Pressan - 02.07.1992, Blaðsíða 14

Pressan - 02.07.1992, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR PRESSAN 2. JÚLÍ 1992 Kjör æðstu embættismanna ríkisins ÞINGMENN ÚR TVÖ- FÖLDUM í ÞREFÖLD VERKAMANNSLAUN Hverjir eru bessfr kjaradómsmenn? Jón Finnsson, hrl., dómsfor- maður, tilnefndur af Hæstarétti. Hann er 66 ára, sonur Finns Jónssonar, alþingismanns og ráðherra Alþýðuflokksins, frá Isafirði. Utskrifaðist sem lög- fræðingur frá HI 1951. Starfaði nokkur ár sem lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli í umboði sýslumanns, en lengst af rak hann lögfræðiskrifstofu með Bimi Sveinbjömssyni, Skúla J. Pálmasyni og Sveini Hauki Valdimarssyni. Hefur verið að- almaður í Kjaradómi frá 1977, áður varamaður frá 1971. Hefúr átt sæti í Jafnlaunaráði og um skeið í Jafnréttisráði. Var vara- dómari í ærumeiðingarmálunum er spunnust vegna Varins lands. Bróðir Birgis Finnssonar, fyrr- um þingmanns Alþýðuflokksins og forseta sameinaðs þings. Mikill stangveiðiáhugamaður. „Leiðrétting" Kjaradóms á launum æðstu embættismanna ríkisins er í hróplegu ósamræmi við launaþróun verkafólks á síð- asta áratug. Lítum t.d. á dag- vinnulaun verkamanna á höfuð- borgarsvæðinu á fyrsta ársljórð- ungi 1981 og þingfararkaup á sama tíma. ÞINGMENN OG VERKA- MENN: MUNURINN ÚR 100% í 226% Framreiknað miðað við fram- færsluvísitölu kemur í ljós að þingfararkaupið var þá 159 þús- und að núvirði, en er nú fyrir breytingu Kjaradóms 175.000 krónur. Kaupmáttur þingfarar- kaups hefur því hækkað um 10 prósent. A sama tíma hefur mán- aðarkaup verkamanna fyrir dag- vinnu lækkað úr 80.900 krórium í 74.400 krónur, sem er lækkun unt 8 prósent. Þingfararkaup á hins vegar að hækka samkvæmt Kjaradómi upp í 240 þúsund krónur. Arið 1981 var þingfararkaup 96,5 prósentum hærra en dag- vinnulaun verkamanna á höfúð- borgarsvæðinu fyrir dagvinnu. I september 1984 var munurinn 134 prósent. I dag er hann ívið meiri eða 136 prósent. Með úr- skurði Kjaradóms á þessi munur Jónas A. Aðalsteinsson, hrl., tilnefndur af Hæstarétti. Hann er 58 ára skipstjórason- ur úr Reykjavík. Utskrifaðist sem lögfræðingur frá HÍ 1962. Hefur rekið lögfræðiskrifstofu með Jóhannesi L.L. Helgasyni og síðar Guðmundi Ingva Sig- urðssyni og Sveini Snorrasyni. Mikill golfáhugamaður og virk- ur Rotarý- félagi. Ólafur Nilsson, endurskoð- andi, tilnefndur af Hæstarétti. Hann er 54 ára, fæddur á Siglufirði. Nam lögfræði og tók síðar próf sem löggiltur endur- skoðandi. Gegndi um árabil starfi skattrannsóknarstjóra. Stofnaði 1975 ásamt þeim Guðna Gústafssyni og Helga V. Jónssyni Endurskoðun hf„ sem er önnur af tveimur stærstu end- Halldór Ásgrímsson þing- maður. Þingfararkaupið var 175.000 en verður 240.000 og hefur hækkað um 51 prósent að raungildi frá 1981. Halldór er landsbyggðarþingmaður, þótt hann búi í Reykjavík, og fær ofan á launin yfir 100.000 á mánuði í húsnæðiskostn- að, dagpeninga og ferða- kostnað. nú að hækka í 226 prósent. í grófúm dráttum hefur því verið tekin sú ákvörðun að þingfarar- kaup skuli ekki lengur vera tvö- föld dagvinnulaun verkamanna, heldur rúmlega þreföld slík laun. urskoðunarskrifstofum landsins. Hann persónulega og Endur- skoðun hf. hafa séð um reikn- inga nokkurra af stærstu fyrir- tækjum landsins um langt skeið, þeirra á meðal Eimskips og Flugleiða. Mikill skíðaáhuga- maður, var afreksmaður á því sviði á yngri árum. Brynjólfur Sigurðsson, pró- fessor, tilnefndur