Pressan - 02.07.1992, Side 9
FIMMTUDAGUR PRBSSAN 2. JÚLÍ 1992
9
Kaup Páls Þorgeirssonar á Asiaco
Páll Þorgeirsson er nú á leiðinni til útlanda til að ná í erlent
fjármagn til að bjarga Asiaco. Það er vonum seinna því lítil
sem engin starfsemi er eftir hjá þessu fyrrum umsvifamikla
fyrirtæki.
Stórlaxinn Páll
Hver er þessi Páll Þorgeirs-
son? Fyrir nokkrum árum starf-
aði hann hjá Asiaco en var lát-
inn hætta eftir ágreining við þá
feðga. Þá sneri hann sér að ýms-
um viðskiptum sem hafa meðal
annars leitt til gjaldþrots hans
sjálfs og einkafyrirtækis hans,
Strandavarar. Heildarkröfur í bú
hans námu um 40 milljónum
króna.
Áður hafa verið rakin í
PRESSUNNI viðskipti hans
með íyrirtækið Strandanaust hf.
sem hann átti í félagi við Skúla
Pálsson hrl. Það rak viðskipti
með sumarhús á Hólmavík og
hafði stofnað til gífurlegra
skulda við íslandsbanka og var
meðal annars 23. milljóna
skuldabréf komið í vanskil
vegna þess. Einnig var Páll
kærður til Rannsóknarlögregl-
unnar vegna meintrar saknæmr-
ar notkunar á greiðslukorti, en
þar voru ógreiddar úttektir
komnar hátt í fjórar milljónir
króna.
Sömuleiðis lenti Bílaumboðið
hf. í hremmingum í viðskiptum
sínum við Pál. Hann keypti 5
milljóna króna BMW á síðasta
ári og greiddi með 1,5 milljóna
króna innstæðulausri ávísun.
Eftir mikið þref náðist bíllinn
afturaf honum.
Þá setti hann á stofn fyrirtæk-
ið Stórlax hf. árið 1986, sem
ætlaði að hasla sér völl í laxa-
rækt. Lengst af rak hann það í
samfloti með Sigurði Péturs-
syni. Var það skráð í Ölfusi og
átti þar rétt í borholu. Ekki fer
miklum sögum af viðskiptum í
laxeldinu en hins vegar hefur
blaðið frásögn af viðskiptum
Páls á Norðurlandi í nafni fyrir-
tækisins. Þar tók hann meðal
annars á leigu splunkunýjan
jeppa í heilt sumar af Bílaleig-
unni Eminum. Eigandi fyrirtæk-
isins upplýsti að þó að Páll hefði
verið með bílinn á leigu heilt
sumar í nafni Stórlax hefði hann
aldrei greitt krónu fyrir leiguna
en skilað inn ónýtum pappímm
þegar eftir var gengið. Eigand-
inn taldi að tjón hans vegna
þessara viðskipta hefði verið
hátt á aðra milljón og átt stóran
þátt í því að fyrirtækið varð
gjaldþrota.
Þá em til margar frásagnir af
viðskiptum Páls þar sem hann
hefur boðist til að hafa milli-
göngu um erlent fjármagn. Ekki
er PRESSUNNI kunnugt um eitt
einasta tilvik þar sem það hefur
gengið eftir.
PENINGUM
Lítil sem engin starfsemi er eftir hjá fyrirtækinu Asiaco sem nú er komið úr þriggja mán-
aða greiðslustöðvun. Óvíst er hver framtíðin verður en Páll Þorgeirsson hefur nú fengið
lokafrest til að uppfylla skilyrt kauptilboð sitt.
seminni var á sviði umboðs-
verslunar í fiskútflutningi. Þegar
sú starfsemi náði hámarki var
um að ræða umboðsviðskipti
upp á 500 milljónir króna á ári.
Strax á miðju ári í fyrra fór
reksturinn að þyngjast og varð
þá dráttur á greiðslu til feðg-
anna. Um leið spratt ágreiningur
út af því hvort kaupendurnir
hefðu fengið rétta mynd af
stöðu fyrirtækisins. Kjartan R.
neitaði að tjá sig um málið en
þeir feðgar hafa eftir því sem
næst verður komist ekki fengið
nema hluta kaupverðsins
greiddan. Húsnæðið, þar sem
Asiaco er til húsa, er leiguhús-
næði, en fyrirtækið átti skemm-
ur úti á Granda sem Jóhannes
Jónsson í Bónus hefur nú tekið
á leigu.
Ljóst var að bág staða sjávar-
útvegs og ókunnugleiki nýju
stjórnendanna höfðu sitt að
segja þannig að fljótt fjaraði
undan fyrirtækinu.
NÁNAST ENGIN STARF-
SEMIEFTIR
En hafi verið eftir einhverju
að slægjast í Asiaco þá er spum-
ing hve mikið stendur eftir af
því nú. Hafí erlendir fjárfestar
viljað leggja inn fé virðist besú
ú'minn liðinn, nema hugmyndin
sé að fá það fyrir lítið. Lykil-
starfsmenn fyrirtækisins hafa
hætt og margir hverjir tekið
verðmæt umboð og viðskipta-
sambönd með sér. Undir það
síðasta munu um 8 til 10 starfs-
menn hafa verið hjá fyrirtækinu
en vom 30 til 40 þegar best lét.
