Pressan - 02.07.1992, Síða 47
FIMMTUDAGUR PRESSAN 2. JÚLÍ 1992
7
VESTFIRÐIR
Ulewtet
KJÖRIÐ LAND
FYRIR FJALL-
CÖNCUFÓLK
Norðvesturhluti landsins, Vestfirðir,
er næstum skorinn ífá landinu, en að-
eins eru tæpir tíu kílómetrar úr botni
Gilsfjarðar í Bitrufjarðaibotn þar sem
mjóst er. í heild eru Vestfirðir nokkum
veginn þríhyrningslaga, mjög vog-
skornir og með langlengstu strand-
lengju af sambærilegum landshlutum.
Undirlendi er lítið nema við firðina.
Vestfjaiðakjálkinn er að mestu ein há-
slétta, 400-600 metra há, en sundur-
skorin af fjörðum og dölum. Fjöllin rísa
yfirleitt brött upp ffá þröngum dölum
eða frá sjó, og sumir hlutar hásléttunnar
rísa hærri en aðrir en hvergi nær hæðin
þó þúsund metrum. Syðst og austast
eru flöllin þó heldur lægri og ávalari, en
hið almenna er að þau séu flöt að ofan
með bröttum hlíðum. Frávik ffá þessu
er þó skaginn milli Arnarfjarðar og
Dýrafjarðar, sem nú er farið að nefna
Vestfirsku Alpana. Þar eru fjöllin hærri,
meira sundurskorin og enda víða í upp-
mjóum strýtum og þunnum klettabrík-
um. Þarna er kjörið land fyrir fjall-
göngufólk, en gæta þarf sérstakrar var-
úðar vegna lausagrjóts og sprungins
bergs.
VESTFJARÐAGÖNC
Framkvæmdir við svonefnd Vest-
fjarðagöng hófust í fyrrasumar. Þau
munu tengja saman Isafjörð, Flateyri
og Suðureyri. Göngin liggja í Breiða-
dals- og Botnsheiði og verða alls um
9,14 kílómetrar að lengd. Þau verða
þrískipt með gatnamótum undir Botns-
heiði. Við munnana verða byggðir for-
skálar úr steinsteypu, 7,5 metra breiðir
með tveimur akreinum, 120-180 metra
langir eða alls um 450 metrar. I þá fara
um 3000 rúmmetrar af steypu. Nýir
vegir verða lagðir að göngunum og em
þeir um níu kílómetrar. Alls þarf að
flytja um eina milljón rúmmetra af
jarðvegi vegna ganganna og nýju veg-
anna.
Jarðgöngin leysa af hólmi snjóþunga
og varasama fjallvcgi urn Breiðadals-
heiði og Botnsheiði og stytta auk þess
vegalengdir milli þessara staða nokkuð.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum
ljúki í árslok 1995. Kostnaður er áætl-
aður um þrír milljarðar króna.
PATREKSFJÖRÐUR
Patreksfjörður er rúmlega þúsund
manna kauptún, sem byggir afkomu
sína að mestu á fiskveiðum. Þar er veitt
margvísleg ferðamannaþjónusta. Flug-
völlurinn er handan fjarðaiins í mynni
Sauðlauksdals, þar sem Bjöm Halldórs-
son ræktaði fyrstur kartöflur á Islandi á
18. öld og þar sem séra Þorvaldur, afi
Vigdísar forseta, þjónaði sem prestur.
Nafn fjarðarins og kauptúnsins er af
írskum uppmna og dregið af nafhi Pat-
reks biskups úr Suðureyjum, sem var
helgur maður. Elsta steinhús á Vest-
ljörðum, byggt 1874, er á Patreksfirði.
Það er jafnframt elsta húsið á Patreks-
firði.
TÁLKNAFJÖRPUR
Tálknafjörður er fiskveiðiþorp með
góða höfn í umhverfi fagurra fjalla.
Tálknfirðingar em þekktir fyrir mikla
vömvöndun fiskafurða. Tálknafjarðar-
þorpið hefúr byggst upp á örfáum ára-
tugum og er nú orðið með blómlegri
fiskveiðistöðum Vestfjarða. Skammt
fyrir utan þorpið teygir Sveinseyri sig
næstum yfir fjörðinn og skýlir höfninni
fyrir úthafsöldunni. Þorpið dró um
skeið nafn af Sveinseyri. Úndirlendi er
þama nægilegt fyrir stóraukna byggð.
BÍLDUDALUR
Bfldudalur er útgerðarþorp við sunn-
anverðan Amarfjörð. Þar var fyrrum
aðsetur einokunarverslunar. Atvinnulíf
hefur þar oftast verið blómlegt. Frá
Bíldudal er fagurt útsýni yfir Arnar-
fjörð og til Hrafnseyrar. Heppileg
gönguleið er ffá Bíldudal á Bíldudals-
fjall og Hvestunúp, en þaðan er stór-
kostlegt útsýni. Innar í Amarfirðinum
er Reykjarljörður. Þar er heit útilaug.
Frá Bíldudal er úlvalið að aka út með
Amarfirði. Leiðin er skemmtileg, en
nokkuð seinfarin.
