Pressan - 30.04.1992, Síða 37

Pressan - 30.04.1992, Síða 37
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 30. APRÍL 1992 37 A J. Xðalfundur Félags íslenskra leik- ara var haldinn síðastliðið mánudags- kvöld. Kosinn var nýr formaður í stað Guðrúnar Alfreðsdóttur og hlaut Edda Þórarinsdóttir embættið. Sig- urður Karlsson hafði boðið sig fram en Tinna Gunnlaugsdóttir lagði fram uppástungu um mótframboð. Edda vann mótheija sinn með rúmlega tíu at- kvæðum og var almenn ánægja með kjör hennar, þar sem Sigurður hefur þótt óbilgjam í skoðunum, til dæmis um samningamál. Of mikil harka á þeim vettvangi þykir stéttinni tæplega til framdráttar. Fundurinn varð lengri en til stóð í upphafi og lauk ekki fyrr en klukkan tvö að nóttu... F J_—/ins og greint var frá í PRESS- UNNI í síðustu viku var mynd Þráins Bertelssonar, „Sigla himinfley", í hættu vegna harðra samningaviðræðna Sjónvarpsins og Fé- lags íslenskra leikara. Á aðalfundi var sam- þykkt tillaga Tinnu Gunnlaugsdóttur þess efnis að samn- ingar yrðu gerðir á svipuðum nótum og um kvikmyndaverkefni væri að ræða, sem þýðir að leikarar hafi sveigjanleg- an vinnutíma og 40 prósenta launaálag verði fellt niður. Einnig var samþykkt að fella niður biðlaun og að samnings- atriði um greiðslur fyrir endursýningar- rétt á Norðurlöndunum væru endur- skoðuð. Hiti var mikill á fundinum vegna þessa máls en jafnframt vegna fáránlegs ósamræmis í samningum leikara. Má sem dæmi nefna að nýút- skrifaðir leikarar, sem hljóta fastráðn- ingu, eru með 60 þúsund krónur í laun á mánuði en geta hins vegar haft um 600 þúsund krónur fýrir 15 tökudaga í kvikmyndavinnu... F _I_ undur flugráðs var haldinn í gær- morgun vegna skipunar nýs flugmála- stjóra og mælti meirihluti ráðs með Þorgeiri Pálssyni prófessor, en minni- hluti nefndarmanna var hlynntur skipan núverandi varaflugmálastjóra, Hauks Haukssonar, í starfið. Þorgeir er að sögn kunnugra óumdeildur maður og þykir afar hæfur. Hann hefur unnið talsvert að flugstjómarmálum en hefur að auki starfað talsvert fyrir Sjálfstæð- isflokkinn, því hann sat í níu manna framtíðarstefnunefnd, sem skípuð var af Davíð Oddssyni forsætisráðherra. Bréf var sent Halldóri Blöndal sam- gönguráðherra um niðurstöðu nefndar- álits, en endanleg skipan í stöðuna er í hans höndum... Þ, essa dagana er lánasjóðsfrum- varpið til umræðu á þingi. A þingpöll- unum situr Stúdentaráð og gaifar í því að fá frumvarpinu breytt. Baráttan er að taka á sig gamalkunnan blæ þar sem af- hentar eru áskoranir og undirskriftir. Það sem fer einna helst fyrir bijóstið á nemum er tímasetning umræðnanna, því nú standa yfir vorpróf. Allar að- gerðir verða því að miðast við lítinn mannafla. Þykir Stúdentaráði, með Pét- ur Þ. Oskarsson í fararbroddi, að gmnsamlega oft dagi frumvarpsumr- æðuna uppi á vorin. Er þess skemmst að minnast þegar skerðing var sam- þykkt síðasta vor í miðjum piófúm og efast Stúdentaráð ekki um að þetta sé sérlega þægileg tímasetning fyrir ráða- menn, því lítil von er til að stúdentar mæti með glósumar sínar á þingpalla... L'ORÉAL TILBOÐ VIKUNNAR

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.