Pressan - 02.07.1992, Blaðsíða 55
FIMMTUDAGUR PRESSAN 2. JÚLÍ 1992
15
NQRÐURLAND
{'jtcwlct
Höfði — sérkennilegur afgirtur
hrauntangi sem gengur fram í Mý-
vatn að austanverðu. Þetta er einn
fegursti staðurinn við vatnið, þar sem
saman fara óvenjulegar hraunmynd-
anir og gróskumikið gróðurfar. Sfðan
1970 hefur Höfði verið í eigu og um-
sjá sveitarfélagsins og er þar nú al-
menningsgarður. Skammt frá Höfða
eru Kálfastrandarklasar og strípar,
þekktar hraunmyndanir, súlur og gat-
klettar.
Krafla — móbergsfjall um tíu
kílómetra norðaustur frá Mývatni.
Hæð hennar er 818 metrar yfir sjáv-
armáli. Kringum Kröflu er megineld-
stöð og askja um átta kílómetrar í
þvermál, sem kennd er við fjallið.
Um Kröfluöskjuna liggur mikill
sprungusveimur frá suðri til norðurs.
Úndir miðri öskjunni er talin vera
kvikuþró á þriggja til sjö kílómetra
dýpi. Á árunum 1727 til 1729 urðu
þarna mikil eldsumbrot og svipaðir
atburðir hófust að nýju 1975 og er
óvíst að þeim sé lokið enn. Marg-
sinnis á þessu tímabili hafa orðið
snarpar jarðskjálftahrinur samfara
mikilli gliðnun lands og kvikuhlaup-
um. Á árunum 1975 til 1981 urðu
þarna átta eldgos en ekkert þeirra
stóð lengur en nokkra daga og sum
aðeins nokkrar klukkustundir. Jarð-
vísindamenn hafa fylgst mjög vel
með umbrotunum við Kröflu og
raunnsóknir þeirra þar hafa átt meiri
þátt í því en flest annað að skapa
nýja og gerbreytta mynd af eldvirkni
í landinu. Á Kröflusvæðinu er eitt af
háhitasvæðum landsins og þar var
byggð jarðgufuvirkjun á árunum
1975 til 1977. Laxá — ein þekktasta
og eftirsóttasta veiðiá landsins. Hún
fellur úr Mývatni og rennur um
fimmtíu kílómetra leið til sjávar.
Meðalrennsli Laxár er um 45 rúm-
metrar á sekúndu. Laxá er ein feg-
ursta á landsins. I henni eru taldir um
340 hólmar og eyjar og í mörgum
þeirra er andavarp.
Leirhnjúkur — ávöl, eldbrunnin
hæð skammt vestan við Kröflu, mik-
ið jarðhitasvæði. Þarna eru fjöl-
breytileg eldvörp og leirhverir en
jafnframt talsverður gróður og blóm-
skrúð á sumrin. Vegna jarðhitans
lifnar gróður snemma á vorin þó að
hæð hnjúksins sé um 600 metra yfir
sjávarmáli.
Lúdent — stór, hringlaga gígskál,
um sex kílómetra austur frá Mývatni,
mynduð við gjóskugos fyrir meira en
sex þúsund árum. Ummál gígsins er
nær einn kílómetri, eða litlu minni en
Hverfjalls. Sunnan og vestan við Lú-
dentsskálina er nokkurra kílómetra
löng röð klepra- og gjallgíga, nefnd
Lúdentsborgir. Þar eru margir skoð-
unarverðir staðir.
Námafjall — móbergsfjall um
fjóra kílómetra austan Reykjahlíðar.
Hæð þess er 482 metrar yfir sjávar-
máli. Þama er mikið háhitasvæði og
brennisteinn var unninn á svæðinu
um aldaraðir. Fjallið er litauðugt
með afbrigðum og þaðan er mjög
gott útsýni yfír Mývatnssveit og ör-
æfin umhverfis. Á Námafjalli er
hringsjá. Austan þess eru leirhverir,
sem hafa mikið aðdráttarafl fyrir
ferðamenn. Þar verður að ganga um
með gát, því sumstaðar er sjóðandi
leðja undir þunnri skán, sem getur
brotnað undan þunga manns, og hafa
menn stundum brennst þarna illa á
fótum. Um 1950 fóru þarna fram til-
raunaboranir. Bera því vitni nokkrar
borholur, sem gjósa gufu og eru nú
orðnar að eins konar gufuhverum.
Vestan Námafjalls heitir Bjamarflag.
Þar er lítil jarðgufuvirkjun, byggð
1968 og hin fyrsta sinnar tegundar á
íslandi. Þarna er kísilgúrverksmiðja,
sem nýtir gufu til þurrkunar á kísil-
gúrnum, og holsteinaverksmiðja,
sem einnig nýtir gufu til að þurrka og
herða framleiðsluna. Margir Mývetn-
ingar rækta kartöflur í Bjarnarflagi
og þykja þær sérlega bragðgóðar. Þá
má geta þess að þarna er oft bakað
rúgbrauð við jarðhitann.
BENSINSALA
Kaupfélag Langnesinga
680 Þórshöfn
BILALEIGA
VERSLUN
Kaupfélag Langnesinga
IANDMÆUNGAR
(SLANDS
daKPmimmd--.
LAUGAVEGUR 178 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 680 999
<Í>RU<G» OG ÁNÆGJÍUILBS
FERÐALÖG
... eru ekki tryggð nema með vönduðum ferðakortum.
Án þeirra verða ferðalög lílið annað en vegurinn framundan
og fjöllin nafnlausar þústir í landslaginu.
FERÐUMST ALDREIÁN K0RTA!