf-
undar fái smjörþefmn af þessari
deilu kvikmyndagerðarmanna.
NEFNDARSLAGUR
í ÞINGINU
Stjómarandstaðan hefur nú
hafnað Evrópunefnd ríkisstjóm-
arinnar, hvort sem það kemur í
veg fyrir að henni verði komið á
laggimar eða ekki. Þingmenn
andstöðunanr em þó ekki alveg
samstiga í þessari andstöðu
sinni. Þannig hefur Hjörleifur
Guttormsson sagst fylgjandi
slíkri nefnd í þingræðu en Hjör-
leifúr væri líklegur kandídat Al-
þýðubandalagsins í nefndina.
Ólafur Ragnar Grímsson, full-
trúi flokksins í utanríkismála-
nefnd, er hins vegar alfarið á
móti því að önnur nefnd en utan-
ríkismálanefhdin fjalli um mál-
ið.
Sama er upp á teningnum hjá
Framsókn. Halldór Asgríms-
son sagðist einnig fylgjandi
slíkri neíríd, enda er hann líkleg-
asti fulltrúi Framsóknar í hana.
Harðasti andstæðingur nefndar-
innar er síðan Steingrímur Her-
mannsson, sem á einmitt sæti í
utanríkismálanefnd. Og hjá
Kvennalistanum mun Kristín
Einarsdóttir hafa verið volg
gagnvart Evrópunefnd og jafn-
framt líklegur kandídat. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, full-
trúi flokksins í utanríkismála-
nefnd, er hins vegar alfarið á
móti Evrópunefhd.
Og hjá Sjálfstæðisflokknum
er Eyjólfur Konráð Jónsson
andsnúinn Evrópunefnd, enda
fulltrúi flokksins í utanríkis-
málanefnd. Sjálfstæðisflokkur-
inn á annan mann í utanríkis-
málanefnd; Björn Bjarnason.
Öfugt við aðra nefndarmenn
hefur hann ekki lýst frati á Evr-
ópunefndina, enda líklegt for-
mannsefni í hana.
Engum sögum fer af afstöðu
krata, enda er Jón Baldvin
Hannibalsson sá eini þeirra sem
hefur opinbera skoðun á Evr-
ópumálunum.
TANNLÆKNAR FÁ
5,3 PRÓSENTA
LAUNAHÆKKUN
Á sama tíma og Alþýðusam-
bandið og vinnuveitendur og
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja og ríkið vom að ganga frá
samningum sem fela í sér 1,7
prósenta launahækkun gengu
tannlæknar frá samningi sínum
við Tryggingastofnun ríkisins.
Samkvæmt honum hækkar
grunngjald þeirra í 408 krónur
og 16 aura eða um 5,3 prósent
frá gildandi samningi. Þótt ein-
NAFNSKIRTEINA
KRAFIST VIÐ
INNGANGINN!
Þessa dagana
liggja framhalds-
skólanemendur yf-
ir bókum og glós-
um því próf vor-
annar eru í al-
gleymingi. Eins og
gerist og gengur er
unga fólkið misvel
undirbúið og fer
prófskrekkurinn
því illa í suma.
Nemandi á
þriðja ári í
Menntaskólanum
við Hamrahlíð fór
heldur illa að ráði
sínu þegar hann
tók þá afdrifaríku
ákvörðun að biðja
vin sinn úr Versl-
unarskóla Islands
að þreyta fyrir sig
Menntskælingar þreyta próf eftir að hafa framvísaö persónuskilríkjum.
próf í þýsku, enda verslingurinn að öllum líkind-
um sleipari í greininni. Upp komst um ráða-
bruggið í byrjun prófs með þeim afleiðingum að
Steingrímur Þórðarson, áfangastjóri í MH, til-
kynnti að að gefnu tilefhi bæri nemendum héðan
í ffá að hafa með sér persónuskilríki með mynd í
próf.
Brot af þessu tagi er, eins og gefur að skilja,
mjög illa séð af skólayfirvöldum og hefur MH-
nemandinn verið gerður brottrækur úr skóla.