af fjármála- ráðherra. Hann er 52 ára sonur af- greiðslumanns á ísaftrði. Út- skrifaðist sem viðskiptafræðing- ur frá HÍ 1965. Varð lektor við HÍ 1970 til I983, utan er hann var í leyfi sem Hagsýslustjóri ríkisins I978til 198L Hefurver- ið prófessor frá 1984. Hefur gegnt ótal trúnaðarstörfum, hef- ur m.a. átt sæti í stjóm Neytenda- samtakanna og í fimmmanna- Hörður Sigurgestsson, for- stjóri Eimskipafélagsins. Frá 1980 til 1990 jukust tekjur hans að raungildi úr 500.000 krónum ítæplega 1.100.000 krónur á mánuði eða um rúmlega 100 prósent. 16 for- stjórar helstu stórfyrirtækja landsins hækkuðu á tímabil- inu úr 460.000 að meðaltali í 770.000 krónur. AUKAGREIÐSLUR ÞING- MANNA ALLT AÐ 100.000 Á MÁNUÐI Þessi munur verður þó enn meiri þegar heildarlaun eru skoðuð. Með yfirvinnu og öðr- nefnd til ákvörðunar á búvöru- verði. I janúar 1986 var hann skipaður í rannsóknarnefnd gjaldþrots Hafskips. Jón Þorsteinsson, hrl., til- nefndur af félagsmálaráðherra. Hann er 68 ára, sonur verka- manns á Akureyri. Útskrifaðist sem lögfræðingur frá HI 1949. Hann var meðal annars starfs- maður Alþýðusambandsins 1955 til 1960. Hann var lands- kjörinn þingmaður Alþýðu- flokksins allt Viðreisnartímabil- ið og átti sæti í miðstjóm flokks- ins 1958 til 1972. Hefur gegnt ótal trúnaðarstörfum öðrum, meðal annars setið í yfirnefnd um búvöruverð og í mörgum sáttanefndum í vinnudeilum. Mikill skákáhugamaður, var t.d. skákmeistari Norðurlands fimm sinnum. Guðrún Erlendsdóttir, forseti Hæstaréttar. Hún og aðrir hæstaréttardómarar hækka um 40 prósent og hafa þá hækkað um 55 prósent að raungildi frá 1984, en á sama tíma hafa dagvinnulaun verkamanna hækkað um 14 prósent. um greiðslum náðu verkamenn á höfúðborgarsvæðinu að hala inn 119 þúsund krónur á mánuði fyrripart árs 1981, að núvirði. Nú em heildarlaunin hins vegar um 106.000 krónur. Heildarlaun Jón Þorsteinsson skilaði sératkvæði við úrskurð Kjaradóms og taldi þá hækk- un sem í honum fælist allt of mikla. Ólafur Skúlason biskup hækkar mest, að forseta Al- þingis undanskildum. Hann ferúr 217.000 1350.000. Skyldi vera í þessu fólgin umbun fyrir árangur í starfi eða er hann með miklar aukasporslur sem eiga að hverfa á móti? verkantannanna hafa því lækkað unt 11 prósent. Þingmenn fá hins vegar ýmsar aukagreiðslur, sem hafa hækkað talsvert að raungildi á þessu tímabili. Þetta er þó ekki talið til launa, heldur skilgreint sem end- urgreiddur kostnaður. Stór hluti þingmanna eraf landsbyggðinni. Þingmenn þaðan fengu fyrir hækkun Kjaradóms 175 þúsund á mánuði í þingfararkaup en fengu 159 þúsund árið 1981. Á sama tíma hefur greidd húsa- leiga hækkað að raungildi úr 22.500 krónum 138.000 krónur, greiddur dvalarkostnaður/dag- peningar úr 11.600 krónum í 32.300 krónur og ferðakostnaður úr 28.700 í 31.000 krónur (eftir að hafa náð fgildi 37 þúsund króna árið 1984). Með þessum aukagreiðslum hafa laun landsbyggðarþing- manna hækkað á tímabilinu úr 221.800 krónum á mánuði í 276.300 krónur eða um tæplega 25 prósent, en heildarlaun verka- manna lækkað um 11 prósent. I þessu sambandi má geta þess að á síðustu 12 löggjafarþingum hafa þingfundir staðið að meðal- tali yftr í 174 daga yftr árið eða tæpt hálft ár. Þess á milli er ætl- ast til að þingmenn rækti kjör- dæmi sín og sitji nefndarfundi eftir atvikum. Inni í þessum töl- um eru ekki laun fyrir nefndar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.