Morgunblaðið - 13.06.2004, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 27
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
París
17. og 24. júní
frá kr. 9.930
Ein rómantískasta borg Evrópu, áfangastaður elskenda á öllum aldri.
París er líka borg nýjunga, einstakra listviðburða og skemmtana.
París höfðar til listunnenda og allra þeirra sem hafa áhuga á tísku,
hönnun byggingarlist og góðum mat.
Kr. 9.930
Flug, önnur leiðin og flugvallarskattar.
Aðeins 50 sæti í boði
Val um úrval hótela
í miðborg Parísar frá kr. 3.900
á mann nóttin í tvíbýli.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
50
17
0
6/
20
04
www.urvalutsyn.is
Trygg›u flér bestu k
jörin
og bóka›u strax á n
etinu!
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur, fer›ir til
og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Barnaafsláttur 11.000 kr.
Ver›i› er netver›. Bóka flarf og grei›a sta›festingargjald,
e›a fullgrei›a fer› á netinu. Ef bóka› er símlei›is e›a á
skrifstofu, grei›ist bókunar- og fljónustugjald, sem er
2.000 kr. á mann.
Elisso
44.900kr.*
Örfáar íbú›ir á tilbo›sver›i
– N‡legar, einfaldar en vel
búnar íbú›ir og stúdíó me› loftkælingu (gegn gjaldi),
sundlaug og snakkbar. Gó›ur kostur fyrir flá sem vilja
vera í návígi vi› i›andi mannlíf í Platanias.
á mann m.v. þrjá í íbúð í eina viku.
Aukavika 13.800 kr. á mann.
49.900kr.*
á mann m.v. tvo í stúdíói í eina viku.
Aukavika 18.700 kr. á mann.
Sumartilbo› 21. júní, 28. júní, 5. júlí, 12. júlí og 19. júlí
Í marsmánuði voru liðin 60 ár fráþví er Loftleiðir voru stofnaðar.Af því tilefni lét Snorri Snorra-son málarann W. Hardy mála
þessa sögufrægu mynd af vélinni yfir
Vatnagörðum, þar sem bækistöð fé-
lagsins var til húsa. Sigurður Ólafs-
son flugstjóri, handhafi flugskírteinis
nr. 6, einn af þremur stofnendum
Loftleiða, heldur á ljósmynd af mál-
verkinu, sem Snorri lét mála, en Sig-
urður er nú 89 ára gamall.
Þegar dró að lokum heimsstyrjald-
arinnar síðari og strax eftir að hild-
arleiknum lauk, varð mikil gróska í
íslenskum flugmálum. Íslendingar
höfðu eignast 20 sæta flugbát af
gerðinni Catalina og farið fyrsta
millilandaflug sitt með farþega sama
árið og styrjöldinni lauk. Margir ung-
ir menn höfðu verið við flugnám í
Kanada allt frá 1941 og síðar í Banda-
ríkjunum. Meðal þeirra sem komið
höfðu heim frá námi í Kanada í lok
ársins 1943 voru Alfreð Elíasson,
Kristinn Olsen og Sigurður Ólafsson.
Áður voru þá komnir heim og teknir
til starfa hjá Flugfélagi Íslands, Jó-
hannes R. Snorrason og Magnús
Guðmundsson.
Alfreð, Kristinn og Sigurður höfðu
fyrir brottför frá Kanada fest kaup á
eins hreyfils, fjögurra sæta flugvél af
gerðinni Stinson Reliant og flugu
henni til New York, þaðan sem þeir
tóku sér far með hana sjóleiðis til Ís-
lands. Þegar heim kom voru flot, til
lendingar á vatni, sett undir flugvél-
ina í stað hjóla, og fékk hún einkenn-
isstafina TF-AZX. Þetta varð upp-
hafið að Loftleiðum hf., sem voru
formlega stofnsettar í marsmánuði
1944.
Þessi fyrsta flugvél Loftleiða var
notuð til flutninga innanlands, að
mestu til Vestfjarða, og svo til síld-
arleitar sumarið 1944, með aðstöðu
við Miklavatn í Fljótum. Það óhapp
varð síðsumars á Miklavatni, að flug-
vélin fauk á hvolf í hvassviðri og
skemmdist svo að hún varð ekki end-
urbætt.
Haustið 1944 fór Sigurður Ólafs-
son flugstjóri vestur um haf, keypti
aðra Stinson Reliant-flugvél sem var
flutt sjóleiðina til landsins um haust-
ið, og var henni reynsluflogið hér í
nóvember. Í þessari sömu ferð keypti
Sigurður fyrsta Grumman Goose-
flugbát Loftleiða og flaug honum
heim til Íslands um Labrador, Nars-
arssuaq og afskekktan herflugvöll á
Austur-Grænlandi, sem er skammt
frá Kulusuk og nefnist Ikateq.
Síðari Stinson-flugvél Loftleiða
var skráð með einkennisstafina TF-
BZX og síðar TF-RVB. Hún var höfð
á flotum að sumarlagi en á hjólum um
vetrarmánuðina. Mörg sumur var
Stinson-flugvélin við síldarleit fyrir
Norðurlandi, og var bækistöðin að
jafnaði við Miklavatn. Nokkrir flug-
virkjar keyptu síðan þessa flugvél ár-
ið 1950. Hún var síðar notuð í far-
þegaflug milli Akraness og Reykja-
víkur í tvö sumur, en lent var í
fjörunni við Akranes. Um 1956 var
Stinson-flugvélin ekki lengur í flug-
hæfu ástandi, og 1967 skemmdist hún
í hvassviðri á Reykjavíkurflugvelli og
var ekki endursmíðuð.
Stinson-flugvélarnar þóttu
skemmtilegar og liprar í meðförum
og fallega gerðar. Flugvélar Loft-
leiða voru málaðar bláar með gula
vængi, en fyrsta Stinson-flugvélin
var rauðmáluð af öryggisástæðum
vegna styrjaldarinnar.
Stinson-flugvél
Loftleiða TF-RVB
Rúm 60 ár eru nú liðin frá
því Loftleiðir voru stofnaðar
og var fyrsta flugvél fyrir-
tækisins fjögurra sæta og af
gerðinni Stinson Reliant.
Þeir Jóhannes R. Snorrason
og Snorri Snorrason fjalla
hér um sögu fyrstu flugvéla
fyrirtækisins.
Stinson-flugvél Loftleiða, sem málarinn W. Hardy málaði. Eini núlifandi stofn-
andi Loftleiða, Sigurður Ólafsson, heldur á málverkinu TF-RVB. Eins og sést er
myndin máluð af vél á flugi yfir höfuðborginni með Esjuna í baksýn. Sigurður
var handhafi flugumferðarskírteinis nr. 6.
Höfundar eru bræðurnir og flugmenn-
irnir Jóhannes og Snorri Snorrasynir.