Pressan - 30.04.1992, Qupperneq 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAji 30.APRIL1992
*.
Kínversk alþýða á
hraðleið til bættra
lífskjara á tímum
Maós formanns.
í hans tíð voru
tekin stór stökk
og þá hefðu 1,7
prósenta skref
Alþýðusam-
bandsins sjálfsagt
ekki þótt í
frásögur færandi.
Rf hverju tehur
svona langan ffma
aö semja um ehhi neitt?
Til hvers er eiginlega verið að halda
hátt í 250 manns við samningaborðið til
að semja um lítið sem ekki neitt?
Er það ásættanlegt að hver samninga-
maður skuli hafa skilað launþegum 6
aurum í umslagið?
Eða þurfti alla þessa samningamenn til
að hindra að launin hækkuðu meira?
Og byrjar ballið aftur þegar samning-
arnir renna út eftir tíu mánuði?
Fáum við þá aftur átta mánaða samn-
ingalotu með tilheyrandi yfirlýsingum,
fréttaviðtölum og sjónvarpsútsending-
um frá tröppunum að Karphúsinu?
Átta mánaða samningalotu
launþega og vinnuveitenda lauk
um helgina með því að deiluað-
ilar undirriluðu samning til tíu
mánaða og sættust á að ríkis-
sáttasemjari setti fram miðlunar-
tillögu, sem reyndar innihélt
megininntak samninganna.
Alla þessa átta mánuði hafa
þjóðinni borist fréttir af gangi
viðræðnanna. Helstu talsmenn
verkalýðshreyfingarinnar,
vinnuveitendasambandsins og
samninganefndar ríkisins hafa
verið daglegir gestir í útvarpi og
sjónvarpi og á síðum dagblað-
anna. Undir það síðasta birtust
þar einnig minni spámenn, enda
voru þá komnir hátt í 300 manns
við samningaborðið. Þeir hörð-
ustu sváfu ekki nema sex
klukkutíma síðustu fimm sólar-
hringana.
Þegar svona mikið gengur á
hlýtur mikið að standa til. Miðað
við yfirlýsingamar, vökumar og
allan þennan tíma mætti búast
við að hér væri um að ræða
samninga sem fælu í sér annað-
hvort umtalsverðar kjarabætur
eða heildaruppstokkun alls
launakerfis í landinu.
En svo var ekki.
Þegar upp var staðið fólu
samningamir það í sér að launa-
maður sem hefur 80 þúsund
krónur á mánuði fær 1.360 krón-
unt meira í umslagið sitt með
mánaðarlaununum. Og hann fær
500 krónum meira í orlofsupp-
bót en áður og 2.000 krónum
meira í desemberuppbót. Sam-
anlagt jafngildir þetta 1.568 nýj-
um krónum að meðaltali á mán-
uði. Eða 51 krónu og 56 aurum á
dag.
ÞURFTI EINN
SAMNINGAMANN Á
HVERJA SEX AURA
SEM NÁÐUST
Það er kannski ekki nema von
að sumum finnist lítið til um.
Undir það síðasta vom hátt í 200
manns hjá ríkissáttasemjara í
Karphúsinu í Borgartúni. Þar var
fjögurra manna nefndin frá Al-
þýðusambandinu. Líka 20 til 25
manna nefnd formanna lands-
og svæðissambanda Alþýðu-
sambandsins. Og stóra samn-
inganefndin, sem í em um 60 til
80 manns, var einnig í húsinu.
Vinnuveitendur vom einnig
með (jögurra manna nefhd. Og
þeir eiga líka stóra nefnd þótt
hún sé ekki jafnstór og þeirra í
Alþýðusambandinu. Stómefnd
vinnuveitenda telur um 30
manns. Og síðan vom Guðlaug-
ur ríkissáttasemjari og hans lið í
húsinu. Og fyrir utan biðu ffétta-
og blaðamenn milli þess sem
þeir sögðu þjóðinni að húsið
væri lokað og það benti til að
samningahljóð væri í mönnum.
