Pressan - 02.07.1992, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR PKSSMi 2.JÚU 1992
PRESSAN
maAHmwBmssssmBBaamamsmma
Útgcfandi
Blaðhf.
Ritstjóri
Gunnar Smári Egilsson
Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar:
Nýbýlavegi 14, sími 64 30 80
Faxnúmer: 64 30 89
Eftir lokun skiptiborðs:
Ritstjóm 64 30 85, dreifing 64 30 86 (60 10 54),
tæknideild 64 30 87, slúðurlína 64 30 90.
Áskriftargjald
700 kr. á mánuði ef greitt er með
VISA/EURO/SAMKORT
en 750 kr. á mánuði annars.
Kjaradómur
afhjúpar æðstu
embættismenn
Það hefur verið hlálegt að fylgjast með því að undanfömu
hvemig æðstu embættismenn ríkisins hafa gert sig að fífli
hver um annan þveran eftir að kjaradómur birti niðurstöður
sínar um stórfelldar launahækkanir þeim til handa.
Hver þingmaðurinn á fætur öðmm hefur stigið fram til að
benda á hversu óvarlegt það geti verið að grípa fram fyrir
hendur kjaradóms í þessu máli, þrátt fyrir að Alþingi eigi sér
afskaplega langa og blóðuga sögu í lagasetningum um laun
annarra stétta. Gott ef dómstóll Alþjóðavinnumálasambands-
ins komst ekki að þeirri niðurstöðu að Alþingi ætti heimsmet í
þeim efnum.
Þingmennimir, og reyndar ráðherrar einnig, hafa l£ka þrá-
stagast á því að niðurstaða kjaradóms komi á réttum tíma,
sjálfsagt til þess að láta í veðri vaka að niðurstaðan sjálf væri
ekki algeggjuð.
Forseti Alþingis hreykti sér af því á mánudagsmorgni að
hún væri á leið til vinnu og vildi nota það sem rök fyrir hátt í
100 prósenta launahækkun sér til handa. Þessi rök em fyrir of-
an skilning þeirra sem hlustuðu á forsetann í bflnum á leið til
vinnu og höfðu þurft að sætta sig við 1,7 prósenta hækkun
þrátt fyrir að hafa mætt til vinnu alla daga.
Meira að segja biskupinn lét hafa sig í að halda þakkarávarp
til kjaradóms í fréttatíma Stöðvar 2 þar sem hann þakkaði
dæmendum hlýhug í garð eiginkonu sinnar.
Niðurstaða kjaradóms hefur því orðið til þess að megnið af
æðstu embættismönnum ríkisins hefur afhjúpað sig sem eig-
inhagsmunaseggi. Síðustu daga hafa þeir barist harðri baráttu
fyrir að fá að halda gjöfmni frá kjaradómi þrátt fyrir að öllum
sé ljóst, og þeim einnig, hversu ósanngjöm hún er.
Ein rökin sem notuð hafa verið em þau, að þar sem ráðu-
neytisstjórar lækki sé allt í lagi að hækka ráðherra. Það komi í
sama stað niður fyrir ríkið. I framhaldinu má spyija: Er þá
ekki best fyrir ríkið að lækka ráðuneytisstjórana en sleppa því
að hækka ráðherrana? Þá græðir ríkið.
Það er í raun hlálegt að hlusta á ráðherra tala á léttu nótun-
um um samningsbrot á ráðuneytisstjómm sínum á sama tíma
og brúnin þyngist á þeim þegar kemur að því að draga úr eigin
launahækkunum. Munurinn er þó sá að ráðuneytisstjóramir
réðu sig til starfa gegn því að fá yfirvinnu en ráðherramir sótt-
ust eftir embættum sínum á þeim kjömm sem áður giltu.
Með niðurstöðu sinni hafa dæmendur í kjaradómi sannað
sig óhæfa til að ákvarða laun æðstu yfirmanna ríkisins. Fyrsta
verk ríkisstjómarinnar á að vera að leggja dóminn niður og
finna aðra aðferð til að ákvarða laun jjeirra starfsstétta sem
hafa heyrt undir dóminn. Næsta verk er að hnekkja síðustu
niðurstöðu dómsins. Þetta eiga ráðherramir að gera með bros
á vör en ekki tvístígandi, eins og þeir hafa verið undanfama
daga.
Ef óáran hellist yfir þjóðina er sjálfsagt að setja lög til að
stemma stigu við þeim eða grípa til annarra aðgerða. Þetta á
við um niðurstöður kjaradóms eins og aðrar hremmingar.
V I K A N
DÓMUR NR. 1
Fyrsti dómur vikunnar
var yfir íslenska ríkinu.
Mannréttindadómstóllinn
komst að þeirri niðurstöðu
að Þorgeir Þorgeirsson rit-
höfundur væri ekki kver-
úlant heldur væri eitthvað
meira en lítið bogið við
lagaskilning dómaranna
við Hæstarétt Islands. Þar
með fékk Þorgeir loks upp-
reisn æru eftir að hafa bar-
ist einn síðan snemma á
síðasta áratug fyrir að
mega segja það sem hon-
um finnst um lögguna.
Jafnvel þær stéttir senr helst
hefðu átt að styðja Þorgeir,
blaðamenn og rithöfundar,
sendu honum stuðningsyfirlýs-
ingar með hangandi hendi.
Blaðamönnum tókst það ekki
núna síðast fyrr en eftir harðar
deilur. Stór hluti fundarmanna á
aðalfundi félagsins taldi Þorgeir
ruglaðan og það væri fyrir neð-
an virðingu félagsins að styðja
málstað hans opinberlega.