BOLUNOARVÍK
Bolungarvík er mikilvægur útgerðar-
staður, utarlega við vestanvert ísafjarð-
ardjúp, með há og mikil fjöll allt um
kring. Umhverfis Bolungarvík er mjög
áhugavert gönguland, bæði um fjöll og
dali. Upp ffá Bolungarvík er Syðridalur
með Syðridalsvatn þar sem bæði er sil-
ungur og lax. I Bolungarvík er ný og
mjög góð sundlaug með heiúim pottum
og gufubaði.
Golfvöllur er í mynni Syðridals og
stutt er yfir úl Skálavflcur.
ÞINCEYRI
Þingeyri er útgerðarbær undir Sanda-
felli við sunnanverðan Dýrafjörð. Á
Sandafelli er útsýnisskífa. Rétt utan við
Sandafell er flugvöllur. Stutt er frá
Þingeyri til Hrafnseyrar í Amarfirði.
Nokkm utar í firðinum er Haukadalur
þar sem Gísli Súrsson bjó. Frá Hauka-
dal liggur vegur íyrir Sléttanes að Lok-
inhömrum. Vegurinn er mjög mjór og
torfær og getur því verið varasamur
fyrir ókunnuga.
SUÐUREYRI VID SÚOANDA-
FJÖRD
Suðureyri er útgerðarstaður yst við
þröngan fjörð. Byggðarlagið er mjög
einangrað. Þar er jarðhiti og útisund-
laug. Stutt er ffá Suðureyri yfir til Galt-
arvita. í fjarðarbotninum inn af Suður-
eyri og út með firðinum að norðan-
verðu er mjög gróðursælt og gott berja-
land. Flugvöllur er á Suðureyri og flug-
vallarstæðið mjög athyglisvert.
SÚÐAVÍK
Súðavík er lítið útgerðarþorp við
Álftafjörð. Fjallið Kofri setur sérkenni-
legan svip á landslagið. Innar með firð-
inum eru bæirnir Dvergasteinn, þar
sem Norðmenn vom með hvalveiðistöð
fyrr á árum, og Svarthamar, þar sem
Jón Ólafsson Indíafari fæddist. í fjarð-
arbotninum er fallegt og skjólgott úú-
vistarsvæði.
FLATEYRl
Flateyri er útgerðarþorp við Önund-
arfjörð með margháttaðri ferðamanna-
þjónustu. Fjallahringurinn er mikilúð-
legur. Á Flateyri er ný innisundlaug. í
svonefndum Vöðum rétt innan við
Flateyri er sæmileg silungsveiði.
Snemma sumars er vinsælt að stinga
rauðmaga á gmnnsævi inn með firðin-
um. Flugvöllur er í Holti, fyrir botni
fjarðarins. Á seinni hluta síðustu aldar
vom miklir uppgangstímar á Flateyri.
Þá var meðal annars reist hvalveiðistöð
á Sólbakka og mikið íbúðarhús, sem að
úlhlutan Hannesar Hafstein var seinna
flutt úl Reykjavíkur og er nú ráðherra-
bústaðurinn við Tjamargötu.
ÍSAFJÖRÐUR
Isafjörður er nefndur höfuðstaður
Vestfjarða. Hann er langstærsú bærinn
þar. Tvö hundruð ár eru liðin síðan
bærinn hlaut kaupstaðarréttindi og þar
eru mörg fornfræg hús. Tignarlegur
fjallahringur myndar fagra umgerð um
bæinn og veiúr gott skjól. Veðurblíða á
Isafirði verður því oft einstök. Aðalat-
vinnuvegur er útgerð og margvísleg
fiskverkun, en auk þess gegna allar
þjónustugreinar mikilvægu hlutverki,
ekki síst þjónusta við ferðamenn.
Samgöngur við Isafjörð em góðar í
lofti, á landi og sjó og auðvelt fyrir
ferðamenn að sækja þaðan til allra
hluta Vestfjarða í leit sinni að náttúm-
nautn í unaðsreitum náttúrunnar vítt og
breitt um Vestfirði. Tilvalið er einnig
að halda kyrrn fyrir á ísafirði um lengri
eða skemmri tíma og sinna marghátt-
uðu menningarlífi á staðnum.
HNÍFSDALUR
Hnífsdalur er fiskiþorp við utanverð-
an Skutulsfjörð og hefur verið samein-
að Isafirði. Þar er verkaður úrvals harð-
fiskur og hákarl.
DRANÚSNES
Drangsnes er líúð fiskiþorp við utan-
verðan Steingrímsfjörð. Grímsey er ris-
mikil fyrir landi.
HÓL/AAVÍK
Hólmavík er stærsta þorp Stranda-
sýslu. Þorpið stendur undir lágu felli
við innanverðan Steingrímsfjörð. Þar er
margvísleg þjónusta fyrir ferðamenn.
Með tilkomu vegar um Steingríms-
fjarðarheiði hefur Hólmavík komist í
alfaraleið.
Á Hólmavfk, eins og annars staðar á
Vestfjörðum, byggist atvinnan aðallega
á ýmiskonar fiskvinnslu og þaðan er
talsverð rækjuútgerð. Sutt er frá
Hólmavík yfir í ísafjarðai'djúp. Lax- og
silungsveiði er í ám í nágrenni Hólma-
vikur.