Neðar í Borgartúninu, í Rúg-
brauðsgerðinni, sátu samninga-
menn opinberra starfsmanna.
Þeir vom með álíka margar
nefndir og álíka mannmargar og
Alþýðusambandsmennimir ofar
í götunni. Og lið ríkisins var
svipað að vöxtum og lið vinnu-
veitenda í Karphúsinu.
Það hafa því líklega verið um
250 manns við samningaborðið
undir það síðasta. Og allt þetta
fólk lagðist á eitt við að láta 80
þúsund króna manninn okkar fá
fimmtánhundmðkall til viðbótar
í umslagið sitt. Það mátti ekki
minna vera. Hver um sig skaff-
aði 80 þúsund króna manninum
okkar 6 aura og fjórðung úr
þeim sjöunda.
Ef þessi launþegi okkar hefði
átt að fá sem nemur andvirði
eins sígarettupakka á dag út úr
samningunum hefðu því þurft að
vera 1.109 manns við samninga-
borðið.
EÐA ÞURFTI SVONA
MARGA TIL AÐ
HINDRA AÐ LAUNIN
HÆKKUÐU MEIRA?
En auðvitað er það misskiln-
ingur að markmið samninganna
hafi verið að ná fram launa-
hækkun til handa launþegum.
Það sést best á ummælum
stjómmálamanna eftir að samn-
ingar náðust. Þeir fögnuðu því
sérstaklega hversu hógværir
samningamir væm. Eins og aðr-
ir hógværir samningar yrðu þeir
undirstaða stöðugleika sem aftur
gæfi von um að bölvaðri krepp-
unni færi að ljúka.
Þessir 250 sem sátu við samn-
ingaborðið lögðust því ekki á eitt
við að ná fram hækkun launa
heldur þurfti svona marga ein-
mitt til hins gagnstæða; að koma
í veg fyrir að launin hækkuðu
meira. Ef færri hefðu komið að
samningunum eða viðræðumar
tekið skemmri tíma er aldrei að
vita hvemig þeir hefðu endað. Ef
til vill með 10 prósenta launa-
hækkun, verðbólgu, gengisfell-
ingu, enn meiri verðbólgu og
eno meiri launahækkun og síðan
áfram til aldamóta.
Það er því ekki sanngjamt að
reikna út hversu miklu hver
samningamaður skilaði 80 þús-
und króna manninum okkar í
launaumslagið. Nær væri að
reikna út hversu miklum hörm-
ungum þessir 250 forðuðu hon-
um frá. í slíkum tilfellum er
betra að hafa vaðið fyrir neðan
sig og hafa samningamennina
heldur of marga en of fáa
34.000 KLUKKUTÍMAR
VIÐ SAMNINGABORÐIÐ
En við leyfum okkur samt að
ímynda okkur að það hefði verið
hægt að fá þessa niðurstöðu fyrr.
Ef við hugsum okkur að 80 þús-
und króna maðurinn okkar hefði
fengið 1,7 prósentin sín þegar
síðasti samningur rann út í sept-
ember þá hefur hann misst af
10.880 krónum vegna dráttar á
samningum að ógleymdum
2.000 krónum sem hann hefði
fengið um jólin. Ef fjögurra
manna nefndir Alþýðusam-
bandsins, vinnuveitenda, opin-
berra starfsmanna og ríkisins
hefðu bara sest niður 31. ágúst
og gengið frá þessu þá væri
þessi launþegi 12.880 krónum
ríkari í dag.
Og þá hefðu unt 250 þúsund
manns ekki þurft að taka þátt í
þessum viðræðum undanfama
átta mánuði. Ef við erum hóg-
vær eins og samningamennimir
og reiknum hveijum um sig um
4 tífna á viku í samningafundi og
annað stúss þeim tengt þá hefðu
með þessu sparast um 34.000
þúsund klukkutímar. Það eru rétt
rúm 20 mannár ef sumarleyfi og
aðrir frídagar em dregnir frá.
