Pressan - 30.04.1992, Page 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 23. APRÍL 1992
9
Þrír fjárglæframenn eru nýsloppnir úr gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikilla ljársvikamála. Þrír lögmenn
voru meðal þeirra sem rannsóknarlögreglan kallaði til yfirheyrslu vegna rannsóknarinnar.
Þrír menn eru nýsloppnir úr
gæsluvarðhaldi eftir að hafa ver-
ið þar á aðra viku. Rannsóknar-
lögregla ríkisins fékk þá setta
inn vegna meintra fjársvika.
Mennirnir eru: Jón Ellert
Tryggvason, Orn Karlsson og
Jón Magnússon. Allt bendir til
að þeir tengist umfangsmiklum
fjársvikum. Allir hafa þeir átt
þátt í yfirgripsmiklum viðskipt-
um þar sem blandast saman
fasteignakaup, bflaviðskipti og
víxla- og skuldabréfaútgáfttr.
Rannsóknarlögregla ríkisins
verst allra frétta af málinu.
Vegna þessa máls hafa fjöl-
margir aðilar verið kallaðir til
yfirheyrslu, meðal annars þrír
lögmenn sem tengjast málinu.
Þeir eru: Olafur Thoroddsen,
Skúli Sigurðsson og Haraldur
Böðvarsson.
Sem dæmi um umfang rann-
sóknarinnar má nefna, að einn
heimildarmanna PRESSUNNAR
sagðist telja að bílaviðskipti
þeirra félaga nái til um 100 bfla.
FLÖGUBERGIÐ UPPHAF
RANNSÓKNARINNAR
Eins og áður hefur komið
fram í PRESSUNNI þá voru
viðskipti í kringum fyrirtækið
Flöguberg hf. kærð til RLR.
Stjóm þess var skipuð þeim Jóni
Ellert, Jóhanni Valgarði Olafs-
syni og Tryggva Jónssyni.
Flögubcrg var pappírsfyrirtæki
sem notað var markvisst til út-
gáfu á verðlausum skuldabréf-
um. Þegar fyrirtækið var úr-
skurðað gjaldþrota á árinu 1991
vora skuldir þess 10 milljónir en
eignir engar. Sömu menn áttu
tvö önnur fyrirtæki sem fóru í
eignarlaus gjaldþrot á svipuðum
tíma, T.K. Vilhjálmsson, en
kröfur í það vora 17 milljónir,
og Sv. Jónsson en þar vora kröf-
ur 4 milljónir. Samtals voru
þetta kröfur upp á 30 milljónir
en eignir vora engar.
í þessum fyrirtækjum var
leikinn sá leikur að fá gömul
fyrirtæki með litla eða enga
starfsemi og buna út skuldabréf-
um með ábyrgðum þeirra. Slík-
ar pappírsmyllur era orðnar al-
gengar og þessir menn hafa átt
þátt í mörgum slíkum. Með því
að ná í gömul hlutafélög sem
ekki hafa verið í rekstri fæst það
sem kallað er hrein kennitala,
það er að félagið er hreint á van-
skilaskrám og því talið góður
pappír.
SKULDABRÉFAÚTGÁFA
ÚT Á RÁNARGÖTUNA
Viðskiptin með gistiheimilið
á Ránargötu 10 eru einmitt
dæmigerð íyrir þetta, en þau era
hluti þeirrar umfangsmiklu
rannsóknar sem nú er í gangi.
Naustaborg var eigandi Ránar-
götu 10.
Um mitt síðasta ár keypti Jón
Magnússon gamalt fjölskyldu-
fyrirtæki, Plastvörur hf., sem
hafði ekki verið í rekstri nokkuð
lengi og því kjörið verkfæri til
ffekari skuldabréfaútgáfu.