„Við höfum gert okkar nemanda grein fyrir
hugsanlegri refsingu, það er brottrekstri, en end-
anleg ákvörðun hefur ekki verið tekin enn,“
sagði Þon’arður Elíasson, skólastjóri VÍ.
hver kunni að halda að þessar
rúmu 400 krónur séu tímakaupið
hjá tannlænum þá er svo ekki.
Það em laun þeirra fyrir hveijar
tíu mínútur. Ef tannlæknir vinn-
ur klukkutímann allan hefur
hann því 2.449 krónur í tíma-
kaup og er þá ekki reiknað með
greiðlsum upp í ýmsan kostnað.
Hrein launahækkun á klukku-
tfma er því um 123 krónur.
Hrein launahækkun opinbers
starfsmanns með 60 þúsund
krónur á mánuði er hins vegar
1.020 krónur á mánuði sam-
kvæmt miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara. Það jafngildir
kauphækkun tannlæknanna á
átta klukkutímum. Samkvæmt
þessu virðist mun auðveldara að
ná fram kjarabótum hjá Sighvati
Björgvinssyni heilbrigðisráð-
herra en kollega hans; Friðriki
Sophussyni fjármálaráðherra.
KRISTINN VILL EKKI
Það hefur gengið eftir sem
PRESSAN sagði fyrir nokkmm
mánuðum að Einar Oddur
Kristjánsson, formaður Vinnu-
veitendasambandsins, ætlar ekki
að bjóða sig fram til endurkjörs.
Félagar hans í sambandinu em
þegar famir að biðla til hans um
að sitja áfram en jafnframt em
þeir að leita að hugsanlegum arf-
tökum. Sá sem sterklegast hefur
verið orðaður við starfið er
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs. Til hans hefur verið
leitað en hann hefur hafhað slíkri
málaleitan. Varaformaður vin-
nuveitenda, Gunnar Birgisson,
hefur ekki möguleika á stöðunni.
Hins vegar mun Víglundur
Þorsteinsson, fyrrum formaður
iðnrekenda, minnt menn
hógværlega á að hann sé enn til
alls vís.
BARNAVERNDAR-
FRÉTTIRÚTÍ LOFTIÐ
Sem kunnugt er kærði bama-
vemdarráð ffétt Bylgjunnar af
því þegar bamavemdamefnd og
lögregla tóku með valdi dreng
frá móður sinni í Sandgerði til
siðanefndar Blaðamannafélags-
ins. Haukur Hólm fréttamaður
lýsti atburðunum í beinni út-
sendingu í fréttatíma útvarps-
stöðvarinnar. Þegar til átti að
taka fannst hins vegar ekkert af-
rit af fréttinni hjá Bylgjunni.
Samkvæmt lögum er útvarps-
stöðvum skylt að taka upp allt
efni sitt og varðveita það. I þessu
tilfelli mun affitunarspólan hafa
verið búin áður en hin umdeilda
frétt fór í loftið. Einu heimildim-
ar um fréttina eru því minni
þeirra sem á hlýddu. Óvíst er
hvaða áhrif þetta hefur á kæm
Haraldar Johannessen og ann-
arra í bamavemdarráði.
STEINGRÍMUR HERMANNSSON. Situr í utanríkismálanefnd og er á móti Evrópunefnd. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON. Hugsanlegur
kandídat í Evrópunefnd og erfylgjandi henni. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON. Situr í utanríkismálanefnd og erá móti Evrópunefnd.
HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON. Hugsanlegur kandídat í Evrópunefnd og er fylgjandi henni. VÍGLUNDUR ÞORSTEINSSON. Hefur
látið í Ijós áhuga á formennsku hjá vinnuveitendum. SIGHVATUR BJÖRGVINSSON. Tannlæknar fengu 5,3 prósenta hækkun.
Hvernig er það Halli, fá
fangarnir forkaupsrétt?
„Er ekki sjálfsagt að skoða alla
möguleika á þessum tímum
einkavœðingar? “
Fangelsismálanefnd hefur lagt lil
að athugaðir veröi möguleikar á
einkavæðingu fangelsisstofnana.