DÓMUR NR. 2 & 3
Það vom dómamir sem ekki
voru dæmdir í úrslitaleiknum í
Evrópukeppninni í fótbolta.
Fyrst tækluðu Danir Þjóðverja
gróflega, komust upp með það
og skoruðu. Síðan tóku þeir bolt-
ann með höndum, komust upp
með það og skoruðu aftur. í
hvomgu tilfellinu fann dómarinn
nokkra ástæðu til að flauta.
Með því færði hann Dönum
Evróputitilinn, tók ffamlenging-
una af áhorfendum og tryggði að
fréttimar fæm í loftið á réttum
tíma.
DÓMUR NR. 4
Fjórði dómur vikunnar var
niðurstaða kjaradóms um að
HVERS VEGNA
Er Helgu Kress stœtt á því að
sitja áfram sem formaður
stjórnar Menntamálaráðs?
JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON LÖGMAÐUR SVARAR
Spumingin er kannski ekki al-
veg rétt orðuð, því Helga neitar
að taka á dagskrá tillögu um nýj-
an formann. Atvik málsins em
þau, að í fyrsta lagi var í vor þá-
verandi formaður, Bessí Jó-
hannsdóttir, settur af með
ákvörðun meirihluta ráðsins. Þá
tók Helga Kress þátt í að lýsa
vantrausti á formanninn með
meirihlutanum. Hann kaus síðan
nýjan formann, Helgu Kress.
I öðm lagi kýs Alþingi nýjan
aðalmann í ráðið í stað þess sem
fór. Þá myndaðist nýr meirihluti
sem vill að formaður og varafor-
maður verði settir af. A fundi
með ráðinu neitar Helga Kress
að taka málið á dagskrá og slftur
fundi. Hún ber því við að tillag-
an sé órökstudd. Það er út í blá-
inn að segja það, því það þarf
ekki að rökstyðja tillögur sem
bomar em fram í svona ráði.
Helga hefur síðan neitað ósk
meirihlutans um nýjan fund,
sem er ekkert annað en löglaust
ofríki. Hún á að halda fund þeg-
ar beðið er um það og taka upp
þær tillögur sem fram em bom-
ar. Það em heldur engin rök fyrir
því, sem hún hefur viljað segja,
að það skipti engu máh hver sé
formaður ráðsins. Hún er ein af
þeim sem hafa tekið ákvörðun
um formannsskiptin og til hvers
að hafa formann sem hefur ekk-
ert að segja? Menningarráð ér
líka póhtískt kosið ráð og því er
eðlilegt að ríkisstjómarflokkam-
ireigi formanninn.
hækka forseta Alþingis um tæp
100 prósent í launum ásamt
nokkrum öðmm af helstu emb-
ættismönnum ríkisins. Á móti
lækkaði dómurinn laun ráðu-
neytisstjóra, Davíðs Á. Gunnars-
sonar, forstjóra Ríkisspítalanna,
og Ólafs Ólafsonar landlæknis.
Þessir menn munu hafa haft svo
svakaleg laun að nokkur lækkun
þeirra dugði til að hífa allveru-
lega upp laun allra æðstu manna
ríkisins.
DÓMUR NR. 5 OG UPPÚR
Og í gær stálu dómamir enn
senunni þegar Héraðsdómar
Reykjavíkur, Reykjaness og
annarra landshluta tóku til starfa.
Þar með hefur framkvæmda- og
dómsvald verið aðskilið á ís-
landi en upphaf þess máls má
rekja til sama Mennréttindadóm-
stólsins og setti ofan í við Hæsta-
rétt í upphafi vikunnar. Sá dóm-
stóll er því nokkurs konar upp-
haf og endir alls þessa viku.
...það þarf ekki
að rökstyðja til-
lögur sem born-
ar eru fram í
svona ráði
>Ai> ERU ALLTAF E.'NHVERJÍR VANPftÆPAGEAAt-.isío sEM
Koná5T AÐ þvf HVAO HÉe EA IAM AÞ VERA 1 S.'ÐAST VAK
>AÐ ÞEíS/' GAUTAAA EN víð óatum NoTFÆRT
, „ , -r » _ av °KKUR MÞ 1
Ví-Ð ERum Nw Hi«EinT
EKKi ALVFG KtÁRlfe Á
HvaÐ GEHðdR HÉk Á ?!
p
Vii> HolPum sÁí-ia/m 'f\ LíW í EÍHs(co/\/Af
HÁlFDAuÐAÁSTANDÍ o& Tokuaa uPp
HUÍMyNÞÍR ÞEiAíZA UM DAUÐANN
I VON UM EÍNHVERja VÍS5ENDÍNGU
Wi' VÍD ERríM LÍKA A& i-EÍrA APSVARi
VÍÐ GU&ÓL yKKAR HAHÍ ER
ALLT GEZT { Sn/EKMpei ÁWND AF
SPAE.NA&AR.ÁSTÆÐUM WÍ ÞAÐ ERvA
EKKi ENPALAUST TÍL PENÍNGAI2 j
HAH - \ EÍTT SKÍPT|*Ð VORU S.VAKA (CENAliWGAP. UM H.’Mi/V-
TUNGL ÖG- GANG- ÞE.ÍC.PA ÞEÆAP FÓLKi'P PJo PABA OFAN
í ÓSICU.E.AF:(CA OGr HÉlPU A£> GLÓOiN í VÍMDLiNUM HAríS
JAPFA rÆJCNÍMANNS VÆPi SÓL Ofr AÐ GLo&iM t ReIT-
UNN\' HENMPiR PÍöK/iA RÆStíNFARKoMU. VÆÍA' L
OG Svo VAR REyKUPÍNN AF ÖLLia Sanyw KAllaímR SKW O