Eins og áður hefur komið
fram stofnaði höfuð rekstrar-
vörudeildarinnar, Eyjólfur
Karlsson, nýtt fyrirtæki, Mön-
dul hf., um rekstrarvömþáttinn.
Fékk hann meðal annars hið
vinsæla Tork-umboð. Lítið er
eftir af veiðivömdeildinni og nú
hefur Magnús Ó. Schram, sem
sá um fiskútflutning, stofnað
nýtt fyrirtæki, Fiskileiðir. Er
hann þar í samstarfi við Skag-
strending um útflutning, en áður
lét Skagstrendingur Asiaco í té
mestallan fisk sem fyrirtækið
flutú út.
Greiðslustöðvun Asiaco hf.
rann út nú um mánaðamótin án
þess að tekist hefði að greiða úr
fjárhagserfiðleikum fyrirtækis-
ins.
Það verður hlutverk kröfu-
hafa og aðstandenda fýrirtækis-
ins að ákveða framtíð þess en
fátt virðist standa eftir af þessu
áður fornfræga þjónustufyrir-
tæki við sjávarútveginn.
Engin starfsemi fer nú fram í
húsakynnum fyrirtækisins við
Vesturgötu og úlkynning hefur
verið hengd upp um lokun
vegna sumarleyfa til 4. ágúst. Á
símaborðinu verður símsvari
fyrir svörum með samskonar
yfirlýsingu.
PÁLL Á LEIÐ TIL ÚT-
LANDA EFTIR PENINGUM
Eins og áður hefur komið
fram kom Páll Þorgeirsson inn
í fyrirtækið í lok febrúar. Gerði
hann þá skilyrtan kaupsamning
við þáverandi eigendur, Eyjólf
Brynjólfsson og Gunnar Ósk-
arsson. Tók hann þá við fram-
kvæmdastjórastólnum og varð
einnig stjórnarformaður fyrir-
tækisins. Gunnar gekk alveg út
úr samstarfinu en Eyjólfur hélt
sæti í stjóm fyrirtækisins. Þetta
gerðist allt án þess að séð yrði
að Páll setti eina einustu krónu í
íyrirtækið.
í samtölum við PRESSUNA
hafa menn kunnugir íyrirtækinu
haldið því fram að afskipti Páls
af því hafi hafist mun fyrr því
þegar í upphafi, þegar Eyjólfur
og Gunnar keyptu fyrirtækið,
var hann búinn að gefa þeim
fyrirheit um erlent fjánuagn.
Sú þriggja mánaða greiðslu-
stöðvun sem hófst 1. apríl var
fyrst og fremst réttlætt út frá því
að enn á ný ætti að freista þess
að fá erlent fjármagn inn í fýrir-
tækið. Það tókst hins vegar ekki
á meðan á greiðslustöðvuninni
stóð. Staðfesti Eyjólfur það í
samtali að frestur Páls úl að út-
vega fjármagnið hefði verið
framlengdur til júlfloka.
Sagði Eyjólfur að Páll væri á
leið til útlanda að sækja féð og
allir væru vongóðir um að sú
ferð yrði árangursrík. „Eg veit
ekki betur en að þeir sem hafa
séð þau gögn sem hann lagði
fram séu ánægðir með þau,“
sagði Eyjólfur og bætti því að
viðskiptabanki fyrirtækisins,
Landsbankinn, hefði veitt sam-
þykki sitt.
GREIÐSLUR TIL FEÐG-
ANNA í ÓVISSU
Nú 26. júní barst tilkynning
til Hlutafélagaskrár um að Páll
fengi prókúruumboð fyrir Asi-
aco um leið og önnur prókúru-
umboð voru afturkölluð. Ekki er
þó annað vitað en að Gunnar og
Eyjólfur séu enn hluthafar
vegna þess að hinn skilyrti
kaupsamningur hefur ekki verið
uppfylltur. Þeirra starf í fyrir-
tækinu var reyndar fremur stutt.
Þeir keyptu fyrirtækið 1.
október 1990 af þeim feðgum
Kjartani R. Jóhannssyni og
Kjartani Erni Kjartanssyni.
Hafði þá Kjartan R. rekið Asi-
aco í áratugi og byggt upp vold-
ugt og vel stætt fýrirtæki. Sölu-
verðið hefur ekki verið gefið
upp, en tala nálægt 300 milljón-
um króna hefur verið nefnd. Það
er hátt verð en þegar horft er til
þess að árið 1990 voru eignir
bókfærðar á 190 milljónír króna
að núvirði má ef til vill finna
sanngimi í því. Það ár velú fýr-
irtækið 450 milljónum en rétt er
að taka fram að
mikill hluti af starf-
Úr greiðslu-
stöðvun í sumar-
frí. Þessi til-
kynning er kom-
in upp hjá Asi-
aco á Vestur-
götu 2.
ÚR GREIÐSLUSTÖBVUN
í SUMARLEYFIUR PÁLL
VL UTLANDA El