Stjórn Plastvara er skipuð
þeim Agúst Fylkissyni stjómar-
formanni, Erni Karlssyni og
Jóni Magnússyni. Naustaborg er
í eigu Ólafs Thoroddsen og fól-
ust kaupin að mestu í yfirtöku
skulda. Fljótlega var farið að
gefa út mikið af skuldabréfum
og víxlum í nafhi Plastvara og
með veði í Ránargötunni. Vora
Plastvörar gjaman greiðandi og
Naustaborg útgefandi og öfugt.
Þessi bréf vora nánast verðlaus
en þau vora samt mikið notuð í
bflaviðskiptum.
FENGU MATIÐ HÆKKAÐ
OG GÁFU ÚT NÝ SKULDA-
BRÉF
Naustaborg keypti stórhýsið
að Grensásvegi 14 af Sláturfé-
lagi Suðurlands. Þá hófst nýr
kafli í þessar skipulögðu starf-
semi. Jón Magnússon og Ólafur
Thoroddsen stjórnuðu þá
Naustaborg og Jón átti Plastvör-
ur hf. Mikil skuldabréfaviðskipti
Ránargata 10. Þetta hús var notað
til útgáfu „verðlausra" skulda-
bréfa.
voru milli þessara fyrirtækja,
eins og áður sagði.
Snemma eftir kaupin á
Grensásvegi 14 tókst þeim með
einhverjum hætti að fá nýtt og
hærra mat á eigninni. Við svo
búið voru gefnar út runur af
skuldabréfum sem öll voru
tryggð með veðum í Grensás-
veginum. Samkvæmt heimild-
um PRESSUNNAR nam útgáfan
á Grensásveginn alls um 20
milljónum króna þannig að ljóst
er að þeir sem að henni stóðu
hafa hagnast verulega á þessu.
Viðmælendur PRESSUNNAR
vora allir á einu máli um það að
aldrei hefði staðið til að greiða
eina einustu krónu af þessum
nýju skuldabréfum.
Einhverra hluta vegna sáu
Jón, Ólafur og félagar sér hag í
að skipta um nafn á fyrirtækinu
Naustaborg. Því var gefið nafn-
ið Grensásvegur 14 hf. og þrátt
fýrir nafnbreytinguna hélt fyrir-
tækið sinni gömlu og „góðu“
kennitölu. Fyrir ókunnuga var
því hér um að ræða gamalt og
traust fyrirtæki.
Fyrir voru miklar skuldir
áhvflandi á eigninni. Telja verð-
ur vonlaust að þeir sem nú eiga
nýju bréfin fái þau nokkum tíma
greidd. Þegar Sláturfélagið seldi
húsið á sínum tíma hvfldu mikil
lán á því, þar á meðal erlent lán.
VÍSIR AÐ SKIPULAGÐRI
GLÆPAST ARFSEMI
“Viðskipti með svona pappíra
eru orðin alvarlegt vandamál.
Það má segja að þetta sé vísir að
skipulagðri glæpastarfsemi, þar
sem menn eru beittir þvingun-
um og þeim jafnvel hótað lim-
lestingum eða dauða“ sagði
heimildarmaður innan rann-
sóknarlögreglunnar.
Fjársvikadeild rannsóknarlög-
reglunnar er fáliðuð og vinnu-
álagið er mikið. Þar á bæ berjast
menn við að klóra í bakkann og
eiga fullt í fangi með að hafa
undan. Minni málin tefja rann-
sóknir stærri og umfangsmeiri
mála.
„Það eru ákveðnir menn
orðnir mjög umfangsmiklir í
þessu. Þeir nota alls kyns fólk til
uppáskrifta, allt niður í göturóna
og aðra ámóta. Þetta fólk á það
sameiginlegt að hafa ekki verið í
bankaviðskiptum og er því ekki
á vanskilaskrám bankanna.“
Siguröur Már Jónsson og
Sigurjón Magnús Egilsson.
Grensásvegur 14. Mat eignarinnar fékkst hækkað og samtímis voru gefin út bréf með veði í
húsinu. Þau fást sennilega seint eða aldrei greidd.