Pressan - 02.07.1992, Blaðsíða 40
TVÖFALDUR1. vinningur
A egar er farið að velta vöngum yfir
því hver sé líklegur eftirmaður Hreins
Loftssonar í stóli aðstoðarmanns for-
sætisráðherra. í röð-
um ungra sjálfstæðis-
manna eru fáir nefnd-
ir og færri kallaðir.
Nöfn lögfræðinganna
Gunnars Jóhanns
Birgissonar og Sig-
urbjarnar Magnús-
sonar hafa heyrst og nafn Þórs Sigfús-
sonar hagfræðings. Fyrir utan að vera
íyrrverandi formaður Heimdallar er Þór
bróðir Árna Sigfússonar borgarfull-
trúa, en Ámi telur Davíð eiga sér skuld
að gjalda frá síðasta landsfundi flokks-
ins, sem ekki hafi verið endurgoldin við
vai á borgarstjóra um árið...
S
i síðustu viku sögðum við frá greiða-
semi Steingríms J. Sigfússonar við
loðdýrabændurna á Kirkjuferju og
Kirkjuferjuhjáleigu,
en rétt fyrir starfslok
sín sem landbúnaðar-
ráðherra lét Stein-
grímur ríkið kaupa
eignir loðdýrabúsins
á rikisjörðunum. Það
var gert að sögn til að
tryggja áframhald-
andi ábúð á jörðunum. Við viljum bæta
því við að ábúandinn í Kirkjufeijuhjá-
leigu, Guðjón Sigurðsson, hefur í raun
búið á jörðinni í aðeins tvö ár af síðustu
13 árum. Þessu til viðbótar fullyrða
kunnugir að hann hafi verið búinn að
semja við ríkið um kaup á jörðinni fyrir
4 til 5 árum og pappírar allir undirritað-
ir. Af einhverjum ástæðum- fóru þau
kaup aldrei alla leið. Þá er aukinheldur
fullyrt að „ábúandinn" hafi leigt heilsu-
hælinu í Hveragerði jörðina til 5 ára og
fengið fyrir skuldabréf upp á 2,5 millj-
ónir...
F
A yrirtækið Innkaup og sala hf„ sem
þar til í desember 1990 nefndist Inn-
kaupasamband bóksala hf„ hefur verið
gert upp eftir aðeins fjögurra mánaða
gjaldþrotameðferð. Fyrirtækið var upp-
haflega stofnað 1956, en lifði hins veg-
ar aðeins í rúmt ár eftir nafnabreyting-
una. Engar eignir fundust í búinu og
fékkst því ekkert upp í kröfur upp á
tæplega 30 milljónir króna. Stjómaifor-
maður félagsins var Axel Henry Bend-
er, en framkvæmdastjóri Ragnhildur
Bender...
Þ
á hefur enn einn Allaballinn
hreiðrað um sig í utanríkisráðuneytinu.
Þegar hringt í símanúmer Þrastar Ól-
afssonar, aðstoðar-
manns utanríkisráð-
herra, svarar nú í sí-
mann Árni Páli
Árnason. fyrrum
miðstjórnarmaður í
Alþýðubandalaginu.
Ámi Páll tók til starfa
í síðustu viku sem sérstakur ráðunautur
utanríkisráðherra í málefnum Evrópu-
bandalagsins — á sem sagt að svara
áróðri fyrrum félaga sinna um EES-
samninginn. Ámi Páll er lögfræðingur
Stjórnu snakK
og er nýkominn frá Brussel þar sem
hann lagði stund á Evrópurétt. Væntan-
lega hafa aldrei fleiri fyrrum kommar
starfað í því íhaldshreiðri, utanríkis-
ráðuneytinu, því fyrir utan Þröst og
Áma Pál má ekki gleyma að Jón Bald-
vin Hannibalsson var sjálfur lengi í
Alþýðubandalaginu...
N
JL ^ iðurskurðurinn á sjúkrahúsun-
um er farinn að segja til sín á skringi-
legasta hátt. Á Landakoti hefur nokkr-
um deildum verið lokað í hagræðingar-
skyni og sjúklingar em sömuleiðis í
færri kantinum. Þannig er komið nú í
júlímánuði að sjúklingar á spítalanum
eru ekki nema Ijömtíu, en starfsmenn
em hins vegar um fjögur hundmð tals-
ins...
□AIHATSU
CHARADE
Daihatsu Charade er lipur og léttur í borgar- og bæjarakstri.
Hann er með eindæmum sparneytinn og ódýr í rekstri.
Hann er æðislega „srnart" bæði innan sem utan og mjög rúmgóður.
Hann stoppar stutt í endursölu og fer á góðu verði.
Hann er í alla staði frábær!
FAXAFENÍ 8 • SIMI 91 - 68 58 70
Hann kostar staðgreiddur, kominn á götuna frá: 648 .01 )0 kr!