Viö einkavæðingu ríkisfyrirtækja
hefur veriö viðtekin venja að starfs-
menn njóti forkaupsréttar að
hluiabréfum í þeim. Haratdur
Johannessen er forstööumaður
Fangelsismálastofnunar rikisins.
LÍTILRÆÐI
af markaðsfegurð
Samkvæmt ævafomri skil-
greiningu skiptast konur í tvo
hópa: fallegar konur og ljótar
konur.
Konur hafa löngum verið
verðlagðar eftir því hvom hóp-
inn þær fýlla, en til þess að hægt
sé að markaðssetja konur af ein-
hveiju viti er kerfisbundið efnt
til „fegurðars am keppna“ um all-
ar trissur og síðan er æðsti dóm-
ur endanlega felldur þegar feg-
urðardrottning íslands er kjörin
við hátíðlega athöfh.
Og nú er slík „fegurðarsam-
keppni" einmitt nýafstaðin.
Fögmm konum hefur löngum
verið það keppikefli að kvenleg
fegurð sé borin á torg, enda von-
laust að markaðssetja kvenfólk
sem ekki hefur verið til sýnis.
Ljótar konur em hins vegar á
móti fegurðarsamkeppnum af
markaðsfræðilegum orsökum.
í andófi sínu gegn fegurðar-
samkeppnum bera ófh'ðar konur
og illa vaxnar það helst fyrir sig
að slíkar sýningar séu niður-
lægjandi fyrir veikara kynið,
dagdraumafóður handa ógeðs-
legum og náttúmlausum karl-
rembusvínum, stúlkur séu hafð-
ar einsog gripir til sýnis líkast
búfénaði eða ambáttum í Bar-
baríinu og að uppákoman öll sé
vanvirða við hugsandi fólk,
jafhvel þó það sé kvenfólk.
Þær segja að með fegurðar-
samkeppnum séu einmitt konur
sjálfar að viðhalda gamalli og
ógeðfelldri kvenímynd, semsagt
FLOSI ÓLAFSSON
þeirri að notagildi kvenna fari
eftir útlitinu.
Við þessu öllu er hægt að
beita gamalli og sfgildri rök-
semd:
— Það verður þá bara að hafa
það.
Auðvitað er jafnan þungt í
ófiíðum konum þegar efht er til
fegurðarsamkeppna.
Á þessum tímum jafnaðar og
drenglyndis rennur ljótum kon-
um til rilja hið miskunnarlausa
misrétti sem þær eru beittar með
því að fá ekki að taka þátt í feg-
urðarsamkeppnum og væri að
sjálfsögðu ekki annað en sjálf-
sagt réttlætismál að árlega væri
efnt til fegurðarsamkeppni
óftíðra kvenna.
Mér finnst það jafnan hafa
verið tekið sem gefið, að sú auð-
mýking, sem kvenskepnan þarf
að búa við með fegurðarsam-
keppnum, sé alfarið körlum að
kenna, en satt að segja held ég
nú að konur séu einfaldlega
potturinn og pannan í þessu öllu
saman.
Hinsvegar er ljóst að án fag-
urra kvenna væri líf hins hugs-
andi manns bæði litlaust og fá-
nýtt, einkum utan heimilisins.
Óneitanlega þarf margur
maðurinn að búa við ófríðleik
heima fyrir og er það mörgum
góðum dreng þungbærara en
tárum taki, einsog gamla spak-
mælið ber með sér:
æÍÍæ
Ljót kona er löstur á manni
enfögur kona fengur í
ranni.
Með þessi fomu sannindi að
leiðarljósi ætti hver maður að
velja sér konu til eignar.
Því fríðari sem konan er,
þeim mun heppilegri móðir,
kona og meyja hlýtur hún að
verða.
Þessu lýsir skáldið svo undur-
vel í þriðja erindi hins hugljúfa
ljóðabálks „Móðirin":
Móðir barni blíðuhót
bar nú við að sýna.
Af því hún var ekki Ijót
var allt t þessufína.