Og ef við reiknum þessi
mannár út frá tekjum 80 þúsund
króna mannsins okkar þá kosta
þau 19,2 milljónir. Ávinningur
þessa sama manns af samning-
unum fram til 1. mars á næsta ári
(þá renna þeir út) er 16.100
krónur. Kostnaðurinn við samn-
ingsgerðina, það er 19,2 milljón-
imar, er því álíka hár og ávinn-
ingur 1.192 launamanna af
henni.
GRÓÐI AF AÐ SENDA
SAMNINGAMENNINA
EITTHVERT ANNAÐ í
VINNU EN í KARPHÚSIÐ
Og ef fólk vill fá hærri tölur
getur það reiknað með því að
þeir sem settust að samninga-
borðinu hafi hærri mánaðarlaun
en 80 þúsund króna maðurinn
og er það ekki ýkja ósanngjamt.
Þá verða 19,2 milljónimar eitt-
hvað miklu meira og þeir 80
þúsund króna menn sem þarf til
að standa undir þeim að sama
skapi fleiri.
Ef við leyfum okkur að reikna
samningamennina upp í 160
þúsund kall verður kosmaðurinn
við samningana þannig 38,4
milljónir. Sú upphæð mundi
duga til að breyta 1,7 prósenta
launahækkun í 1,82 prósenta
launahækkun hjá 40.000 80 þús-
und króna mönnum yfir samn-
ingstímann.
Og þetta ætti sjálfsagt að gefa
félögum í verkalýðshreyfing-
unni hugmynd að því hvemig
hægt er að fá meira út úr samn-
ingum. I stað þess að láta samn-
ingamennina sitja og karpa í átta
ntánuði geta launþegar látið
þessa starfsmenn sína vinna eitt-
hvað gagnlegra og skipt síðan
laununum á milli sín.
SAMNINGAR í TÍU
MÁNUÐI — VIÐRÆÐUR
í ÁTTA MÁNUÐ'I
Eitt sem er eftirtektarvert við
þessa samninga, fyrir utan hóg-
værar launahækkanir og að rík-
issáttasemjari skyldi bera þá upp
í félögunum en ekki forystu-
menn verkalýðshreyfingarinnar,
er hversu stuttur samningstím-
inn er. Þessir samningar gilda
aðeins til 1. mars á næsta ári.
Það em einungis tíu mánuðir
þangað til. Og þá má búast við
samningaviðræðum í aðra átta
mánuði og síðan tíu mánaða
samningi. Og sfðan koll af kolli
til aldamóta.
1. nóvember árið 2000 munu
þannig takast samningar eftir
átta mánaða samningatöm. Þá
mun þjóðin hafa upplifað sex
slíkar tamir frá I. september árið
1991. Og tuttugu mannárin
verða orðin 120. Samanlagður
samningstími verður orðinn
fjögurár.
Og alla þessa sexföldu átta
mánuði munu forystumenn
launþega og atvinnurekenda
kallast á í sjónvarpsfréttunum.
Og þótt Ogmitndur Jónasson
næði ekki inn í nema þriðja
hvem fréttatíma hjá Rfkissjón-
varpinu væri hann búinn að birt-
ast þar tæplega 500 sinnum til að
færa þjóðinni boðskap sinn. Og
til að gæta hlutleysis yrði frétta-
stofa Ríkissjónvarpsins að sjón-
varpa Þórarni V. jafnoft.
Og þessi þúsund sjónvarp-
sviðtöl og 120 þúsund mannár
væm búin að hækka laun 80
þúsund króna mannsins okkar í
88.515 krónur. Kaupmáttur hans
hefði hins vegar staðið í stað.
Hann gæti keypt akkúrat jafn-
mikið fyrir launin sín og hann
gat áður en samið var nú unt
helgina síðustu.
Gunnar Smárí Egilsson
il
T